Alþýðublaðið - 16.10.1975, Qupperneq 5

Alþýðublaðið - 16.10.1975, Qupperneq 5
I LANDHELGISFLUGI Togarinn Altona. Ægir hafði gát á togurunum en aðhafðist þó ekki neitt i gær bauð landhelgis- gæzlan fréttamönnum með í eftirlitsflug yfir miðinu suðaustur af landinu. Var lagf af stað með Fokker flugvél gæzlunnar, TF-SÝR, klukkan 2 eftir hádegi. Tekin var sfefna í austur og f logið meðfram suður- ströndinni. Var ætlunin að kanna f jölda erlendra togara á Hvalbaks- miðum. Fyrstu togararnir sem vart varð við, voru 62 sjómilur undan Ingólfshöfða. Þar voru á ferðinni þýzki togarinn „Altona” og rússneskur togari, en hvorugur þeirra var á veiðum, heldur sigldu þeir báðir i vesturátt. A Hvalbaksmiðum voru átta vestur-þýzkir togarar og voru 5 þeirra að veiðum, er við flugum yfir, en hinir þrir á austurleið. Það skal tekið fram, að fjórir af þessum átta togurum voru ekki innan islenzku landhelginnar þótt þeir væru innan við 200 milur frá landinu. Hins vegar voru þeir Færeyjamegin við miðlinu þá, er dregin er milli íslands og Færeyja. Togararnir voru allt frá 69 upp i 153 sjómilur frá Hvalbak. Á þessum sömu slóðum var varöskipið Ægir, og hafði hann gátá vestur-þýzku veiðiþjófun- um, án þess að aðhafast neitt. Vestur-þýska eftirlitsisskipið „Nordenham” hélt sig nálægt islenzka varðskipinu og virtist sem verkefni þess væri einungis að fylgjast með ferðum Ægis. Ahöfn landhelgisgæzluflug- vélarinnar henti dagblöðum og öðrum upplýsingum i rituðu máli, niður til kollega sinna á varðskipinu Ægi, og hefur það eflaust verið vel þegið ál varðskipsm önnu m. Þeir vestur-þýzku togarar er voru út af Hvalbak um miðjan dag I gær eru Carl Wiederkehr, Wurtsburg, Saar, Flensburg, Schilksee, Berlin, Husum, og Gluckstad. Þess má einnig geta að á þessum slóðum voru einnig 7 brezkir togarar á veiðum, en allir innan fimmtiu milna markanna og voru þeir þar með i fullum rétti, að minnsta kosti fram til 13. nóvember n.k. er samkomulag Breta og ís- lendinga um veiðiheimildir innan 50 milna fellur úr gildi. Nú er svo komið að brezku togararnir mega bæði vara sig á þvi að fara ekki of nálægt landi til að veiða, og einnig á þvi að fara ekki út fyrir 50 milurnar. Eftirlitsflug þetta stóð i rúmar þrjár klukkustundir yfir sjálfum miðunum, er. á Reykja- vikurflugvelli lenti landhelgis- gæzluvélin um klukkan 19.00. Skipherra vélarinnar var Bjarni Helgason. íslensk alþýða stendur einhuga að baki útfœrslu íslenskrar fiskveiðilögsögu í 200 mílur 15. október. Sameinuðum er sigur vís. ALÞYÐUSAMBAND ÍSLANDS Við lýsum yf ir eindregnum stuðningi við útfærslu íslensku f iskveiði- lögsögunnar í 200 mílur 15. október og skorum á al la íslendinga að standa saman í þessu mesta lif shagsmunamáli íslensku þjóðarinnar. ALÞÝÐUBANKINN Laugavegi 31, Reykjavík Við lýsumyfireindregnum stuðningi við útfærslu íslensku f iskveiði- lögsögunnar í 200 mílur 15. október og skorum á alla íslendinga að standa saman í þessu mesta lífshagsmunamáli íslensku þjóðarinnar. FISKVERKUNARSTÖÐ GUÐBERGS INGÓLFSSONAR ÍSSTÖÐIN HF. Garði Fimmtudagur 16. október 1975. Alþýðublaðið

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.