Alþýðublaðið - 16.01.1975, Side 9
1 •
A 7*
A
r
Lifið getur verið eins og að spila sömu
plötuna aftur og aftur. Væri ekki gaman
að reyna að spila hinu megin? Þarf það að
vera alltaf sama starfið, sömu launin,
sömu áhyggjurnar?
Efastu stundum um hæfileika þina til aö leika nýtt lag?
Sennilega efast þú ekki um sjálfan þig en aörir halda aö þú
gerir það. Ef til vill hikar þú viö þaö aö segja nokkur orö á
fundum, frestar þvi aö taka ákvarðanir eöa mistekst að
túlka skoöun þina á skýran og kröftugan hátt. Þú gætir
veriö aö gefa alranga mynd af þér.
Dale Carnegie námskeiðin hafa þjálfaö meira en 2.000.000
einstaklinga i þvi aö hugsa, framkvæma og taka árang-
ursrikar ákvarðanir og viö höfum uppgötvað aö flestir
einstaklingar hafa miklu meiri hæfileika til aö ná árangri
heldur en þeir sjálfir héldu.
Um þetta fjallar Dale Carnegie námskeiöiö — kenna þér
aö komast áfram á eigin hæfileikum.
Nú, ef þú vilt spila hina hliöina á plötunni okkar, þá er inn-
ritun og upplýsingar i sima 82411
Stjórnunarskólinn
Konráð Adolphsson
Hvernig tekst FH-ingum upp á laugar-
daginn þegar þeir mæta
A-Þýsku meisturunum
„Við ætlum okkur að vinna leikinn,
■ > » ■ I • * veröur undanleikurog leika þar 3.
en það verður ekki auðvelt
Tryggvi Harðarson
Þórarinn Ragnarsson
Guömundur Stefánsson
Leika þeir Tryggvi og
Guðmundur þarna sina fyrstu
leiki i Evrópukeppninni i hand-
knattleik.
Leikinn dæma dómarar frá
Noregi Larsen og Bolstad, en þab
eru sömu dómararnir sem
dæmdu leik okkar við Saab hérna
heima og fengu þeir mjög góöa
dóma fyrir frammistöðu sina i
þeim leik.”
„Við erum staðráðnir i þvi að
sigra i leiknum á laugardaginn”,
sagði Birgir Björnsson þjálfari
FH á blaðamannafundi i gær i til-
efni af leik FH og a.-þýsku
meistaranna ASK Vorwarts
Frankfurt á laugardaginn. En FH
er nú komið i 8 liða úrslit i
Evrópukeppninni i handknattleik
og er þetta fyrri leikur liöanna.
Seinni leikurinn er fyrirhugaður
1. febrúar i A-Þýskalandi.
Geir Hallsteinsson hefur átt stóran þátt I velgengni FH f Evrópukeppn-
inni og hefur nú gefib kost á sér i landsliöiö aftur. Veröur gaman aö sjá
hvernig honum tekst upp á laugardaginn.
Ólafur Einarsson
laus úr leikbanninu
og leikur með FH á laugardaginn
Ólafur Einarsson I FH fær nú
að leika með aftur eftir leik-
banniö sem hann var dæmdur i
eftir slagsmálaleik Saab og FH i
Sviþjóð i fyrsta leik FH i
Evrópukeppninni.
„1 skeyti sem við fengum frá
Alþjóðahandknattleikssam-
bandinu var sagt að ólafur væri
i banni til 10. april, en siðan kom
bréf og sagt i þvi að bannið væri
til 10. janúar”, sagði Ingvar
Viktorsson formaður hand-
knattleiksdeildar FH i gær.
„Við munum þvi fara eftir þvi
sem i bréfinu stóð og láta Ólaf
leika með á laugardaginn”.
ólafur Einarsson átti mjög
góðan leik gegn sænsku
meisturunum i Sviþjóð, en eftir
það hefur hann ekki leikið i
Evrópuleikjum FH vegna leik-
bannsins. Hann hefur hinsvegar
leikið i deildarleikjum FH en
ekki verið sá styrkur sem vænst
var. Ólafur hefur hinsvegar
verið mjög heppinnmeð leiki
sina gegn erlendum liðum og
vonum við bara að áframhald
verði á þvi.
„Við vitum mjög litið um liðið”,
hélt Birgir áfram. „Þeir sögðust
hafa sent okkur allar upplýsingar
um liðið 2. janúar en þær eru þvi
miður ekkikomnar hingaðennþá,
og höfum við þvi litlu að dreifa
um það. Þó vitum við að þeir áttu
4 menn i a.-þýska landsliðinu sem
lék hér I haust. Þá höfum við frétt
að þeir eru efstir i deildar-
keppninni i ArÞýskalandi sem
sýnir glögglega styrkleika liðsins.
1 Evrópukeppninni hefur liðið
sigrað alla leiki sina með yfir-
burðum og má nefna að I siðustu
umferð sigruðu þeir meistarana
frá Belgiu Sasja 25-19 á útivelli og
36-9 á heimavelli, eða samtals 61-
28.1 umferðinni þar á undan léku
þeir gegn Slask Póllandi og unnu
18-12 á útivelli og 16-15 heima eða
samtals 34-27.
Við vitum að þeir leika mjög
kerfisbundið og munum gera allt
sem við getum til að stöðva
leikaðferðir þeirra strax i byrjun.
Þetta lið er frægt fyrir leikaðferð
sem kölluð er Rostock, en i henni
leika tveir örfhentir og einn rétt-
hentur saman. Höfum viö haft
fregnir af þessari leikaðferð
þeirra sem þykir frábær, þannig
að hún ætti ekki að koma okkur á
óvart.
Ég er búinn að velja liðið sem
leikur á laugardaginn og verður
það þannig:
Hjalti Einarsson
Birgir Finnbogason
Geir Hallsteinsson
Viöar Simonarson
Gunnar Einarsson
Ólafur Einarsson
Arni Guöjónsson
Gils Stefánsson
Jón Gestur Viggósson
Forsala
á leikinn
Forsala aðgöngumiða á leik
FH og ASK Vorwarts Frank-
furt á laugardaginn hefst I dag
og verða miðar bæði seldir i
Hafnarfiröi og Reykjavik.
Hefst salan kl. 17.30 á báð-
um stöðunum og verða mið-
arnir seldir i lþróttahúsinu i
Hafnarfirði og i Laugardals-
höllinni og stendur salan til kl.
20.00.
A morgun verða þeir miðar
sem eftir kunna aö verða seld-
ir á sömu stöðum á sama
tlma.
Ú T S A L A
Útsala á ^J(wmn6eras6rwéur
KVENSKOM * Laugavegi 24
Fimmtudagur 16. ianúar 1975.
o