Alþýðublaðið - 09.04.1975, Blaðsíða 12

Alþýðublaðið - 09.04.1975, Blaðsíða 12
alþýðu mmm N.isf.os lil’ PLASTPOKAVERKSMIOJA Símar 82639-82655 Valnogörfcum 6 Box 4064 — Reykjevík KOPAVOGS APÚTEK Opið öll kvöld til kl. 7 laugardaga til kl. 12 FRIDRIK GERDI ÞRIÐJfl JAFNTEFLID f GÆRKVÖLDI Samkvæmt fréttum rá Las Palmas á Kanarieyjum i gær- kvöldi gerði Friðrik Ólafsson jafntefli við ítalann Tatai, og er þar með kominn með eitt og hálft stig eftir þrjár umferðir. Alls eru tefldar 15 umferðir á mótinu. Friðrik hafði betri stöðu, en einhverra hluta vegna hefur hann ekki náð nema jafntefli úr skákinni. Þar sem nánari fréttir höfðu ekki borist þegar blaðið fór i prentun getum við þvi miður ekki birt skákina fyrr en á morgun, og þá verða jafnframt birt úrslit biðskáka frá i gær, svo og öll önnur úrslit þriðju umferðar i kvöld með biðskákum. Hinn ungi sænski stórmeistari, Ulf Anderson, var ekki mættur þegar mótið hófst, og mun hann þvi fá að tefla þær skákir, sem eftir honum biða þegar hann kemur. Aðeins tveir kepp- enda höfðu unnið báðar sinar fyrstu skákir, þeir Lubojevic og Cardoso. HVAÐ GERIR FRIÐRIK Á SVÆÐA- MÓTINU? EFTIR ÞVÍ BÍÐA ALLIR ,,Það kom mér ekki á óvart að Friðrik skyldi gera jafntefli við Petrosjan i gær. Petrosjan er alræmdur jafntefliskóngur, og það hefði verið stórfrétt ef Frið- rik hefði unnið hann,” sagði Gunnar Gunnarsson, forseti Skáksambands íslands er við ræddum við hann i gærkvöldi um skákmótið á Las Palmas og svæðamótið, sem haldið verður hér i Reykjavik i október. „Friðrik er búinn að tefla við mjög erfiða menn, en það er alltaf leiðinlegt fyrir áhorfendur og þá sem fylgjast með þegar svona stórlaxar dragast saman i fyrstu umferðunum,” sagði Gunnar. „Þeir tefla þá miklu mun varlegar og semja gjarnan snemma um jafntefli. Friðrik er lika orðinn það respekteraður i skákheiminum, að það er leitað eftir jafnteflum við hann.” — Nú verður svæðamót hald- ið hér i haust, hvernig hefur undirbúningi miðað? „Mótið verður væntanlega haldið á Hótel Esju. Þar munu keppendur búa, og þar er góð aðstaða. Kaffiterian verður væntanlega þá flutt niður á neðstu hæð og höfð þar til fram- búðar, svo við fáum væntanlega afnot af 9. hæðinni fyrir þær skákir, sem mestur áhugi er fyrir og mest aðsókn að. Keppendur verða 15-16, og aðal spenningurinn verður að sjálfsögðu að fylgjast með þvi hvort Friðrik muni takast að komast i annað efstu sætanna, en tveir efstu úr þessu móti munu siðan keppa á millisvæða- móti sem undirbúningi að næsta heimsmeistaraeinvigi. Þetta mót verður okkur dýrt, m.a. þurfum við að greiða um 700 þús. kr. i verðlaun og allan uppihalds- og dvalarkostnað þátttakenda. Skáksambandið mun væntanlega setja þá upp skrifstofu, og þegar er hafinn undirbúningur að fjáröflunar- starfi i samvinnu við Taflfélag Reykjavikur. M.a. erum við með i undirbúningi styrktar- söfnunarplögg, og við vonumst til að fá einnig talsverðar tekjur i aðgangseyri, þótt það hrökkvi hvergi nærri fyrir öllum kostn- aði. Rætt við Gunnar Gunnarsson um frammistöðu Friðriks og svæðamótið í Reykjavík í október Stefnt að íslenskri stalbræðslu 1978 „Þetta mál er búið að fara margar hringferðir hjá þvi opinbera, og nú er það i einni hringferðinni enn”, sagði Haukur Sævaldsson verk- fræðingur, þegar við inntum hann eftir þvi hvað Iiði stofnun Stálfélagsins, sem var stofnað haustið 1970 i þvi skyni að koma á framleiðslu á steypustyrktar- jámi hér á landi. „Þessi siðasta hringferð hófst á þvi, að um daginn gengum við á fund iðnaðarráðherra, og að hans undirlagi verður hagrann- sóknardeild og Iðnþróunarsjóðs falið að gera útreikninga á hag- kvæmni verksmiðjunnar með tilliti til nýrra aðstæðna”, sagði Haukur, og við reiknum með að getahafiðstarfsemihennar árið 1978 ef þessi athugun kemur jákvætt út. Hagrannsóknardeild gerði reyndar skýrslu i fyrra, og hún var jákvæð, en vegna mikilla breytinga á heimsmark- aðnum er nauðsynlegt að gera þessa nýju útreikninga”. Fyrsta skýrslan um verk- smiðjuna var lögð fram sumarið 1971, en þá var stofn- kostnaður áætlaður 400 milljónir króna. Þá hittist svo á, að stálverðið hafði fallið úr þvi toppverði, sem það hafði verið um tima, niður i það verð, sem gilti á árunum 1960-’70. Af þeim sökum var svar Iðnþróunar- stofnunarinnar neikvætt. „Þetta hafði það i för með sér að stofnkostnaðurinn er ekki lengur 400 þúsund, heldur er hann farinn að nálgast milljarð- inn”, sagði Haukur. fimm á förnum vegi Fylgist þú með árangri íslenskra skákmanna? Rut Helgadóttir, vinnur I fiski: ,,Já, það geri ég. Maður kemst ekki hjá þvi. Þeir standa sig mjög vel og eiga eftir að gera betur, að minnsta kosti hann Friðrik.” Jón Sævar Baldvinsson, verslunarmaður: „Nei, það geri ég ekki, enda algjörlega áhugalaus um skák og allt sem henni tilheyrir.” Friðrik Aiex andersson , atvinnurekandi: ,,Já, ég fylgist vel með þeim. Þeir standa sig lika verulega vel og ég hef trú á að Friðrik verði i fyrsta eða öðru sæti á mótinu á Kanarieyjum núna.” Björn Jónsson, verslunar- maður: „Nei. Það er vist alveg óhætt að segja að ég hafi takmarkað- an áhuga á skáklistinni. Ég fylgist ekkert með þessu.” Kristján Helgason, skólastjóri: „Ég fylgist auðvitað með F'riðrik og Guömundi og öðrum af þeim stærstu hérna, en al- mennt fylgist ég ekki neitt með Islenskum skákmönnum. Ég hef gaman af skák, en tefli ekki sjálfur.”

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.