Alþýðublaðið - 14.04.1975, Page 9
Á myndinni sést Marteinn Geirsson skora mark Fram.
Jafnt hjá Fram og KR
Dregiö í riðiakeppnina fyrir OL í handbolta:
Litlar líkur á að við
komumst til Kanada 76
Lentum í riðli með Júgóslövum og Luxemborg
- Sigurvegarinn úr hverjum riðli kemst áfram
Fram og KR gerðu jafntefli i
Reykjavikurmótinu i knattspyrnu
á laugardaginn 1-1.
Bæði mörkin voru skoruð i fyrri
hálfleik, Framarar náðu foryst-
unni þegar Marteinn Geirsson
skoraði af stuttu færi eftir horn-
spyrnu, en stuttu siðar jafnaði
Guðmundur Ingvasorv sem kom
Meistarakeppni KSÍ
Skagamenn
töpuðu
í Keflavík
úr Stjörnunni, fyrir KR með
fallegu marki.
Bæði liðin áttu tækifæri til að
skora fleiri mörk, en inn vildi
boltinn ekki og hefur jafntefli ef
til vill verið sanngjörnustu úrslit
leiksins.
Leikurinn var með þvi besta
sem sést hefur i mótinu og voru
KR-ingar nú mun skárri en i
leiknum gegn Ármanni á dögun-
Á sunnudaginn var dregið i
riðla i undankeppninni fyrir
Olympiuleikana i Kanada á næsta
ári, i Dortmund i V-Þýskalandi.
Þar lentu tslendingar i riðli
með Júgóslövum og Luxemborg.
Telja verður litlar likur á að við
komumst með lið okkar á
Olympiuleikana, en sigurvegarar
i hverjum riðli komast áfram.
Júgóslavar sigruðu á siðustu
Flestir áttu von á að hið unga
lið Þróttara yrði auðveld bráð
Reykjavikurmeistaranna, Vik-
ings, þegar liðin léku i Reykjavik-
urmótinu i knattspyrnu á sunnu-
daginn. En þvi var ekki svo farið
og var leikurinn hálfgert þóf á
miðjunni og að vitateig Þróttara.
Þegar þangað var komið fór
allt i handaskolum hjá Vikingum
sem voru sterkari aðilinn í leikn-
Ölympiuleikum i Munchen 1972
og eru meðal fremstu handknatt-
leiksþjóða heims.
Þeir léku hér tvo landsleiki i
vetur og lauk fyrri leiknum með
jafntefli, en seinni leikinn unnu
Júgóslavarnir með tveggja
marka mun.
Alls verður keppt i sjö riðlum
og eru þrjú lið i hverjum riðli og
komast sigurvegararnir áfram.
um og voru menn farnir að halda
að Þrótturum tækist að ná stigi i
leiknum.
En þá tókst Eiriki Þorsteins-
syni að skora fyrir Viking og rétt
fyrir leikslok átti Eirikur gott
færi á að skora aftur þegar hann
átti aðeins markvörðinn eftir, en
sláin bjargaði marki Þróttar i það
skiptið þegar Eirikur lyfti boitan-
um yfir markmanninn.
En auk þess komast heims-
meistararnir, Rúmenar, gest-
gjafarnir Kanada, lið frá Afriku,
Asiu og Bandarikjunum beint
áfram i keppnina, eða 12 lið alls.
Þannig litur riðlaskiptingin út:
1. riðill. 2. riðill.
tsland Tékkóslóvakia
Júgóslavia Sviþjóð
Luxemborg Italia
3. riðill. 4. riðill.
Ungverjaland Sovétrikin
Búlgaria Frakkland
Sviss Austurriki
5. riðill. 6. riðill
A-Þýskaland Pólland
V-Þýskaland Noregur
Belgia Bretland
7. riðill.
Danmörk
Spánn
Holland
Eins og sést á þessu þá hafa
frændur vorir Danir verið
heppnastir þegar dregið var og
eru þeir nær öruggir með að kom-
ast áfram. Helst væri að Spán
verjar veittu þeim einhverja mót-
spyrnu, en þeir hafa m.a. lagt
islenska handknattleikslandsliðið
að velli.
1 2. riðli stendur slagurinn milli
Tékka og Svia og verður að telja
Svia öllu sigurstranglegri.
í 3. riðli ætti að geta orðið um
nokkuð jafna baráttu að ræða en
samt eru Ungverjar sigurstrang-
legastir.
I 4. riðli virðist ekkert geta
stöðvað Sovétrikin.
Baráttan i 5. riöli er milli Aust-
ur- og Vestur-Þjóðverja og með
frammistöðu A-Þjóðverja i huga
að undanförnu ættu þeir að hafa
alla möguleika á að komast
áfram.
Telja verður von Norðmanna
að komast áfram litla og i þeirra
riðli fari Pólverjar með sigur af
hólmi.
Við spáum þvi að Júgóslavar,
Sviar, Ungverjar, Sovétmenn, A-
Þjóðverjar, Pólverjar og Danir
sigri I riðlakeppninni.
um.
Fimleikar eins og þeir gerast bestir
1 kvöld kl. 20:00 hefst sýning
rússneska fimleikaflokksins I
Laugardalshöllinni og sýnir þar
margt af besta fimleikafólki
Rússa.
Ilingað eru Rússarnir komnir
á vcgum Fimleikasambandsins
og munu þeir halda tvær sýn-
ingar.
Seinni sýningin verður á
fimmtudagskvöldið og hefst á
sama tima.
Ekki er að efa að þarna gefst
mönnum kærkomiö tækifæri á
að sjá fimleika-eins og þeir ger-
ast bestir.
Einn sá lélegasti
Valur sigraði Ármann I gær-
kvöldi 1-0 i einum þeim léleg-
asta leik sem sést hefur i lang-
an tima á Melavellinum.
Leikurinn einkenndist mest
af hlaupum og spörkum og
sást samleikur milli fleiri en
tveggja leikmanna varla f öll-
um leiknum.
Markvörður Armenninga
var besti maður vallarins, en
hann réði samt ekki við skot
Magnúsar Bergs sem komst
einn inn fyrir vörn Armanns á
siðustu minútu leiksins.
Mikið sparkað á miðjunni
Akurnesingar léku sinn annan
leik i Meistarakeppni KSl á laug-
ardaginn i Keflavik, en þeir höfðu
helgina áður tapað fyrir Val
heima.
1 Keflavik gekk þeim illa,
Steinar Jóhannsson skoraði fyrir
heimamenn, en Teitur Þóröarson
jafnaði fyrir Skagamenn úr vita-
spyrnu.
Ólafur Júliusson náði foryst-
unni aftur fyrir IBK og Kári
Gunnlaugsson bætti svo þriðja
markinu við og gulltryggði sigur-
inn.
# ---------"
\
Ibúð að vordmæti
-r: kr. 3.500.000
‘-.rr ! - VIÐ AHÖIÁ fi I REYKJAVK
j^lbúðir| Vtijlur ^búin undir trévork m«fl bllikýli.
^fiUH \-
MUNIÐ
íbúðarhappdrætti H.S.Í.
2ja herb. íbúðað
' verðmæti kr. 3.500.00.
Verð miða kr. 250.
Nytt símanúmer
Aðalskrifstofa Flugleiða
FLUGFÉLAG LOFTLEIDIR
ISLANDS
Þriðjudagur 15. apríl 1975.
o