Alþýðublaðið - 07.05.1975, Blaðsíða 6
ÆSKULÝÐSSAMBAND í:
Ráðstefnur
Vegna þessa samstarfs alls
hefur tslendingum gefist kostur
á a6 sækja ýmsar ráðstefnur er-
lendis og jafnframt að halda
aðrar hér á landi með þátttöku
erlendis frá.
Hér verður getið þeirra
helstu:
Eystrasaltsráðstefna æskunn-
ar á Borgundarhölmi 23.-28.
september 1973. Þessi ráðstefna
var haldin á vegum æskulýðs-
sambandanna á Norðurlöndum,
en auk þeirra sátu ráöstefnuna
fulltrúar æskulýðssambanda
Póllands, Vestur-Þýskalands,
Austur-Þýskalands og Sovét-
rlkjanna. Ráðstefnan fjallaði
um tvo meginmálaflokka. Ann-
ars vegar umhverfisvernd, og
varnir gegn mengun Eystra-
saltsins. Hins vegar friðar-og
öryggismálEvrópu. Ráðstefnan
var hugsuð sem framhald Or-
yggismálaráðstefnu æskunnar i
Helsinki 1972, og tókst vel að
mati islensku sendinefndarinn-
ar, sem tókst að fá skelegga
yfirlýsingu i landhelgismálinu
samþykkta sem hluta af loka-
yfirlýsingu ráðstefnunnar.
Hafréttarráðstefnan á Stord i
Noregi 17.—23. október 1974.
Þessinorræna ráðstefna fjailaði
fyrst og fremst um nýtingu auð-
linda f Norðursjó og um hafrétt-
armálin.
Norsk-islensk
ráðstefna
Haustið 1974 var haldin hér á
landi norsk-islensk ráðstefna
um hafréttarmál og stóðu stjórn
og utanríkisnefnd sameiginlega
aö undirbúningi hennar, en hón
var liður I þvi tvihliða samstarfi
sem tekið var upp við Norska
æskulýðssambandið.
Ráðstefnu gestum var boðið i
kynnisferð um Reykjavik og ná-
grenni og þeim gefinn kostur á
að kynnast islenskri fiskverkun
og öðru þar að lútandi. Islensk
þátttaka var ekki eins góð og
gert hafði verið ráð fyrir, þrátt
fyrir að ráðstefnan hefði verið
kynnt aðildarsamböndunum
með góðum fyrirvara. Til frek-
ari upplýsinga visast i skýrslu
utanrikismálanefndar.
Ályktanir 9. þings ÆSÍ
Utanríkismál
9. þing ÆSl leggur áherslu á
afnám erlendra herstöðva á Is-
landi, afnám allra hernaðar-
bandalaga.
Þingið fordæmir þá samn-
inga, sem rikisstjórn Islands
gerði við Bandarikjastjórn um
áframhaldandi hersetu. Þessir
samningar miða að þvi að festa
hersetuna i sessi, en meðal ann-
ars mun sá liður samninganna,
sem lýtur að stórauknum fram-
kvæmdum á vegum hernáms-
liösins, færa hermangsöflunum
álitlegan gróða. Þingið fagnar
sigrum þjóðfrelsisaflanna i
Indókina og skorar á rikis-
stjórnina að viðurkenna þegar i
staö Bráðabirgðabyltingar-
stjórnina i Suður-Vietnam og
Hina þjóðlegu konunglegu ein-
ingarstjórn Kambódiu
(GRUNC).
Jafnframt fagnar þingið að
einræðisstjórnum I Grikklandi
og Portúgal hafi verið velt úr
sessi, en minnir á, að enn eru
mannréttindi fótum troðin viða
um lönd, s.s. i Suður-Afriku,
Ródesiu, á Spáni, i Chile og
Kúrdistan.
Þingið lýsir yfir samstöðu
ÆSI með alþýðu þriðja heimsins
I baráttu hennar gegn heims-
valdastefnunni.
Þingið lýsir yfir fyllsta stuðn-
ingi við æskulýð i Grænlandi og
Færeyjum i sjálfstæðisbaráttu
hans, gegn nýlendustefnu Dana
gegn ásælni erlendra auðhringa
og hervelda.
Verkalýðsmál
Þingið lýsir yfir samstöðu
með verkalýðshreyfingunni i
baráttunni gegn kjaraskerðing-
um undanfarinna mánuða. Und-
ir yfirskyni versnandi stöðu at-
vinnuveganna hefur atvinnu-
rekendum tekist að stórauka
gróða sinn, en þrýsta jafnframt
launum almenns launafólks
langt niður fyrir það sem mann-
sæmandi getur talist.
Þingið lýsir yfir furðu sinni á
þvi langlundargeði, sem verka-
lýðsforystan hefur sýnt, og styð-
ur verkalýð og annað launafólk i
markvissri baráttu fyrir lifvæn-
legum kjörum. Launafólk hefur
enga ástæðu til að sætta sig við,
að á það eitt skulu lagðar byrðar
þeirrar kreppu sem það ber
enga beina ábyrgð á. Abyrgðina
bera þeir framleiðsluhættir sem
þjóna hagsmunum atvinnurek-
enda fyrst og fremst.
Járnblendi-
verksmiðja og
erlend stóriðja
Þingið lýsir yfir andstöðu
sinni við fyrirhugaða járn-
blendiverksmiðju í Hvalfirði og
þær stóriðjufyrirætlanir sem
boðaðar hafa verið í framhaldi
af henni.
Erlend stóriðja býður heim
margvfslegum hættum, efna-
hagslegum, félagslegum og
vistfræðilegum. Sú reynsla sem
tslendingar hafa nú þegar af
stóriðju, þ.e. af Kísilgúrverk-
smiðjunni við Mývatn og Al-
verksmiðjunni i Straumsvík,
ætti ekki að vera þjóðinni hvatn-
ing til að halda áfram á þeirri
braut.
Ljóst er að stjórnvöld hyggj-
ast hefja framkvæmdir við
járnblendiverksmiðjuna i Hval-
firði, án þess að áður hafi verið
gerð vistfræðileg rannsókn á á-
hrifum þeirra á lifriki Hval-
fjarðar, án þess að hugað hafi
verið gaumgæfilega að félags-
legum afleiðingum þeirra, án
þess að skeyta um vilja þess
fólks sem eiga mun nánast sam-
býli við verksmiðjuna. Ekki
hefur heldur verið nægilegur
gaumur gefinn að þvi ofurtaki
sem auðhringum Union Carbide
yrði veitt á starfsemi verk-
smiðjunnar með einokun á sölu
afurða hennar. Fram hefur
komið að meðal stjórnvalda eru
uppi áform um viðtækar erlend-
ar stóriðjuframkvæmdir á Is-
landi. Þingið varar alvarlega
við þessum áformum og bendir
á hvílik ævintýramennska er að
gera erlenda stóriðju að höfuð-
stoð Islensks atviniiulifs, sér-
staklega á timum efnahags-
kreppu og vistkreppu, en stór-
iðja auðhringa hefur reynst
vera það form atvinnurekstrar,
sem verst er fallið til að mæta
slikum áföllum.
Fóstureyðingar
Þingið lýsir yfir stuðningi við
sjálfsákvörðunarrétt kvenna til
löglegrar fóstureyðingar og lýs-
ir yfir furðu sinni á þeim sjónar-
miðum að embættismönnum
skuli falið ákvörðunarvaldið i
þessum efnum.
Landhelgismálið
9. þing ÆSI krefst þess að
staðið verði við fyrirhugaða út-
færslu landhelginnar i 200 milur
á þessu ári og leggur áherslu á
skipulega nýtingu fiskistofn-
anna undir visindalegu eftirliti.
Húsnæðismál
Þingið leggur rika áherslu á
að ungu gólki verði auðveldað
að koma sér upp Ibúðarhúsnæði.
Þingið skorar á yfirvöld að
gripa róttækra ráðstafana til
þess að koma i veg fyrir að fjár-
plógsmenn noti sér húsnæðis-
skort sér til framdráttar og
gróða.
Þingið hvetur rikis- og bæjar-
yfirvöld að taka höndum saman
um byggingu leiguhúsnæðis.
Með þvi móti mætti draga úr
þenslu i þjóðfélaginu og hægja á
þvi lifsgæðakapphlaupi sem hér
hefur geisað siðustu áratugi.
Þannig yrði þetta einn liður i
baráttu gegn verðbólgu.
Þingið hvetur til þess að
einst. stéttir eða hópar einangri
sig ekki I þjóðfélaginu, t.d. með
byggingaframkvæmdum. Það
hvetur til þess að ungt fólk hafi
meiri samvinnu um þessi mál
og leysi þau I sameiningu.
Þingið hvetur stjórnvöld til að
stórauka lán til ungs fólks, sem
festir kaup á eldra Ibúðarhús-
næði.
Verkmenntun
Þingið lýsir þeirri stefnu
sinni, að verkmenntun skuli
metin til jafns við annað nám,
bæði i grunnskólúm og fram-
haldsskólum og styður stefnu
INSI I þessu máli.
Þingið tekur sérstaklega und-
ir kröfur ýmissa námsmanna-
hópa verkmenntunarkerfisins
um fulla aðild áð Lánasjóði
islenskra námsmanna.
Æskulýðsmál
Þingið telur að hið opinbera
eigi að hafa að leiðarljósi i fjár-
veitingum til æslulýðsmála að
styrkja frjálsa félagsstarfsemi
og er ekki hvað sist mikilvægt,
aö sveitarfélög styrki hin stóru
og smáu félög á hverjum stað og
leggi mikla áherslu á að fram-
kvæmd æskulýðsst. sé hjá
félögunum. Sveitarfélögin
styrki félögin i þvi að þau búi
alltaf við fullnægjandi húsnæði
til félagsstarfsins ogfélagsmönn
um verði gert kleift að ráða sér
starfskraft. Þingið telur einnig,
að rikið eigi að gera landssam-
tökum kleift að koma sér upp
skrifstofuhúsnæði og ráða
starfskraft. Auka verður allar
fjárveitingar til æskulýðsmála
og verði þær nýttar i framan-
greind verkefni auk þess, sem
lögð verði meiri áhersla á að
styrkja ýmiss konar sérstök
verkefni og nýjungar af hálfu
æskulýðsfélaganna.
Þingið lýsir yfir stuðningi við
stefnu Æskulýðsráðs rikisins að
reka ekki umfangsmikla sfarf-
semi á eigin vegum, heldur
leggja áherslu á að örva starf-
semi æskulýðssamtaka með þvi
að hafa frumkvæði að beinum
og óbeinum stuðningi hins opin-
bera við starfsemi þeirra.
Þingið telur að ótækt sé af Al-
þingi að setja lög, um stofnun
Æskulýðsráðs rikisins og fela
þvi umfangsmikil og mikilvæg
verkefni i lögum en láta ráðið
siðan standa uppi fjárvana. Gif-
urleg verkefni þarf að vinna á
sviði æskulýðsmála og ekki sist
aö skipulagsmálum og sam-
ræmingu milli félags-og tóm-
stundastarfsemi félaga, skóla
og sveitarfélaga. 1 þessu sam-
bandi telur þingið mikilvægt, að
haldið verði áfram þeirri heild-
arúttekt á öllu æskulýðsstarfi i
landinu og aðstöðu til þess, sem
þegar er hafin að nokkru af
Æskulýðsráði rikisins. Verði
ráðinu tryggt nægjanlegt fjár-
magn til að gegna hlutverki
sinu.
Þingið fagnar þvi að rlkis-
valdið hafi látið Æskulýðsráðinu
I té húsnæði til æskulýðsstarf-
semi. Styður þingið þá hugmynd
að þar verði komið upp aðstöðu
og tækjum, sem æskulýðsfélög-
um er nauðsynlegt að hafa til
starfsemi sinnar og þau geti
notað gegn vægu gjaldi. Skorar
þingið á stj.órnvöld að veita fjár-
hagslegan stuðning til þessa.
Hraðbréf til BBS
og GRUNC
Hraðbréf til BBS og GRUNC
9. þing ÆSI, haldið i Reykja-
vik dagana 25.-27. april, sendir
æslulýð Kambódiu og Vletnam
innilegar hamingjuóskir i tilefni
þeirra sigra sem nú hafa unnist
á bandarisku heimsvaldasinn-
unum og leppum þeirra i Phnom
Penh og Saigon. Sigrar alþýð-
unnar i Indókina eru sigrar al-
þýðu alls heimsins I baráttunni
fyrir frelsi, réttlæti og friði, ÆSI
heitir þjóðfrelsisöflunum i Indó-
kfna áframhaldandi stuðningi
sinum.
Áskorun á alþingi
9. þing ÆSt haldið I Reykjavik
dagana 25.-27. april skorar á al-
þingi að samþykkja á yfirstand-
andi þingi framkomna þings-
ályktunartillögu um viður-
kenningu“á Bráðabirgðabylting-
arstjórninni i Suður-Vietnam.
Áskorun á utan-
ríkisráðuneytið
9. þing ÆSI skorar á utan-
rikisráðuneytið að fylgja eftir af
fullum þunga fararbeiðni til
handa DaÝid Askenasy svo hann
geti heimsótt son sinn og fjöl-
skyldu hans á tslandi.
angarnir
VIPPU - BllSKÚRSHURBIN
Lagerstærðir miðað við múropá
Haeð: 210 sm x breidd: 240 sm
210 - x - 270sm
Aðrar slærðir. smlCaðar eftir beiðni.
GLUGGAS MIÐJAN
Síðumúla 12 - Sími 38220
0
Miðvikudagur 7. maí 1975.