Alþýðublaðið - 30.01.1975, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 30.01.1975, Blaðsíða 6
f í fimm ald- ir eyja í blóðhafi ,, Ty rkirnir koma! ’ ’ heyrðist veinað i skelfingu af 20 þúsund Grikkjum i hafnar- borginni Kyrenia á Kýpur. Þeir flýðu heimili sin árla morguns þann 20. júli — á sömu stundu og fyrstu sprengjum og handsprengjum var varpað af tyrkneska árásarliðinu. Grikkirnir vissu, að þeir áttu ekki á góðu von. Þeir vissu, að nú hélt hin 500 ára blóð- hefnd milli Grikkja og Tyrkja áfram. Þessar tvær þjóðir hafa borist á bana- spjótum frá miðöldum. Sú barátta hófst, þegar Tyrkir lögðu undir sig hinar sorglegu leifar af aust-rómverska rikinu og náðu Konstaniópel á sitt vald 1453. Þá hljómuðu skelfingar- veinin ,,Tyrkirnir koma!” frá borgar- múrum þessarar höf- uðs töðvar kris tninnar. Og af góðri ástæðu. Lesið það, sem munk- urinn Gregorius segir um þessa innrás: Hversdagslíf á Kýpur Um árabil hafa Grikkir og Tyrkir lifað og óttast hvorir aðra á Kýpur. Flestir íbúanna muna engan friðsælan dag. Hérna á myndunum sjá menn, hvernig lífið þar er. „Á þri&ja degi höfðu óvinirnir hernumið borgina. A fleiri stöðum sá ekki i jörðina fyrir Hkum. Það var hræðilegt að sjá, að enginn slapp. Dauðinn upp- skar meðal hefðarfrúa, hreinna meyja og nunna, sem dregnar voru út úr klaustrunum á hárinu. Mikið var kveinað og ópin blönduðust barnsgráti. Svo hélt sultaninn innreið slna og heimtaði að keisarinn væri fundinn. Hann hugsaði um það eitt, hvort keisarinn væri lifs eða liðinn. Svo var leitað meðal likanna, en enginn fannst, sem lfktist keisaranum fyrr en menn fund loks höfuölaust lfk á gull- brydduðum skóm. Þá gladdist sultaninn.” Muhammed II sultan gerði stærstu kirkju kristninnar, Hagia Sofia-dómkirkjuna að mosku sinni og Konstantinopel að höfuðborg sinni. Innan skamms spannaði Tyrkjaveldi bæði Grikkland og Balkan- skagann allt að borgarmúrum Vinar. Það voru aðeins tveir útverðir kristninnar i tyrkneska hafinu — Krit og Kýpur, sem var undir feneyskri vernd. Svo réðust Ösmannar á Kýpur. Tyrkneskur innrásarher réðist á eyna 1570 — mjög öflugur her 250 þúsund manns, mesti her þeirra tima. Hershöfðinginn, Mustafa Pasha settist um virkisborgina Famagusta, en hana byggðu aðeins 3.600 Feneyingar og 4.000 Grikkir. Stjórnandi vamarinnar var Feneyingurinn Marco Antonio Bragadino. Hann og menn hans börðust vasklega gegn ofurmagninu. Tyrkir misstu 80 þúsund manns i misheppnuðum árásum sinum, en svo hlaut þó að fara, að Bragadino yrði að gefast upp 5. ágúst 1571. Ef Feneyingurinn hefur vonað, að sigurvegarinn sýndi miskunnsemi og göfuglyndi, skjátlaðist honum hrapalega. Tyrkenski hershöfðinginn lét þvert á móti leiða hinn sigraða andstæðing fyrir sig og skar sjálfur af honum eyru og nef. Feneyingurinn þoldi misþyrm- ingar án þess að gefa hljóð frá sér. Mustafa bauð honum lif, ef hann vildi taka múhameðstrú, en Bragadino neitaði boðinu. Mustafa hefndi sin með þvi að láta flá húðina af Bragadino lifandi til mikillar skemmtunar fyrir tyrknesku hermenn- ina. Húðin var stoppuð upp og send sem sigurmerki til Konstantinópel. (Tiu árum siðar sóttu Feneyingar þetta ógeðslega sigurtákn). íbúarnir i Famagusta liðu miklar þjáningar. Mennirnir voru drepnir eða þrælkaðir og konum var misþyrmt og nauðgað. Seinna kom röðin að Krit og eftir það var allt Grikkland undir tyrkneskri stjórn. 1 margar aldir var grisk-róm- verska kirkjan eini miðpunktur þjóðarinnar. Það varð líka erki- biskupinn af Patras sem stóð fyrir uppreisninni gegn Tyrkj- um 1821. Þriggja alda kúgun kom fram i miklum blóðsúthellingum Grikkja. A Peloponnes voru 15 þúsund Tyrkir drepnir á nokkrum vikum. Tyrkir hörfuðu skelfdir til virkisins Tripólis, en Grikkir gerðu leifturárás, tóku borgina og slátruðu öllum Ibúunum. Þegar fréttirnar bárust til Konstantinópel hófu Tyrkir ofsóknir á hendur kristnum mönnum. Um leið sendi sultaninn herlið sitt gegn grisku uppreisnar- mönnunum. Afleiðingarnar voru skelfilegar Á eynni Chios myrti flotaforinginn Kapudan Pasha 23 þús. sundmenn og gerði 47 þúsund konur og börn aö þrælum. Það voru Vesturlönd, sem komu I veg fyrir, að Grikkland væri þurrkað út. Evrópumenn fengu skyndilega áhuga á „vöggu menn'ingarinnar” og stóðu eindregið með grisku uppreisnarmönnunum. Miklu magni af vopnum og peningum var safnað og sjálfboðaliðar streymdu frá Engiandi, Frakk- landi og Þýskalandi. Menn muna sérstaklega eftir enska skáldinu Byron lávarði sem gerðist sjálfboðaliði, þó að hann létist úr malariu skömmu eftir komu sina til Grikklands. Grikkir hefðu orðið á valdi Tyrkja, ef stórveldi þeirra tima — England, Frakkland og Rúss- land hefðu ekki gripið i taumana á elleftu stundu. Þessi riki neyddu sultaninn 1830 til að viðurkenna sjálfstæði Grikk- lands. Um leið varð landið að sjálfstæðu riki, en ljósmæð- uraar vildu fá viðvikið vel greitt. Englendingar héldu merki sinu sem verndara hátt á lofti. 1830 var Grikkiand litið land. Það náði aðeins yfir syðsta hlutann, sem nú er Grikkland. Tveir þriðju hlutar þjóðarinnar bjuggu enn við tyrkneska stjórn, i Evrópu, á eyjunum og i Litlu-Asiu. Næstu áratugi var „enosis” grisk sameining aðal- stefnumál grisku stjórnarinnar og það hver, sem fór með völdin I Aþenu. A ráðstefnunni i Berlin 1878 tóku Grikkir stórt skref að settu marki. Stórveldin lét Grikkjum eftir Þessaliu, sem nú er miðhluti Grikklands — og Grikkir réðust þangað inn 1881. Þegar Kritarbúar gerðu upp- reisn 16 árum siðar og Grikkir sendu herlið þeim til aðstoðar, lýstisultaninn Abdul Hamidyfir striði við Grikki. Tyrkneski her- inn, sem var mjög nýtiskulegur og æfður af Þjóðverjum vann stóran sigur 1897. Tyrkir réðust I áttina að Aþenu, en aftur heftu stórveldin sigurgöngu Tyrkja. Grikkir urðu hins vegar að af- sala sér Krit um stund. 15 árum siðar gafst tækifæri til hefnda. Grikkland, Serbia, Montenegro og Búlgaria stofnuðu Balkanbandalagið. Takmarkið var að skipta af- gangnum af yfirráðasvæðum Tyrkja i Evrópu á milli sin. Við friöarsamningana i London 1913 fengu Grikkir fyrst yfirráðarétt yfir Makedóniu og Krit. Skömmu seinna braust fyrri heimsstyrjöldin út. Veldi Tyrkja var hrundið og við friðarsamningana i Sevres urðu Tyrkir að afsala sér land- svæðum i Evrópu að undan- skildum litlum hluta lands umhverfis Konstantinópel- Istanbul. Grisku erfðaféndurnir fengu bróðurpartinn og þeir fengu m.a. hafnarborgina Smyrnu — nú Izmir — sem var o Fimmtudagur 30. janúar 1975.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.