Alþýðublaðið - 09.04.1975, Page 2

Alþýðublaðið - 09.04.1975, Page 2
AAinningarorð Ágúst Hólm Ágústsson F 6. nóv. 1893 D. 31. marz 1975 Þegar traustir og dyggir félagar falla frá, þótt við aldur séu, fer ekki hjá þvi að maður renni huganum aftur til fyrstu kynna af viökomandi persónu. Nú við skyndilegt andlát Agústar Hólm sakna ég vinar i stað. Þótt aldursmunur væri með okkur, eða yfir 30 ár, fór ávallt vel á með okkur frá fyrstu kynnum til þeirra siöustu. Agúst var fæddur að Skarð- strönd 6. nóvember 1893 og hefði þvi orðið 82 ára n.k. haust. Agúst var sérstakur persónu- leiki. Einstaklega varö þess vart i fari hans öllu og umtali, að hann allt til hinstu stundar, unni æskuhugsjónum sinum og stóð þar fastur fyrir, svo fastur, að eftir að hann haföi tekið ákvörðun með eða móti, varð engu um þokað. Aður en hann tók slikar ákvarðanir athugaði hann af sinni meðfæddu ná- kvæmni, rækilega alla mála- vöxtu og rasaði hvergi um ráð fram. Agúst skipaöi sér ungur, sem önnur alþýöubörn, i sveit sjó- manna og verkafólks og i beinu framhaldi af þvi i Alþýðuflokk- inn, sem brjóstvörn þess á hin- um pólitiska vettvangi. 1 Sjómannafélaginu I Reykja- vik var hann lengstan hluta ævi sinnar ötull og traustur félagi og studdi formann sinn Sigurjón A. Ólafsson með ráðum og dáð I allri hans löngu og ströngu bar- áttu fyrir Sjómannasamtökin á Islandi. Foreldrar Ágústar Hólm voru þau Stefánia Þóröardóttir ogAgúst Breiðdal ljósmyndari. I uppvexti Ágústar, sem og annarra ungmenna á þeim tima — þ.e. i byrjun aidarinnar, var ekki margra kosta völ, um at- vinnu til lands og sjós og þar með var valiö búið. Þessara hluta mætti ungt fólk i dag gjarnan minnast nú, þegar krafa um námslaun til þess náms, sem það kýs sér aö nema, er efst á baugi. Ágúst var allt til hinstu stund- ar sjómaður, þótt hann á siðari árum stundaði aðra atvinnu, m.a. hjá Rafveitu Reykjavikur, — þar sem hann eyddi siöustu starfskröftum sínum. Svo sem fyrr er á minnst byrjaði Agúst ungur að stunda sjó, fyrst sem matsveinn á „Kútter” Keflavik og siðar á hvers konar öðrum fiskifleyt- um. Þess á milli stundaði hann vinnu i landi, við almenn verka- mannastörf og kynntist þá félagslegri baráttu verkafólks og sjómanna fyrir rétti sinum og varð allt til æviloka trúr þeim hugsjónum sinum, jafnvel þótt það kostaði hann á stundum at- vinnuna. — Þá var atvinnan eina lifsöryggið. Vinnufélagar i sjómannastétt sýndu honum fyrir fórnfýsi hans og dugnaö, margs konar trúnað meö þvi að velja hann I trúnaðarmannaráð félagsins á Alþýöusambandsþing og i stjórn Dvalarheimilis aldraðra sjómanna. Fyrir allt hans fórnfúsa starf i þágu Islenskra verkalýðssam- taka eru honum nú að leiðarlok- um færðar alúðarþakkir með ósk um góða heimkomu á loka- ströndinni miklu. — Þakka þér góði vinur allar leiðbeiningarn- ar. Otför hans fer fram frá Foss- vogskapellu kl. 10.30 I dag. Eggert G. Þorsteinsson FARIÐ AD BERA A FÆKKIIN FLUGFARÞEGA Nokkur samdráttur varð á far- að undantekinni leiðinni milli þegaflutningum Islendinga milli Rvikur og Egilsstaða, varð hins- landa á árinu 1974, miðað við 1973. vegar aukning. Mest varð hún á Þar munar mestu um fækkun far- leiðinni Vestmannaeyjar — Rvik þega milli Bandarikjanna og um tæpa 13 þús farþega, Luxemborgar, þótt hundraðshluti Heildaraukning i innanlands- sé ekki hár (-^5.1%), vegna hins flugi varð 10% frá 1973. Marg- mikla mannfjölda, sem fluttur háttaðir erfiðleikar hafa orðið á var og raunar er. A ýmsum öðr- vegi flugsins vegna eldsvoðans á um leiðum varð hinsvegar tals- Reykjavikurflugvelli þ. 13 jan. verð aukning I hundraðshlutum. s.l., þegar flugskýli, verkstæði Á öllum flugleiðum innanlands, o.fl. gjöreyðilagðist i eldi. Ódýrasta Ferðafélags- ferð kostar 6300 kr. GRINDAVÍK: AFLINN MEIRI EN í FYRRA 1 gær hafði verið landað sam- tals 8.100 tonnum af bolfiski i Grindavik, á þessari vertið. Er það svo til eingöngu netafiskur, en af 65-70 bátum, sem nú leggja upp á staðnum, eru einungis þrir með troll. Aflahæstu bátar eru Geirfugl, með 676 tonn, Þórir, með 325 tonn, og Hópsnes, með 318 tonn. Róðrar á vertiðinni eru orðnir 1270. A sama tima I fyrra var heildaraflinn 6.781 tonn, i 1224 róðrum. Þá hefur verið landað 11.660 tonnum af loðnu i Grindavik, en á sama tima i fyrra var heildar loðnuafli á staðnum 25.000 tonn. Ferðafélag Islands hefur sent frá sér áætlun um ferðir á sumri komandi, sem farnar verða á vegum félagsins. Kennir þar, að vanda margra grasa, enda liggja leiðir viða bæði um byggðir og ör- æfi. Alls eru auglýstar 27 sumar- ferðir, sem algengast er að taki 4- 6 daga hver. Lágmarksverð á þeim ferðum er kr. 6300. Lengri ferðir eru og fyrirhugaðar, eink- um um hálendið. Eru það allt upp i 12 daga ferðir, sem kosta frá 10.600-18.700 kr. Gist verður i skálum félagsins og tjöldum. Einar Þ. Guðjohnsen, sem ver- ið hefur framkvæmdastjóri fé- lagsins undánfarin ár, lét af störf- um um s.l. mánaðamót, en við þvi starfi hans hefur tekið til bráða- birgða Tómas Einarsson kennari. Arbók Ferðafélagsins, sem að þessu sinni fjallar aðallega um Mýrdalinn, mun koma um næstu mánaðamót. Verð hennar verður kr. 1200, sem innheimt verður við afhendingu. AUGLÝST LÁN ,,Ég rak augun i þetta lika og fannst það nokkuð djarft, áður en nokkur samþykkt hefur verið gerð um hækkun Iánanna. Hins vegar hefur húsnæðismálastjórn gerttillögur til hækkunar til rikis- stjórnarinnar og þær tillögur eru til athugunar, en engin ákvörðun hefur verið tekin,” sagði Hall- grimur Dalberg ráðuneytisstjóri i félagsmálaráðuneytinu i simtali við Alþýðublaðið i gær. Tilefnið var auglýsing i Morgunblaðinu frá málaflutningsstofu, þar sem auglýstar voru til sölu nýjar ibúðir og sagt: „Beðið verður - EN EKKI eftir Húsnæðismálastjórnarláni kr. 1.700,000.-” Hins vegar eru lán stofnunarinnar til nýbygginga ekki nema 1.060 þúsund sam- kvæmt reglugerð, sem sett var 26. júni 1974. Þeirri reglugerð hefur ekki verið breytt. Þegar blaðamaður Alþýðu- blaðsins spurðist fyrir um ibúðir þessar — sem einstaklingur — fékk hann þau svör að rikis- stjórnin væri ekki búin að hækka lánin opinberlega, en hækkunin væri alveg örugg. Hins vegar gaf annar málaflutningsmanna- nar.na, sem reka stofuna, Haf- VEITT! steinn Baldvinsson, hrl., þau svör i simtali við Alþýðublaðið, að það hefði' verið misskilningur að setja inn upphæð, heldur hefði einungis átt aö tilgreina að beðið væri eftir húsnæöismálastjórnarláni, án skilgreiningar á þvi hversu hátt það væri. Þetta væri klaufa- skapur, orðinn til þannig að umræður hefðu átt sér stað um væntanlega lánsfjárupphæð og hefði auglýsingamaðurinn tekið þátt i þeim. Þessi upphæð hefði þótt sennilegust og væri þarna um að ræöa skýringuna á þvi, hvers vegna hún stæði i auglýsingunni. VERDA LENDIHGAGIðLDIN A KEFLA- VÍKURVELLI ÞAU HÆSTU í HEIMI7 Flugleiðir h.f. hafa sent fjár- hags- og viðskiptanefndum Al- þingis og fleiri opinberum aðilum greinargerð vegna frumvarps rikisstjórnarinnar um ráðstafan- ir i efnahagsmálum og fjármál- um, þar sem lagst er gegn fyrir- huguðum hækkunum lendingar- gjalda og álagningu flugvallar- gjalds og segir þar, að verði frumvarpið samþykkt, verði flugvallargjöld á Keflavikurflug- velli að likindpm þau hæstu i heimi. Hefur félagið óskað eftir að fá að skýra afstöðu sina á sér- stökum fundi með fulltrúum Al- þingis og rikisstjórnar. 1 greinargerð Flugleiða h.f. segir: „Frumvarpið kemur i kjölfar erfiðleika i þessum starfsgrein- um (flugrekstri og móttöku er- lendra ferðamanna), sem eru af- leiðing af oliukreppu og sam- drætti erlendis. Samþykkt á- kvæða frumvarpsins um flugvall- argjald mundi hafa frekari sam- dráttaráhrif ákomu erlendra ferðamanna til landsins en orðið er. Komumútlendinga til Islands fækkaði um 7,5% árið 1974 miðað viðárið 1973. Sú hækkun lending- argjalda, sem um er rætt i grein- argerð frumvarpsins og er á hendi framkvæmdavaldsins mundi hafa neikvæð áhrif á rekstrarafkomu félagsins árið 1975 og seinka þvi, að flugrekstur- inn kæmist úr þeim öldudal. sem hann nú er i. Félagið er i grundvallaratrið- um andvigt álagningu flugvallar- gjalds. Það telur, að með tilliti til legu landsins sé eðlilegt, að landsmenn hafi sem mesta mögu- leika á samskiptum við aðrar þjóðir með ferðalögum. Jafn- framt skal á það bent, að óheftur ferðamannastraumur til landsins skapar hér verulega atvinnu og greiðir og stuðlar að þeim traustu flugsamgöngum, sem tengja landið við umheiminn. Félagið leyfir sér sérstaklega að mótmæla flugvallargjaldi i þeirri mynd, sem i frumvarpinu er lagt til. Félagið telur, að með þeim fyrirvara, sem gert er ráð fyrir, sé óhjákvæmilegt annað en, að það yrði að stórum hluta að taka á sig þetta nýja gjald, þar sem ekki er hægt að koma þvi inn i fargjaldahækkun fyrr en 1. októ- ber. Innheimta gjaldsins af er- lendum ferðamönnum eftir að þeir koma til landsins er ótæk. Innheimta á þeim farseðlum, erlendis, sem þegar hafa verið seldir, er óframkvæmanleg. Breyting á sumarfargjöldum og sumarferðum til Islands mundi hafa mikinn kostnað og röskun i för með sér. Þegar hafa verið gefnir út sérstakir pésar og áætl- anir vegna tslandsferða fyrir a.m.k. 15 milljónir króna auk beinna auglýsinga i fjölmiðlum erlendis. Fargjaldabreyting mundi hafa stórskaðleg áhrif á eftirspurn eftir ferðum til Is- lands. Island er þegar dýrt ferða- mannaland og við erum þegar i samkeppni við aðra ferðamanna- staði um flesta þá farþega, sem hingað vilja koma. Svo gæti farið, að félagið neyddist til að taka á sig allt flug- vallargjaldið vegna útlendinga fram til 1. október n.k. Aukinn rekstrarkostnaður af þessum völdum yrði um 103 milljónir króna. Ef freistað yrði að ná gjaldinu inn við söíu erlendis, þrátt fyrir þá röskun og hættu á, að erlendum ferðamönnum sner- ist hugur, hefur verið áætlað, að félagið yrði samt áð greiða u.þ.b. 64 milljónir króna i flugvallar- gjald. Framhald á bls. 4 H 'Hafnartjaröar Apótek & Afgreiðslutími: Virka daga kl. 9-18.30 'í\ Laugardaga kl. 10-12.30. U Helgidaga kl. 11-12 $ Eftir lokun: É Upplýsingasími 51600. « I | 8 8 -‘i $ t \WEVFILL Sími 8-55-22. Opið allan sólarhringinn % n , fj I [i -7 |, y}. ÞAÐ B0RGAR SIG AÐ VERZLA f KRON n i § i Dúnfl í GlflEÍIDflE /ími 84200 m J § 0 Miðvikudagur 9. april 1975.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.