Alþýðublaðið - 04.06.1975, Síða 9

Alþýðublaðið - 04.06.1975, Síða 9
Umsjon: Björn Blöndal ÍÞKÖTTIK LandsliOiö sem lék gegn Frökkum 25. mai s.l. veröur aftur I eldlfnunni annaö kvöld. Hvernig skyldi piltunum takast upp gegn einu af bestu landsliöum heims, liöi A-Þjóöverja? Nýbreytni í forsöiunni Miðar seldir í Keflavík, Selfossi og á Akranesi Sú nýbreytni veröur tekin upp viö forsölu aögöngumiö- anna á iandsleikinn, aö nú veröur selt á Akranesi, Sel- fossi og I Keflavik, samfara hinni heföbundnu forsölu viö Íítvegsbankann i Reykjavik. A Akranesi veröa miöar seldir i versluninni Óðni, á Seifossi i rakarastofunni og i Keflavik i Sportvik. Miöar verða seldir við Ot- vegsbankann i dag frá kl. 12:00-18:00 og frá kl. 13:00 I Laugardainum á morgun. EVRÓPUKEPPNI LANDSLIÐA í KNATTSPYRNU Óbreytt landslið gegn A-Þjóðverjum EN TVEIM LEIKMONNUM HEFUR VERIÐ BÆTT í HÓPINN í gær tilkynnti landsliðsnefnd nöfn þeirra leikmanna semvaldir hafa verið fyrir landsleikinn gegn A-Þjóðverjum annað kvöld. Ekki kom á óvart að liðið frá siðasta leik er óbreytt, en tveim leik- mönnum er bætt i hópinn. Það eru þeir Hörður Hilmarsson og Vil- hjálmur Kjartansson báðir úr Val. i gærkvöldi æföi landsliðið á KR-vellinum, en i kvöld er ráð- gert að liöið komi saman og þá verði farið yfir leikaðferðir og siöan verður æfing á Kópavogs- vellinum. Þá er ráðgert að fara til Þingvalla og dvelja þar i nótt, en siðan verður tekin létt æfing, á Laugarvatni i fyrramálið. Eftir þvi sem næst verður kom- ist, þá eru allir heilir heilsu og ætti þvi að vera hægt að stilla upp sterkasta liðinu. i landsliðinu eru eftirtaldir 18 leikmenn: Sigurður Dagsson Val, Arni Stefánsson Fram, GIsli Torfason, ÍBK, Jón Pétursson Fram, Jóhannes Eðvaldsson Hoibæk, Marteinn Geirsson Fram, Jón Gunnlaugsson, ÍA, Björn Lárusson ÍA, Guðgeir Leifsson Viking, Karl Hermannsson iBK, Grétar Magnússon ÍBK, Elmar Geirsson Hertu Zehlendorf, Ólafur Júliusson ÍBK, Asgeir Sigurvinsson Standard Liege Matthias Hallgrimsson ÍA, Teitur Þórðarson, iA, Hörður Hilmarsson, Val, Vilhjálmur Kjartansson, Val, Leikurinn annað kvöld hefst kl. 20:00 og að sögn þeirra sem þekkja til hefur Laugardalsvöll- urinn tekið miklum framförum siðustu viku og sjá sumir breytingar á honum frá degi til dags. Verði þurrt og gott veður þegar leikurinn fer fram ætti hann þvi að geta orðið hin besta skemmtun. En verði rigning er hætta á að það spilli leiknum og völlurinn verði gjörónýtur. Steve Smith.stekkur yfir 5.61 metra I stangarstökkinu. Heimsmet í stangar stökki innanhúss Bandarikjamaðurinn Steve Smith setti nýtt heimsmet á frjálsiþróttamóti fyrir at- vinnumenn i Madison Square Garden þegar hann stökk yfir 5.61 metra f stangarstökki. Fyrra metið átti Smith sjálfur, sem var 5.59 metrar. Af áhugamönnunum hefur Dan Ripley stokkiö hæst innanhúss 5.51 metra. En metið utanhúss á Dave Roberts,lika frá Bandarikjun- um 5.65 metra, sett i mars s.l. Antony Knapp landsliðsþjáifari: ÞJÁLFARI A-ÞÝSKA LANDSLIÐSINS: EKKIAUÐVELDUR LEIKUR Erfiðasti leikur okkar í sumar Reikna með að þeir leiki 3-4-3 ,,Ég ber mikia virðingu fyrir þjálfara A-Þjóð v er ja nna Buchner”, sagði Tony Knapp á biaðamannafundi KSÍ i gær. „Hann mun örugglega kapp- kosta að fara héðan með bæði stigin. Það kæmi okkur þvi ekki á óvart þó þeir stilltu liði og léku 3 — 4 — 3 i ieiknum. Viö munum leika sömu leikaðferö og gegn Frökkum aö minnsta kosti fyrst I stað, á meðan við áttum okkur á leik Þjóöverjanna. Ef viö telj- um þess þörf getum viö breytt um leikskipulag hjá okkur. Þessi leikur verður sá erfið- asti sem við fáum I sumar þvi A- Þýskaland er meöal bestu knattspyrnuþjóða I heiminum I dag. Ég reikna fastlega meö að þeir séu I 4.-5. sæti meðai þeirra bestu. En viö erum bjartsýnir og strákarnir sýndu það I sið- asta leik að þeim er ekki fisjað saman. Liöið veröur ekki komið i „topp” æfingu fyrr en seinni partinn í júli og þvi má ekki ætl- ast til of mikils af piitunum, en þeir eru samt staðráönir I aö gera sitt besta I leiknum og ég hef enga trú á öðru en svo verði”. „Við búsumst fastlega við að þetta verði mjög erfiður leikur hjá okkur”, sagði þjálfari a- þýska landsliðsins George Busthner á blaðamannafundi 1 gærkvöldi stuttu eftir að lið hans kom til landsins. „Ykkar knattspyrnu hefur farið mjög rnikið fram nú siðustu árin, en lið okkar er i lægð um þessar mundir. Þeir sem eldri voru hafa dottið út, en við erum að byggja upp nýtt liö sem getur tekið nokk- urn tima. í dag eru Belglumenn með sterkasta liöið I riölinum, en slagurinn um annaö sætið stendur á milli okkar, Isiands og Frakk- lands. Ef við töpum stigi á morg- un erum við þarmeð úr leik, en takist okkur að vinna er ennþá smá von hjá okkur. Þetta sama lið verður fulltrúi A-Þýskalands á Ólympíu- ieikunum á næsta ári og til undir- búnings fyrir þau átök fer liðiö i keppnisferö til Kanada og S- Ameriku I sumar.” Þá sagði Bustnher að I A- Þýskaiandi fengi enginn knatt- spyrnumaður að fara úr landi tii aö leika með öðrum félögum, slikt þekktist ekki og væri stranglega bannað. Þá sagði hann að leik- menn liðsins væru aliir náms- menn og væru flestir i iþrótta- kennaraskóla sem gæfi þeim betri tima til æfinga. Aðspurður um keppnis- aðstöðuna hér, sagði Busthner að þeir hefðu lika slæma velli i A- Þýskalandi. Hann hefði verið hér á ferð fyrir rúmri viku síöan og vissi því vel um ástand vallarins. Hann væri að visu ekki góður en vel mætti leika á honum. Að lokum var Bustnher spurður um leikinn við Pólverja sem A- Þjóðvcrjar töpuðu 0-3. Hann sagði að lið Pólverja væri eitt besta landsliðið i heiminum um þessar mundir og þeir hefðu leikið mjög vel I leiknum og átt skiiiö aö sigra i leiknum. » Georg Bustnher.....Ykkur hefur larið mikið frant á siðustu árum og við vitum að leikurinn annað kvöld verður mjög erfiður. Töpum við honum erum við úr leik”. Miðvikudagur 4. júní 1975 o

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.