Alþýðublaðið - 22.10.1975, Blaðsíða 10

Alþýðublaðið - 22.10.1975, Blaðsíða 10
í HREINSKILNI SAGT óreiða Stórmikla athygli vakti það um dag- inn, þegar fulltrúar simamanna gerðu þá ályktun, að hækka bæri gjaldskrá þess fyrirtækis. Þessi ályktun skaut svo mjög skökku við allar ályktanir annarra stéttarfélaga launþega, að mönnum fannst undrum sæta. Skýring hefur sið- ar verið gefin á þessari furðu. Og þessi skýring er, að fjárþröng Pósts og sima sé slik, að stofnunin burðist með óbæri- legan skuldahala, sem hamli eðlilegum vexti og viðgangi. Um þetta mál eru þó ekki allir á eitt sáttir. Yfirmenn stofn- unarinnar með ráðherra i fylkingar- brjósti hafa ekki viljað við þessa kvört- un simamanna kannast sem réttmæta. Að vanda hefur verið þulinn upp talna- grautur, til að styðja málstaðinn. betta er háttur hinna „heilögu kúa” embættiskerfisins, ef einhverjum skyldi detta i hug að syngja i öðrum dúr en hinu tilhlýðilega hallelúja. Eigi að siður kemur fram, að stofnunin sé fremur illa á vegi stödd fjárhagslega. A þessum sið- ustu og verstu timum þykja það vistekki neinar stórfréttir, þó að rikisstofnunum sé og verði féskylft. En rétt i sömu andrá og deila yfir- og undirmanna um fjárhag stofnunarinnar er i efra marki, berast aðrar og óskemmtilegri fregnir. Orðið hefur uppskátt um mikilsháttar ó- reiðu á tveim stöðvum þessa fyrirtækis, Hvolsvelli og Reyðarfirði. Menn mættu nú gera sér i hugarlund, að fjárhagslega illa stödd stofnun gerði það sem i hennar valdi stendur, til að halda utan um þá fjármuni, sem hún hefur með höndum. bess er alltaf þörf, en aldrei meiri nauð- syn en þegar illa árar. bvi er ekki að neita, að það er harkalegt, þegar menn, sem trúað er fyrir verðmætum, niðast á þeim trúnaði. En þvi miður eru slik dæmi hér á voru landi orðin svo mörg, að afsökunin að þeir, sem eftir eiga að lita, hafi „verið i góðri trú” um að allt væri i lagi, er ekki lengur góð og gild. Löngum hefur þvi verið fram haldið, og sennilega með réttu, að starfsemi Pósts og sima væri nokkuð þung i vöfum, en umfram allt væri hún örugg i reynd. Við þetta bætist svo, að hér mun eiga að gefa skýrslur mánaðarlega til réttra yf- irvalda. bað mun ekki vera neitt áhorfs- mál, að frumskylda æðstu embættis- A Jalangurs- heiði manna hverrar stofnunar er, að hafa glöggt eftirlit með þvi, að ekki þróist óreiða innan stofnanannai>að vareinnig athyglisvert, þegar starfsmat var gert hér um árið, að þeir, sem með fjármuni áttu að fara og þeirra að gæta, voru metnir drjúgum hætta i launum yfir- leitt, en hinir, sem báru önnur starfs- heiti. í þessu liggur auðvitað sá skiln- ingur rikisvaldsins, að ábyrgðin á fjár- munum almennings eigi að vera rik, og sé mikils metandi. Vitað er, að um hendur póstmanna fer stórfé, þó mis- jafnlega mikið sé eftir stöðum. Má þar nefna sem dæmi bæði sparimerki og fri- merki, auk annars, s.s. póstkrafna. bessvegnaer þvi ekki til að dreifa, að veltan sé svo smáskitleg, að ekki taki þvi að veita fullkomið eftirlit og aðhald. Ekki dettur mér sú fásinna i hug, að Eftir Odd A. Sigurjónsson embættismönnum fyndist sér sýnd á einn eða neinn hatt ótilhlýðileg tor- tryggni, þótt eftirliti sé beitt. bar væri yfirstjórnin aðeins að framkvæma sina frumskyldu, og það getur engan meitt. Að öllu þessu athuguðu hlýtur almenn- ingur að spyrja. Hvernig er eiginlega háttað eftirliti i stofnun þar sem milljónaóreiða getur þróazt? Fólk á rétt á þvi, að þessu verði svarað vifilengju- laust og i heyranda hljóði. Hér með er lýst eftir þessum svörum. Til er forn sögn, að gullhringur lá um langa hrið á Jalangursheiði, og vissi enginn hver átti. En svo gerhugulir voru vegfarendur um þá heiði, að engum • kom til hugar, að snerta við hringnum. bað hefði aðeins verið gert með ófrjálsri hendi. betta metur hinn forni sagnarit- ari sem sönnun á heiðarleika fólks á þeim tima. Að visu er mikið vatn til sjavar runnið siðan og margt hefur breytzt um hugarfar og æði mannfólks- ins. Vel má og vera, að hér sé á ferðinni þjóðsaga. En allt um það liggur i eðli- legum skilningi þeirrar þjóðsögu, eins og svo margra annarra, hvertvarálit ritarans á eftirsóttum mannkostum, þó svo aðrar beri með sér skoðun á þvi, sem varast beri. Enginn veit vist með fullri vissu, hvar Jalangursheiði liggur og má það liggja milli hluta. En af þessum hörmulegu fregnum að dæma , sem hér hafa verið raktar,liggur hún vist ekki á millihöfuð- stöðva Pósts og sima annarsvegar og Hvolsvallar og Reyðarfjarðar hins- vegar. fclk Kona sem nýlega gaf frá sér þá yfirlýsingu, aðhennar heitasta ósk væri að lifa fjarri heimsins glaumi og i friði fyrir blaðamönnum og ljósmyndurum, fær ekki stundlegan frið. Enda segja margir að hún sé langt frá þvi að haga sér þannig að einhver von sé til þess að blaðamenn missi áhuga á henni. Um þessar mundir vekur þessi umtalaða kvinna, sem er eins og marga eflaust grunar, engin önnur en Jackie Onassis, helzt á sér athygli fyrir samband sitt við moldrikan demants- höndlara, Maurice Tempels- man. bau eru sögð saman öllum stundum og þegar þau skreppa út I næturklúbba saman, segja menn að þau velji sér dimmu hornin, rétt eins og ungir elskendur gera jafnan. En hvað meðlimir fjöl- skyldna þeirra segja yfir þessu nýja ástarsambandi, fylgir ekki sögunni, en lik- lega verður ekki langt þar til við getum sagt einhverjar fréttir af þvi. * Nýlega var sett' nýtt heimsmet isturtubaði! betta er alveg hreint dagsatt. Sá sem metið setti er náungi að nafni Bernard Beatty og stóð hann samtals 200 klukkutima undirsturtunni. Fyrra metið i þessari „grein” var 175 klukkustundir og 7 minútur. Haft er eftir þeim sem á horfðu að kappinn hafi sann- arlega verið tandurhreinn, en um leið alveg dauð- þreyttur að loknu afreki. Fulltrúi islenzku kvenþjóðarinnar á fegurðarsýningunni Miss International I Tokyo i ár verður Sigrún Sævarsdóttir, sem var ein af fimm þátttakendum i Islenzku fegurðarsam- keppninni, að þvi er segir i fréttatilkynningu frá brezku fyrirtæki, hvenær sem sú samkeppni annars hefur veriö háð. En Sigrún var á ferð i London á dögunum, og skoðaöi þar Yardley snyrtivörufirmað ásamt snyrtisérfræöingi Yardiey á isiandi, Heiöari Jónssyni —en Sigrún nemur að sögn snyrtifræði á Henlow Grange i Gloucestershire. Bíóðn HASKÓLABÍO srmi 22mo Sér grefur gröf þótt grafi The internecine project Ný, brezk litmynd, er fjallar um njósnir og gagnnjósnir og kaldrifjaöa moröáætlun. Leikstjóri: Ken Hughes. Aöalhlutverk: James Coburn, Lee Grant. ISLENZKUR TEXTI. Bönnuö börnum. Sýnd kl. 5 og 9. Hljómleikar kl. 7. LAUGARASBlÓ s<m. ,2075 Harðjaxlinn HÁRDNEGL TOMAS MILIAN " * CATHERINE SPAAK ERNEST BORGNINE NERVEPIRRENDE SKILDRING AF DE HARDE DRENGES OPEBR, DERSLÁR PUBLIKUM KNOCK-OUT! Ný spennandi itölsk-amerísk sakamálamynd, er fjallar um hefndir og afleiöingar hnefa- leikara nokkurs. Myndin er i litum og meö islenzkum texta. Aöalhlutverk: Robert Blake, Ernest Borgnine, Catherine Spaak og Tomas Milian. Bönnuö innan 16 ára. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. STJORHUBIÖ Simi 18936 ^ví^íg^auslæt^™ f TRIPLE AWARO MflNNER ) V- —Now 'ibrk Film Critica j BESTPICTURE OFTHEUERR BESTBIRECTDR Bob fíifilson BESTSUPPDRTING RETRESS Afar skemmtileg og vel leikin amerisk úrvalskvikmynd I'lit- um meö Jack Nicholson og Karen Black. Bönnuö innan 14 ára. Endursýnd kl. 6, 8 og 10. Kaupið bílmerki .andverndar Hreint | f^iand 1 fagurt 1 land LANDVERND Tll sölu hjá ESSO og SHELL bensinafgreiöslum og skrifstofu Landverndar Skólavöróustig 25 HAFHARBIl Sími 16444 Brjálæðingurinn Spennandi og hrollvekjandi ný bandarlsk litmynd um óhugn- anlega verknaöi brjálaös moröingja. Roberts Blossom, Cosette Lee. ISLENZKUR TEXTI. Bönnuö innan 16 ára. Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og ll. TÓNABÍÓ Simi 31182 TOMMY Ný, brezk kvikmynd, gerö af leikstjóranum Ken Russell eftir rokkóperunni Tommy, sem samin er af Peter Towns- hend og The Who. Kvikmynd þessi var frumýnd i London i lok marz s.l. og hefur siöan veriö sýnd þar viö gifur- lega aösókn. Þessi kvikmynd hefur allstaöar hlotiö frábær- ar viötökur og góöa gagnrýni, þar sem hún hefur veriö sýnd. Myndin er sýnd i stereo og meö segultón. Framleiðendur: Robert Stig- wood og Ken Russell. Leikendur: Oliver Reed, Ann Margret, Roger Daltrey, El- ton John, Eric Clapton, Paul Nicholas, Jack Nicholson, Keit Moon, Tina Turner og The Who. Sýnd kl. 5, 7,10, 9,15 og 11,30. ISLENZKUR TEXTI. Bönnuö börnum yngri en 12 ára. Hækkaö verö. jiÝJA ÖÍÓ Slmi 11546: Sambönd i Salzburg “THE SALZBURGH tslenzkur texti Spennandi ný bandarisk njósnamynd byggö á sam- nefndri metsölubók eftir Helen Mclnnes, sem komiö hefur út i islenzkri þýöingu. A öa 1 h1utverk: Barry Newman, Anna Karina. Bönnuö innan 14 ára. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Bönnuö börnum ■taggi rólegri Alþýðublaðið Vinsamlegast leið- réttið í símaskránni VIÐ HOFUM FENGIÐ NÝTT SÍMANÚMER 81866 Beinir simar og eftir lokun skiptiborðs eru Afgreiðsla 14900 Auglýsingar 14906 'IiilRitstiórn er lalþýðu flutt í Slðumúla 11 Prentsmiðja 81976 AAiðvikudagur 22. október

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.