Alþýðublaðið - 14.01.1975, Blaðsíða 5
Útgefandi: Blað hf.
Ritstjórar: Freysteinn Jóhannsson (ábm.)
Sighvatur Björgvinsson
Auglýsingastjóri: Fanney Kristjánsdóttir
ASsetur ritstjórnar: Skipholti 19, simi 28R00
Auglýsingar: Hverfisgötu 8 -10, simi 28660 og 14906
Afgreiðsla: Hverfisgötu 8—10, simi 14900
Prentun: Blaðaprent
DRAUGSRÖDDIN DIMMA
Stjórnmálaskriffinnar Morgunblaðsins eru nú
smátt og smátt að færa sig upp á skaftið. Gamla
ihaldshugarfarið er farið að skina i gegnum
skrif þeirra um kjaramálin og þá einkum og sér
i lagi þegar þeir vikja að forystumönnum verka-
lýðssamtakanna. Dæmi um skrif i þessum anda
er að finna i Reykjavikurbréfi þvi, sem birtist i
Morgunblaðinu s.l. sunnudag. Þar ræðst
höfundur bréfsins, með brigslum og svigur-
mælum á Jón Sigurðsson, formann Sjómanna-
sambands íslands. Rætt er um, að Jón
Sigurðsson hafi i hótunum, enda hafi hann
atvinnu af þvi að standa i kjaradeilum og virðist
ekki hafa af þvi miklar áhyggjur, þótt atvinnu-
vegir þjóðarinnar yrðu stöðvaðir og fólkinu
varpað út i hörmungar kjaraskerðingar og
atvinnuleysis. Þannig ræðir Morgunblaðið um
einn virtasta og langreyndasta forystumann
islenskra launþegasamtaka og velur sér það
tækifæri til þess að brigsla honum um ábyrgðar-
leysi og siðleysi þegar viðræður eru að hefjast
milli atvinnurekenda og þeirra launþega, sem
hafa valið Jón Sigurðsson tii forystu fyrir sér.
Árásin á Jón Sigurðsson, sem gerir það eitt að
framfylgja samþykktum þeim, sem sjómanna-
samtökin hafa gert, er þvi ósvifin árás á
samninganefnd sjómannasamtakanna og
sjómenn sjálfa. Þannig telur málgagn forsætis-
ráðherra sér sæma að tala til sjómanna i þann
mund, sem viðkvæmir samningafundir eru að
hefjast, sem áreiðanlega munu fyrr eða siðar
koma til kasta rikisstjórnarinnar með einum
eða öðrum hætti. Morgunblaðið er sem aðal-
málgagn rikisstjórnarinnar að senda sjó-
mönnum orð um það þegar i stað. hvaða augum
það litur á kröfur þeirra og þá menn, sem
sjómannasamtökin hafa valið til þess að fylgja
þeim fram við atvinnurekendur og stjórnvöld.
Jón Sigurðsson, formaður Sjómannasam-
bands íslands, hefur alla ævi sina staðið i
baráttu fyrir hag sjómannastéttarinnar i
landinu. Á löngum ferli hans sem forystumaður
þeirrar stéttar hefur hann mátt sæta miklu
aðkasti, svigurmælum og beinum, persónu-
legum árásum af hálfu bæði Morgunblaðsins og
annarra ihaldsafla. Þær árásir hefur Jón
Sigurðsson staðið af sérognýjastaárás Morgun-
blaðsins á hann mun ekki bera tilætlaðan
árangur frekar en hinar fyrri. Jón Sigurðsson
starfar nú sem jafnan fyrr að hagsmunamálum
sjómannastéttarinnar, en ekki Morgunblaðsins,
og dónalegar árásir Morgunblaðsins á hann
fyrir það munu aðeins efla stuðning sjómanna
við samninganefndarmenn sina.
Morgunblaðið telur ástæðu til þess að fara
brigslyrðum um það, að samtökum launþega
skuli hafa vaxið svo fiskur um hrygg, að þau
skuli geta greitt starfsmönnum eins og Jóni
Sigurðssyni laun — þótt þessir menn hafi árum
saman unnið að hagsmunamálum umbjóðenda
sinna án þess að þiggja eyri fyrir. Morgunblaðið
segir slika menn ,,hafa atvinnu af þvi að standa
i kjaradeilum” og þykir ljótt. En hver er
ástæðan fyrir þvi, að Morgunblaðið ræðst ekki
með sama hætti að starfsmönnum vinnu-
veitenda, t.d. þeim, sem starfa i höll VSl við
Garðastræti og þiggja góð laun fyrir. Hafa þeir
ekki lika atvinnu af þvi að standa i kjara-
deilum? Eða þykir Morgunblaðinu það vera
meira réttlætismál að umbuna þeim, sem
berjast á móti kjarabótum, en hinum, sem
berjast fyrir málstað launafólksins?
alþýðu
i k iiii]
FRÁ ALÞINGI
Rökin eru fá
SAGÐIJÓN ÁRM. HÉÐINSSON UM ÚTVARPSFRUMVARPIÐ
Eitt af þeim málum, sem rikis-
stjórnin lagði fyrir Alþingi i haust
og lögð var mikil áhersla á að fá
afgreitt fyrir jólin, var frumvarp
um breytingu á útvarpslögunum
frá 1971. Breytingin er i þvi fólgin,
að i stað þess að útvarpsráð á nú
að kjósa af Alþingi á f jögurra ára
fresti lagði rikisstjórnin til, að
ráðið verði kosið af hverju nýju
Alþingi, en sá háttur var á hafður
áöur en lögin frá 1971 voru sett.
Gerir frumvarp stjórnarinnar ráð
fyrir þvi, að verði breytingin
samþykkt taki hún þegar i stað
lagagildi þannig, að kosið yrði i
útvarpsráð af þvi þingi, sem nú
situr — en skv. gildandi lögum
ætti ekki að kjósa i útvarpsráð
fyrr en á næsta þingi, þegar nú-
verandi útvarpsráð hefur setið i
fjögur ár.
Miklar umræður urðu um
frumvarp þetta og tókst ekki að
afgreiða það fyrir jólin, eins og
rikisstjórnin þó ætlaðist til. Af
þingmönnum Alþýðuflokksins
tóku til máls um frumvarpið i efri
deild Jón Armann Héðinsson og i
neðri deild Benedikt Gröndal og
Sighvatur Björgvinsson. Allir
lögðust þeir gegn þvi, að sú
kerfisbreyting yrði gerð á út-
varpslögunum að Alþingi skuli
kjósa nýtt útvarpsráð þegar eftir
hverjar þingkosningar. Þótt
gagnrýni hafi vissulega komið
fram við störf núverandi útvarps-
ráðs þá réttlæti sú gagnrýni það
ekki, að útvarpið verði gert háð-
ara flokkspólitiskum sveiflum i
þjóðfélaginu en það er skv. gild-
andi útvarpslögum. Var einnig
bent á, að með setningu útvarps-
laganna frá 1971 hefði það verið
eitt helsta markmiðið að gera
rikisútvarpið að sjálfstæðari
stofnun, en það heföi verið, og
væri I þvi efni m .a. byggt á lögum
um sambærilegar stofnanir i
næstu nágrannalöndum. Töldu
Alþýðuflokksmennirnir, sem til
máls tóku, gagnrýni þá, sem
fram hefur komið á störf útvars-
ráðs, ekki réttlæta það, að frá
þeirri stefnu yrði horfið og á vit
eldra fyrirkomulags, þar sem
rikisútvarpið og yfirstjórn dag-
skrárgerðar þess var mjög háð
sveiflum i flokkapólitik i landinu.
Frumvarp þetta um breytingu
á útvarpslögunum kom fyrst til
umræðu i efri deild Alþingis og
meðal þeirra, sem þar töluðu, var
Jón Armann Héðinsson. 1 ræðum
sinum þráspurði Jón Armann
menntamálaráðherra m.a. að
þvi, hvort hann teldi, að frum-
varp þessa efnis myndi hafa verið
lagt fram, ef vinstri stjórn hefði
áfram setið við völd.
1 einni af ræðum sinum um
málið sagði Jón Armann n.a.:
Rökin fyrir þessu frumvarpi
hafa verið fá, en aðallega það, að
nauðsyn bæri til þess, að breyta
þvi aftur i gamalt horf, sem stað-
ið hafði rúmlega 20 ár, að kjósa
jafnan nýtt útvarpsráð eftir
hverjar alþingiskosningar og
spegla með þvi pólitiska hreyf-
ingu I landinu og á Alþingi. Ég tel
að hér sé ekki rétt sagt frá. Ég tel
að, ef annar meirihluti hefði
myndast, eins og útvarpsráð er
nú skipað, þá hefði ekki verið
hlaupið upp til handa og fóta,
jafnvel þótt einhver óánægja hafi
veriö með þetta útvarpsráð, og er
það ekki nýtt eins og fram hefur
komið, að mönnum hefur þótt sitt
hvað um störf útvarpsráðs á liðn-
um áratugum, eins og kannske
eðlilegt er, þar sem þetta er stór
stofnun og hefur verið i örum
vexti, átt við þröngan kost að búa
æ ofan i æ, á ekkert fast húsnæði
ennþá ef undan er skilinn einhver
hlutur húsnæðis fyrir Sjónvarpið.
Margt fleira mætti upp telja.
Ég tel þvi, að forsendan fyrir
frumvarpinu sé hreinlega röng.
Ég harma það, að sú þróun, sem
var gerð með lögunum 1971 skuli
ekki fá aðhalda áfram og að þessi
stofnun verði sterkari og sjálf-
stæðari i þjóðfélaginu og sinni
sinu hlutverki þar með betur. Sú
þróun hefur átt sér stað innan
þessarar stofnunar, að hin marg-
vislegustu mál eru tekin þar til
frjálsrar skoðunarmyndunar og
andstæðingar eru dregnir fram
og deila hart jafnvel á stjórnvöld.
Ég sé ekki annað en að það sé
nauðsyn, að þessi stofnun sé þvi
óháð og sjálfstæð og hafi þá sér-
staka stjórn, eða útvarpsráði sé
fengiö aukið vald til þess að þessi
þróun megi halda áfram. Ég held
að allur almenningur i landinu
hafi verið ánægður með þá þróun,
að menn hafi skipst á skoðunum
mjög eindregið með eða á móti
málum eins og gengur og það sé
liðinn timi, að menn þori ekki að
láta hug sinn I ljósi við hljóðnem-
ann. Hins vegar stendur það skýrt
og það á að vera áfram, að stofn-
unin gætir hlutleysis. En ég tel
það vera heilbrigða skoðana-
myndun, ef andstæðingar eru
leiddir fram og þeir eru ábyrgir
fyrir sinni skoðun, þó þeir séu
innan veggja þessarar stofnunar.
Ég tel það alveg eðlilegt og heil-
brigt i nútimaþjóðfélagi, þar sem
frjáls skoðanamyndun fær aö
njóta sin. Ef það er hins vegar
ætlun einhverra manna að hefta
það, að frjáls skoðanamyndun fái
að njóta sin I landinu getur vel
verið nauðsynlegt, að þrengja aö
aftur frá þvi sem viðreisnar-
stjórnin gerði á sinum tima, en þá
mótast það mjög af viðhorfi eins
stjórnmálaflokks I landinu. A það
vil ég leggja sérstaka áherslu. Þá
eru það áhrif frá aðeins einum
stjórnmálaflokki i landinu. Það
ætti öllum að vera ljós eftir þetta.
Það er ekkert nýtt, að stofnun
sem er svona stór eins og rikisút-
varpið, eigi við ýmsa örðugleika
að striða og viðkomandi menn,
sem starfa þar séu óánægðir,
jafnvel með útvarpsráðið eins og
ég drap á áðan. Þvi miður hefur
Alþingi ekki séð sóma sinn i þvi,
að tryggja útvarpsinu sómasam-
leg húsakynni, sómasamlega
starfsaðstöðu og virðist langt I
land ennþá með það. Það hefði þó
verið miklu geðfelldara að sjá
sllkt frumvarp til sóknar, og ég
hefði talið hæstv. menntamála-
ráðherra manna liklegastan til að
móta slikt frumvarp og bæta um
leið hlustunarskilyrði og mot-
tökuskilyrði fyrir allan almenn-
ing út um allt land. Það væri
virkilega ánægjulegt skref og
skref, sem ekki heföi verið staðið
I illdeilendum um hér á Alþingi.
Með hvaða hætti útvarpsráð
skal vera kjörið hefur verið deilu-
atriði gegnum marga áratugi og
einhvern hátt verðum við þar á að
hafa. Núv. útvarpsráð var kjörið
1971 eins og allir vita og er þvi
langliðið þess skeið. Rétt um 3
ára timbil liðið og þess vegna 1 ár
eftir. Eins og fram kom hér I ræðu
3. þ.m. Vestfjarða taldi hann
ástæðulaust, að breyta lögunum
vegna þess, að það tímabil, sem
þessi lög hafa gilt nú er það stutt,
að ekki er komin nein sérstök
reynsla á það. Það eru þvi önnur
sjónarmið, sem liggja þvi til
grundvallar, að það er gert....
Ef við tökum það skref, að fara
að kjósa nýtt útvarpsráð eftir
hverja stjórnarmyndun erum við
komnir út i pólitiska spillingu. Ég
trúi þvi ekki að það sé áhugamál
neins flokks á tslandi. Ég trúi þvi
alls ekki. Engin rikisstjórn er
varanleg, þó hún hafi góðan
meirihluta i upphafi. Það vita all-
ir menn, og ef þetta skref er tekið,
að breyta nú þessum lögum þá er
vel hægt að breyta öðrum i þágu
ákveðins meirihluta i það og það
skiptið. Ég er uggandi um slika
þróun. Ég vænti þvi þess,að þetta
frumvarp fái ekki framgang á yf-
irstandandi þingi og það dagi uppi
nú fyrir jólin þvi það stuölar að
þróun, sem flestir viðsýnir menn
eru á móti hér á Alþingi.
FLOKKSSTARFIÐ
ALÞÝÐUFLOKKSFÉLAG REYKJAVÍKUR
ALÞÝÐUFLOKKURINN OG
VELFERÐARÞJÓÐFÉLAGIÐ
Alþýðuflokksfélag Reykjavikur boðar til almenns
félagsfundar fimmtudaginn 15. janúar n.k. i
Lindarbæ, niðri, og hefst fundurinn kl. 20.30.
FUNDAREFNI:
1. Inntaka nýrra félaga.
2. Alþýðuflokkurinn og velferðarþjóðfélagið.
Sighvatur Björgvinsson alþm., flytur ræðu um
næstu verkefnin.
3. önnur mál. STJÓRNIN
— ------
o
Þriðjudagur 14. janúar 1975.