Alþýðublaðið - 14.01.1975, Síða 1
ELDSVOÐI HJÁ FLUGFÉLAGINU
Laust fyrir klukkan 19 i
gær kom upp eldur i flug-
skýlisbyggingu Flugfé-
lags Islands á Reykja-
vikurflugvelli. Eldurinn
kom upp i útbyggingu,
þar sem voru verkstæðis-
deild félagsins, trésmiða-
verkstæði og eldhús
mötuneytis. 1 verkstæðis-
deildinni var meðal ann-
ars allur varahlutalager
fyrir vélar félagsins bæði
i Fokkervélarnar og þot-
urnar. 1 flugskýlinu voru
ein af Fokkervélunum,
TF FIM, litil vél TF ROS
og nokkrir hreyflar.
Slökkvistarfi var að
miklu leyti lokið um kl.
22. Þá var flugskýlis-
byggingin fallin að
mestu. Tekist hafði að
bjarga flugvélunum og
hreyflunum, en það sem
var i útbyggingunni er
væntanlega ónýtt.
Rétt við flugskýlis-
bygginguna er vörumót-
taka og vörugeymsla. Allt
var flutt úr þeirri bygg-
ingu. Hana tókst að verja
svo og farþegaafgreiðslu
félagsins skammt frá.
alþýðu
ÞRIÐIUDAGUR
14. janúar 1975 - 10. tbl. 56. árg.
Aðstaðan fyrir Akra-
borgina í Reykjavíkur-
höfn kostar 50-60 millj.
BORGIN VILL
RÍKISFRAMLAG
„Fjármagnsvöntun
stendur þvi enn i vegi, að
endanleg ákvörðun liggi
fyrir um varanlega að-
stöðu fyrir Akraborgina
nýju hér i Reykjavikur-
höfn”, sagði Gunnar Guð-
mundsson, hafnarstjóri, i
viðtali við Alþýðublaðið.
Aæt un um fram-
kvæmdir liggur fyrir hjá
hafnarstjórn og er þess-
ari varanlegu aðstöðu
ætlað rúm austan við
Ægisgarðinn fram undan
verbúöunum og Hafnar-
buðum.
Þegar Hafnarstjórn
Reykjavikur hafði fyrir
sitt leyti tekið þessa
framkvæmd inn i sina
áætlun, var leitað eftir
þvi við Samgönguráðu-
neytið, að það beitti sér
fyrir rikisframlagi til
verksins. Ekki er þó gert
ráð fyrir sérstakri fjár-
veitingu á fjárlögum
rikisins fyrir 1975 i þessu
skyni.
OBREYTT VEDUR UT VIKUNA?
„Veður mun haldast að mestu leyti
óbreytt að minnsta kosti fram á föstu-
dag, þó að líklegt sé, að ofsinn hafi náð
hámarki,” sagði Eyjólfur Þorgeirsson
hjá veðurstofunni á Keflavikurflug-
velli, þegar Alþýðublaðið spurði hann
hvort von væri betra veðurs næstu
daga. Eyjólfur sagði ennfremur. „í
kjölfarið á þessari lægð, sem nú er að
ganga yfir, kemur önnur frá Bret-
landseyjum, og mun hún hafa svipuð
áhrif á veðurfarið, og sú, sem nú er i
gangi. Hann mun þvi ganga á meö
austanátt út vikuna”.
AD REKA EINN VOLKSWAGEN
KOSTAR VOLKSWAGENVERÐ '72
Það kostar kr. 347.258,00
að reka Volkswagen 1303 i
eitt ár, sagði Sveinn Odd-
geirsson, framkvæmda-
stjóri Félags Islenskra
Bifreiðaeigenda, þegar Al-
þýðublaðið spurði hann
hvað kostaði nú orðið að
reka bil. Hann sagði enn-
fremur. „Inn i þessari tölu
eru allir þeir útgjaldaliðir
sem koma til greina, t.d.
viðhald, dekk, smurnings-
kostnaður og fleira. Af
þessari upphæð nemur
bensinkostnaðurinn 89.760
krónur. Þetta er svipuð
upphæð sem þarna er
lagður út i rekstur Volks-
wagensins, og borga hefði
þurft fyrir hann fyrir um
tveim árum siðan. Til
samanburðar má geta
þess, að þann 14. apríl 1974,
kostaði 285,728 kr. að reka
sömu tegund af bil.
MÆNUSÓTTARBÚLUSETNING
ónæmisaðgerð fyrir fullorðna gegn mænusótt fer
nú fram alla mánudaga kl. 16.30-17.30. Fólk er vlnsam-
lega beðið um að hafa með sér ónæmisskirteini.
Ónæmisaögerðin er ókeypis.
PELICAN í
UPPTÚKU
TIL USA
HLJQM-
LEIKA-
FERÐj
ATHUGUN
Hljómsveitin Pelican er
nú á förum til Banda-
rikjanna, og er ætlunin
að taka þar upp nýja
plötu, og um leið þreifa
fyrir sér með hljóm-
leikahald, og eru tölu-
verðar likur taldar á að
þeir troði einhvers stað-
ar upp á meðan þeir
dveljast vestra. ómar
Valdimarsson, fram-
kvæmdastjóri Pelican
tjáði blaðinu, að ætlunin
væri að ganga ekki frá
hlutunum hálfkláruðum
i þetta skipti, heldur
hafa allt á hreinu, og
eyða sem svaraði 180
klukkustundum i upp-
tökuherbergjunum.
Þetta samsvarar um
það bil fimm vikum ef
miðað er við 40 stundir á
viku. Ómar sagði enn
fremur. „Strákarnir
eru orðnir þreyttir á þvi
að geta ekki gert hlutina
eins vel og hægt er, og
þvi er lagt út i þann gif-
urlega kostnað sem
fylgir óhjákvæmilega
svo löngum tima i
stúdiói. Siðasta plata
var tekin upp á um það
bil 60 timumJBrottfarar-
(fagur hefur verið
ákveðinn 26. janúar, en
kvöldið áður munu Peli-
can halda kveðjudans-
leik i Tónabæ. Pelican
munu verða erlendis i
tvo mánuði hér um bilV
Attu átöppunarstöð?
Smyglmálið mikla
verður nú æ umfangs-
meira, og er þó af
kunnugum talið, að þvi
fari viðs fjarri, að öll kurl
séu komin til grafar.
Rannsókn málsins er að
sjálfsögðu i fullum gangi,
og er engu likara en að
hvert nýtt atriði málsins
hlaði utan á sig enn öðr-
um, eins og snjóbolti, sem
farinn er velta með vax-
andi hraða.
Þykja likur benda til
þess, að fráleitt sé, að allt
það magn, sem þegar er
vitað um að smyglað hef-
ur verið til landsins, hafi
verið boðið fram á ólög-
legum markaði sem 96%
spiritus. Hefur þvi
vaknað sú tilgáta, að hér
hafi verið rekin
blöndunar- og átöppunar-
stöð, og að gífurlegt magn
hafi verið selt sem vodka.
Er nú unnið jöfnum
höndurn að rannsókn
þeirrar tilgátu og frekari
uppljóstrana varðand:
smyglið sjálft og dreif-
ingu þess.
Sendibíllinn fundinn?
Mjög sterkur orðrómur
er á kreiki um, að billinn,
sem mikil leit var gerð að
i Geirfinnsmálinu, sé nú
fundinn.
Sé þetta rétt, má telja
vist, að fram sé komið, að
reynt hafi verið að tor-
kenna bifreiðina með þvi
að breyta útliti hennar.
Jafnframt er ljóst, að þá
eru hér fengnar upp-
lýsingar, sem gætu haft
úrslitaþýðingu fyrir lausn
þessa óhugnanlega máls.
Rannsókn i Geirfinns-
málinu er haldið áfram af
fullum krafti, þrátt fyrir
aukið annriki rann-
sóknarmanna þess,
vegna smyglmálsins,
sem uppvist varð um við
þá rannsókn.
Bæði tollgæsla og lög-
regla haga rannsókn eftir
þvi sem hyggilegast er
talið hverju sinni, og
verður ekki dregið i efa,
að góðar og gildar
ástæður liggja til þess, að
ekki tekst daglega að fá
upplýsingar um gang
hennar, en samstarf
þessarra aðila við fjöl-
miðla hefur veriö með
ágætum.