Alþýðublaðið - 22.10.1975, Síða 4
Nýr innlendur iðnaður - og hráefnið óþrjótandi?
VERÐA ÞILPLÖTUR
FRAMLEIDDAR ÚR
SKÝRSLUFARGANI?
/Þar sem skýrslugerð allskon-
ar er nú orðin einn stærsti iðn-
aður tslendinga um þessar
mundir, og er hann stundaður
allt frá rikisstjórn og niður i
sorphreinsun út um land allt, þá
hljóta að koma upp allskonar
vandamál i sambandi við iðnað
þennan. Eitt helsta vandamálið
er skortur á geymslurými fyrir
allar þessar fáránlegu skýrslur
sem alltaf er verið að framleiða.
Ekki er hægt að ætlast til aö al-
menningur lesi þessar skýrslur,
þar sem vitað er að efni þessara
skýrslna eru eintómar þurrar
tölur, og óskiljanlegar formúl-
ur, sem þekja mörg hundruð
blaðsiður, og eru skýrslur þess-
ar ýmist prentaðar eða fjölrit-
aðar i stóru upplagi, og er svo
komið að allt er að kafna i
skýrslum. Kostnaður við þessar
skýrslugerðir er oft á tiðum gif-
urlegur, og kostaði gerð lands-
hlutaáætlunarinnar einnar, ein-
ar tuttugu milljónir, og er inni-
hald hennar allt sett fram i
óskiljanlegum tölum og linurit-
um, t.d. um mismun á fjölda
kvenna og karla á Austurlandi.
Nú er svo komið að kjallari
Arnahvols er alveg stútfullur,
og svo er einnig um allar
geymslur annarra rikisstofn-
ana. Reynt hefur verið að
grynna á þessu vandamáli með
þvi að koma þessum skýrslum i
bðkabúðir, en náttúrlega fæst
enginn til að kaupa þessar lang-
lokur. Nú er sem sagt svo komið
að mörg hundruð tonn af gagns-
lausum pappir er orðinn hús-
næðislaus, eins og svo margir
aðrir.
Einn velunnari blaðsins hafði
samband við okkur, og kvaðst
hafa hrist lausnina á þessu
vandamáli framúr erminni,
þannig að landinn getur nýtt
þessa plágu til gagnlegra hluta
hér eftir.
Lausnin er sett fram i upp-
skrift, sem svipar nokkuð til
mataruppskrift i kokkabókum.
Uppskriftin er sem hér segir:
1/4 hluti Perlusteinn
2/4 hluti Portland sement frá
Akranesi
1/4 hluti Skýrslur úr geymslum
rikisins.
Perlusteinninn er malaður i
duft, með öllum tiltækum ráð-
um, sementið þarf ekki að mala,
en skýrslurnar þarf að tæta nið-
ur staf fyrir staf, Siðan er þessu
öllu blandað saman, og bleytt i
vatni. Hentugast væri að
blanda þessa kvoðu i steypu-
hrærivéloghræra vel i.Kvoðuna
skal láta á bökunarplötu og
pressa hana vel út i rúllupylsu-
pressu. Kvoðuna skal láta malla
i einn sólarhring, og út úr þessu
koma hinar prýöilegustu þil-
plötur, og er það mjög ánægju-
legt að allar þessar skýrslur séu
til einhvers nýtar, þar sem þil-
plötur i hús eru alltaf jafn heppi-
legar. Er þarna komin ágætis
aðferð til framleiðslu, sem mun
örugglega gefa góðan arð af sér.
Bretar hagnast á ferðamönnum
Svava Thordarsen, skrif-
stofustúlka — kveðja
Að morgni hins 14. okt.'s.l. var
okkur samstarfsfólki Svövu
Thordersen tilkynnt andlát
hennar. Við urðum felmtri slegin,
við þessu hafði enginn búizt, en
dauðinn spyr ekki að sliku.
Svava Thordersen tileinkaði
kaupfélögunum i llafnarfirði
starfskrafta sina i 38 ár samfellt.
Arið 1937 hóf hún störf hjá
Pöntunarfélagi Hlifar, siðan hjá
Kron-deildinni hér i Hafnarfirði,
þar til Kaupfélag Hafnfirðinga
var stofnað, árið 1945, en þar
hefur hún starfað siðan og var sá
starfsmaður, sem lengst hefur
unnið hjá þvi fyrirtæki. Svava
hefur þvi bæði fylgzt með og verið
mjög svo virkur þátttakandi i
hafnfirzku samvinnustarfi, tekið
þátt i þróun, er fáa eða jafnvel
engan hefur órað fyrir á þeim
tíma, er Svava réðst til starfa hjá
gamla Hlífarfélaginu.
Starfsvettvangur Svövu hjá
Kaupfélagi Hafnfirðinga var á
skrifstofu þess, og þar vann hún
sin störf af það mikilli alúð og
áhuga, að til fyrirmyndar er
okkur, sem yngri erum, og þrátt
fyrir mikla vinnusemi gaf hún sér
ávallt tima til þess að liðsinna og
sýna hlýlegt viðmót, hvort sem
um var að ræða vinnufclaga
hennar eða viðskiptavini fyrir-
tækisins.
Með þessum fáu linum viljum
við láta i ljós virðingu okkar og
þakkiæti til handa Svövu
Thordersen, og jafnframt votta
skyldfólki hennar dýpstu hlut-
tekningu.
Starfsfólk KFH.
Minningarorð.
Svava Thordersen
í dag er gerð frá Frikirkjunni i
Hafnarfirði útför Svövu
Thordersen, sem andaðist að-
faranótt 14. þ.m. eftir skamma
sjúkdómslegu, ekki 65 ára að
aldri.
Svava var fædd i Hafnarfirði 30.
janúar 1911. Hér ólst hún upp og
hér vann hún allt sitt ævistarf. 1
full 38 ár nutu verzlunarsamtök
hafnfirzkrar alþýðu starfskrafta
hennar.
Foreldrar Svövu voru hjónin
Ölafur og Vigdis Thordersen, sem
fluttust til Hafnarfjarðar 1908 og
áttu þar heima siðan. Ólafur var
, söölasmiður að lærdómi, en vann
einnig aðra vinnu á sjó og landi
eftir þvi sem til féll. Faðir hans
Alþýöublaðiö
var séra Stefán Thordersen i
Kálfholti og siðar i Vestmanna-
eyjum, en hann var sonur Helga
Thordersens biskups. — Systir
ólafs var Ragnheiður kona
Hannesar Hafsteins skálds og
ráðherra.
Vigdis var einkabarn Stefáns
Guðmundssonar, sem bjó i
Bakkárholtsparti i Ölfusi og
drukknaði 32 ára gamall niður
um is á ölfusá, og konu hans,
Helgu Brynjólfsdóttur, sem lifði
mann sinn i rúm 70 ár, enda varð
hún elzt allra Islendinga að þvi er
vitað er, 106 ára og hálfu ári
betur. Er þetta ein grein Vikings-
lækjarættar.
Þau Ölafur og Vigdis voru
merkishjón bæði að gerð og i
störfum, travjst og eljusöm og trú
hverjum þeim manni og málstað,
sem þau bundu tryggð við. Svava
var yngst af fjórum börnum
þeirra.
Og Svava tók marga góða kosti
i arf frá foreldrum sinum og ætt.
Hún var prýðilega greind, yfir-
lætislaus i framkomu, nokkuð dul
i skapi, þægileg i viðmóti, lipur i
skiptum og frábærlega traust og
samvizkusöm i hverju starfi.
Skömmu eftir að Pöntunarfélag
verkamannafélagsins Hlifar tók
að verzla með vefnaðarvöru að
Gunnarssundi 5, en það var i árs-
lok 1936, gekk Svava Thordersen i
þjónustu þess og vann við
afgreiðslu i búðinni. Þegar svo
Pöntunarfélagið keypti hús
Valdimars Long við Strandgötu,
hóf hún störf i hinu nýja
verzlunarhúsi félagsins, og þar
vann hún áfram, þegar Kron var
stofnað (1937) og Pöntunarfélagið
breyttist i deild innan þeirra
samtaka. Enn hélt hún áfram
störfum hjá fyrirtækinu, þegar
deildin varö sjálfstætt kaupfélag
1945. Arið 1947 skipti hún um
starfssvið og fluttist i skrifstofu
félagsins frá afgreiðslu i búðinni,
en hafði raunar áður gripið i
skrifstofustörfin við og við, þegar
þess þurfti við. 1 skrifstofunni
vann hún siðan þar til hálfum
mánuði fyrir andlát sitt.
Ekki verður störfum Svövu hjá
Pöntunarfélagi Hlifar, Hafnar-
fjarðardeild Kron og Kaupfélagi
Hafnfirðinga betur eða réttar lýst
en með þvi að taka hér upp
ummæli kaupfélagsstjórans,
Ragnars Péturssonar, á stjórnar
fundi félagsins fyrir fáum dögum,
en honum fórust þannig orð:
„Svava Thordersen var frábær
starfsmaður, prúð i framgöngu,
alúðleg i umgengni og hlý i
viðmóti, samvizkusöm i störfum
og fyrirmynd annarra i stundvisi
og reglusemi á vinnustað.” —
Og þetta, sem hér hefur verið
sagt um framkomu Svövu og
störf, átti rætur sinar að rekja til
skapgerðar hennar og lifsviðhorfs
og var i samræmi við það hvort
tveggja. Hún var svona. Og svona
vildi hún vera.
Sömu eiginleikar komu fram i
störfum hennar i góðtemplara-
reglunni. Hún gekk ung i barna-
stúkuna hér, en þar var móðir
hennar lengi gæzlumaður. Er hún
hafði aldur til, gerðist hún félagi i
stúkunni Danielsher og var það til
æviloka. Hún hafði sig aldrei
mikið i frammi þar, en var
málstaðnum jafnan trygg og
vann af trúmennsku öll þau störf,
sem henni voru falin. Og vist er
um þaö, að félagssystkin hennar
þar sakna hennar sáran, þegar
hún nú er horfin úr hópnum.
Það'géra einnig samstarfsmenn
hennar i Kaupfélaginu og hinir
mörgu, sem til hennar leituðu I
starfi hennar þar. Og það gera
allir, sem höfðu af henni nokkur
kynni, og þvi sárari er söknuður-
inn sem þau kynni voru meiri.
En er ekki einmitt slikur sökn-
uður sannasti votturinn um að vel
hai'i verið lifað.
ólafur Þ. Kristjánsson.
Á siðustu árum hefur ferða-
mannastraumurinn i Evrópu far-
ið vaxandi ár frá ári og hagnaður-
inn af ferðamönnum hefur aukizt
að sama skapi. Að visu hefur
verðbólgan verið það mikil i sum-
um löndum að ferðamenn hafa
forðastþau, nema þá af einhverj-
um alveg sérstökum ástæðum. ís-
land er tvimælalaust eitt þeirra
landa, sem orðið hefur fyrir barð-
inu á þessari þróun.
Hagnaður Breta á ferðamönn-
um á þessu ári mun nema sem
svarar 430 milljörðum isl. króna
og er það um 5% aukning frá
fyrra ári, þ.e.a.s. i krónutölu.
Fjöldi ferðamanna jókst um 3%
frá þvi i fyrra en þá voru ferða-
menn i Bretlandi um 8 milljónir
talsins.
Bændur auka
baggabindingu
Vaxandi tilhneigingar gætir nú
hjá bændum til að færa heyhirð-
inguna aftur til baggabindingar,
að sögn Sambandsfrétta. Rétt er
að taka fram, að bændur eru ekki
að byrja baggabindingar uppá
gamla móðinn heldur er hér um
að ræða vélbindingu.
Eins og kunnugt er hafa margir
bændur tekið heybindivélar i
notkun á liðnum árum, og i sumar
virðast margir hafa aukið véla-
kost sinn á þessu sviði. Þannig
seldi Búvörudeild Sambandsins
nú i ár 96 baggafæribönd, 40
baggasleða og 60 baggakastara,
sem er mun meira en verið hefur
siðustu árin.
Háskólinn 1
aðilar Sambands islenzkra náms-
manna erlendis (StNE), sem
staddir eru hér á landi. A fundin-
um flytja fulltrúar i Kjarabar-
áttunefnd framhaldsskólanema
ávörp og trúlega verður
samþykkt ályktun i anda fundar-
ins, sem verður afhent rikisstjórn
og Alþingismönnum.
Starf Stúdentaráðs á næstunni
mun að miklu leyti mótast af þvi
hvernig viðbrögð stjórnvalda við
þessum aðgerðum verða, en útséð
er um það að umræðum verður
haldið vakandi meðan ekki hefur
verið endanlega gengið frá fjár-
lagafrum varpinu, og höfuð-
áherzlan verður lögð á það að
reyna að snúa rikisstjórninni frá
villu sins vegar.
Bretar hafa lagt mjög mikið á
sig við að efla ferðamannaþjón-
ustu i landinu enda er nú svo
komið að þessi starfsgrein skilar
þjóðarbúi Bretaveldis hagnaði
sem nægir til þess að greiða þriðj-
ung allra innfluttra matvæla eða
oliu á hverju ári.
Erling Blöndal
á tónleikum
I kvöld munu þeir Arni
Kristjánsson, pianóleikari og
Erling Blöndal Bengtsson, selló-
leikari, halda tónleika á vegum
Tónlistarfélags Akureyrar. Verða
tónleikarnir haldnir i Borgarbiói
og hefjast kl. 7.
Á efnisskránni eru verk eftir
Schumann, Bach, Beethoven og
Chopin.
Erling Blöndal Bengtsson er
okkur Islendingum að góðu kunn-
ur og hefur oft komið til hljóm-
leikahalds hingað til lands.
Ástandið___________________1
hafi verið framkvæmd og önnur
hafa bókstaflega enga afgreiðslu
hlotið. Hefur t.d. engin heildar-
könnun á dagvistunarþörf verið
gerð og mikið vantar á, að fram-
lög til dagvistunarstofnana séu
þau, sem lögin gera ráð fyrir.
I ræðu sinni með fyrirspurninni
benti Benedikt Gröndal á, að við-
horfin til dagvistunar hefðu tekið
miklum stakkaskiptum að undan-
förnu. Nú væri ekki lengur litið á
dagvistun sem neyðarráðstöfun,
heldur sem eðlilegan og sjálf-
sagðan þáttt til þess að tryggja
það, að bæði foreldri gætu notið
fulls frelsis til þess að velja sér
starf utan heimilis. Hér væri þvi
ekki lengur um að ræða að full-
nægja þyrfti brýnustu þörfum
einstæðra foreldra eða námsfólks
fyrir dagvistun barna, heldur
væri hér um að ræða jafnréttis- og
mannréttindamál. Sagði Bene-
dikt, að lög þau um stuðning
rikisins við dagvistunarstofnanir,
sem sett voru árið 1973, hefðu
veriö mjög þörf og tímabær, en
þótt nú væru liðin tvö ár frá setn-
ingu þeirra, skorti enn verulea á
um að þeim væri framfylgt i
verki.
Auk þeirra Benedikts Gröndals
og menntamálaráðherra tóku
þær Svava Jakobsdóttir, Sigur-
laug Bjarnadóttir og Vilborg
Harðardóttir til máls um þennan
dagskrárlið.
Miðvikudagur 22. október