Alþýðublaðið - 20.04.1975, Side 4

Alþýðublaðið - 20.04.1975, Side 4
KVIKMYNDIR Eftir Halldór Valdimarsson ÖFGA- LITLIR ITALIR Efni þessarar myndar er si- gilt og hefur grundvallaö uppi- stööu feikn margra kvikmynda, fyrir utan þátt þess i bókmennt- um og annarri menningarfram- leiðslu mannkyns. Ung stúlka kemur sem vinnukona á heimili og á að hugsa um og annast ekk- il á besta aldri, ásamt sonum hans þrem, sem allir verða yfir sig hrifnir af henni. Laumuspil og látalæti karlmannanna fjög- urra, opinber og óopinber eftir- gengni þeirra við stúlkuna og tilraunir hennar til þess að greiða úr þeim flækjum, sem skapast á heimilinu, eru nánast óþrjótandi aðhlátursefni, sé um þau fjallað af skilningi. Það er og gert i þessari mynd, enda er hún bráðfyndin. Þess heldur, að hún er næsta fri við þær öfgar, sem svo gjarna búa i itölskum kvikmyndum. Það, sem ef til vill gerir þessa mynd góða, umfram annað, er, að skilningur þeirra sem að henni standa, takmarkast ekki við kimnigáfu þeirra. I mynd- inni er fjallað um þau vanda- mál, sem hver og ein persóna hennar á við að striða og er það einnig gert af meðbróðurlegum skilningi. Vandamál manns, sem á besta aldri verður ekkill og finnur óþægilega mikið til skuggans af vofu fyrrverandi eiginkonu sinnar, hljóta sain samúðarrika meðferð og vandamál sonar hans, sem lifir við rýkki og skrykki hvolpavits- ins, með þvi furðulega sam- blandi rómantikur og kynþorsta sem það skapar. Að sjálfsögðu situr kimnin einnig i fyrirrúmi i meðhöndlun myndarinnar á þeim, en þó ekki svo að hún yfir- gnæfi aðra þætti myndarinnar. Um leik i hlutverkum mynd- arinnar er ekki margt að segja; hann er ákaflega italskur, með tilheyrandi dramatik og æsingi. Alessandro Momo vekur athygli i hlutverki Ninos og einnig Massimiliano Filoni, i hlutverki Enzinos, en það á sér aðrar or- sakir (sumsé þær, að leikur barna vekur, undantekningalit- ið, athygli manna). Aðrir fara hnökraíaust frá sinum hlutverk- umog óhætt að segja að myndin sé vel leikin, á heildina litið. Vert er að telja þar einnig til Stefano Amato, sem er hress og skemmtilegur i hlutverki Boll- unnar. t stuttu máli: Hér er á ferð- inni itölsk gamanmynd, með háalvarlegu ivafi. tíún er gerð af ákaflega mannlegum skiln- ingi og öfgakenndar tilraunir til að vekja hlátur, sem svo mjög einkenna italskar kvikmyndir almennt, ná hvergi yfirhöndinni i söguþræði hennar. ttölsk kvik- myndagerö reis nokkuð i áliti hjá mér, við þessa mynd, og ég gef henni hiklaust meðmæli min. VINKONA MÍN ROTTAN Laugarásbió Hús morðingjans (Scream and die) Hafið þið séð rottu trftla um götur Reykjavikur nýlega? Stóra, bústna og sællega rottu, sem gjarna tyllir sér á gang- stéttarbrúnir, nasar af bensin- mengun i lofti og virðir fyrir sér athafnir mannanna? Ef ekki, þá get ég bent ykkur á, að hún held ur sig gjarna nálægt mótum Grensásvegar og Miklubrautar. Þar sá ég hana, fyrir nokkru siðan. Hún tritlaði þá yfir göt- una, fyrir framan bilinn, og fór sér næstum að voða. Þetta var að nóttu til og ég var að koma úr Laugarásbiói, frá þvi að horfa á myndina ,,Hús Morðingjans”. Satt að segja var vinkona min rottan, hið eina athyglisverða, sem fyrir augu min bar þetta kvöld. Myndin er ódýr hrollvekja, með samfaraivafi. H.Karl 'ÓÐUR TIL IÁSTARINNAR Mónudagsmyndin ísraelsk Háskólabió IRósa — ég elska þig. Mánudagsmynd Leikstjórn: IMoshe Mizrahi Aöalhlutverk: Michal Bat-Adam IGabi Ottermann Söguþráður myndarinnar er nægilega einfaldur og hvers- dagslegur til þess að liða fram- Ihjá, án þess að eftir honum verði tekið, eða nokkurt brot hans festist i minni — þó er hann svo flæktur og samtvinnaður lifi Iog draumum hvers einstakl- ings, að hann hlýtur að verða ó- afmáanlegur i huga þess, sem með honum hefur fylgst. Orsak- Iir hans og uppruni eru okkur ts- lendingum framandi, en þó stendur hann okkur nær en efni flestra þeirra kvikmynda sem Ihér hafa verið sýndar til þessa. Lögmál Gyðinga er ef til vill ekki svo þjóðarbundið sem haldið er. IUngur maður deyr, frá tvi- tugri, barnlausri eiginkonu sinni og samkvæmt lögmálinu á yngri bróðir hans að uppfylla Iættföðurskyldu hans — kvænast ekkjunni og geta við henni börn. Sá hængur er þó á, að næsti bróðir er aðeins ellefu ára gam- Iall ogþvi hvorki myndugur að lögum né heldur þess umkom- inn likamlega að geta börn. Sjálfur er hann barn og leikur Isér að lifinu sem barn, hversu sterk sem þrá hans til þess að vera maður og sjá ekkju bróður sins farborða er. Hann fær ekki fyllt hlutverk karlmanns i lifi Ifullþroska konu. Þó skal að þvi stefnt að hann geri skyldu sina og hann biður þess tima með ó- Iþreyju, en konan unga verður einnig að biða og enginn spyr “ um viðhorf hennar til einlifis. Aðstæður drengsins, kjör hans og eiginn vilji, verða til þess að hann flytur búferlum frá móður sinni og eldri bróður, sem þegar er kvæntur, til ekkj- unnar ungu. Hún tekur honum opnum örmum og elur hann upp sem son sinn, menntar hann og veitir honum alla þjónustu móð- urinnar. Fljótlega gerir hún sér þó grein fyrir að tilfinningar hennar til drengsins eru ekki eingöngu af móðurhvötinni sprottnar — hún elskar hann sem verðandi karlmann og þeg- ar hann tekur út kynþroska sinn og verður, i likamlegum skiln- ingi, karlmaður, lendir ást hennar i brýnu við hvatir beggja og leiðir þeirra hljóta að skilja. Meðan þetta llður allt og gengur hjá, hæðir þorpið ungu ekkjuna og forsmáir. t skin- helgu skirlifi sinu ætla sam- borgarar hennar að hún notfæri sér drenginn kynferðislega, þrátt fyrir að hvert og eitt þeirra hljóti að gera sér ljósa meinbugi þá sem þar eru á. Innibyrgðar hvatir þeirra — einkum kvennanna, sem þarfn- ast timabundins flótta úr ánauð sinni — brjótast út i illkvittnis- legum ofsóknum á hendur henni og drengnum, sem og öllum þeim sem ekki fylgja út i æsar þeim lifsreglum sem þeim eru sjálfum settar. Aðeins tveir karlmenn hliðra sér hjá þvl að dæma. Annar þeirra sökum ástar sinnar á ekkjunni, en hinn, rabbiinn sjálfur, vegna þess að hann dæmir aldrei mennina, hvorki ekkjuna né aðra. Hann, sem þó á venju samkvæmt að sitja i dómarasætinu, er önnum kafinn við að bera klæði á vopn rógs- ins, illkvittninnar og þröng- sýnnar dómhörku safnaðar- barna sinna. I persónu hans og orðum birtist okkur leið manns- ins til frelsis — hann er lykillinn að lausn mannsandans. „Að elska Guð er að elska manninn, sem hann skapaði I sinni mynd”, segir hann við dreng- inn, sem i vanmætti sinum leit- ar ráða þess er hann veit vitr- astan og lifsreyndastan. „Guð er i hjarta þinu, heila þinum og alls staðar umhverfis þig”, seg- ir hann ennfremur og niður- staða orða hans hlýtur að vera Ástin verður að vera frjáls og óháð þvingunum, því hún lifir ekki í böndum fremur en fuglinn getur sungið í dimmu búri, hafi hann fæðst frjáls. sú, að hver sá sem elskar Guð i orði, en forsmáir náunga sinn á borði, er hræsnari og honum einum verður útskúfað. Sagan af ekkjunni ungu og fóstursyni hennar endar með aðskilnaði þeirra. En, um leið og henni lýkur, hefst ný saga — saga af manni og konu, sem elskast, en eiga langan veg ó- farinn til þess að finna ást sinni farveg. Fyrst ber þeim að þroska tilfinningar sinar og leita þess sem ekki er lausn. Siðar ber þeim að uppfylla skyldu sina við samfélag sitt. Þá fyrst, þegar kröfum lög- málsins er fullnægt, geta þau stefnt að marki sinu. Þau geta þá brotið af sér hlekki boðs og banns, til þess að fá notist um siðir og elskað hvort annað, i stað þess að tigna sina eigin i- mynd i formi hins. Þau hafa áð- ur brotist að hluta til undan viðjum þjóðfélagsins og nú verða þau að ganga aftur gegn- um sama eld. Það er nauðsyn, þvi i hið fyrra sinn lifði hann af skilningi barnsins, en hún af þörf ástarinnar. Nú ris hún upp i skilningi fullþroska mannveru, en hann fórnar af ást sinni á henni. Þegar hann hefur svo gengið gegn um eldskirn þján- inga, standa þau jafnfætis og geta elskað hvort annað á heið- arlegan máta — ást þeirra er orðin frjáls. Samhliða persónulegum upp- reisnum þeirra, fer fram upp- gjör hennar við samborgara sina. Með einu tilliti afvopnar hún fyrri ofsækjendur sina og ekki er laust við að rabbiinn gamli kimi ofurlitið þegar hann sér hvað fer fram. Sem fyrr er skilningurinn hans, meðan aðrir vaða i reyk eigin þröngsýni og sjálfbirgings. „Rósa — ég elska þig”, er ekki mynd sem mér þykir fært að gagnrýna. Punktadómar þeir, sem felldir eru hér yfir öðrum myndum, virðast van- máttugir og yfirlætisfullir gagn- vart sliku verki. Mynd þessi er óður til ástarinnar, leit að eðli hennar og uppruna — og upphaf á skýrgreiningu hennar. Hún rýnir lif mannsins og tilvist, fjallar um lögmálið og hlekki þess — ekki aðeins lögmál Gyð- inga, þótt svo það sé uppistaða myndarinnar, heldur öll lögmál og boð, sem hefta mannsandann og mannlegar tilfinningar. t myndinni er ekki spurt um upp- haf eða endi, heldur leitað leiða til frelsunar. Fyrri saga Rósu og Nissam fjallar um mannlegt samfélag og það hvernig við höfum látið hlekkja okkur i hlut- verki samborgaranna, sem ekki eru meðbræður hvors annars. Máltækið segir að enginn sé ey- land, en þó erum við öll eylönd og getum vart sameinast til annars en að grýta þá samborg- ara okkar sem leitast við að verða meðbræður. Siðari saga þeirra fjallar svo um ástina, sem leið mannsins úr viðjum eigin græðgi og sjálfbirgings- legrar þrepabaráttu. Reynt er að þoka okkur ofurlitið áleiðis til lausnarinnar, úr myrkrinu til ljóssins — úr musterisfangels- um efnisgæðanna, til frelsisins, sem birtist okkur i mynd ó- mengaðrar og óflekkaðrar nátt- úru. Aðeins eitt skilyrði er sett: Ástin verður að vera frjáls og ó- háð þvingunum, þvi hún lifir ekki i böndum fremur en fuglinn getur sungið i dimmu búri, hafi hann fæðst frjáls. Áhrif myndarinnar eru vafa- litið einstaklingsbundin og háð gerð hverrar persónu fyrir sig. Þvi meir svo, að hún tekur til meðferðar þau mál sem hverj- um og einum eru helgust og feimnifyllst. Þau áhrif sem hún hafði á mig eru þvi engum gull- trygging þess að hún hreyfi hið minnsta við honum og þvi ber að gjalda nokkurn varhug við þvi að búast við of miklu. Ef til vill voru það líka einhver hughrif, fjarstæð myndinni og óskyld henni með öllu, sem opnaði mig svo mjög fyrir efni hennar. Ef til vill var það aðeins persónu- bundin leit min að samsvörun i listsköpun og tjáningu annarra manna og ef til vill voru það vonbrigðin sem kuldar undan- farinna daga hafa bakaö, eftir falska vorkomu, sem gáfu henni þennan svip i minum augum. Þess vegna verður mynd þessi ekki sett inn i punktakerfi. Hún hafði ákaflega djúp áhrif á mig, persónulega, og söguþráöur hennar, þrátt fyrir einfaldleik sinn og auðskildan boðskap, náði inn úr islensku gadda- brynjunni og náði aö þiða ofur- litið af höftum þeim sem tilfinn- ingar okkar eru bundnar með frá barnæsku — siðvenjuhöftum þeim sem gera okkur skylda skömm fyrir aö tjá tilfinningar okkar og veita þeim útrás. Mynd þessi mun framvegis standa mér fyrir hugskotssjón- um, sem eitt mesta listaverk kvikmyndaiðnaðarins og þrátt fyrir þá varnagla sem þegar hafa verið slegnir, vona ég að svo reynist um fleiri. H.Karl o Sunnudagur 20. apríl 1975.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.