Alþýðublaðið - 14.04.1975, Blaðsíða 8
ii’Kímiu
Byrjar
Pele að
lejka
aftur?
Braslliski knattspyrnusnill-
'ingurinn Péle ihugar nú mjög
tilboö frá knattspyrnufélagi I
Bandarikjunum, Kosmos um
að koma og leika með liðinu.
Buðu Bandarikjamennirnir
Péle 6 milljónir dala ef hann
kæmi og léki með liðinu I 3 ár.
Péle sem hefur dregið sig i
hlé sem knattspyrnumaður I-
hugar nú mjög þetta tilboð og
segist fús að leika I tvö ár, en
Bandarikjamennirnir standa
fast á að samningurinn sé til
þriggja ára. Péle mun nú á
næstunni halda fu;n.d með for-
ráðamönnum Kosmos þar
sem reynt verður að ná sam-
komulagi.
Annar frægur kappi hefur
þegar gert samning við Kos-
mos, en það er frinn George
Bestsem þegar er byrjaður að
leika með liðinu.
Ólafur
Sigurvinsson
til Belgíu
Á laugardaginn hélt ólafur
Sigurvinsson til Belgiu þar
sem hann mun dvelja þar til
keppnistimabilinu þar i landi
lýkur og mun Ólafur æfa með
Standard Liege.
Hvort áframhald verður á
dvöl Ólafs i Belgiu liggur ekki
fyrir ennþá, en standi hann sig
vel má ætla að þeir vilji reyna
hann áfram, strax að loknum
sumarleyfum leikmanna
Standard.
Það er þvi útlit fyrir að Ólaf-
ur komi hingað seinni partinn i
mai, en haldi slðan út aftur i
byrjun júni.
Derby stendur best að vígi....
EN EVERTON, LIVERPOOL OG IPSWICH ERU LÍKA MEÐ í BARÁTTUNNI
Derby County stendur nú með
pálmann i höndunum eftir góðan
sigur gegn West Ham á laugar-
daginn og á nú mesta möguleika á
sigri I deildarkeppninni. Derby er
nú með 51. stig eftir 40 leiki.
f 2.-3. sæti eru Everton og
Liverpool með 49 stig eftir 40
leiki, en Ipswich er lika með i
baráttunni, er i 4. sæti með 48
stig, en hefur leikið 39 leiki.
Stoke sem verið hafði með i
baráttunni tapaði illa f Sheffield
og á nú enga möguleika á
meistaratitlinum.
Leikurinn sem mesta athygli
vakti var leikur Derby og
Westham á Baseball Ground i
Derby. Þar unnu heimamenn
sannfærandi sigur og fengu
bikarkandidatarnir West Ham fá
tækifæri I leiknum. Heimamönn-
um tókst þó ekki að skora nema
eitt mark og það gerði Bruce
Rioch I seinni hálfleik. En þá sótti
Derby nær látlaust og átti gamli
kappinn Francis Lee meðal ann-
ars skot i stöng. Eftir leikinn
sagði Dave Mackay
framkvæmdastjóri Derby að
hann hefði verið óánægður með
að sinir menn skyldu ekki skora
fleiri mörk i leiknum, en hann
væri þeim mun ánægðari með að
hafa fengið bæði stigin.
Roy McFarland sem nú lék sinn
annan leik með aðalliði Derby á
keppnistimabilinu eftir langvar-
andi meiðsli sem hann hlaut i
landsleik með Englandi i fyrra,
átti stórleik i vörninni. Hann hélt
Allan Taylor, þeim sem skoraði
bæði mörk West Ham gegn
Ipswich i undanúrslitum bikar-
keppninnar á dögunum, algerlega
niðri i leiknum.
En áður en lengra er haldið
skulum við lita á úrslitin á
laugardaginn:
1. deild.
Arsenal-Leeds 1-2
Bumley-Tottenham 3-2
Chelsea-Man. City 0-1
Coventry-Birmingham 1-0
Derby-WestHam 1-0
Ipswich-QPR 2-1
Liverpool-Carlisle 2-0
Luton-Leicester 3-0
Newcastle-Everton 0-1
Sheffield Utd.-Stoke 2-0
Wolves-Middlesboro 2-0
2. deild.
Aston Villa-OIdham 5-0
Bristol C .-Sheff. W 1-0
Cardiff-Bristol R. 2-2
Hull C.-Blackpool 1-0
Manch. Utd.-Fulham 1-0
Millwall-Norwich 1-1
Nott. For.-Southampton 0-0
Orient-Bolton 0-0
Oxford Utd.-Sunderland 1-0
Portsmouth-Notts C 1-1
York C.-WBA 1-3
Hin liðin þrjú sem enn eru með i
baráttunni á toppnum sigruðu öll,
Liverpool vann Carlisle heima
sem fellur strax eftir fyrsta
keppnistimabil sitt i 1. deild. Tvö
mörk á 10 mínútum gerðu út um
vonir Carlisle, hið fyrra voru
ekki allir á eitt sáttir um hver
hefði skorað. 1 fyrstu var sagt að
Phil Neal hefði skorað beint úr
hornspyrnu þá að markvörðurinn
hefði misst boltann Hnn og þriðja
útgáfan vár að John Toshack
hefði siðastur komið við boltann.
En seinna markið skoraði Kevin
Keegan.
Leikmenn Everton voru heppn-
ir I Newcastle og voru heima-
menn oft nær að skora, sérstak-
lega Mcdonald, en markvörður
Everton bjargaði þá oft snilldar-
lega.
En I seinni hálfleik skoraði
Martin Dobson óvænt fyrir
Everton og fleiri urðu mörkin
ekki.
Ipswich átti ekki I miklum erf-
iðleikum með QPR og aðeins góð
markvarsla Philip Parkes i
marki QPR kom I veg fyrir stór-
sigur Ipswich. Hann réði þó ekki
við skot þeirra Bryan Hamiltons
og Trevor Whymark sem komu
með þriggja minútna millibili.
1 lokin tókst svo bakverðinum
Ian Gillard að skora fyrir QPR.
Stoke tapaði illa i Sheffield,
fyrir United og um leið hurfu all-
ar vonir um að hljóta meistara-
titilinn.
Mörk Sheffield skoruðu, Eddy
úr vitaspyrnu og Eddie
Colpuhoun Luton kom á óvart og
vann góðan sigur á Leicester og
eygir hann smá von með að halda
sæti sinu i deildinni. Það var HM
leikmaðurinn úr liði Ástraliu,
Adrian Altston, sem skoraði
fyrsta mark Luton. Þá varð Keith
Weller fyrir þvi óhappi að skora
sjálfsmark og endahnútinn á góð-
an sigur Luton, rak Jimmy
Husband.
Hin liðin sem standa i barátt-
unni við Luton töpuðu bæði,
Chelsea heima fyrir Manchester
City þar sem Asa Hartford skor-
aði eina mark leiksins.
Á Turf Moor I Burnley var
meira fjör, heimamenn komust i
2-0 með mörkum Nobel, en
Duncan og Perryman jöfnuðu
fyrir Tottenham. Sigurmark
Bumley skoraði Leighton James
úr vitaspyrnu.
Arsenal tapaði heima fyrir
Leeds sem lék án þriggja leik-
manna sem höfðu leikið gegn
Barcelona fyrr i vikunni, Gray
bræðranna og Terry Yorath. En
það virtist ekki koma að sök og
Allan Clarke og Norman Hunter
fundu leiðina að marki Arsenal,
en Kidd skoraði eina mark
heimamanna. f leiknum datt
Duncan Mckenzie illa á öxlina og
fór úr axlarliðnum. Eftir leikinn
sagði Jimmy Armfield fram-
kvæmdastjóri Leeds að of
snemmt væri að segja um hvort
Mckenzie yrði búinn að ná sér
fyrir seinni leikinn gegn Barce-
lona. En sem betur fer hefði eng-
inn annar leikmanna sinna hlotið
meiðsl ileiknum. ,,Ég er ánægður
með hvað við lékum óþvingað og
yfirvegað”, sagði Armfield.
Úlfamir unnu Middlesboro með
mörkum Hibbit, annað úr vita-
spymu og á Hishfield Road, skor-
aði Green eina mark leiksins, þar
sem Coventry sigraði Birming-
ham.
I 2. deild heldur sigurgöngu
Manchester Utd. áfram og nú bar
liðið sigurorð af Fulham og skor-
aði Gerry Daly mark United.
Aston Villa vann stórsigur á
Oldham og var Brian Little mað-
ur dagsins hjá Villa, þrátt fyrir að
honum mistækist að skora úr
vitaspyrnu náði hann að skora
,,hat-trick”.
Sunderland tapaði illa fyrir
Oxford og féll við það i þriðja
sætið úr öðru sætinu sem liðið hef-
ur einokað i vetur. Þetta hleypti
illu blóði I áhangendur Sunder-
land sem hlupu inn á völlinn og
réðust að tveim leikmönnum Ox-
ford áður en lögreglan gat haft
hendur i hári þeirra.
Geoff Butler skoraði þýðingar-
mikið mark fyrir Norwich á
siðustu sekúndunum i Millwall og
Norwich fékk annað stigið.
Eins og horfir virðist Aston
Villa eiga örðugt með að fylgja
Mancester upp, en slagurinn um
3ja sætið muni standa milli
Sunderland og Norwich.
I Skotlandi sigraði Rangers i
fyrsta skipti eftir að liðið hlaut
meistaratitilinn þegar liðið sigr-
aði Aberdeen 3-2. Þá tapaði
Airdrie, sem er komið i úrslit i
skosku bikarkeppninni illa fyrir
Hibernian 6-0 og skoraði Harper
,,hat-trick” fyrir Hibs. Þá vann
Celtic, Dunfermline 1-3 og Morton
gerði jafntefli við Hearts 0-0.
Staðan
1. deild
Derby 40 21 9 10 67-49 ■ 51
Liverpool 40 19 11 10 57-37 49
Everton 40 16 17 7 53-38 49
Ipswich 39 22 4 13 60-40 48
Stoke 40 17 13 10 64-48 47
Middlesbro 40 16 12 12 51-40 44
Bumley 40 17 10 13 68-65 44
Sheff.Utd. 38 16 11 11 50-48 43
Leeds 39 15 12 12 52-43 42
Man. City 39 17 8 14 50-52 42
QPR 40 16 9 15 53-51 41
Wolves 40 14 10 16 56-52 38
West Ham 39 12 13 14 55-53 37
Coventry 40 11 15 14 49-59 37
Newcastle 39 14 8 17 55-69 36
Leicester 40 12 11 17 46-56 35
Arsenal 38 12 10 16 45-45 34
Birmingh. 39 13 8 18 50-56 34
Chelsea 39 9 13 17 40-68 31
Tottenham 39 11 8 20 46-60 30
Luton 40 10 10 20 42-63 30
Carlisle 40 11 4 25 42-59 26
2. deild
Manch.Utd. 40 25 8 7 60-28 58
Aston Villa 38 21 8 9 66-31 50
Sunderland 40 18 13 9 62-34 49
Norwich 39 18 13 8 51-33 49
Bristol C. 39 20 8 11 44-28 48
Blackpool 40 14 17 9 38-26 45
WBA 40 17 9 14 51-40 43
Hull 40 14 13 13 38-52 41
Fulham 39 13 14 12 44-35 40
Bolton 40 14 11 15 42-39 39
Sout’ton 40 13 12 15 47-50 38
Nottm. For. .41 11 15 15 41-51 37
Notts Co 40 11 15 14 45-56 37
Orient 39 9 19 11 25-38 37
Portsmouth 40 12 12 16 42-49 36
York 40 13 9 18 48-54 35
Bristol R. 40 12 10 18 40-60 34
Oldham 40 10 13 17 40-48 33
Cardiff 39 9 14 16 35-56 32
Millvall 40 10 11 19 41-52 31
Sheff.Wed. 39 5 10 24 28-58 20
Eyjamenn erfiðir heim að sækja:
Markvörður Víkings flugveikur
og Eyjamenn
sigruðu
A laugardaginn fengu Vest-
mannaeyingar Vikinga I heim-
sókn og ekki tókst þeim frekar en
öðrum liðum að rjúfa sigurgöngu
Eyjamanna sem sigruðu I leikn-
um 2-0.
Töluvert rok var þegar leikur-
inn fór fram eða 8 vindstig og ein-
kenndist leikurinn nokkuð af
þeim aðstæðum sem hann var
leikinn við. Þó reyndu bæði liðin
að leika saman en sökum roksins
áttu bæði liðin i nokkrum erfið-
leikum með að hemja boltann.
Eyjamenn skoruðu mörk sin i
sitt hvorum hálfleik, Sveinn
Sveinsson það fyrra, en örn
Óskarsson seinna markið.
Aðal markvörður Vlkinga, Dið-
rik Ólafsson varð svo flugveikur á
leiðinni til Eyja að hann gat ekki
leikið með i fyrri hálfleik. Stöðu
hans I markinu tók Jón Sveinsson
sem áður lék með IBK, en hefur
nú gengið i Viking.
Diðrik jafnaði sig þó fljótlega
eftir flugferðina og stóð I markinu
seinni hálfleikinn.
Örn Óskarsson hefur verið ið- u
inn við að skora I vor og hefur W
nú gert mark I hverjum leik. '
Formaður alþjóðaknattspyrnusambandsins, FIFA, Brasiliu-
maðurinn de Havelange hafði hér stutta viðdvöl fyrir helgi og
ræddi þá m.a. við stjórnarmenn KSl og kynnti sér málefni Is-
ienskrar knattspyrnu.
Formaðurinn sagði að FIFA vildi gera allt til að gera islenska
knattspyrnu betri og myndi hann sjá til þess að hingað kæmu
tækniinenntaðir menn ti! að leggja á ráðin. Sagði de Havelange
að hér væri keppnistimabilið allt of stutt, en það mætti iengja
með þvl að leika á yfirbyggðum völium eins og gert væri I Sviss
með góðum árangri og hann skyldi sjá um að hingað yrði send
teikning af slfku mannvirki.
Þá væri gervigras að ryðja sér mikið til rúms og sérstaklega
núna eftir að það hlaut samþykki FIFA. En það eru aðeins
meiriháttar úrslitaleikir sem ekki má leika á gervigrasi svo sem
úrslitaleikir I Heimsmeistarakeppnum og Evrópukeppnum.
Þá sagði de Havelange að stefnt yrði að þvl að koma á 7 landa
keppni I Frakklandi þar sem tslendingar yrðu meðal þátttak-
enda. A myndinni er de Havelange til hægri.
Þriðjudagur 15. apríl 1975.