Alþýðublaðið - 20.04.1975, Page 2

Alþýðublaðið - 20.04.1975, Page 2
... slban er lakkið hreinsað enn betur með þvi að massa það, en að þvl loknu eru borin á hann ýms efni með kiiit.... en aðlokum er biilinn pússaður með rafmagnsburstum. GRAND PRIX 1975 Umsjón: Þorgrímur Gestsson krónur að fá bil i gegnum bryngljáameðferðina, og fer verðið að sjálfsögðu eftir stærð hans. En þeir gera meira en bera þessi efni á bilana og pússa þá, gljáamenn, þeir byrja á þvi að tjöruþvo þá allsstaðar þar sem lakk er, og þeir hreinsa þá meira að segja að innan og ryk- suga. Siðan byrjar ballið, og þeir segja, að meðferðin taki einn mann allt að tiu klst., en tvo menn fjóra til fimm tima. En komi menn með bilana tandurhreina og fina tekur meöferðin mun skemmri tima, og er þá að sama skapi ódýrari. Og allra best er að koma með bilana splunkunýja — ekki bara uppá kostnaðinn, heldur lika meö tilliti til þess, að þá er komið i veg fyrir lakk- og ryð- skemmdirnar i tima. Hér leggjum við engan dóm á bryngljáaaðferðina, reynslan verður að skera úr um gildi hennar, en þéssi nýjung er fylli- lega þess virði að henni sé gaumur gefinn, ekki sist nú, á timum þegar flestir bileigendur verða að láta bilana endast lengur en menn hafa talið nauðsynlegt undanfarin ár. Er þetta rafmagnsbíll framtíðarinnar? Toyotaverksmiðjurnar I Japan luku nýlega við að fullgera raf- drifinn tilraunabfl, sem er fyrsti árangurinn af fimm ára áætlun um gerðlítilla og léttra rafmagnsbila, sem eru samkeppnisfærir við bfla meö bensín- eöa disilvélar, og valda ekki loftmengun. í þessa áætlun var lagður 2,5 milljarður króna, en að henni standa nokkrar japanskar bilaverksmiðjur, auk japanska rlkisins. Ástæðan fyrir þvl, aö svo mikil áhersla er lögð á þennan þátt er einfaldlega sú, að Japan er stærsti oliuinnflytjandi i heiminum, og þar er meiri lof tmengun en annarsstaöar I heiminum. Ekki hefur verið gefið upp hvenær áætlað er, að þessi bfll verði settur á almennan markað, né heldur hvað hann kemur til með að kosta, en ýmsar tæknilegar upplýsingar hafa veriö gefnar, og gefa þær nokkrar upplýsingar um samkeppnismöguleika bilsins við hina heföbundnu gerð bila. Við tilraunir á bilnum hefur hámarkshraði hans reynst tæp- lega 93 km á klst., og rafgeymahleðslan entist til 180—200 km aksturs. Það tekur bflinn þrjár sekúndur aðfara úr kyrrstöðu i 30 km hraða, og I sex gráðu halla hélt hann jöfnum hraða á allt nið- ur i 40 km/klst. Mesta vandamálið við gerð rafmagnsbila er rafhlaðan. Þvi vinna þeir hjá Toyota að tilraununum á sjö mismunandi gerðum rafhlaða i þvi skyni að finna þá gerð, sem er léttust, fyrirferðar-, minnst, endist lengst og tekur fljótast hleðslu. 1 bilnum er rafeindaútbúnaður, sem stýrir rafmagnseyðsl- unni, viðbragöi bilsins, hemlum, girskiptingu og öryggiskerfi. öryggiskerfið er tengt öllum mikilvægustu hlutum bflsins og tekur við upplýsingum um allar bilanir. Hann gefur þær öku- manninum siðan til kynna, og sé hætta á feröum rýfur hann strauminn til vélarinnar. Bfllinn er 3,63 m langur, 1,72 m breiöur og 1,68 m hár. Hann tekurfimm farþega eða þrjá farþega og 1320kg af farangri. Bflum sem þessum er ekki ætlað aö leysa af hólmi „gömlu” bilana meö sprengihreyflana, heldur að þeir verði einskonar uppbótá þá, og gegni stóru hlutverki við farþegaflutninga i stór- borgum og flutninga á smærri vörum. r A Grand prix keppni fyrir formuia 1 fór fram á Silverstone I Englandi um slðustu helgi, og sigraði Niki Lauda þá keppni á Ferrari, en Emerson Fittipaldi náði ööru sæti meö aöeins einum tiunda úr sek. lakari tima á Texaco Marlboro McLaren. A eftir þeim köppum voru Andretti, Bandarlkjunum á Parnelli, Wat- son, irlandi á Surtees, Dapailler, Frakklandi á Tyrrel, Donohue, Bandarlkjunum varð sjötti á Penske. Lauda keppti nú I fyrsta sinn á nýjum 12 strokka Ferrari, og sýndi hann nokkra yfirburði yfir Fitti- paldi á beinu köflunum, en sá siðarnefndi naut tækni sinnar I beygjunum og bætti þar að nokkru upp þann kraft, sem V8 vélina vantaði, eins og sést á þvl, að hann náöi bestum millitlma I keppninni, ásamt Huut, með þvl að fara hringinn á 1 mln. 17.7 sek. Hunt vcitti þeim Lauda og Fittipaldi harða keppni lengi framan af, eða þar til hann varö að hætta vegna bilunar l Hesketh bilnum slnum, þegar 25hringir voru búnir af 40. Þvi miöur hefur okkur ekki tekist aö fá stöðuna I heimsmeistarakeppninni vegna slæms sambands blaðsins viö fréttamiöla erlendis, en von er á, aö úr því verði bætt innan skamms, þaunig að á næstunni ætti bilasiöan að geta tekiöá ný upp reglulegan fréttaflutning af viöburöum Ikappakstursheiminum. BÍLAR OG UAAFERÐ „PATENTLAUSN 11 VANDANUM? „Þetta er eiginlega meiri pat- entlausn en svo, að maður þori að hafa trú á henni”, sagði bil- eigandi einn, þegar hann var að kynna sér nýju japönsku efna- og hitameðferðina, sem fullyrt er að haldi lakkinu sigljáandi i allt að þremur árum. Þarna er um að ræða með- ferð.sem er upprunnin hjá Chit- ose Technology Co. i Japan, og nefnist á enskri tungu Everdia, en hefur hlotið á islensku nafnið bryngljáameðferö og er hér i umboðssölu Toyotavarahluta- umboðsins. Meðferðin er fólgin i þvi, að allt að sjö mismunandi efni eru borin á lakkið, og eiga þessi efni að bindast saman og mynda sterkan lofttæmdan hjúp eða filmu, sem fyllir upp ör- smæstu holur i lakkinu og á að verja það skemmdum. Að lok- um er farið yfir alla bifreiðina með rafmagnsburstum, sem hita filmuna og myndar gljáa. Samseitning umræddra efna er iðnaðarleyndarmál, og þvi ekki unnt að bera undir sérfræðinga hvaða hæfileikum þau eru Eftir bryngljáameð- ferðina þarf ekki að bóna bílinn í þrjú ár segja Japanir gædd. Hinsvegar er ekki ástæða til annars en taka góða og gilda þá skýringu á uppruna meðferð- arinnar og efnanna, sem nú skal frá greint. Forseti Chitose, sem er efnaverkfræðingur að mennt og heitir Isamu Kimura, hafði tekið eftir þvi á ferðum sinum til Bandarikjanna og Evrópu, að bílar i þeim löndum voru mun eldri en gengur og gerist I Japan. Þar eru mjög algengir 5- 7 ára bilar en Japanir verða að skipta á 2-3 ára fresti, þar eð hið súlfasýrumengaða regn, sem er mengað af útblæstri bila og verksmiðjureyk, tærir upp lakkið og kemur af stað ryð- myndun i járninu. Af þessum sökum setti Kimura af stað rannsókn á möguleika þess að finna upp efni, sem verndaði lakkið fyrir þessari tæringu, — og það tókst. Ætla má, að þar sem bryn- gljáinn veitir vörn gegn hinni gifurlegu mengun i Japan, ætti gljáinn að endast þeim mun lengur á tslandi sem mengunin hér er minni. En á móti kemur aftur sú óþekkta stærð, sem grjótkastið okkar er— spurning- in er hvort gljáhúðin þolir hana. Geri hún það er þetta það sem koma skal, þvi það liggur I hlut- arins eðli, að hún hlýtur að vera talsverð vörn gegn salti og tjöru, sem eru mestu skaðvald- arnir á lakki að grjótkastinu slepptu. Samkvæmt tilraunum sem hafa verið gerðar hér á landi bitur bensin eða steinolia ekkert á gljáhúðinni, aðeins þynnir virðist vinna á henni. Þeir voru hinir ánægðustu hjá Gljáanum hf. við Ármúla, þegar umsjónarmaður siðunnar leit þar inn i vikunni — en það fyrir- tæki var stofnað til að annast bryngjláameðferðina. A þeim hálfa mánuði, sem liðinn var siðan þeir hófu starfsemi sina, sögðust þeir hafa tekið til með- ferðar um 30 bila, bæði stóra og litla. „En við höfum ekki fengið nema þrjá eða fjóra leigubila”, sögðu þeir. „Leigubilstjórarnir virðast vera eitthvað tor- tryggnir ennþá. En verði þeir sannfærðir má búast við, að þeir streymi hingað, þvi það hlýtur að vera mikils virði fyrir menn eins og þá, sem margir hverjir þvo og bóna bila sina daglega, að þurfa ekkiaðhugsa um annaö en að sprauta skitnum af, þótt ekki sé það nema áriö”. Helsta ástæðan fyrir þvi, að fólk hikar enn við að reyna þessa nýjung, er verðið. Það kostar nefnilega 8-16 þúsund Þeir byrja á þvlað þvo bliana hátt og lágt.... 0 Sunnudagur 20. april 1975.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.