Alþýðublaðið - 26.06.1975, Qupperneq 5

Alþýðublaðið - 26.06.1975, Qupperneq 5
titgefandi: Blað hf. Framkvæmdastjóri: Ingólfur P. Steinsson Ritstjóri: Sighvatur Björgvinsson Fréttastjóri: Helgi E. Helgason Afgreiðslustjóri: örn Halldórsson Ritstjórn: Slðumúla 11, slmi 81866 Auglýsingar: Hverfisgötu 8-10, slmar 28660 og 14906 Afgreiðsla: Hverfisgötu 8-10, simi 14900 Prentun: Blaðaprent hf. Askriftarverð kr. 700.00 á mánuði. Verð I lausasölu kr. 40. • ÚTIÍRSNÚNINGAR MBL. Morgunblaðið hefur gert sér tíðrætt um grein, sem breski jafnaðarmaðurinn Paul Johnson rit- aði i timaritið New Statesman fyrir skömmu. Grein þessi er að efni til harðorð gagnrýni á starfsaðferðir bresku verkalýðshreyfingarinnar og hefur sem slik vakið mikla athygli viða um lönd. Að sjálfsögðu fjallar Poul Johnson i grein sinni eingöngu um verkalýðsmál i Bretlandi og sú gagnrýni, sem hann setur fram, er grundvöli- uð á vinstri sinnuðum viðhorfum hans sjálfs. Morgunblaðið reynir hins vegar að snúa þessari athyglisverðu grein um bresku verkalýðshreyf- inguna og starfsaðferðir hennar upp á verka- lýðsbaráttu almennt og þá fyrst og fremst upp á verkalýðsbaráttuna á íslandi og reynir að snúa niðurstöðum hennar, sem mótuðust af sósiölsk- um viðhorfum, upp i verkalýðsfjandsamlega stefnu i anda þeirra auðmagnshyggjuviðhorfa, sem Morgunblaðið er fulltrúi fyrir. Sem úttekt lýðræðissósialista á mistökum og ágöllum breskrar verkalýðsbaráttu er grein Poul Johnsons mjög athyglisverð. Hann er sannfærður jafnaðarmaður og talinn vera i vinstra armi breska Verkamannaflokksins. Það, sem fyrir honum vakir með greininni, er að komast að niðurstöðu um, hvort starfsaðferðir bresku verkalýðshreyfingarinnar hafi orðið til þess að hvetja eða letja framsóknina i átt til þjóðfélags lýðræðisjafnaðarstefnunnar. Menn geta svo getið nærri, hvort sá grundvöllur skrifa Poul Johnsons vaki fyrir Morgunblaðinu i út- leggingum þess. Ætli lestur Morgunblaðs- höfðingjanna i grein Poul Johnsons og útlegging þeirra á henni sé ekki meira i ætt við túlkan- ir myrkrahöfðingjans á Bibliunni? íslensk verkalýðshreyfing háir baráttu fyrir framförum og réttlæti eins og verkalýðs- hreyfingar i öllum löndum hafa gert og gera. Sú barátta hefur skilað meiri árangri i réttlætisátt á fáum áratugum, en mannkynssagan greinir frá að náðst hafi á miklu fleiri öldum. Það er þvi bæði fráleitt og heimskulegt að halda þvi fram, að sú barátta hafi verið háð fyrir gýg, enda gerir Poul Johnson það ekki i grein sinni. Með sama hætti er það algerlega rangt að túlka niðurstöður þær, sem Poul Johnson kemst að i grein sinni um starfsaðferðir samtaka ákveðinna atvinnustétta i Bretlandi sem alhæf- an dóm um verkalýðsbaráttu yfir höfuð. Það er til dæmis margt mjög ólikt um starfsaðferðir is- lenskrar og breskrar verkalýðshreyfingar. Þær aðferðir, s.s. eins og skæruverkföll og stað- bundnar „ólöglegar vinnustöðvanir”, sem Johnson gagnrýnir eru t.d. nær óþekktar hér á landi. Hitt er svo annað mál, að það kann að vera kominn timi til þess fyrir stéttarfélög láglauna- fólks á íslandi, t.d. félögin i Verkamannasam- bandinu og Sjómannasambandinu, að ihuga, að hve miklu leyti þau eiga samleið með sumum öðrum stéttarfélögum i kjarabaráttu. Það er t.d. varla einu sinni hægt að nota sama orðið yfir kjarabaráttu verkamanna og flugliða. Þar eiga þau rök sannarlega við, að þær launabætur, sem hálaunahóparnir sækja sér, séu bæði beint og ó- beint fengnar með þvi að skerða hlut þeirra, sem miður mega sin. Aðalfundur Albvðuflokksfélags Revkiavíkur NÝR ÞRÓTTUR AD FÆ RAST f FÉLAGSSTARFIÐ Aðalfundur Alþýðuflokksfélags Reykjavikur var haldinn hinn 28. aprll sl. og f6r hann fram I Iðnó. Fundurinn var vel sóttur og fór hið bezta fram, af skýrslum þeim er fluttar voru kom fram að starf félagsins á liðnu kjörtimabili hef- ur verið mjög blómlegt og liflegt, enda gerðu fundarmenn hinn besta róm að I þeim frjálsu um- ræðum, er fram fóru á eftir. Lýstu fundarmenn ánægju sinni vegna hins ágæta starfs félags- stjórnarinnar og hvöttu með já- kvæðum ræðum sinum til enn meira og öflugra starfs á næsta kjörtimabili. Á aðalfundinum fór fram kosn- ing nýrrar félagsstjórnar og voru þessir kjörnir: Sigurður E. Guðmundsson var einróma endurkjörinn formaður félagsins, Emilia Samúelsdóttir, Bragi Jósefsson, Elias Kristjáns- son.Guðlaugur Tryggvi Karlsson, Sigurjón Ari Sigurjónsson og Skafti Skúlason. Þeir Björn Vil- mundarson og Jón Ivarsson báð- I ust eindregið undan endurkosn- ingu eftir langt og giftudrjúgt starf, sem formaður færði þeim einlæga þökk fyrir. Hefur félags- stjórnin nú skipt þannig með sér verkum, að Emilia Samúelsdóttir er varaformaður, Guðlaugur Tryggvi Karlsson er ritari, Sigur- jón Ari Sigurjónsson er gjaldkeri, Elias Kristjánsson er spjald- skrárvörður. —1 varastjórn voru kjörin Þóranna Gröndal, Skjöldur Þorgrímsson og Jóhannes Guð- mundsson. Formaður félagsins flutti aðal- fundinum skýrslu félagsstjórnar. Þar kom meðal annars fram, að félagið hafði efnt til mjög fjöl- menrirar og velheppnaðrar sum- arferðar alþýðuflokksfólks i Þórsmörk I júni 1974, en þátttak- endur voru nálægt fimm hundruð manns og i 14-15 langferðabifreið- um. Þá efndi félagið til sumar- leyfisferða erlendis að venju og tókust þær eftir atvikum vel. Þá efndi félagsstjórnin einnig til 3ja velheppnaðra kynnisferða um Reykjavik, sem voru vel sóttar. Þá var áfram unnið að útgáfu Fé- lagsblaðs Alþýðuflokksfélagsins, en það er nýlunda i félagsstarf- seminni. Komu 3 tölublöð út á ár- inu og voru send öllum félags- mönnum ókeypis. Þá greindi formaður frá þvi, að áfram hefði verið unnið að endur- skoðun félagslaganna og væru þau nú til endanlegrar afgreiðslu á þessum fundi. Hefur mjög mikil vinna verið lögð i það verk undan- farin 2 ár. Formaður greindi einnig frá þvi, að félagið sjálft og einstakir félagsmenn hefðu lagt fram mjög mikla vinnu við undir- búning alþingiskosninganna og borgarstjórnarkosninganna vorið 1974. Hann benti einnig á, að fram hefðu farið tvær allsherjarat- kvæðagreiðslur i félaginu, annars vegar við kosningu fulltrúa á flokksþing Alþýðuflokksins sl. haust og hins vegar við kosningu fulltrúa i Fulltrúaráð alþýðu- flokksfélaganna i Reykjavik. Vann félagsstjórnin mikið starf við undirbúning flokksþingsins, m.a. að þvi leytinu til, að frá henni komu margar tillögur, sem fengu góðan hljómgrunn á þing- inu. Fjölluðu þær m.a. um endur- skoðun stefnuskrár flokksins og kosningu stefnuskrárnefndar, endurskoðun stefnuskrár flokks- ins og kosningu stefnuskrár- nefndar, endurskoðun flokkslag- anna og kosningu sérstakrar Sígurður E.Guðmundsson endurkjörinn formaður starfsnefndar í þvi skyni, enn- fremur um kosningu Verkalýðs- málanefndar Alþýðuflokksins. Allar þessar tillögur félagsstjórn- arinnar voru samþykktar á þing- inu. Formaður greindi einnig frá þvi, að á starfsárinu hefðu aðal- fundir verið haldnir i Trúnaðar- ráði félagsins og Launþegaráði þess. Er Tryggvi Þórhallsson for- maður hins fyrrnefnda en Ágúst Guðmundsson formaður hins sið- arnefnda. Sigurður greindi einnig frá þvi, að á starfsárinu hefði skemmti- nefnd félagsins efnt til 5 spila- kvölda og árshátiðar, en öll þessi skemmtistarfsemi þess var vel og ágætlega sótt, sem og bingó-kvöld það, er félagið efndi til sl. haust. Um fundarhöld sagði formaður, að 9 fundir hefðu á starfsárinu verið haldnir i Trúnaðarráði félagsins, 2 fundir I launþegaráði þess og 8 almennir félagsfundir eða samtals 19 fundir. Stjórnar- fundir hefðu verið 20 talsins. Loks greindi formaður frá þvi, að innheimta félagsgjalda hefði gengið vel og betur en oftast nær áður. Hann greindi einnig frá þvi, að á starfsárinu hefði orðið um- talsverð fjölgun i félaginu þar sem aftur á móti sárafáir hefðu helst úr lestinni. Nýir félagsmenn sagði hann að væru orðnir 46 tals- ins á starfsárinu. En formaður hafði lokið flutn- ingi skýrslu sinnar fluttu þeir Agúst Guðmundsson og Tryggvi Þórhallsson skýrslur ráða sinna, Emilia Samúelsdóttir flutti skýrslu skemmtinefndar og Jón Ivarsson gjaldkeri flutti skýrslu sina. Var hinn besti rómur gerður að skýrslum þessum og þótti fé- lagsmönnum auðsætt, að félagið hefði starfað vel og kröftuglega á hinu liðna starfsári. Stóðu já- kvæðar umræður félaganna það lengi kvölds, að er kosningum stjornar, varastjórnar og skemmtinefndar var lokið var ákveðið að fresta fundi, enda komið miðnætti. Aður hefur verið sagt frá kosn- ingu st jórnar og varastjórnar en i skemmtinefnd félagsins voru kjörin þau Emilia Samúelsdóttir, Þóranna Gröndal, Sigurjón Krist- insson, Aðalsteinn Halldórsson, Gunnar Vagnsson, Jón Arnason, Skafti Skúlason, Sigurður T. Magnússon og Haukur Morthens. Framhaidsaðalfundur félags- ins var haldinn i Alþýðuhúsinu hinn 28. mai sl. Var þar til um- ræðu hið nýja frumvarp til laga fyrir félagið. Gerði Helgi Skúli Kjartansson grein fyrir þvi en að máli hans loknu hófst afgreiðsla þess. 1 frumvarpinu er að finna mörg athyglisverð nýmæli i fé- lagsstarfinu. Vel gekk að afgreiða það og hefur félagið þvi fengið ný félagslög, sem gerð verður nánari grein fyrir siðar. I kjölfar þess fór fram kosning kjörstjórnar og voru kjörnir þeir Þorsteinn Sveinsson, Viggó Björnsson og Marias Sveinsson, til vara Aðalsteinn Halldórsson og Bergur Björnsson. 1 fræðlunefnd 'fé- lagsins voru kjörin þau Bragi Jösefsson, Helgi Skúli Kjartans- son, Þóranna Gröndal, Sonja Berg og Aðalsteinn Halldórsson, til vara Tryggvi Þórhallsson og Sigurgeir Kristjánsson. Þá samþykkti aðalfundurinn einnig, samkvæmt hinum nýju fé- lagslögum, að 5% ársgjaldanna skyldi renna til fræðslustarfsemi félagsins, er hin nýja fræðslu- nefndstýrir. Aðalfundurinn sam- þykkti einnig, að félagsgjöldin skyldu hækka úr 500 i 1000 krónur, fyrir hvern félagsmann. Eins og áður hefur komið fram rikti mikill einhugur meðal manna á þessum aðalfundum fé- lagsins og voru menn bæði á- nægðir með ágætt starf á liðnu starfsári og jafnframt staðráðnir i að sækja enn fram til aukins starfs og aukinnar eflingar félag- inu, Alþýðuflokknum og jafnað- arstefnunni. Skrásetning nýrra stúdenta í Háskóia íslands fer fram frá 1. til 15. júli 1975. Umsókn um skrásetningu skal fylgja ljósrit eða stað- fest eftirrit af stúdentsprófskirteini, skrá- setningargjald kr, 4200.- fjögur þúsund og tvö hundruð — og tvær ljósmyndir af um- sækjanda (stærð 3,5x4.5 cm). Einnig nafn- númer og fæðingarnúmer umsækjanda. Skrásetningin fer fram i skrifstofu Há- skólans, og þar fást umsóknareyðublöð. Fimmtudagur 26. júní 1975. o

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.