Alþýðublaðið - 04.06.1975, Síða 5
Útgefandi: Blað hf.
Framkvæmdastjóri: Ingólfur P. Steinsson
Ritstjóri: Sighvatur Björgvinsson
Fréttastjóri: Helgi E. Helgason
Afgreiðslustjóri: örn Halldórsson
Ritstjórn: Siðumúla 11, simi 81866
Auglýsingar: Hverfisgötu 8-10, simar 28660 og 14906
Afgreiðsla: Hverfisgötu 8-10, slmi 14900
Prentun: Blaðaprent hf.
Askriftarverð kr. 700.00 á mánuði.
Verð i iausasölu kr. 40.-
„Tilraunahernaður”
í gær virtist, að nokkur bjartsýni rikti um
samkomulagshorfur i verksmiðjudeilunni svo-
nefndu. Slikt samkomulag þýddi i reynd, að
ekki myndi reyna á nauðungarlöggjöf þá, sem
hin ráðþrota rikisstjórn Sjálfstæðisflokksins og
Framsóknarflokksins skellti á starfsmenn
verksmiðjanna þriggja, Áburðarverksmiðj-
unnar, Sementsverksmiðjunnar og Kisiliðj-
unnar h.f. fyrir siðustu helgi. Voru það ánægju-
leg tiðindi, þegar fréttist, að aðilar hefðu á ný
sest að samningaborði, en vissulega yrðu það
ennþá ánægjulegri tiðindi, ef samkomulag
tækist. Starfsfólkið gæti horfið til venjulegra
starfa sinna og verksmiðjuhjólin farið að
snúast á nýjan leik.
Útgáfa bráðabirgðalaganna um kjaradóm i
vinnudeilu verksmiðjufólksins var fráleitur til-
raunahernaður af rikisstjórnarinnar hálfu frá
upphafi, enda var lögunum mótmælt harðlega.
Rikisstjórninni mátti vera ljóst, að ólögin
hefðu getað leitt til alvarlegri tiðinda en áður
hafa orðið allt frá upphafi islenskrar verka-
lýðsbaráttu.
Þvi hefur oft verið haldið fram, að stórveldi
efni á stundum til „minni háttar” styrjalda,
sem þau telja sig geta haft „góða stjórn á”.
Sagt er, að stórveldi efni til slikra styrjalda i
þeim tilgangi einkum að reyna ný vopn og
kanna hernaðarlegan styrkleika sinn.
Þvi er ekki að neita, að margan grunar, að
með setningu bráðabirgðalaga um kjaradóm i
verksmiðjudeilunni hafi núverandi rikisstjórn
brugðið sér i svipaðan stórveldaleik: sett á svið
„minni háttar” styrjöld (eins og slikar
styrjaldir eru nefndar, þegar stórveldi eiga I
hlut) til þess að kanna raunverulegan styrk-
leika sinn. En ráðherrarnir virðast — sem
betur fer — hafa áttað sig mjög fljótlega á þvi,
að á þessari styrjöld hefði rikisstjórnin ekki
stjórn. Þess vegna hopaði hún. Hún gerði það
eina, sem skynsamlegt gat talist úr þvi sem
komið var, þ.e. að sætta sig við, að samninga-
viðræðum yrði haldið áfram og þess freistað að
ná samkomulagi. Þetta ber að sjálfsögðu að
virða.
En hvi lá rikisstjórninni svo á að kanna
styrkleika sinn?
Sjálfsagt stendur henni ógn af þeirri stað-
reynd, að svo kann að fara, að flest eða öll
atvinnutæki landsmanna stöðvist vegna alls-
herjarverkfalls hinn 11. júni. Allri þjóðinni
stendur ógn af hinu sama.
Samningaviðræðurnar nú eru einhverjar þær
erfiðustu i fjöldamörg ár. Fundir eru mjög
tiðir, en þvi miður hefur harla litill árangur
náðst til þessa.
Það er afar stuttur timi til stefnu, en hann
má vissulega nota skynsamlega.
Núverandi rikisstjórn hefur leikið launa-
fólkið i landinu grátt. Þeim er um megn að
taka á sig frekari byrðar. Hingað til hafa laun-
þegar verið látnir taka á sig mörgum sinnum
meiri kjaraskerðingu en nemur rýrnun þjóðar-
tekna á siðastliðnu hálfu öðru ári. Þess vegna
krefjast þeir þess nú að fá réttmæta leið-
réttingu á lifskjörum sinum. Alþýðuflokkurinn
styður heilshugar réttmætar kröfur launa-
fólksins i landinu og hefur lýst yfir samstöðu
við það i þeirri kjarabaráttu, sem nú er háð.
lalþýdul
ImrmI
ÁR ER LIÐIÐ FRÁ
KANSLARASKIPTUM
Ár er nú liðið siðan Helmut
Schmidt (til hægri á myndinni) tók
við kanslaratign i Vestur-Þýska-
landi af Willy Brandt (vinstri) i
kjölfar njósnamáls, sem einn af ráð-
gjöfum Brandts var viðriðinn.
Þaö var i mai I fyrra, sem Schmidt tók viö sem
kanslari, þótt ýmsum finnist lengra um liöiö, þar
eö hinn nýi kanslari hefur mjög veriö í fréttum
þetta ár, og hefur getiö sér gott orö I heimi
alþjóöastjórnmála. Hinn nýi kanslari hefur reynst
óþreytandi viö að aðstoöa fiokksmenn sina, jafn-
aðarmenn, i mörgum aukakosningum, og þótt
jafnaöarmenn hafi oröiö fyrir nokkru fylgistapi,
eins og talið var að vænta mætti, þá halda þeir þó
enn forystu sinni I Vestur-þýskum stjórnmálum.
Þótt Willy Brandt hafi látiö af embætti, þá gegn-
ir hann þó enn formannsstöðu sódlaldemókrata
(SPD) og nýtur sem fyrr mikilla vinsælda heima
fyrir sem erlendis. Nóbelsverölaunahafinn er tai-
inn eiga stærstan þátt i aö viðhaida samheldni
flokksins á erfiöum umbrotatimum.
il
Miðvikudagskvöld 4.6.
Gönguferö á Mosfell. Heimamenn
lýsa staöháttum. Brottför kl. 20.
frá B.S.I. verö 500 kr.
Útivist
Lækjargötu 6,
simi 14606
UTIVISTARFERÐiR
Miðvikudaginn 4/6 kl. 20.00.
Gönguferö i Þverárdalinn. Verö
500 krónur.
Brottfararstaöur B.S.I.
Feröafélag tsiands
ENGINN
ER ILLA SÉDUR,
SEM GEMGUR MED
ENDURSKINS
NERKI
Vinsamlegast leið-
réttið í símaskránni
FENGIÐ NÝTT
r r
SIMANUMER
81866
Beinir símar og eftir lokun skiptiborðs eru
Afgreiðsla 14900
Auglýsingar 14906
.......,?Jtsti?,rn ,eí P rentsm iðja 81976
'flutt i Siðumula 11
|alþýðu|
i‘ir [l|
Miðvikudagur 4. júní 1975