Alþýðublaðið - 26.06.1975, Qupperneq 1
PELE TROÐINN UNDIR »------------* SJÁ BLS. 10
VILJA SHÁBÍLA í
LEIGUAKSTURINN
Nokkrir leigubilstjórar hafa
tekiö sig saman um aö stofna
leigubilastöö þar sem eingöngu
veröa geröir út smábilar, sem
taka þrjá farþega, og aka fyrir
allt aö 20% minna gjald en tiökast
á leigubilastöövum nú. Erindi
þessa efnis hefur veriö lagt fyrir
borgarráö og sent þaöan til um-
sagnar lcgreglustjóra og heil-
brigöiseftirlitsins, aöallega meö
tilliti til fyrirhugaös afgreiöslu-
húsnæðis, en samiö hefur verið
um, aö stööin fái afgreiöslu hjá
sendibllastööinni Þresti, Siöu-
múla 10.
Leigubilastöðvar af þessu tagi
hafa verið nefndar „smábila-
stöðvar”, og eru mjög algengar
erlendis og mikiö notaðar þar.
iHugmyndin aö stofnun „smábila-
stöövar” nú er vafalaust upp
komin vegna hins mikla sam-
dráttar, sem orðið hefur á at-
vinnu leigubifreiðastjóra aö und-
anförnu, bæði vegna minnkandi
kaupgetu almennings og hækk-
andi taxta leigubilanna. Þessi
hugmynd hefur komið upp áöur,
en ekki hlotiö nægan hljómgrunn.
Meö „smábilastöö þessari verður
BORGAR SIG
TAifíinfl
KÁLFANA A
NÝMJÚLK!
1 gær hafði búfræðingur
nokkur samband við Alþýðu-
blaöið i tilefni af frétt, sem
birtist á forsiðu sl. þriðjudag,
þar sem fram kemur, að
nýmjólk er nú ÖDÝKARI en
undanrenna út úr búð t.d. i
Reykjavik.
Sagðist búfræöingurinn nú
eiga það ráð eitt besttil handa
islenskum bændum, svo að
þeim megi takast að auka
hagkvæmni landbúnaðarins i
landinu, að þeir kaupi fram-
vegis nýmjólk i fernum og gefi
hana kálfum i stað þess að láta
þá lifa á rándýrri undanrennu.
Búfræðingurinn bætti þvi
við.aöi næsta þætti Ríkisút-
varpsins „rabbaö við bændur”
taki stjórnandinn þessa tillögu
rækilega til yfirvegunar og
kynni hana bændunum i land-
inu og samtökum þeirra.
leigubilum ekki fjölgaö frá þvl
sem nú er, að því er segir i starfs-
umsókninni til borgarráös, heldur
er hugmyndin aö nýta atvinnu-
leyfi leigubllstjóra, sem fyrir
hendi eru, á hagkvæmari hátt en
verið hefur með þvi aö reka ódýr-
ari bíla, bæði I innkaupi og
rekstri, og gefa viðskiptavinum
kost á ódýrari þjónustu en tiökast
hefur.
Til þessa hafa allir leigubilar
ekið fyrir sama gjald, hvort sem
þeir taka fjóra eöa fimm farþega,
nema hvað fjórar átta manna bif-
reiðar eru i leiguakstri, og hefur
fengistleyfi til aö taka 25% hærra
gjald fyrir akstur þeirra. Hins
vegar hafa sendibilastöðvar um
árabil boðið upp á þrjár stærðir af
sendibilum og þrjá mismunandi
taxta.
TOGARA-
DEILAN
í HÖFN?
Samningafundir i togaradeil-
unni virðast nú komnir á lokastig
og flest bendir til þess að þessari
langvinnu deilu, og að þvi er
rikisstjórnin hefur sagt, leiðin-
legu, ljúki brátt. Tekist hafa
samningar við yfirmenn um
fastakaup og að þvi er best var
vitað i gær hafði þá náðst sam-
komulag um fastakaup undir-
manna. Mikil leynd hefur hvilt
yfir einstökum atriðum eins og
t.d. upphæð mánaðarkaups. Tim-
inn upplýsti i gær, án þess að geta
um heimildir, að fastakaup yfir-
manna hækkaði úr 27600 i rúm 40
þús. Þar sem fastakaup undir-
manna (háseta) var 32600, má
geta sér þess til, aö hafi samning-
ar náðst, verði það naumast undir
50-55 þúsund krónum og laun net-
amanna og bátsmanns þá hærri i
svipuðu hlutfalli og var. Ekki er
talið að ágreiningur hafi verið um
skiptaprósentu, sem var og muni>
haldast 0.8% hjá hásetum. Hins
vegar mun hækkað fiskverð auð-
vitað koma áhöfn til góða. Eitt-
hvað mun hafa verið rætt um, eða
hugleitt að ganga svo frá hnútum,
að hækki laun landvinnufólks
fylgi laun sjómanna þeirri launa-
hækkun án samningaþófs. Um af-
drif þessarar hundmyndar veit
blaðið hins vegar ekki.
ER TIL BETRI SÖNNUN
EN ÞESSAR MYNDIR?
Þetta er mynd sem skipverjar á skuttogaranum Vestmannaey tóku af kapalskipinu
Eftir Gísla S. Loftsson
Enn dregur Alþýðublaöiö
fram ný atnði um kapalskipiö
og að þessu sinni birtir blaðið
myndir af skipinu.
Myndir þessar voru teknar
um borð i skuttogaranum
Vestmannaey af tveim skip-
verja, og sýna ótvirætt að hér
er um kapalskip að ræða, en
það hefur verið hér við land
undanfarna tvo mánuði og
sést a.m.k. hjá Selvogstá og
Stokksnesi.
Eftir að Alþýöublaðið hafði
fengiö þessar myndir I hend-
ur, voru þær bornar saman við
myndir þær, sem er að finna
af kapalskipum bandariska
flotans. Myndirnar var að
finna i bókinni „Janes fighting
ships”, en hún hefur að geyma
upplýsingar um nær öll hcr-
skip og kafbáta heimsins.
Þar eru myndir af tveim
bandarískum kapalskipum, og
tilheyra þau bæði flotanum.
Eru það systurskipin THOR
(ARC 4), og AEOLUS (AR 3).
Ef bornar eru saman mynd-
irnar er skipverjarnir á Vest-
mannaey tóku, og þær I bók-
inni, ber ðeim sainan i öllum
aðalatriðum. Gæti þvi annað
þeirra systurskipa verið
kapalskipið sem hér hefur
verið.
Þá er það einnig athyglis-
vcrt, að ekki verður annað séð
af myndunum, en að skipið sé
ómerkt, utan hvað grcina má
merki á öðrum strompi þess,
sem ekki verður betur séð, en
sé bandariska arnarmerkið.
Þá sést einnig greinilega, á
annarri myndinni, hvar kap-
allinn kemur úr stefni skips-
ins.
JANE SKIPAB0KIN:
TVÖ SLÍK
SKIP TIL í
FLOTANUM
Það er nokkuð algengt,
ið eldri skipum sé breytt i
:apalskip, og svo er einn-
g um þessi systurskip.
iamkvæmt upplýsingum
iðkarinnar „Jane's
:ighting Ships" hét Thor
iður Vanadis (AKA 49),
in Aeolus hét Turandot
AKA47). Aeolus var lagt
946, en tekið í gagnið aft-
jr af bandariska flotan-
im 5. nóv. 1954, og þá
jreytt i kapalskip, og hef-
ur það sinnt störfum sem
slikt siðan i mai 1955.
Thor var byggt af
Walsh Kaiser Company,
og tók til við kapallagn-
ingar 3. janúar 1956.
Skipin eru óvopnuð,
hafa þyrlupalla og eru
bæði með svipuð fjar-
skiptamöstur.
Bæði eru þau 7.040 tonn
og ganga 16,9 hnúta fyrir
6000 hestafla vélum. Þau
eru jafn löng.
I 3. SÍÐA