Alþýðublaðið - 26.06.1975, Side 10
fKÍTTIR
Löggæslan: Það koma engir áhorfendur á knattspyrnu!
PELE SLASAÐIST ÞEGAR MllGUR-
lllII TDnn UAIIII llliniD nLPeiéjg-EusMo
INN IKUU nANN UNUIK endaði líkast martrðð
Pelé, sem bandariska knatt-
spyrnuliðið Cosmos i New
York hefur greitt milljarð isl.
króna fyrir þriggja ára samn-
ing, og sem knattspyrnuunn-
endur bandariskir mæna á i
þeirri von að honum takist að
afla knattspyrnu sömu vin-
sælda i Bandarikjunum og
„Baseball” — mun ekki leika
á útivöllum i fyrstu deildar-
keppninni þar i landi nema
sérstakar öryggisráðstafanir
verði við hafðar, að þvi ér for-
ráðamenn félagsins segja.
Ástæðan er sú, að þegar
Pelé skoraði mark, sem dæmt
var af, i leik Cosmos við
Boston Minuteman á föstu-
dagskvöld ruddist aðdáenda-
hópur inn á völlinn og þrengdi
svo aö hetjunni, að það varð að
bera hann burt á sjúkrabör-
um.
Pelé varð undir þegar lýðurinn þusti inn
á völlinn — og lengi sást ekki i kappann
fyrir hrúgu áhorfenda; öryggisvaröa og
forráðamanna Cosmos, sem allir reyndu
að koma Pelé undan. Skyrta hans og bux-
ur rifnuðu og annar skor hans losnaði i
átökunum, og við fyrstu læknisskoðun
virtist hann hafa slasast á ökla og hné.
Boston liðið stóð ekki við skuldbinding-
ar um fullkomna öryggisgæslu fyrir Pelé.
Yfir 20.000 áhorfendur voru á Nickerson
Field i Boston, en völlurinn er gefinn upp
fyrir 12.500 manns. Fjöldamargir áhorf-
endur höfðu komið sér fyrir aftan við
mörkin og við hliðarlinur.
i „Við vorum mjög, mjög, mjög heppn-
ir,” sagði Clive Toye, framkvæmdastjóri
Cosmos. ,,Pelé hreyfði fótinn eftir bestu
getu, þegar múgurinn þjarmaði að hon-
um. Ef hann hefði haldið fætinum stifum
hefði hann getað brotnað.”
Péle borinn burtu á sjúkrabörum eftir leikinn i Boston á föstudagskvöldið.
Lögreglumenn voru engir til staðar til
að vemda Pelé, og ef ekki hefðu verið
öryggisverðir Cosmos, þá gæti Pelé verið
mjög slasaður. Einkalifvörður Pelé,
Pedro Garey,og öryggisverðirnir náðu að
komast að stjörnunni rétt á eftir aðdáend-
unum,svoþeim tókstað fyrirbyggja frek-
ari troðning.
,,Ég kastaði mér yfir hann,” sagði
Garey, kúbanskur flóttamaður, sem nú er
bandariskur rikisborgari. Framkvæmda-
stjórinn sem loks tókst að fá Pelé til að
leika fyrir Cosmos eftir fjögurra ára elt-
ingaleik, virtist skelfdur, þegar hann
skýrði fréttamönnum frá atvikinu.
„Mér er annt um öryggi hans,” sagði
Toye. „Ekki aðeins af þvi að hann er besti
knattspyrnumaður i heimi, heldur af þvi
að hann er einn af strákunum i liðinu
minu. Mér er annt um lélegasta leikmann
i heimi. Ég vil ekki að neitt komi fyrir
neinn knattspyrnumann likt þessu.”
Leikurinn i Boston hafði verið auglýstur
upp sem einvi'gi milli Pelé og Eusibio,
sem ef til vill er ásamt Pelé einn best
kunni knattspyrnumaður i heimi, og Is-
lendingum góðkunnur. Báðir léku stöður
miðherja, og voru að sögn ekki eins góðir
og á gullaldarárum sinum.
Eftir atvikið var leiknum haldið áfram,
en Eusibio var ekki með sinu liði eftir at-
vikið fremur en Pelé.
Rafael de la Sierra, varaforseti Warner
fjarskiptafélagsins, sem á Cosmos liðið,
sagðist hafa verið búinn að biðja Boston
lögregluna um aukalið fyrir leikinn, en
aöeins 14 lögreglumenn komu þrátt fyrir
loforð um 200. En svarið sem hann fékk
var þetta: „Lögregluþjóna á knatt-
spymuleik? Þaðkoma engir áhorfendur á
knattspyrnuleik.....”
Auglýsing Laus staða
Síldveiðiskip í Norðursjó Staða aðstoðarskólastjóra við Mennta-
Vegna fyrirhugaðrar skiptingar sildveiði- kvóta i Norðursjó (austan 4 gr. v. lgd.) vekur ráðuneytið athygli útgerðarmanna á þvi, að nauðsynlegt er að þeir sæki um veiðileyfi til ráðuneytisins fyrir 1. júli n.k., ætli þeir að láta skip sin stunda sildveiðar á áðurgreindu svæði eftir 1. júli n.k. Umsóknir, sem berast eftir 1. júli verða ekki teknar til greina. skólann við Tjörnina er laus til umsóknar. Samkvæmt 53. gr. reglugerðar nr. 270/1974, um menntaskóla, skal aðstoðar- skólastjóri ráðinn af menntamálaráðu- neytinu til fimm ára i senn úr hópi fastra kennara á menntaskólastigi. Umsóknir um stöðu þessa, ásamt upplýs- ingum um námsferil og störf, skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu, Hverfis- götu 6, Reykjavik, fyrir 19. júli nk.
Sjávarútvegsráðuneytið Menntamálaráðuneytið,
25. júni 1975. 19. júni 1975.
Föstudagur 27/6 kl. 20.00
1. Landmannalaugar,
2. Þórsmörk
3. Gönguferð á Heklu.
3. júli. Ferð að Skaftafelli og á
Oræfajökul. (5 dagar)
5. júli. Ferð til Hvannalinda og
Kverkfjalla. (9 dagar)
Farseðlar á skriftofunni.
Ferðafélag íslands.
Oldugötu 3,
simar: 19533 og 11798.
ÚTIVISTARFERÐiR
Föstudaginn 27. 6.
Hafursey — Alftaver. Farið á Al-
viðruhamra og viðar. Fararstjóri
Jón I. Bjarnason. Faröseðlar á
skrifstofunni.
Ctivist,
Lækjargötu 6,
simi 14606.
o
Fimmtudagur 26. júní 1975.