Alþýðublaðið - 20.03.1975, Qupperneq 4

Alþýðublaðið - 20.03.1975, Qupperneq 4
í hreinskilni sagt eftir Odd A. Sigurjónsson Ný viðhorf Með fræðslulögunum 1946 sköp uðust margskonar ný viðhorf, sem nokkur vandi var að mæta. Það varð þegar nokkuð einróma sammæli skólamanna, að óska ekki eftir þvi að reglugerðir yrðu settar af neinni skyndingu. Lagasetningin var nægilega rúm (rammalög) á margan hátt, til þess að gefa skólunum kost á að hitta þau ráð við fram- kvæmdir, sem bezt mættu gegna. Fræðslumálastjóri, sem framkvæmd laganna heyrði einkum undir, var sammála þessum vinnuháttum og beitti sér fyrir árlegum fundahöldum skólastjóra, til þess að unnt væri að þeir gætu borið saman bækur sinar og miðlað hver öðrum af reynslu sinni. A þann hátt urðu framkvæmdir smátt og smátt furðu samræmdar, þrátt fyrir margbreytilegar aðstæður. Ýmislegt kom þó brátt i ljós, sem olli nokkrum afbrigðum. Dreifbýlismenn utan kaupstaða kröfðust undanþágu frá leng- ingu skólaskyldu um eitt ár og fengu þvi framgengt. Rökin voru þau, að unglingarnir þess lá óviða á lausu. Námið gaf engin teljandi réttindi, og það, sem ef til vill var þó alvarleg- ast, var að fljótlega var litið á verknámsdeildir sem einskonar tossabekki. Nutu þær deildir þvi enganveginn þeirrar virktar frá hálfu almennings, sem vert hefði verið. Þannig koðnaði hugmyndin niður viðast hvar. Auðvitað kom og fljótlega i ljós, að nemendur voru misjafn- lega i stakk bUnir til að nema bókleg færði, sem entust til framhaldsnáms i æðri skólum. Engan skólamann furðar á þvi. bekk, sem áður segir, og lauk námi með gagnfræðaprófi, en nokkrar nyjar námsgreinar upp teknar að auki. Hér var eins skynsamlega á málum haldið og kostur var, eftir atvikum. Nokkur tregða reyndist hjá ýmsum héraðs- skólum að taka upp fjórða bekkjar nám. Þvi olli eflaust sums staðar hUsnæðisskortur, og fleira kann til að hafa komið. Af þessum orsökum voru um hrfð tvær tegundir gagnfræða- prófs I landinu og á engan hátt sambærilegar, sem vænta má. I hringekjunni II. mættu ekki missast frá vinnu við sveitastörfin. Þetta skapaði auðvitað misrétti fyrir sveita- unglinga, sem hagnýttu undan- þáguna. Skipting i bóknáms- og verk- námsdeildir reyndist fremur illa. Þar bar margt til. Leggja þarf i gifurlegan kostnað, til þess að koma á fót verknámi, sem það nafn er gefandi. Fé til Auk misjafns næmis og skiln- ings almennt, fer námsþroski ekki eftir árum. Þess vegna hlautað liggja á ljósu, að stytzta leiðin væri ekki öllum fær. Skól- arnir mættu vandanum á þann eina veg, sem fær var, með þvi að skilja seinfærari nemendur frá og taka upp nokkuð vægari yfirferð námsefnis þeim til handa. Bætt var við einum Efniviður i þriggja bekkja gagnfræðanám héraðsskóla var sviplikur að getu og I almennum III. bekk kaupstaðarskóla. Ein- sætt þótti af þessum orsökum, að koma á samræmi milli hér- aðs- og kaupstaðaskóla, svo að inntak náms og prófa yrðu svip- lik, sem og tókst án mikilla á- taka. Lenging skólaskyldu fékk strax mótbyr i sveitum lands- ins, sem áður er getið, svo og hvernig þvi máli lauk. Segja má, að siðari umkvart- anir þeirra, er að þeim málalok- um stóðu, um misrétti sveit- anna i skólamálum, komi Ur hörðustu átt. Þar áttu þeir frá upphafi enga andstæðinga nema sjálfa sig. En það er önn- ur saga. Kaupstaða- og kauptUnabUar tóku málinu yfirleitt jákvætt, að þvi er foreldra og forráðamenn áhrærði. Um nemendur má, að mestu, segja hið sama. Þó eru ætið nokkrir i hverjum aldurs- flokki, sem hafa á þessu aldurs- skeiði, hvorki getu né vilja til að stunda nám, þótt siðar vildu gert hafa. Slikir nemendur valda oftlega ótrUlegum erfið- leikum, sem vandi er við að snU- ast svo haldbært sé. Hér hefur næstum algerlega skort á aðstöðu frá hálfu rikis og bæja, til þess að geta unnið þessum nemendum það gagn, sem þyrfti. Brottrekstur Ur skóla er ömurleg lausn, þótt til hennar verði stundum að gripa, vegna óhollra áhrif á aðra. Þegar um skyldunám ræðir, verður sU ráðstöfun enn vand- ræðalegri. Lenging skólaskyld- unnar bar þvi ekki þau blóm né ávexti, sem upphafsmenn munu hafa vænzt. Verður að þessu nánar vikið siðar. Félagsfundur Verslunarmannafélag Reykjavikur heldur félagsfund fimmtudaginn 20. mars kl. 20.30 að Hótel Esju. Fundarefni: Verkfallsheimild. Verslunarmannafélag Reykjavíkur Vörubílstjóraféiagið Þróttur Stjórnarkjör 1975 fer fram að viðhafðri allsherjar at- kvæðagreiðslu laugardaginn 22. mars og sunnudaginn 23. mars 1975 i skrifstofu félagsins, Borgartúni 33. Kjörfundur hefst laugardaginn 22. mars kl. 12 og stendur til kl. 20 og verður fram haldið sunnudaginn 23. mars kl. 10 og lýkur kl. 18. Kjörskrá liggur frammi i skrifstofu félagsins. Kjörstjórn. 1 x 2—1x2 i 29. leikvika — leikir 15. mars 1975. (Jrslitaröð: X2X — 21X — Xll — 11X 1. VINNINGUR: 11 réttir — kr. 172.000.00 847 849 2. VINNINGUR: 10 réttir — kr. 24.500.00 1760 2479 9557 12236 35334 36363 Kærufrestur er til 7. april kl. 12 á hádegi. Kærur skulu vera skriflegar. Kærueyðublöð fást hjá umboðsmönnum og aðalskrifstofunni. Vinningsupphæðir geta lækkað, ef kærur verða teknar til greina. Vinningar fyrir 29. leikviku verða póstlagðir eftir 8. april. GETRAUNIR — tþróttamiðstöðin — REYKJAVÍK TÓMAS GUNNARSSON, HDL.: ASKORUN Á BORGAR- STIÓRN REVKJAVIKUR Föstudaginn 28. febrUar sl. samþykkti borgarráð Reykja- vikur að veita Reyni Þórðar- syni, yfirverkstjóra i Áhalda- hUsi Reykjavikur, lausn Ur starfi vegna meintra ávirðinga, sem kom til *framkvæmda þá þegar. Staðfesting borgarstjórnar Reykjavikur á þessari ákvörðun borgarráðs hefur enn ekki átt sér stað. Kommar á móti 5 ar ekki von á neinu góðu Ur þeirri átt. Þá vék Gylfi einnig að þvi, að andstæðingar tillögunnar um eignaráð á landi byggðu rökin fyrir andstöðu sinni visvitandi á röngum forsendum. Allar fullyrð- ingar um, að tillögunni væru stefnt gegn bændum og eignarétt- inum i landinu væru gersamlega Ur lausu lofti gripnar, þvi það væri skýrt tekið fram i tillögunni og hefði verið margitrekað af flutningsmönnum hennar að stefnt væri að þvi að bændur ættu áfram bUjarðir sinar og ef um eignayfirfærslur yrði að ræða 'kæmu fullar bætur fyrir. Þrátt fyrirþessarskýlausu yfirlýsingar héldu andstæðingar málsins á- vallt áfram að tönnlast á sömu rangfærslunum en vikju sér hins vegar undan þvi að ræða sjálft meginefni málsins. Nokkrir þingmenn tóku aftur til máls að ræðu Gylfa lokinni — þ.á m. þeir Helgi Seljan og Stefán Jónsson. SKIPAUTGCRÐ RÍKISINS m/s Hekla fer frá Reykjavik miðvikudaginn 26. þ.m. austur um land i hringferð. Vörumóttaka: föstudag og mánudag til Austfjarðahafna, Þórshafnar, Raufarhafnar, HUsavikur og Akureyrar. Hætt er við að uppsögnin valdi Reyni verulegu fjártjóni, sem vafasamt er að fáist bætt til fulls, svo sem vegna starfs- missisins og skertra eftirlauna- og örorkuréttinda, sem tekið hefur allt að tveimur áratugum að afla, auk hins, að sennilegt er að R.Þ. gjaldi þess að nokkru, að hann var ekki metinn hæfur sem starfsmaður Reykjavikur- borgar. Þar sem uppsögnin kemur i kjölfar umfangsmikill- ar rannsóknará meintu misferli i störfum R.Þ. allt að tiu til tólf ár aftur i timann, sem fór i fyrstu fram á vegum Endur- skoðunardeildar Reykjavikur- borgar og borgarfulltrUa per- sónulega og siðar Sakadóms Reykjavikur, er enn hættara við en ella, að uppsögnin varpi skugga á starfsferil hans. Undirritaður hefur sem að- stoðarmaður R.Þ. siðan á sl. vori fylgst með aðgerðum borgaryfirvalda i málinu og siðan annarra sem um það hafa fjaliað. Sérstaka furðu mína hafa vakið vinnuaðferðir við endurskoðunarstörf hjá Reykjavikurborg og meðferð málsins eftir að rannsókn fyrir Sakadómi var lokið. Er i minum huga ekki vafamál að brýn þörf er á könnun á vinnuaðferðum borgaryfirvalda i málum af þessu tagi. Uppsögn R.Þ. virðist byggð á að nokkru röngum, en að nokkru lórökstuddum atriðum, en einnig á atriðum, sem ekki varða beint starf hans. Tel ég þau öll óréttmæt sem uppsagnaratriði. Þá er einnig athyglisvert að ekki er vikið að niðurstöðu saksóknara rikisins um sakadómsrannsókn. Niður- staða rikissaksóknara var á þá leið, að ekki væri tilefni til ákæru i málinu. 1 þvi felst, að hann hefur taíið málið fullrann- sakað eins og það lá fyrir, en einnig, að ekki væri tilefni til nokkurrar ákæru þrátt fyrir a.m.k. þrjá tugi af kæru- atriðum, sem um er fjallað i sakadómsrannsókninni. Virðast meintar ávirðingar R.Þ. hafa þótt svo litilvægar að mati rikis- saksóknara, að ekki var einu sinni óskað eftir að ijUka málinu með áminningu. Þá virðist heldur ekki hafa verið litið mikið til vitnisframburðar Björns Baldvins Höskuldssonar, næsta yfirmanns R.Þ. en hann sagði fyrir Sakadómi Reykja- vikur, 2. desember 1974, m.a.: ,,Það segir, að rannsókn sU, sem gerð var á rekstri undir stjórn Reynis Þórðarsonar, að þvi er það best veit fyrir frumkvæði endurskoðunardeildar borgar- innar, en byggingadeild hafi ekki- átt þar hlut að. Það hafi ekkert vitað eða frétt um rann- sókn endurskoðunardeildar og ekkert samráð við það haft i þvi sambandi. Það hafi einungis frétt um þetta á skotspónum. Það segir, að sér hafi aldrei bor- ist kvartanir eða ábendingar varðandi ætlað misferli i rekstri framangreindra borgarfyrir- tækja.” Telja verður, að R.Þ. eigi sem aðrir starfsmenn Reykjavikur- borgar rétt til hlutlausrar og faglegrar meðhöndlunar máls hans. Gagnvart borgarstjórn Reykjavikur hlýtur þessi réttur R.Þ. að vega afar þungt, þar sem borgarstjórn hefur með samþykkt sinni frá 18. jUli 1974, óskað eftir sakadómsrannsókn á rekstri ÁhaldahUss Reykja- vikur, sem öll beindist að hon- um. Reyndist sU rannsókn tilefnislaus eins og áður er að vikið. Fyrir hönd Reynis Þórðarson- ar leyfi ég mér að skora á borgarstjórn Reykjavikur, að hUn hlutist til um, áður en endanleg ákvörðun verður tekin i málinu, að allir þættir þess verði athugaðir itarlega af hæf- um, sérfróðum og hlutlausum mönnum og þeim verði gert að skila skriflegri greinargerð um málið og réttmæti uppsagnar. Þegar niðurstöður slikrar at- hugunar liggja fyrir, er tima- bært að fjalla um málið i borgarstjórn en ekki fyrr. Við afgreiðsiu málsins i borgarstjórn væri eðlilegt að þeir borgarfulltrUar, sem lengst hafa gengið i tilefnislausum kæruaðgerðum á hendur R.Þ. vikju sæti. 0 Fimmtudagur 20. marz 1975.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.