Alþýðublaðið - 16.10.1975, Blaðsíða 10

Alþýðublaðið - 16.10.1975, Blaðsíða 10
FYRSTA TILRAUN AF ÞESSU TAGI I HEIMINUM ÍSLENZKAR KONUR RÍÐA Á Ásthildur Ólafsdóttir Kvennafriiö hinn 24. október nk. hefur verið mjög til umræðu manna á milli undanfarið og vak- ið mikla ahygli. Framkvæmda- nefnd um kvennafri er skipuð 10 konum. sem gegna ýmsum störf- um i þjóðfélaginu og hafa ólikar pólitiskar skoðanir. En þrátt fyrir það hafa þær tekið höndum sam- an um að hvetja allar konur á Is- landi til þess að taka sér fri frá störfum á afmælisdegi Samein- uðu þjóðanna á yfirstandandi kvennaári. Ein þessara kvenna i framkvæmdanefnd er Asthildur ólafsdóttir úr Hafnarfirði og hef- ur hún góðfúslega fallist á að svara nokkrum spurningum kvennasiðunnar um þessi mál. Fara spurningarnar og svörin hér á eftir. 1. Hver er tilgangurinn með þessu kvennafrii? Hann er i fyrsta lagi að sýna fram á mikilvægi þeirra starfa sem konur inna af hendi i þjóðfé- laginu i dag. 1 öðru lagi sá að vekja athygli á þvi mikla misrétti kynjanna sem enn rikir bæði hér og erlendis. Og hann er i þriðja lagi sá að efla sjálfsvirðingu kvenna á sér og störfum sinum, jafnframt þvi að vekja þær til vit- undar um samtakamátt sinn og manngildi. 2. Hvernig er hugmyndin tilkom- in? Upphaflega var þetta erlend hugmynd og gekk út á það að all- ar konur i heiminum leggðu niður vinnu samtimis til að sýna fram á vinnuframlag sitt, en sennilega er það nú óframkvæmanlegt. En á kvennaráðstefnunni, sem haldin var á Loftleiðum dagana 20. og 21. júni i sumar var samþykkt að skora á konur að taka sér fri frá störfum á degi S.þ. hinn 24. októ- ber i haust, til þess að vekja at- hygli á vinnuframlagi kvenna. Þetta mun vera fyrsta tilraunin með allsherjar fri kvenna til þess að vekja athygli á réttindum sin- um og kjörum og mun þess vegna Fylgist með verðlagi Verðsýnishorn úr HAGKAUP \ HAGKAUP VERSLUN A VERSLUN B Niðursoðnir, blandaðir ávextir 1/1 dós 270,- Niðursoðnar freskjur 1/1 dós 223,- Hrisgrjón, RiverRice 1 f ik 92,- Haframjöl 1 k >g 172,- C-ll þvottaefni 3 b ■g 575,- - Coco Puffs 1 f )k 216,- IVIaggi súpur 1 )k 89,- Egg 1 íg 350,- Fiskibollur 1/1 d ós 170,- Tropicana 0,94 1 133,- Rasp, Paxo 1 pk 54,- Ef þér verslið annars staðar, þá hafið þér hér eyðublað til að gera verðsamanburð. SIMI 86566 vekja verðskuldaða athygli bæði innan lands og utan. Annars má geta þess hér að á landsfundi Al- þýðuflokkskvenna i fyrra stakk Guðrún Helga Jónsdóttir upp á þvi i ræðu, sem hún flutti um stöðu kvenna i atvinnulifinu, að konur tækju sér fri einn dag á kvennaárinu til að sýna fram á mikilvægi vinnu sinnar. 3. Hverjir hafa beitt sér fyrir framkvæmd hugmyndarinnar um kvennafri? Konurnar sem fluttu tillöguna á ráðstefnunni i sumar mynduðu starfshóp. Þær skrifuðu siðan fjölmörgum félögum i Reykjavik og nágrenni, sem siðan tilnefndu fulltrúa á fund, sem siðan hinn 15. sept. sl. kaus 10 manna fram- kvæmdanefnd. Þar voru einnig myndaðir fimm starfshópar, en tvær konur úr framkvæmda- nefndinni eru oddamenn i hverj- um starfshópi. Hver hópur hefur sitt ákveðna verkefni. Einn hóp- urinn hefur það verkefni að koma á framfæri upplýsingum og aug- lýsa kvennafriið. Annar hópur fer vinnustaði og i félög til þess að kynna hugmyndina og svara fyrirspurnum. Þriðji hópurinn sér um að undirbúa dagskrána á fyrirhuguðum útifundi i Reykja- vik þennan dag. Fjórði hópurinn sér um kynningu kvennafrisins úti á landsbyggðinni. Og fimmti hópurinn sér um fjáröflun, dreif- ingu plakats og merki dagsins. 4. Hvernig hefur verið staðið að undirbúningi kvennafrísins? Starfshóparnir sem ég nefndi áðan hafa skilað mjög góðu starfi sem einkennst hefur af áhuga og baráttugleði. Þær ásamt fram- kvæmdanefndinni hafa undirbúið kvennafriið, auk þess sem áhuga- samar konur hafa myndað sér- staka starfshópa viðs vegar um Iandið til þess að vinna að góðri framkvæmd kvennafrisins. 5. Nær það til allra kvenna? Já, það á að geta náð til svo til allra kvenna, þvi að okkur er öll- um skylt að sýna i verki vilja okk- ar til þess að minnka og helst út- rýma misrétti kynjanna. Sumar konur hafa spurt, hvort þær eigi að taka sér fri, þar sem þær séu svo lánsamar að búa við jafnrétti i hjónabandi, heimilishaldi og á vinnumarkaði. Þessu er þvi að svara, að auðvitað eiga þær að taka sér fri. Með þvi eru þær að leggja áherslu á, að konur al- mennt vinni þýðingarmikil störf i Krefjast menn virðast vera ákveðnir i þvi að ná fram þessum sjálfsögðu réttindum núna, og þeir virðast vera ákveðnir i þvi að sýna stjórnvöldum, að hér fylgir hugur máli. Rik ástæða er til þess að hvetja opinbera starfsmenn til að gjalda fullan varhug við þeim skoðunum sem birtust i leiðaranum i ,,blaði allra landsmanna” fyrir réttri viku sfðan. Samningafundinum i gær lauk án þess að annar væri boðaður. Herinn koma fengist. Jón Óskarsson fór á fund yfirmanna hersins i gær og fór fram á, að Flugleiðir hefðu þessa afgreiðslu með höndum fram til 1. desember. Þessari málamiðlun var hafnaö og varð félagið þvi að segja þessum 10 starfsmönnum upp. Jón Óskarsson sagði, að þetta væri leiðindamál og Flugleiðir teldu sig hafa orðið fyrir svikum auk þess sem félagið verður fyrir fjárútlátum vegna þessa máls. Segja má, að með þessu hafi herinn svikið samkomulag, sem búið var að gera, en átti aðeins eftir að undirrita. íslendingum sem búið var að ráða til ákveð- inna starfa, verður að segja upp störfum, og er þetta sannarlega ekki i anda samkomulagsins um að tslendingar taki að sér störf i „íl. „ ™ >rv1i »4 U nfloiri’lMirflnrtTTolli þjóðfélaginu og eigi að njóta jafn- réttis til að neyta gáfna sinna og hæfileika, en alls ekki að hennar persónulegu kjör og staða séu ó- viðunandi. Hún getur að visu ver- ið það, en það þarf ekki að vera. Það géta fleiri komið til liðs við réttindabaráttu en þeir, sem fyrir óréttinum verða. (>. Hvernig hafa undirtektirnar verið? Undirtektirnar hafa verið afar góðar og kannski betri en nokkur okkar þorði að vona i upphafi. Það er ört vaxandi skilningur meðal kvenna á þvi, hvers vegna konur eiga að taka sér fri þennan dag og sé skilningurinn fyrir hendi kemur framkvæmdin af sjálfu sér. Ýmis félög og félaga- samtök hafa lagt fram fé til að stuðla að framkvæmd kvenna- frisins, svo sem Sókn, Starfs- mannafélag Reykjavikur, Starfs- mannafélag Hafnarfjarðar, Fé- lag starfsstúlkna i mjólkur- og brauðbúðum og fleiri. Á ráðstefnu ASÍ og BSRB i Munaðarnesi fyrir nokkru var lýst yfir eindregnum stuðningi við friið og um helgina var samþykkt á fundi i kjördæm- isráði Alþýðuflokksins i Reykja- vik aö )vsa yfir stuðningi við friið, og svipaða sögu má segja um fleiri félagasamtök. 7. Hvað segja atvinnurekendur? Flestir atvinnurekendur hafa sýnt þessu máli skilning og velvilja þótthinir séu líka til, sem eru steinblindir á þessi réttinda- mál okkar kvennanna og hafi jafnvel sýnt tilburði til atvinnu- kúgunar með þvi að hóta uppsögnum þeim konum, sem taki sér fri. Þetta eru algerar undantekningar, sem betur fer, og er ekki hægt að svara á annan hátt, en með þvi að sýna algjöra samstöðu og taka sér frl. Þá menn, sem siðan hyggjast standa við hótanir sinar þarf að auglýsa meðal alþjóðar, svo að skömm þeirra sé ævarandi uppi. 8. Er þetta ekki verkfall, þótt það sé kallað fri? Nei, það er ekki verkfall heldur fri. Það er enginn skyldugur að taka þátt i þessu, eins og félagar I stéttarfélagi eru skyldir til að gera, ef um verkfall er að ræða. Þar af leiðandi er heldur hvergi nein verkfallsvarsla né annað eftirlit með því að konur vinni ekki þennan dag. En ég geri ráð fyrir þvi að konur að minnsta kosti, versli ekki við þær verslanir, þar sem konur verða við afgreiðslu þennan dag. 9. Ef heimavinnandi húsmæður takasér fri, hvað á þá að gera við börnin? Já, það er von að spurt sé! Hvað á þá að gera við börnin? Mér finnst það nú enginn helgi- spjöll þótt feðurnir hugsuðu um börnin sin einn virkan dag um ævina. Ég held að bæði börnin og þeir hefðu gott af þvi. Eflaust taka líka ýmsir þeirra börnin með sér I vinnuna. Það er sjaldan talað um þá breytingu, sem varð i þjóðfélaginu, þegar atvinnuhættir breyttust svo, að feðurnir hættu að hafa börnin sin með sér við vinnuna og hættu þar með að sinna mikilvægum uppeldisþætti barna sinna, sem þau höfðu og hafa enn mikla þörf fyrir. Hann þarf að fá aukin tækifæri til að sinna uppeldi barna sinna. Það er I senn réttur hans og barnsins. Þetta væri hægt að gera með þvi að auka hlutdeild konunnar á hin- um almenna vinnumarkaði og Óánægja að við að greitt yrði úr verðjöfn- unarsjóði 98 krónur á hvert kg af frystri rækju og má af þvi sjá, að sjóðurinn verður að taka á sig gif- urlegar greiðslur. 1 þessu sambandi er rétt að taka fram, að verðjöfnunarsjóður greiðir ekki út þessar bætur fyrr en rækjan hefur verið veidd, fryst og seld og þvi fyrirsjáanlegir miklir rekstrarörðugleikar hjá rækjuvinnslunum, nema bank- arnir hlaupi undir bagga. 0 Alþýðublaöið Fimmtudagur 16. október 1975.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.