Alþýðublaðið - 09.04.1975, Side 1

Alþýðublaðið - 09.04.1975, Side 1
FRIÐRIK GERÐI JAFNTEFLI BAKSIÐA HEITT í KOLUNUM Einhver hafði sett eld að sinu við Miklubrautina i ieyfisleysi og slökkvilið og lögregluskorti ekki viljafúsan liðsauka við að ráða niðurlögum eldsins. Sinubruni innan borgarmark- anna er að sjálfsögðu harðbann- aður og gctur enda haft i för mcð sér ófyrirsjáanlegan voða. Ilallur tók myndina. MIÐVIKUDAGUR 9. apríl 1975 — 81. tbl. 56. árg. Litlar sem engar sumarráðningar hjá opinberum aðilum HVAR FÆR SKOLAFOLK ATVINNU I SUMAR? Eftir Halldór Valdi- marsson— Fyrsta grein „Fjármálin hafa verið i gagn- gerri endurskoðun hjá þeim, sem um þau fjalla hjá okkur, og hefur verið mjög óljóst fram til þessa, hve miklar framkvæmdir við get- um ráðist i á komandi sumri. Þótt svo 10% hækkun á útsöluverði rafmagns hafi náð fram að ganga, skortir enn um 200 millj- ónir króna til þess að ná árinu saman og þvi er ekki enn búið aö taka afstöðu til þess, hvort og hve mikið af sumarvinnufólki við ráð- um nú”, sagði Björn Helgason, ráðningastjóri Rafmagnsveitu Reykjavikur, i viðtali viö Alþýðu- blaöið i gær. „Það hefur mikið veriö spurt eftir og sótt um vinnu”, sagði Björn ennfremur „og sérstaklega finnst mér meira um umsóknir skrifstofufólks en verið hefur. Það kæmi okkur mjög illa að geta ekki ráðið allt það fólk, sem við þurfum, og auðvitaö kæmi þaö einnig illa við skólafólk það, sem annars fengi vinnuna, en, eins og ég sagði er allt mjög óljóst um þetta og ég treysti aðeins á, aö af- staða verðitekin mjög fljótlega.” Slæmarhorfur virðast nú vera I atvinnumálum skólafólks, enda eðlilegt að samdráttur i atvinnu- vegum þjóðarinnar komi fyrst niður á þeim, sem ekki njóta at- vinnuöryggis af þvi að vera fast- ráðnir. A hverju ári hcfur fjöldi ungmer.na verið ráðinn til afleys- ingastarfahjáopinberum stofnun- um og i-innig i vinnuflokka þá, sem aðeins starfa áumrin, svo sem hjá Landsimanum, Vega- gerðinni og rafveitunum. Fyrir- hugaður þriggja milljarða sam- dráttur á fjárlögum hlýtur að koma að nokkru, jafnvel miklu leyti niður á þeiin framkvæmd- um, sem skólafólk hefur haft at- vinnu af, þar sem mcginhluti fjárlaga að öðru leyti, er bundinn af lagabókstaf. Ástandið hlýtur að bitna á skólafólkinu Mikil óvissa rikir nú um fjár- magn það, sem hinar ýmsu ríkis- stofnanir hafa úr að moða til framkvæmda á komandi suinri og einnig er óvfst f dag, hvernig framkvæmdum bæjar- og sveit- arfélaga verður háttað. Til dæmis hafa ýmis bæjar- og sveitarfélög fullan hug á aö hefja hitaveitu- framkvæmdir á þessu sumri, en hafa ekki getað boðið verk þessi út, eða látið hefja undirbúning þeirra vegna óvissu i fjármálum. Flestir, eða allir fjárfestingar- sjóðir landsins, eru tómir, svo ljóst er að fé til framkvæmda verður torfundiö. AUar þær fram- kvæmdir, sem væntanlega drag- ast mikið saman, eða veröur jafn- vel frestað með öliu, eru sumar- framkvæmdir og þaö eru cinmitt þær framkvæmdir, sem veitt hafa skólafólki vinnu. Astand þetta hlýtur þvi að koma niöur á skóla- fólkinu fyrst og femst og jafnvel svo, að mikill fjöldi þess gangi at- vinnulftill I sumar. „Ég get ákaflega Htiö sagt um ráðningar sumarfólks á komandi sumri, þar sem ekki er búið að samþykkja vegaáætlun fyrir árin 1974-1977 á þingi og þvi með öllu óljóst, hve miklar framkvæmdir verða á vegum Vegagerðarinnar I sumar”, sagði Gunnar Gunnars- son, ráðningastjóri Vegagerðar rikisins, þegar Aiþýðublaðið hafði samband við hann i gær. Mest VART FARIÐ AÐ HUGA AÐ VANDANUM hefur sumarfólkið starfað að brú- arvinnu og i mælingaflokkum og það er oftast sarna fólkið, ár fram af ári. Við vonumst auðvitað til að geta haft nógar framkvæmdir til þess að halda sama fólksfjölda og verið hcfur, en við vitum ekki, hve mikið fé við fáum, né heldur hvaö við fáum aðgera, svo ég get ekki svarað neinu til að svo stöddu.” Geysilega mikið spurt Alþýðublaðiö hafði einnig sam- band við Ingu Svövu Ingólfsdóttur starfsmannastjóra Pósts og Slma, og svaraði hún á þessa leið: „Það hefur geysilega mikið verið spurt og sótt um vinnu hjá okkur núna — ég býst við að það sé um þaö bil helmingi meir en venja er til. Viö verðum auðvitað að ráða afleysingafólk á langlinuna og vlðar og ég býst við, að reynt verði að taka það fólk, sem hefur verið I þeim störfum áður. Um aðra en þá, sem ganga I beinar afleysingar, veit ég ekki enn, þar sem ekki er búið að taka ákvarð- anir um framkvæmdir úti á landi. Það má þó búast við þvl, að nokkru færri verði ráðnir nú en undanfarin sumur.” Þá hafði hlaöið samband við I 3. SÍÐA □ OLÍUSAMN- INGARNIR LÆKK- UNIN KEMUR EKKI FRAM STRAX „Þessi lækkun kemur ekki strax fram i útsöluverði, en vonandi gerir hún það, einhvern timan”, sagði Ólafur Jóhannesson viðskiptaráðherra i simtali við Alþýðublaðið i gær. „Það er ekki hægt núna, að segja hversu mikil lækkun verður á innkaupsverði oliunnar”, sagði viðskipta- ráðherra ennfremur, „bæði er, að samningamennirnir eru ekki komnir til landsins og svo er verðlag á oliu i Rotterdam ákaflega breytilegt, en þetta skýrist fljótlega.” Fulltrúar viðskipta- ráðuneytisins og islensku oliu- fél. áttu samningaviðræð- ur við Sovétmenn um siðustu helgi um endurskoðun á verð- lagsgrundvelli oliunnar, sem keypt er til landsins þaðan. Hingað til hefur verðlagningin verið miðuð við verð oliu i Curacao i Karabiska hafinu, en samkvæmt nýja samkomu- laginu, sem gildir til áramóta, en þá rennur út oliukaup- samningur okkar við Rússa, þá á verðlagningin að miðast við verð bæði i Curacao og Rotterdam. 1 tilkynningu frá viðskiptaráðuneytinu segir, að þetta hafi i för með sér nokkra lækkun á innkaupsverði oliunnar. Þetta hefur þó i för með sér ákaflega breytilegt innkaups- verð oliunnar, þvi i Rotterdam eru nánast dagprisar. Fer verðið þar algerlega eftir fram- boði og eftirspurn. Eins og er er verð þar lægra nokkuð en i Cuaracao. Byggist það mikið á þvi, að veður hefur verið gott i Evrópu i vetur og birgðir hafa safnast fyrir hjá Hollendingum. Hins vegar kólnaði á dögunum og rauk verðið þá upp. Þvi er ekki á neinn visan að róa með oliuverð til áramóta að minnsta kosti og litur út fyrir að Islend- ingar verði að hegða sér i þeim efnum að einhverju leyti eftir reglum spakaupmennskunnar. I I Miðstjórnarvald Vinnuveitendasamtakanna — skipun um hörku VINNUVEITENDUM í EYIUM VAR BANNAÐ AÐ SEMIfl UM HÆRRA KAUP Framkvæmdastjórn Vinnuveit- endasambands fslands sendi vinnuveitendum i Vestmannaeyj- um i gær fyrirmæli um að sýna fyllstu hörku gagnvart launþeg- um i Eyjum i kjaradeilunni þar. Eins og kunnugt er var bráða- birgðasamkomulagið um „lág- launabætur” fellt i Vestmanna- eyjum, en verkalýðsfélagið þar var fyrsta aðildarfélagið innan ASl, sem lagði bráðabirgðasam- komulagið undir félagsfund. Alþýðublaðinu barst i gær ályktun framkvæmdastjórnar Vinnuveitendasambandsins, en þar segir: „Vegna þeirrar kjaradeilu, sem nú stendur yfir i Vestmanna- eyjum minnir framkvæmda- stjórn Vinnuveitendasambands Islands á skyldur einstakra vinnuveitendafélaga gagnvart heildarsamtökunum og lýsir þvi yfir, að hún getur ekki leyft, að þau gangi lengra en felst i heildarsamkomulagi Vinnuveit- endasambands tslands við Al- þýðusamband Islands 26. mars sl. Jafnfram t itrekar fram - kvæmdastjórnin, að Vinnuveit- endasamband Islands er reiðubú- ið að veita Vinnuveitendafélagi Vestmannaeyja hvern þann stuðning, sem það ræður yfir, þ.ám. að gripa til verksviptingar- aðgerða, komi til boðaðrar vinnu- stöðvunar”. Jón Kjartansson, formaður verkalýðsfélagsins i Vestmanna- eyjum, sagði i samtali við Al- þýðublaðið, i gærkvöldi, að hann sæi þess engin merki, að sam- komulag myndi takast við vinnu- veitendur fyrir miðnætti i nótt og eru þvi allar likur á, að þá skellli á verkfall, sem mun lama allt at- hafnalif i Eyjum. Siðasti fundur fulltrúa verka- lýðsfélagsins og vinnuveitenda i Evjum var haldinn i fyrradag, ,.en þar gerðist bókstaflega ekk- ert”, sagði Jón Kjartansson. Ann- ar fundur hafði ekki verið boðað- ur með deiluaðilum i gærkvöldi.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.