Alþýðublaðið - 15.02.1975, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 15.02.1975, Blaðsíða 6
Þröstur Magnússon VíðhöfUm ifærin og verkunar- vörurnar Vió erum umboösmenn fyrir: Þorskanet.frá: MORISHITA FISHING NET LTD. "Islandshringinn” og aórar plastvörur frá A/S PAUCO Víra frá: FIRTH CLEVELAND ROPES LTD. Saltfiskþurrkunarsamstæöur frá A/S RAUFOSS og PYROFABRIKKEN Slægingarvélar frá: A/S ATLAS Loónuflok'^marvélar frá KRONBORG o Fiskþvottavélar frá: SKEIDES MEK. FABRIKKER A/S Pökkunarvélar fyrir saltfisk frá A/S MASKINTEKNIKK F/V Kassaþvottavélar frá: FREDRIKSONS Bindivélar frá SÍGNODE Umboössala fyrir: HAMPIÐJUNA H.F Inrifiytjendur á salti, striga og öllum helstu útgeróarvorum SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA @ Sjávarafurðadeild SAMBANDSHÚSINU RVÍK, SÍMI 28200 Laugardagur 15. febrúar 1975 Coppelía! Fyrsti heilkvolds hallettinn hérlendis Laugardagur 15. febrúar 1975 „Millibilið! Fassiö millibil- ið!” „Aftar á senuna, stúlkur.” „Gætið að staðsetningunum. Bilið er enn vitlaust! Þið eruð timamörkin á klukku og klukku- timarnir eru allir jafnlangir! Þú þarna til hægri, staðsettu þig framar! ” Staðsetningar, fótaburður, handahreyfingar, svipbrigði, hraði — öllu er fundið að og allt leiðrétt. Fyrirskipanir dynja á sviðinu: leiðbeiningar og að finnslur. Framan við sviðið stendur skarpleitur maður með hljóðnema i annarri hendi og stjórntæki fyrir segulband við hina. Hann fylgist gaumgæfi- lega með stúlknahringnum á sviðinu og virðist gæddur þeim fágæta eiginleika að geta haft yfirsyn yfir allt sviðið og fylgst jafnframt af natni með hverri einstakri. Ekkert hik, vankunn- átta eða kæruleysi kemst fram- hjá athygli hans og það leynir sér sér ekki hver hér stjórnar. En, hvaö er að ske? Hver er þessi maður og hverju er hann að stjórna? Jú, þetta er hann Alan Carter, ballettmeistari Þjóðleikhússins, og hann er að („Stúlkur, þetta er æfing! Ekki skemmtiferð!”) stjórna uppsetningu fyrstu heil- kvöldsýningar á ballett, sem tekin er á svið hérlendis. Verk- Þórarinn Baldvinsson var lánaður hingaö, lil aö dansa i Coppeliu. Hofmennska bregst ekki Bessa. Enda skal ætið þakka góðar gjafir með tilhlyðilegum virðuleik. efni hans er að samæfa og aga tvo hópa dansenda, úr Þjóðleik- húsinu og Þjóðdansafélaginu, og undirbúa eins kvölds skemmtun fyrir okkur letingj- ana,sem látum okkur nægja af- raksturin af svita þessa fólks. Blaðamenn settust inn i sal og fylgdust með æfingu kvöldsins og fengu ennfremur að leggja nokkrar spurningar fyrir meist- arann sjálfan. „Við erum ekki mörg hérna. Skólinn er nokkuð stór, en það eru svo ungir nemendur þar, allt niður i svona og svona og svona.” Og Carter sýnir okkur stærð nemendanna með hönd- unum, likt og veiðimaður mælir laxa. „Við eigum gott efni i dans- ara, en það tekur tima að byggja upp flokk — fimm ár, jafnvel tiu. Svo eru fslendingar ekki vanir aga og þó það sé indælt og skemmtilegt i sambúð við þá, getur það skapað vanda- mál við úrvinnslu svona verk- efnis. Agi er nauðsynlegur og það er vitleysa að Islendingar geti ekki tekið honum — þeir eru bara ekki vanir honum.” Og það leynir sér heldur ekki að aginn er fyrir hendi innan dansflokksins: „Þið þarna tvær, baka til á sviðinu. Þið kunnið alls ekki sporið! Svona, lærið það! Kenn- ið þeim það, einhver! Ekki þú! hlifðu fætinum. Ég vil ekki að þú sért að reyna á slæma fótinn, ekki meiren þú þarft. Allt i lagi, við byrjum aftur.” Það er æft og lært, stritað og svitnað, hoppað og hlaupið, svo hægt verði að spila á tilfinn- ingar áhorfenda þann 28. febrú- ar. Og það verður vafalaust, þvi þótt mörgu væri ábótavant og meistarinn þyrfti þvi að leggja orð i belg, þá er hópurinn greini- lega einbeittur og enga uppgjöt að sjá eða heyra. Gleði og óánægja, kátina og reiði, al- vara, hátiðleiki, jafnvel vottur af tilbeiðslu — öllu bregður þessu fyrir og er tjáð svo að ekki fer milli mála hvers timi er. Sko er hann Bessi þarna lika. „Kraftur, Bessi. Meiri kraft! Orku! Þú átt að vera reiður og óánægður. Grettu þig og vertu á hreyfingu! Fleygðu henni til á sviðinu, hún er ónýt og þú verður að sýna óánægju þina! Gerðu það sem þú vilt, en vertu reiður.” Og Bessi verður reiður og fettir sig og grettir og steytir hnefana. Þegar hann ræðst að stúlknahópnum, verður einni þeirra á að brosa ofurlitið. „Ekki hlæja! Þú ert hrædd! Þú átt að vera hrædd við Bessa og þá hlærðu ekki, eða hvað? Ekki hlæja! Svona já. Og snúa svo hægt — hægt — hægt. Það var rétt!” Og Carter heldur áfram að beita röddinni, stundum jafnvel svo að tónlistin drukknar og okkur dettur ekki annað i hug en hann fari að missa stjórn á skapi sinu. Það leiðir til spurn- ingar — og svars: „Ég, reiður? Núna i kvöld? Nei, hreint ekki. Þið ættuð að sjá mig reiðast, þá þarf ekki að spyrja hvort ég sé reiður. Það kemur fyrir að ég helli mér yfir þau, en þá eiga þau lika fyrir þvi. Nei, það er sko langt frá þvi að ég hafi skipt skapi i kvöld.” Og enn reynist fólkið ekki kunna réttar hreyfingar. Hann f jallar um fólk og klukkur og brúður. Hann fjallar að sjálf- sögðu um ástina og gleðina, en hann fjallar einnig um margt annað. Farðu og sjáðu: sjón er sögu rikari. H.V. Alan C'arter: „Hér er ekkert mætingavandaniál við að glima — ekki svo orö sé á gerandi. Þau eru áhugasöm og ákveðin, það er reglulega ánægjulegt að starfa með þeim og ég vona að okkur takist að setja upp góða syningu." Nú og hvaö heitir svo ballett- inn og um hvaö f jallar hann? Jú, hann heitir „Coppelia” og sýn- ingar eiga að hefjast þann 28. febrúar. Það er undir okkur menningarneyfendum komið hvenær sýningum lýkur. Altaiislafla? Nei, ballet 7y ^ KZ INNRÉTTINGAR LEYSA STÓR OG SMÁ GEYMSLU- VANDAMÁL. UPPBYGGING KZ INNRÉTTINGA ER ÁN VERKFÆRA. MIKLIR BREYTINGAMÖGULEIKAR KZINNREiTINGAR I SKRIFSTOFUNA, VÖRU GEYMSLUNA, BÍLSKÚR INN OG BÚRIO. EGGERT KRISTJÁNSSON 8. CO. HF., SUNDAGORÐUM 4. oSÍMI 85300. Veiðarfæragerð Vestmannaeyja hf. Skildingavegi 6B Símar 1412 - 1723 - 1960 önnumst viðgerðir á öllum veiðarfærum. Viðgerðir plastbelgja. Vélþrykkjum allar gerðir vira. Sendum um allt land. Seljum humar og fisktroll. Alþýðuflokkskonur í Reykjavík Kvenfélag Alþýðuflokksins í Reykjavík held- ur félagsf und n.k. f immtudag, 20. febrúar, kl. 20.30 í Félagsheimili prentara, Hverf isgötu 21. DAGSKRA: 1. Venjuleg félagsfundarstörf. 2. Kristín Stefánsdóttir, húsmæðrakennari, sér um kynningu á ostaréttum. Félagskonur fjölmennið og takið með ykkur gesti. STJÓRNIN ☆ ★ ☆ r\ VATNS- BERINN 20. jan. - 18. feb. BREYTILEGUR Það er mögulegt að heils- an standi i vegi fyrir at- höfnum þinum, eða að of mikil pressa hafi óheppi- leg áhrif á heilsuna. Gættu þin fyrir bak- tjaldamakki. Dagurinn er góður til þess að vinna áfram það sem þegar er hafið. dOkFISKA- H^MERKIÐ 19. feb. - 20. marz BREYTILEGUR Farðu varlega i fjármál- um. Hugmyndir- og úr- ræði vina þinna eru hættuleg i dag, hversu góð sem þau kunna að virðast. Viðskiptamál eru undir slæmum áhrifum, en sérfræðingar gætu þó reynst þér vel, ef þú þarft að taka ákvarðanir. HRÚTS- WMERKID 21. marz - 19. apr. VIDBURÐALITILL Þú verður að leggja þig sérstaklega i lima, ef þú vilt koma einhverju raun- hæfu i verk i dag. Dagur- inn er innhverfur og at- hafnaáhrif i lágmarki. Heppilegra væri að vinna við áætlanagerð, en að reyna framkvæmdir. 0 NAUTIÐ 20. apr. - 20. maí VIÐBURÐALtTILL Þetta verður auðveldur dagur, sem gefur þér möguleika til að ná yfir- sýn yfir stöðu þina og leggja plönin fyrir fram- tiðina. Leystu strax öll fjárhagsvandamál sem verða i vegi þinum, en taktu ekki þátt i könnun- um eða ferðalögum. j ★ ☆ ★ ☆ ★ TVI- WBURARNIR 21. maí - 20. júní TVÍRÆÐUR Haltu áfram ákveðnum neitunum þinum gagn- vart vinum sem vilja fá þig með í fjármálaævin- týri. Dagurinn er hættu- legur hvað snertir öll ferðalög, en ætti að vera góður til upplýsingaöflun- ar. rfhKRABBA- Ur MERKIÐ 21. júní - 20. júlí TVÍRÆÐUR Dagurinn ætti að verða þér nógu auðveldur i vinnu, en vandamálin hlaðast upp heima fyrir og geta valdið þar deil- um, sem eitra andrúms- loftið. LJONID 21. júlí - 22. ág. TVÍRÆÐUR Fjölskyldulifið verður þér liklega ánægjulegt i dag og fólkið umhverfis þig hvetjandi gagnvart lit- riku hugmyndaflugi þinu, en samt er liklegt að þér finnist veröldin mótsnúin. áF\ MEYJAR- W MERKIÐ 23. ág. - 22. sep. BREYTILEGUR Sérlega góður dagur, ef þú ákveður að vinna, en bdíttu fremur heilan- um en vöðvum likam- ans. Þér tekst liklega að komast hjá miklum vand- kvæðum ef þú hugsar of- urlitið um það sem venju- lega krefst aðeins likam- legrar áreynslu. ★ ☆ ★ © VOGIN 23. sep. - 22. okt. TVÍRÆÐUR Fjölskyldumálefni geta auðveldlega orðið að há- værum deilum i dag. Heilsa foreldris eöa eldri ættingja getur valdið á- hyggjum og sett þér stól- inn fyrir dyrnar. Sýndu umhyggju þina i verki og reyndu að græða þau sár og hruflur sem þú hefur valdið. SPORÐ- W DREKINN 23. okt - 21. nðv. BREYTILEGUR Það sem gerist innan fjöl- skyldunnar, eða sam- komulag við einhvern meðlim hennar, gæti hjálpað þér mikið i fjár- málum. Þetta er góður dagur til að sinna málum heimilisins, en farðu var- lega og forðastu að lenda i deilum við þá sem með þér vinna. <f \ BOGMAÐ- WURINN 22. nóv. - 21. des. BREYTILEGUR Oll fjármálaáhætta gæti haft uggvænleg áhrif á pyngju þina I dag, svo þú skalt forðast hana. Hug- myndir þinar eru traust- ar og góðar og þeim tima sem þú getur varið við tómstundaiðju er ekki só- að. g\ STEIN- XJ GEITIN 22. des. - 19. jan. BREYTILEGUR Áriðandi málefni innan heimilis eða fjölskyldu, valda þér óróleika og erta þig, en ef þú beitir lagni, getur þú leyst vandamál- in á hagkvæman hátt Forðastu deilur við maka þinn og haltu sjálfstjórn þinni. Farðu varlega i akstri.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.