Alþýðublaðið - 16.01.1975, Blaðsíða 6
Sprengjusérfræðingar í Norður-lrlandi vinna hættulegasta starf í heimi.
Daglegt stefnumót við dauðann
Bniinn, sem vélmennið sprengdi i loft upp,
brennur áður en sérfræðingarnir koma á vett-
vang.
Fórnarlamb sprengjuárásar i Ulster.
Sprengjuárásir eru daglegt brauð
r
f Norður- Irlandi. Menn eru
limlestir og sprengdir í loft upp.
Sprengjusérfræðingar breska
hersins vinna í þessu víti og
eitthvert hættulegasta starf í
heimi er að gera sprengjur
IRA-manna óvirkar. Malcolm
McKenzie-Orr hefur ef til vill
erfiðasta starfið með höndum,
því að hann tilkynnir ekkjunum
lát manna þeirra. Undanfarin tvö
ár hefur hann þurft að gera það
ellefu sinnum.
Ronald Wilkinson höf-
uðsmaður varð þritug-
ur. Hann er einn hinna
mörgu fórnarlamba si-
fellt vaxandi óeirða i
Norður-írlandi sem
falla fyrir sprengjutil-
ræðum.
Fyrir skömmu gat að lesa i
dagblöðum, að 24 hefðu verið
lagðir inn á sjUkrahús vegna
þess, aö tveir vörubilar með alls
225 kiló af dinamiti sprungu i
loft upp i Belfast. 1 Londonderry
tókst sprengjusérfræðingum úr
breska hernum hins vegar að
bjarga mörgum mannslifum
með þvi að gera stærri sprengju
skaðlausa.
Ronald Wilkinson var
sprengjusérfræðingur. Siðasta
verk hans var að gera sprengju
hættulausa, en hann sprakk i
loft upp, þegar hann átti að gera
skaðlausa sprengju, sem sett
hafði verið i bil i Belfast.
Hann var einn af ellefu, sem
látið hafa lifið á tveim árum.
Ronald Wilkinson fékk virðu-
lega útför.
Fáir vita um þessa menn, sem
eru i hættulegustu störfunum á
Noröur-írlandi — ef til vill eru
þeir i hættulegustu stöðum
heimsins. Þess er vel gætt, að
enginn þekki þá, þvi að það er ef
til vill eitt hið mikilvægasta til
þess, að þeir geti haldið lifi.
Þjóðernissinnar — sérstaklega I
Ulster — myndu ella sækjast
eftir lifi þeirra.
Það kemur þó fyrir, að minnst
er á menn þessa i aðalstöðvum
hersins og þá einkum til að
hækka þá i stöðu vegna hug-
rekkis þeirra.
Undanfarin tvö ár hafa 34
menn I þessari deild fengið heið-
ursmerki fyrir störf sin sem
sprengjusérfræðingar, en auka-
laun fá þeir ekki fyrir þessa lifs-
hættulegu vinnu. Liðþjálfi, sem
þarf að vera viðbúinr allan sól-
arhringinn fær sex og hálft
enskt pund á dag eða tæpar 1800
krónur. Wilkinson höfuðsmaður
fékk höfuðsmannslaun eða 2800
ensk pund á ári, sem er á að
giska 790 þúsund krónur.
Ekkjan fær yfirleitt venjuleg-
an ekkjulifeyri, svo að þessir
menn hagnast ekki á vinnu
sinni.
Þeir vinna hvorki fyrir
heiðri né aukaþóknun,
hvers vegna vinna
þeir..?
Hvers vegna vinna þeir svona
hættulega vinnu? Ekki er það
heiöursins vegna. Ekki pening-
anna vegna. Það er óliklegt að
sprengjusérfræöingarnir svari,
ef þessi spurning er lögð fyrir
þá. 16 sérfræðingar voru einu
sinni saman komnir, en þeir
snéru sér undan, þegar ljós-
myndari vildi taka af þeim
mynd. Þeir vilja ekki þekkjast.
Þeir vita, að IRA vill finna þá
I Ulster, sem nú rikir hernaðar-
ástand i. Mennirnir 16 hlógu og
gerðu að gamni sinu, en engum
duldist alvaran, sem að baki lá.
Vináttubönd rofna, þegar
klukkan heyrist tifa.
John Young höfuðsmaður var
26 ára og hafði mikla reynslu að
baki, þegar hann fór til að gera
sprengju skaðlausa i Armagh.
Honum mistókst og hann sprakk
I loft upp. Hann var sá sjötti á
einu ári.
Sömu örlög biðu 39 ára félaga
hans, Bernhards Calladenes,
sem var kvæntur og átti tvö
börn, þegar hann átti að ganga
frá sprengju i bifreið á Welling-
ton street I Belfast.
Stundum geta sprengjusér-
fræðingarnir unnið samkvæmt
kennslubókum, þegar þeir eiga
að gera sprengjur skaðlausar,
en oft verða þeir að eiga i höggi
við nýjustu brögð IRA-manna.
Þeir berjast gegn andstæðing-
um, sem beita ótrúlegri hug-
kvæmni. Tveir liðþjálfar gengu
að bifreiö, sem lagt hafði verið á
götur Belfast-borgar og sprungu
i loft upp, þegar þeir voru í
tveggja metra fjarlægð.
Rólegur ferðamanna-
staður
Yfirleitt er bærinn Pettigo I
Fermanagh rólegur ferða-
mannastaður, en einn daginn
rikti þar umsátur og hatur.
Atta menn óku inn á aðalgötur
bæjarins I stolnum bifreiðum.
Þeir sögðust leita manns, sem
væri I varnarliöi Ulsters. Þann
mann ætti að lifláta!
Maðurinn, sem þeir leituðu,
skaut á þá með vélbyssu og þeir
yfirgáfu bæinn eftir að hafa
skilið tvær sprengjur eftir. Ein
þeirra sprakk i húsvagni, en
hina átti Beckett liðþjálfi að
gera óskaðlega. Þvi miður
heppnaðist það ekki og Beckett
varð 36 ára gamall. Hann lét
eftir sig konu og tvær dætur.
Stundum eru fréttir.um falsk-
ar sprengjuárásir, en það er
alltaf fylgst með slikum tilkynn-
ingum og þær eru allar teknar
jafnalvarlega — af mönnunum,
sem eiga að gera sprengjurnar
óskaðlegar.
IRA-menn komu inn i bilabúð
I Armagh og sögðu starfsmönn-
um að rýma búöina strax, þvi að
þar væri sprengja. Ekkert gerð-
iststrax og þrir menn fóru til að
virða málið fyrir sér. Þá sprakk
sprengjan. Colin Davies dó
samstundis, en félagar hans
tveir brenndust illa.
Okkur langar alla heim
Mennina langar alla heim.
Þeir vilja helst snúa aftur til
herliös sins og ættingja, sem
biöa heima. Stewartson höfuðs-
mann langað sérlega mikið
heim á fjögurra ára afmæli
dóttur sinnar. Hann hafði lofað
aö búa til flugdreka handa
henni.
Hann talaði um þetta við fé-
laga slna kvöldið áður en honum
var falið að gera óvirka
sprengju I húsi I Castlerobin i
nágrenni Lisburn.
Stewartson bjó aldrei til flug-
drekann handa dóttur sinni.
Hann lét hins vegar lifið. Félag-
ar Stewartsons gáfu dóttur hans
flugdrekann.
Það er ekki minnst á
sprengjusérfræðing, sem lætur
lifið við að gera sprengju óvirka
nema einu sinni. Þá er sagt, að
hann hafi verið góður félagi.
Eiginkonurnar þjást mest og
39 ára liðsforingi lýsir lifinu
þannig:
„Konan min er dauðhrædd
um að ég deyi skyndilega. Hún
les ekki dagblöðin, hlustar ekki
á útvarpið og horfir ekki á sjón-
varpið. Hún setti sjónvarpið i
geymsluna, þvi að hún vill ekki
hlusta á fréttir af vinnustað
mlnum. Ég skil hana vel...”
Ef til vill fær Malcolm
McKenzie-Orr erfiðasta hlut-
verkið. Hann er yfirliðþjálfi og á
að segja konunum frá láti eigin-
mannanna.
— Við erum allir eins og ein
fjölskylda og mér þykir alltaf
erfitt að segja konu, að hún sé
orðin ekkja. Þetta er ekki öf-
undsverð staða, hvort sem þið
trúið þvi eða ekki, segir hann.
Velmenntaðir sérfræð-
ingar
Samt sækja alltaf nýir menn
um stöðurnar og láta sig hætt-
una engu máli skipta. Umsækj-
endur þurfa að vera 23ja ára og
hafc venjulega herþjálfun.
Þeir fá ekki að koma nálægt
fyrstu sprengjunni fyrr en eftir
fimm ára þjálfun og nám og
sama máli gegnir um liðsfor-
ingja, sem vilja leggja þetta
starf fyrir sig. Enginn hagnast
þó á þessari hækkun i tign.
Sérfræðingarnir, sem fara til
Norður-Irlands eiga að vinna
allan sólarhringinn. Þeir mega
aldrei fara út af afmörkuðu
svæöi og verða að vera viðbúnir
til að stökkva af stað með tækja-
töskuna hvenær sem er.
Þeir vilja ekki þekkjast, enda
veltur lif þeirra ekki sist á þvi.
IRA-menn sækjast eftir þeim...
Velmenni eins og þetta er eitt mikilvægasta vopn sprengjusérfræðinganna. Hermaður, sem liggur I vari, stjórnar þvl. Vélmennið gerir
gat á rúöuna, skilur sprengju eftir inni og fer meö leiöslurnar til hermannsins, sem kveikir á sprengjunni i góöri fjarlægö.
o
Fimmtudagur 16. janúar 1975.