Alþýðublaðið - 14.01.1975, Qupperneq 3
TÍU TILLÖGUR VALDAR ÚR HUNDRUÐUM FYRIR GÆÐAMERKI Á ÍSL. IÐNAÐARÚTFLUTNINGSVÚRUM
URSLITUNUM
SKOTIÐ TIL
ALMENNINGS
Um 300 manns hafa sent inn
600-800 tillögur i verðlaunasam-
keppni útflutningsmiðstöðvar
iðnaðarins, Félags islenskra
iðnrekenda og Félags islenskra
teiknara, um gæðamerki fyrir
islenskar iðnaðarvörur til út-
flutnings. Sérstök dómnefnd
hefur nú valið úr 1Ó bestu til-
lögurnar, en fram til mánu-
dagsins 3. febrúar n.k. gefst öll-
um almenningi kostur á að taka
þátt i vali þeirra þriggja
merkja, sem verðlaun hljóta i
samkeppninni.
Næstu daga mun Útflutnings-
miðstöð iðnaðarins kynna til-
lögurnar 10, sem dómnefndin
hefur valið, i dagblöðunum, og
munu atkvæðaseðlar fylgja
auglýsingunum. Þá verður um
næstu helgi efnt til sýningar i
Norræna húsinu á öllum þeim
tillögum, sem borist hafa i sam-
keppninni.
Samkeppnin hófst um miðjan
september s.l. Og var upphaf-
lega gefinn frestur fram til 25.
október til að skila tillögum. Að
þeim fresti liðnum höfðu borist
tillögur frá um 220 manns. En
þar sem dómnefnd þótti auðséð
af úrlausnunum, að þátttakend-
unum hefði ekki gefist nægjan-
legur timi til að fullgera tillögur
sinar, var ákveðið að fram-
lengja frestinn fram til ára-
móta.
Um áramót höfðu um 300
manns sent inn 600-800 tillögur
og er hér um metþátttöku i
slikri samkeppni að ræða. Sem
dæmi má nefna, að samkvæmt
upplýsingum Félags islenskra
teiknara er algengast, að um
100 manns taki að jafnaði þátt i
samkepþni af þessu tagi, en
undantekning mun vera sam-
keppni á vegum Þjóðhátiðar-
nefndar, en i henni bárust alls
170 tillögur.
Dómncfnd f samkeppni um gerð gæöamerkis.
Talið frá vinstri. Helga B. Sveinbjörnsdóttir, Jón Sigurðsson,
Björnsson, Orri Vigfússon og Gunnar Árnason.
formaður nefndarinnar, Gisii B.
A blaðamannafundi hjá út-
flutningsmiðstöð iðnaðarins i
gær kom fram, að það hafi lengi
verið ósk islensks útflutnings-
iðnaðar, að til væri sameigin-
legt tákn, sem nota mætti á um-
búðir eða til auðkenna vörur
með á annan hátt, sem gæfi til
kynna, að viðkomandi vara hafi
hlotið viðurkenningu fyrir gæði.
1 skýrslu sérfræðinga Við-
skiptastofnunar Sameinuðu
þjóðanna (UNCTAD), sem
störfuðu hér á landi á árunum
1971-1973, er m.a. bent á
nauðsyn þess, að islenskar
iðnaðarvörur hafi sameiginlegt
gæðatákn, sem sérstök gæða-
nefnd veitti. Slikt gæðamerki
hefði tviþættan tilgang. Við
framleiðslu vöru yrði það hvati
til gæðaeftirlits og leiddi þvi til
aukinna vörugæða. Á
markaðinum litu neytendur á
slikt merki sem tryggingu um
gæði vörunnar.
Til þess að kveða á um notkun
merkisins, sem endanlega
verður valið sem gæðamerki is-
lensks útflutningsiðnaðar mun á
næstunni verða skipuð sérstök
nefnd. Er ætlunin, að nefndin
fylgist m.a. með þvi, að gæði
vörunnar haldist hin sömu, eftir
að notkun gæðamerkisins hefur
einu sinni verið heimiluð.
Þetta eru þær tlu tillögur, sem dómnefndin hefur valiö úr hinum 600-800 tiilögum, sem bárust I
samkeppninni um gæðamerki útflutningsiðnaðarins. Nú gefst öllum almenningi kostur á að veija þau
þrjú merki, sem verðlaun hljóta. Eitt þessara merkja verður væntanlega I framtiðinni sönnun um vöru-
gæði isiensks iðnaðar.
Tilboð óskost í
nokkrar fólksbifreiðar er verða sýndar
að Grensásvegi 9, þriðjudaginn 14. janúar
kl. 12-3.
Tilboðin verða opnuð á skrifstofu vorri kl.
5.
Sala Varnarliðseigna.
Hjúkrunarkona
Óskum að ráða hjúkrunarkonu sem fyrst.
— Upplýsingar gefur forstöðukona i sima
66200 milli kl. 14.00 og 15.00
Vinnuheimilið að Reykjalundi
LYFTUGJALD KOMIÐ
Á í BLÁFJÖLLUNUM
A fundi borgarráðs Revkja-
vikur s.l. þriðjudagvar samþykkt
tillaga um aðgangseyri að siuða-
lyftum borgarinnar I Bláfjöllum
og Hveradölum.
Jón G. Tómasson, skrifstofu-
stjóri á skrifstofu borgarstjórans
i Reykjavik, tjáði blaðinu að
hingað til hafi verið tekinn sér-
stakur aðgangseyrir af þeim, sem
notað hafi skiðalyftur borgar-
innar i Hveradölum, en skiða-
lyftur i Bláfjöllum koma fyrst i
gagnið á þessum vetri.
Skiðaiðkendur sem notfæra sér
skiðalyfturnar i skiðalandi
borgarinnar, geta keypt sér kort
með mismunandi mörgum
miðum, en hver lyftuferð kostar
15 krónur.
Félagsmenn i skiðafélögum
munu eiga þess kost að kaupa
árskort, sem eru ódýrari.
Spónaplötur
fyrirliggjandi
Stærðir:
1220x2600 mm 12/16/18 mm
pressa 720 kg
1220x2840 mm 12 mm pressa 630 kg
1830x2840 mm 19 mm
Rakavarðar spónaplötur:
1220x274512/19 mm pressa 650 kg
Iðnvélar,
Hjallahrauni 7, Hafnarfirði,
simi 52263.
Þriðjudagur 14. janúar 1975.
9