Alþýðublaðið - 09.04.1975, Qupperneq 9
ÍÞItÖTTIIt
Víðavangshlaup Islands
A laugardaginn fór fram f
Vatnsmýrinni VÍBavangshlaup
Islands. Keppendur voru um 200
talsins og létu litt noröan kulda-
gjóluna og nokkuö erfiöar aöstæö-
ur á sig fá. Keppnin var hin
skemmtilegasta og mátti oft sjá
mikla baráttu, þegar að marki
dró og háöu margir mikið senti-
metra striö á marklinunni.
1 kvennaflokki sigraöi Ragn-
hildur Pálsdóttir UMSK örugg-
lega á 5.49,1 min, en systir Ragn-
hildai; Sólveig,háöi harða baráttu
við Önnu Haraldsdóttur FH, um
2. sætið en varö aö gefa eftir á sið-
ustu metrunum.
Timi önnu var 6.07.2 min. en
Sólveig fékk tímann 6.07,4 min. og
vakti góð frammistaöa Sólveigar
sem er ung aö árum; mikla at-
hygli.
Þá var komiö að FH-ingum aö
láta ljós sitt skína, en þeir sigruöu
i öllum karlaflokkunum meö
miklum yfirburöum.
1 piltaflokki sigraöi Arnljótur
Arnarson FH á 5.15,0 min. IR átti
2. mann, Kára Bryngeirsson,
5.22,4 min. og 3. varð Ingi Ó.
Guðmundsson FH á 5.23,7 min.
I drengjaflokki átti FH þrjá
fyrstu menn, Sigurð P.
Sigmundsson 8.35,0 min. Einar P.
Guðmundsson 8.53,7 min. og
Gunnar Þ. Sigurösson á 9.02,9
min.
I karlaflokki hélt Robert
McKee uppi merki FH og sigraði
örugglega á 15.51,4 min.
HSK-menn voru fjölmennir i
þessum flokki og fengu 2. og 3.
sætiö. Leif österby varö 2. á
16.01,6 min. en Jón H. Sigurösson
3. á 16.18,6 mín.
I sveitarkeppnunum, en keppt
var i þriggja, fimm og 10 manna
sveitum, hlutu FH-ingar flest
verðlaun 7, en HSK 4 og voru þátt-
takendur þessara félaga i nokkr-
um sérflokki i hlaupinu.
Robert McKee sigraöi i karla-
flokki
Fátt um fína drætti
Það var fátt um fina drætti á
Mela vellinum i gærkvöldi
þegar KR og Armann léku i
Reykjavikurmótinu i knatt-
spyrnu. Völlurinn glerharöur
og i lok leiksins var komiö
snjófjúk.
KR-ingar fóru með sigur af
hólrni, meö marki Jóhannesar
Torfasonar i fyrri hálfleik.
Nokkru siöar áttu Ármenning-
ar gullið tækifæri til aö jafna
en brást þó hrapallega boga-
listin I upplögðu færi.
í seinni hálfleik voru KR-
ingar skárri aöilinn þó knatt-
spyrnan, sem sýnd var, væri
ekki rismikii og varö þá mark-
maður þeirra nokkrum sinn-
um að taka á honum stóra sin-
um.
Eins og viö sögöum frá I gær, þá sigruöu Vestmannaeyingar lið
Keflavikur i Eyjum um helgina. Meöfylgjandi mynd tók Guö-
mundur Sigfússon af viöureign liöanna. Þaö er hinn bráðefnilegi
Sigurlás Þorleifsson sem sækir þarna aö marki ÍBK, en i þetta
skipti hefur Guöni Kjartansson betur. Sigurlás skoraði eitt af
þrem mörkum Eyjamanna með skalla.
Eins og viö sögöum frá i gær, þá
slasaöist Óskar Valtýsson illa á
hné á æfingu með liöi ÍBV fyrir
helgi. Nú er búið að skera Óskar
upp og að sögn eru meiösli hans
ekki eins alvarleg og viö var búist
i fyrstu. Hann mun hinsvegar
eiga langt i land ennþá, en von-
andi sést þessi snjalli knatt-
spyrnumaöur I leik fljótlega.
Myndina tók Guöm. Sigfússon
V.eyjum.
MUNIÐ
íbúðarhappdrætti H.S.I.
2ja herb. íbúðað
’ verðmæti kr. 3.500.00.
Verð miða kr. 250.
Á sama tima og NM stúlkna var
haldið hér á landi tók unglinga
landslið pilta þátt i sömu keppni i
Finnlandi.
Þeim gekk hinsvegar ekki eins
vel, töpuðu öllum leikjum sinum
nema gegn lélegasta liðinu i mót-
inu, liði Finna.og höfnuðu i 4. sæti.
Sviar og Danir háðu harða
keppni um efsta sætið, þar sem
Sviar sigruðu á betra markahlut-
falli.
Lokastaðan i mótinu varö þessi:
Sviþjóð
Danmörk
Noregur
tsland
Finnland
Golf
Bandariski golfleikarinn Jack
Nicklaus er nú að draga mjög á
Johnny Miller hvað þénustu víð-
vikur i keppni atvinnumanna.
Miller hefur ekki leikið vel að
undanförnu og er þar innflúensu
kennt um. Nicklaus hefur hins-
vegar verið i essinu sinu og hefur
sigrað i tveim siðustu keppnum
sinum, Doll Eastern og Heretic
Classic. I Heretic Classic komst
Miller sem unnið hefur sér inn 120
þúsund dali á árinu ekki einu
sinni i úrslit.
Nicklaus hefur nú haft 109 þús-
und dali upp úr krafsinu, en i
þriðja sæti er Bob Murphy sem
sigraði Jackie Gleason tornument
og hafnaði i 2. sæti i Bob Hope
Classic með 78 búsund dali.
NM-pilta
Er gólfkuldi á
neðstu hæðinni?
Má spara hita-
kostnað með nýrri
einangrun?
Þér fáið svar við hinum ýmsu spurningum
varðandi einangrunarvandamál hjá sér-
fræðingum Superfos Glasuld a/s, sem taka
á móti gestum á sýningunni hjá Arkitekta-
þjónustu A.Í., Grensásvegi 11, Reykjavík:
OPIÐ HÚS
MIÐVIKUDAGINN 9. APRÍL og
FIMMTUDAGINN 10. APRÍL KL. 13-15
/M
Superfos Glasuld Nalhail & Olsen hf
Miðvikudagur 9. apríl 1975.
0