Alþýðublaðið - 12.03.1975, Síða 2

Alþýðublaðið - 12.03.1975, Síða 2
STJORN- MÁL Olíuvandinn A þessum siðustu og verstu timum hefur mikið verið rætt um oliuvandamálið i fréttum. Þegar um oliuvandann hefur verið rætt hefur fyrst og fremst verið fjallað um hann frá sjónarmiði þjóðarheildar eða þjóðarheilda — þ.e.a.s. hvernig þjóðir heims geti tryggt sér næga oliu, við hvaða verði og hvaða áhrif oliuverðhækkanirnar hafi haft á efnahagsmál, bæði ein- stakra rikja og rikjaheilda. En ýmis vandamál samfara verðsprengingunni á oliu eru þó mun nærtækari. Ég er t.d. sannfærður um, að flestir ráðamenn þjóðarinnar hafa litla hugmynd um hver er oliu- vandi þeirra heimiia i landinu, sem verða að kaupa oliu til húsahitunar. örvænting eldra fólks Fyrir nokkrum dögum átti ég erindi vestur á ísafjörð og leit þar m.a. við á heimili full- orðinna hjóna, sem nær ekkert hafa fyrir sig að leggja annað, en ellilífeyri frá almanna- tryggingum ásamt óveruleg- um lífeyri úr lifeyrissjóði verkamanna. Þetta fólk sýndi mér m.a. reikninga þá, sem þvi hefur verið gert að greiða fyrir kyndikostnað með oliu á undanförnum mánuðum og nam oliureikningurinn eiin u.þ.b. helming af ellistyrkn- um þeirra — svo til þeim einu tekjum, sem þetta fullorðna fólk hafði sér til lifsframfæris. Þá var eftir að greiða mat og klæði, sjúkrahjálp og annað það, sem telst til brýnustu lifs- nauðsynja — og til þess höfðu hjónin röskan hálfan ellistyrk- inn sinn þegar kyndikostn- aðurinn hafði verið greiddur. Engin undantekning Þetta heimili er sjálfsagt engin undantekning frá öðrum heimilum fullorðins fólks, sem litið hefur fyrir sig að leggja. Og hvernig á þetta fólk að fara að þvi að framfleyta sér við þessi lifskjör — þegar kyndi- kostnaðurinn einn tekur til sin um helming af þvi fé, sem úr er að spila? Ætli það myndi ekki vefjast fyrir fleirum en mér að svara þeirri spurn- ingu? Alveg örugglega er ekkert eitt til, þar sem mismunur á kjörum fólks er jafn mikill og varðandi húshitun. Þessi mikli mismunur getur leitt til mjög alvarlegrar byggðaröskunar ( landinu verði honum viðhaidið þvi fjölmargt fólk gctur alls ekki undir nokkrum kringum- stæðum staðið undir þvi að þurfa að greiða tvöfaldan eða þrefaldan kyndikostnað á við þá, sem hitaveitu njóta. Það er þvi eitt af meiriháttar úr- lausnarefnum okkar að jafna kyndikostnaðinn i landinu og fjölmargar leiðir eru þar til- tækar — aðeins ef viljinn er fyrir hendi. SB ASIEFNIR TIL UTI- FUNDAR ÞEGAR MD HENTAR BEST I KIARABARÁTTUNNI Alþýðublaðinu hefur borist yfir- lýsing, sem undirrituð er af öllum niu fulltrúum i samninganefnd Al- þýðusambands Islands, vegna þeirra ummæla Kristjáns Thorlaciusar, formanns BSRB, á fundi i Háskólabiói sl. mánudag um kjaramál opinberra starfsmanna, að Alþýðusamband tslands hafi hafnað samstarfi við BSRB um al- mennan fund um kjaramálin. t yfirlýsingu samninganefndar ASÍ segir, — að samninganefnd ASÍ vilji upplýsa, að miðstjórn ASI hafi fyrir nokkru falið samninganefnd- inni að taka ákvarðanir um fund, þegar samninganefndinni þætti henta að standa að útifundi, og þá ásamt BSRB, ef samkomulag gæti orðið um það. En siðar segir: „Samninganefndinhefur að svo komnu ekki ákveðið að boða til al- menns útifundar um launamálin, en hefur þá hugmynd til skoðunar og mun beita sér fyrir slikum fundi, þegar hún álitur, að hann komi að sem bestu haldi i kjarabaráttunni. Yrði þá athugað um hugsanlega aðild BSRB. Hins vegar mun samninganefndin ekki fela samtök- um utan ASI að ákveða slikum fundi stund og stað. Varðandi ásakanir á hendur for- seta ASI i þessu sambandi er það eitt að segja, að hér er um að ræða ákvörðunarefni allrar samninga- nefndarinnar, en ekki einstaks nefndarmanns”. Undir yfirlýsingu samninga- nefndarinnar rita nöfn sin: Björn Jónsson, Snorri Jónsson, Björn Bjarnason, Benedikt Daviðsson, Einar ögmundsson, Armann Ægir Magnússon, Björn Þórhallsson, Magnús Geirsson og Eðvarði Sigurðsson. FERÐA- MENN FRA 42 LÖNOUM I febrúarmánuði siðastliðn- um komu til tslands samtals 4327 farþegar með skipum og flugvélum, þar af 1974 tslend- ingar og 2353 útlendingar. Flestir komu útlendingarnir frá Bandarikjunum, eða 948. I öðru sæti trónaði Stóra-Bret- land, með 230 fulltrúa, og á eftir þeim tveim komu svo grannþjóðir okkar á Norður- löndum, hver á fætur annarri. Danmörk var þeirra efst á blaði, með 221 ferðalang, þá Sviþjóð, með 213, þvi næst frændur okkar Norðmenn, sem áttu 189 fulltrúa i hópn- um, og loks Finnland, með 125 ferðamenn. Eitt land i viðbót sendi okkur meir en hundrað manns i mánuðinum, Vestur- Þýskaland, en þaðan komu eitt hundrað og einn. Alls komu hingað ferða- menn frá fjörutiu og tveim löndum i febrúarmánuði, þar af tuttugu Evrópulöndum, niu Amerikulöndum, niu Asiurikj- um, tveim Afrikurikjum og svo komu einir fjórtán frá Ástraliu. I febrúar 1974 komu samtals 3390farþegar til landsins, með skipum og flugvélum, þar af 1390 Islendingar og nákvæm- lega 2000 útlendingar. I febrú- armánuði i ár komu þvi 353 út- lendingum fleira en i fyrra og munar þar liklega mestu til um þing Noröurlandaráðs, sem haldið var i Reykjavik i mánuðinum. Það sem af er ár- inu 1975 hafa komið hingað 9491 farþegi, en á sama tima i fyrra höfðu komið 7975. Kenna fólki um bílvélina Þeir eru vafalaust fjölmargir, sem ekki vita hvað snýr fram og aftur á bilvél, hvað þá þeir viti hvað eru kerti og platinur, eða hvernig á að stilla mótor. ,,Mér datt i hug i sambandi við öll sparnaðaráform, sem nú eru uppi, að fá FIB með mér til að kenna fólki þessa hluti”, sagði Kristin Halldórsdóttir ritstjóri Vikunnar, þegar Alþýðublaðið ræddi viðhana, og á laugardag og sunnudag verður fyrsta námskeið þessara tveggja aðila haldið á stillingaverkstæði E. Andersen að Reykjavikurvegi 54 i Hafnarfirði. En það verður kennt fléira á þessu námskeiði en um kerti og platinur og mótorstillingar. Þarna verða kenndar ýmsar skyndiviðgerðir á bifreiðum, und- ir stjórn Sveins Oddgeirssonar bifvélavirkjameistara og Arnar Andersen tækjastjora, takist fólki að tileinka sér sæmilega það sem þeir hafa að segja og sýna, ætti það að lækka rekstrarkostnað bif- reiða þess talsvert með færri verkstæðistimum. ,,Og það er ekki sist ástæða til að hvetja kon- ur til að sækja þetta námskeið”, sagði Kristin, þegar Alþýðublaðið ræddi við hana. Ekki er þátttökugjald mikið, en það er kr. 400 fyrir félagsmenn i FIB og kr. 600 fyrir utanfélags- menn. Reiknað er með, að um hundrað manns geti verið á nám- skeiðinu i einu, og verði þetta fyrsta námskeið vel sótt er á- formað að halda fleiri, bæði á höf- uðborgarsvæðinu og viðar á land- inu. ÞAÐ HLAUT r 77 BINGO Eftir öll bingóin undanfarið, sem hafa verið hvert öðru glæsilegra, og verið nefnd „flugbingó”, „stórbingó”, „risabingó” og „tröllabingó”, var að- eins timaspursmál, hvenær hátindin- um yrði náð, og haldið yrði hið stærsta allra bingóa, eða „bingó aldarinnar”. Nú er komið að þvi, og þau félagasam- tök, sem urðu til þess að taka upp þetta nafn, er handknattleiksdeild knattspyrnufélagsins Þróttar. „Bingó aldarinnar” verður spilað i Háskóla- biói næstu fjóra sunnudaga, og i boþi verður 81 vinningur, áuk fjölda auka- vinninga, sem veittir verða i sárabæt- ur þegar fleiri en einn fær bingó, að verðmæti tæpar fjórar milljónir króna. Bingóiðhefst klukkan tvö þessa fjóra sunnudaga, en miðasala hefst klukkan fjögur á morgun i Háskóla- biói. Stjórnandi verður Svavar Gests. Nokkur hluti af heimilistækjunum, se arinnar”. HEFUR IÍRSLITA- SVÆÐAMOT I samþykkt aðalfundar Starfsmannafélags Reykjavikurborgar segir m.a.: „Fundurinn leyfir sér að halda þvi iram, að á meðan opinberir starfsmenn greiða skilvislega skatta af öllum sinum launum, sé það látið við- gangast, að fjölmennar stéttir og ýmsir hags- munahópar i þjóöfélaginu hafi að verulegu leyti möguleika til þess að skammta sjálfum sér tekj- ur, og auk þess komast upp með að greiða ekki skatta og skyldur hlutfallslega á borð við opinbera starfsmenn og ýmsa aöra launþegahópa. Fundurinn skorar þvi á stjórnvöld, að nú er gripið hefur verið til neyöarráðstafana, vegna yf- irstandandi efnahagsörðugleika og greiða skal upp hinn vangoldna þjóðarvisil, þá verði tekin upp ný vinnubrögð og þannig búið um hnútana, að óreiðuskuldin verði greidd I eölilegu hlutfalli við raunverulegar, en ekki framtaldar tekjur, hvers og eins.” | § | Hafnarijaröar Apótek g Afgreiðslutími: Virka daga ki. 9-18.30 Laugardaga kl. 10-12.30. Helgidaga kl. 11-12 Eftir lokun: Upplýsingasími 51600. 30 ÞAÐ BORGAR SIG AÐ VERZLA f KR0N WREVFILL Sími 8-55-22. Opið alian solarhringinn Dunn I /ími 84200 Miðvikudagur 12. marz 19,

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.