Alþýðublaðið - 20.03.1975, Side 2
Sjálfstjórnar-
nýlenda í Sjálf-
stæöisf lokknum
Borgarstjórnarihaldiö lit-
ur gjarna á Reykjavik sem
sjálfstjórnarnýlendu i Sjálf-
stæðisflokknum. Landsstjóri
nýlendunnar er að sjálfsögðu
einn af pólitiskum hertogum
fiokksins og meðal hlutverka
hans er að tryggja það, að
synir og dætur móðurlands-
ins njóti stuðnings, skiinings
og velvildar i „nýlendunni”.
Að sjáifsögðu ber þeim aliur
réttur þar umfram inn-
fædda, sem ekki eru afkom-
endur herraþjóðarinnar —
þ.e.a.s. ekki hafa féiagsskir-
teini i Sjálfstæðisfiokknum.
Jafnvei samtök ungra
brekabarna, réttkynjaðra,
hljóta að ganga fyrir gamal-
grónum félagsheildum óinn-
vigðra svo sem eins og þegar
um er að ræða úthlutun áein-
hverju eftirsóttasta fjöl-
býlishúsastæði i borginni. Þá
það af hendi við þá ungliða
Sjálfstæðisflokksins, sem
myndað hafa með sér
byggingasamvinnufélag á
flokkslegum grundvelli, er
m.a. hcfur það göfuga mark-
mið að hafa áhrif á stefnu-
mótun opinberra aðila i
byggingamálum og safna
félögum i Sjálfstæðisflokk-
inn. Félagsskapur þessi hef-
ur valiö sér nafnið
BYGGUNG og er þaö vel við
hæfi þegar á það er litiö
hvernig þessi ungagrey úða i
sig byggkornunum af boröi
borgarstjórnarihaldsins.
Þegar svo kemur að næsta
stigi fyrirgreiðslupólitikur-
innar fyrir tsleifsunga þessa
væri ráð að þeir skeyttu
nokkrum stöfum framan viö
nafnið sitt og köiluðu sam-
tökin BANKABYGGUNG.
Slík nafnahagræðing myndi
án efa laða fólk mjög til inn-
göngu I Sjálfstæðisflokkinn
þegar tekið er tillit til þess, i
hvert óefni er nú komiö með
lánamál húsbyggjenda.
Hagi eöa hagsmunir
Það er svo enn I sama
samræminu, að fjölbýlis-
húsalóðir þær, sem ungir
ihaldsmenn fengu I fylgifé
frá borgarstjórnarihaídinu,
skuli teljast nr. 51,53 og 55
við Hagamel. Þegar þessar
sumarlandshallir ihaldsins
eru risnar þarf nefnilega
litlu að breyta til þess að
götunafniö hæfi húsunum.
Ég lefyi mér þvi að leggja til,
að þegar reisugillið verður
haldiö heimsæki háttvirtur
borgarstjóri ungabörn sin,
taki niöur skiltið með götu-
heitinu Hagamelur og setji
upp annað, sem á stendur
Hagsmunamelur. Mætti
gjarna setja eitt slikt skilti á
hvert hús þeirra bankabygg-
unga svona rétt til þess að
minna ibúana á, hvernig þau
voru fengin.
S.B.
BóVtatóobbi^
,b*«um -s*
v0nda8«f b*V
Vsverö'* t,
° , qóöu 09
féVa9°r *.
^ fréRa'
"m
**
¥*
,,n<" C»lo,„
Fornlrtf^,,
Ofaw Ev,m
Fénar
•« «umu ob nýju
*G**rti
bókaklúbbi AB ókeypis og
kaupiö bækurá betra verði
Bókaklúbbur AB er stofnaður með það fyrir aug-
um, að hæqt sé að gefa félögum klúbbsins kost á
fjölbreyttu úrvali bóka á betra verði en yfirleitt
gerist á almennum bókamarkaði.
Félagargetaallirorðið, hafi þeir náð lögræðisaldri.
Rétt til kaupa á bókum klúbbsins eiga aðeins
skráðir félagar Bókaklúbbs AB.
Bókaklúbbur AB mun gefa út 6-8 bækur árlega.
Féalgsbækurnar munu koma út með eins eða
tveggja mánaða millibili.
Um það. bil einum mánuði áður en hver félagsbók
kemur út verður félögum Bókaklúbbs AB sent
Fréttabréf AB, þar sem bókin og höfundur hennar
verður kynntur, greint frá verði bókarinnar, stærð
hennar, o.fi.
Félagar Bókaklúbbs AB eru ekki skyldugir að
kaupa neina sérstaka bók. Félagar geta afþakkað
félagsbækur með því að senda Bókaklúbbi AB sér-
stakan svarseðil, sem prentaður verður i hverju
fréttabréfi AB.
Félagar Bókaklúbbs AB geta valið sér aðra bólk, en
þá, sem boðin er hverju sinni i Fréttabréfi, og auka
bækur að vild sinni. Velja má bækurnar eftir skrá,
sem birt er f Fréttabréfinu. Þá geta félagar keypt
bækur til viðbótar samkvæmt sértilboði, sem veitt
verður öðru hvoru.
Ef bók er afþökkuð, eða önnur valin í hennar stað,
eða aukabækur pantaðar, þarf fyrrnefndur svar-
seðill að hafa borizt Bókaklúbbi AB fyrir tilskilinn
tíma. Að öðrum kosti vepur litið svo á, að félaqinn
óski að eignast þá félagsbók, sem kynnt er í
Fréttabréfinu. Félagsbókin verður þá send ásamt
póstgióseðli. Félaginn endursendir síðan pósfgíró-
seðilinn ásamt greiðslu í næsta pósthús eða banka-
stofnun.
Sú eina skylda er lögð á herðar nýrra félaga
Bókaklúbbs AB aö þeir kaupi einhverjar 4 bækur
fyrstu 18 mánuðina, sem þeir eru félagar. Félags-
gjöld eru engin. Áskriftargjald Fréttabréfsins er
ekkert.
Félagar Bókaklúbbs AB geta sagt upp félags-
réttindum sinum með því að segja sig skriflega úr
klúbbnum með eins mánaðar fyrirvara. Sami
uppsagnarfresturgildir fyrir nýja félaga, en þóað-
eins að þeir hafi lokið kaupum á fjórum bókum
irifian átján mánaða.
6 fyrstu bækur f Bókaklúbbi AB:
3 f jölfræöibækur: 2 skáldsögur:
Fánar að fornu og nýju Sjóarinn, sem hafið hafn-
Uppruni Mannkyns aði eftir Yukio Mishima
Fornleifafræði AAáttúrinn og dýrðin eftir
islenzkt Ijóðasafn. Graham Greene.
Ég vil vera með
Umsókn nýrra félaga
Vinsamlega skráiö mig i Bókaklúbb AB.
Ég hef kynnt mér félagsreglurnar og geri mér
grein fyrir kvöðum nýrra félaga um kaup á bókum.
Nafn
Nafnnúmer
Heimilisfang.
Almenna Austurstræti 18 — Reykjavík
bókafélagið Pósthólf 9 — Símar 19707 & 16997
RITSTJÚRN ALÞÝOUBLAÐSINS
SIÐUMULA 11 SÍMI 81866
I Hafnaríjaröar Apótek |
Afgreiðslutími: «
Virka daga kl. 9-18.30 |
Laugardaga kl. 10-12.30.
Helgidaga kl. 11-12 p
Eftir lokun:
Upplýsingasími 51600. §
i
:JÍ
1
I
k
n
t/,
'iX
Opiö aiian sólarhringinn %
ÞAÐ B0RGAR SIG
AÐ VERZLA IKR0N
íS>
k | * *
’ 1 - jWREVF/LZS
$ I wwn s
Sími 8-55-22. '■*
Dunn
í GlflEÍIBflE
/ími 84200
§
■e
i
1
Fimmtudagur 20. marz 1975.