Alþýðublaðið - 22.10.1975, Síða 7
Sporvagn á
eftir áætlun
Það er vonum seinna að Þjóðleikhúsið
tekur til meðferðar Sporvagn girndar-
innareftir Tennessee Williams, sem um
langt skeið var eitt helzta leikskáld
Bandarikjamanna, en hefur i umróti
formbyltingar leikhússins þokast aftur i
söguna og er nú nánast kafli frá liðinni
tið.
En það eiga verk Williams sammerkt,
að skyggnast inn i heim, sem kvikmynd-
ir þess tima sýndu sjaldan. Viðfangsefn-
in eru gjarnan það sem ekki sést á yfir-
borðinu, og meðferöin er raunsæi. Þess
vegna er það sem að manni hvarflar að
leikrit hans séu titt betur til þess fallin
að vera kvikmyndahandrit, þar sem ná-
lægð myndavélarinnar gerir allar ýktar
leiksviðishreyfingar óþarfar, — og
timalengd og klippingar hjálpa til við að
skapa andrúmsloft.
Það er einmitt þessi hætta, sem
gætir i sýningunni hér, og aðeins einn
leikari kemst meira en klakklaust hjá
henni, allir aðrir eru, i misjafnlega rik-
um mæli þó, fórnarlömb hlutverka sem
leyfa hvergi sterkan leik eða yfirdrifnar
hreyfingar.
Meðferð Róberts Arnfinnssonar á
hlutverki Mitch er máske of góð, of
raunveruleg og leikur hans of sannur til
að aðrir leikarar fái að njóta sannmælis.
Róbert hefur fyrir löngu skipað sér sess
sem beztur okkar leikara svo það má
orðið segja að hvert nýtt hlutverk hans
sé vitnisburður og staðfesting á þvi. En
þar með stelur hann senunni,— og þótt
leikur Þóru Friðriksdóttur I aðalhlut-
verkinu, Blanche, sé á hinn almenna
mælikvarða góður, þá er hann misgóö-
ur, og sömu sögu er raunar að segja um
Erling Gislason.sem Stanley Kowalski,
hinn ameriskfæddi sonur pólska inn-
flytjandans. Ef ekki væri fyrir hinn
jafnfrábæra leik Róberts, þá bæri ef-
laust minna á þvi hve kaflaskipti eru
mikil hjá öðrum leikurum.
Reyndar segir það okkur aðeins það,
að samvinnan hefuf tekizt vel og leik-
stjórnin er á góðum vegi — þvi smá-
hnökrar á fyrstu sýningum hverfa jafn-
an þegar frá líður, þvi þar iýkur sam-
likingu sviðsverks og kvikmyndar, að
leikritið heldur áfram að æfast og hlut
verkin að formast eftir þvi sem verkið
er oftar sýnt — og þess vegna er fylli-
lega óhætt að komast að þeirri níður-
stöðu að þessi sýning sé i heild vel
heppnuð.
Það er svo annað mál, að hversu for-
vitnilegt sem það nú annars er að kynn-
ast verkum Tennessee Williams, þá má
velja öllum leikritum sinn tima — og
hafi það verið ásetningur Þjóðleikhúss-
ins að kynna okkur þennan höfund, þá
mátti það gerast löngu fyrr — en hafi
það vakað fyrir ráðamönnum leikhúss-
ins að kynna okkur bandariskt „atóms-
feruleikrit”, — þá er margt annað
forvitnilegt nýrra að gerast i banda-
riskri leikritun.
B.S.
Samvizkubitið nær
vart til buddunnar
Utvarp
Útvarp í kvöld klukkan 19:35
Gisli Helgason og Hjalti Jón Sveinsson
sjá um þáttinn ,,A kvöldmálum”, sem
er á dagskrá útvarpsins i kvöld klukkan
19:35. í þættinum er fjallað um sérstöðu
útvarps og sjónvarps út á landsbyggð-
inni, og þá aðallega fyrir austan. Tekin
voru sýnishorn af útsendingum, og kom
þá i ljós, að oft sézt og heyrist mjög illa.
Einnig mun Hrafn Baldursson fjalla um
þetta vandamál, og gagnrýna það. Gisli
Helgason tjáði blaðinu það, að grunur
léki á, að raflagnir trufli útsendingar út-
varps og sjónvarps, en það er hlutur
sem alls ekki á að geta komið fyrir.
Einnig mun verða kynning á Amnesty,
tilgangi samtakanna, og þeim mál-
efnum sem þau eru að berjast fyrir. I
þættinum verður rætt við Jónu Lisu Þor-
steinsdóttir, ritara samtakanna, og
Gisla J. Astþórsson. Alþýðublaðið hafði
samband við Inga Karl Haraldsson,
gjaldkera samtakanna og spuröi hann
um árangur söfnunarvikunnar, sem
gekk undir nafninu „Samvizkuvika”.
Samvizkuvikan var ágætur timi til
kynningar á samtökunum út af fyrir sig,
og hafa sjálfsagt til kynningar á sam-
tökunum út af fyrir sig, og hafa sjálfsagt
margir kynnst starfi samtakanna á
þessum tima, en aftur á móti var fjár-
söfnunin mjög treg, og var ég fyrir
miklum vonbrigðum með hina dræmu
þátttöku sem i henni varð.”
„Orsakir fyrir þessari dræmu þátt-
töku, tel ég vera margar, en þó tel ég
helztu ástæðuna vera þá, að fólk telji
baráttumál samtakanna vera sér of
fjarlæg, og þvi finnst þeirra framlög
vera eins og dropi i hafið, það vantar
sem sagt alla samkennd i Islendinga i
málum sem þessum”.
„íslandsdeild Amnesty er skammt á
veg komin, en ég vonast til þess að fólk
skilji þörfina á samtökum sem
þessum’, sagði Ingi Kari að lokum
Huglækningaþátt-
urinn endursýndur
SJónvarp
Sjónvarp í kvöld klukkan 21:50
Endursýndur verður þáttur úr
myndaflokknum „Sjötta skilninga-
vitið”, og nefnist þessi þáttur „Hug-
lækningar”, og mun hann verða á dag-
skrá sjónvarpsins i kvöld klukkan 21:50.
Þátturinn fjallar um lækningar
Einars Jónssonar bónda á Einars-
stöðum i Reykjadal. Rætt er við Einar
og Hrafnkel Helgason, yfirlækni á
Vifilsstöðum, og fyrrverandi sjúkling
þeirra beggja sem heitir Baldur Sig-
urðsson bónda i Reykjahlið. Einnig mun
séra Sigurður Haukur Guðjónsson taka
þátt i umræðunum, og fjalla þær. um
hvort það hafi verið fyrir tilverknað
Einars, eða Hrafnkels, sem að Baldur
hlaut bata. Þáttur þessi var frumfluttur
3. ágúst siðastliðinn, en umsjónarmenn
hans eru Rúnar Gunnarsson og Jökull
Jakobsson.
Vtvarp
MIÐVIKUDAGUR
22.október
7.00 Morgunútvarp.
12.00 Dagskráin. Tónleikar, Til-
kynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir. Til-
kynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „A fullri
ferð” eftir Oscar Clausen.Þor-
steinn Matthiasson les (7).
15.00 Miðdegistónleikar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.25 Popphorn.
17.00 Lagið mitt.
17.30 Smásaga: „Sakramenti”
eftir Þóri Bergsson. Jóhanna
Hjaltalin leikkona les.
17.50 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 A kvöldmálum.Gisli Helga-
son og Hjalti Jón Sveinsson sjá
um þáttinn.
20.00 Einleikur I útvarpssal.
20.20 Sumarvaka. a. Elsti rithöf-
undur Rangæinga. Helgi
Hannesson flytur erindi sitt,
fyrri hluti. b. Unnið hörðum
höndum. Guðrún Guðlaugs-
dóttir talar við Ólaf Gunnars-
son bónda á Baugsstöðum. c.
Tvær sumarferöir á hestum.
Baldur Pálmason les frásögn
Þorsteins Björnssonar frá
Miklabæ af ferðum úr Blöndu-
hlið norður I öxnadal og fram i
Goðdali. d. Kórsöngur. Karla-
kór Akureyrar syngur undir
stjórn Askeis Jónssonar. Guð-
mundur Jóhannsson leikur á
pianó.
21.35 Otvarpssagan: „Fóstbræð-
ur” eftir Gunnar Gunnarsson.
Þorsteinn ö. Stephensen leikari
les (4).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Kvöldsagan:
„Kjarval” eftir Thor Vil-
hjáimsson. Höfundur les (5).
22.35 Skákfréttir.
22.40 Orð og tónlist. Elinborg
Stefánsdóttir og Gerard Chin-
otti kynna franskan visnasöng.
23.25 Fréttir i stuttu máli. Dag-
skrárlok.
SJónvarp
Miðvikudagur
22. október
18.00 Mynd án orða Fylgst með
tveimur litlum, japönskum
stúlkum i skólanum og að leik.
18.20 Höfuðpaurinn Bandarisk
teiknimynd. Þýðandi Stefán
Jökulsson.
18.45 KaplaskjólBreskur mynda-
flokkur byggður á sögum eftir
Monicu Dickens. Afmælisveisla
I Kapiaskjóli. Þýðandi Jóh.
Jóhannsdóttir.
Hlé
20.00 Fréttir og veður
20.30 Dagskrá og auglýsingar
20.40 Nýjasta tækni og vísindi. Of
hár blóðþrýstingur. Sam-
ræming björgunaraðgerða á
sjó. Hættulegt ryk. Umsjónar-
maður Sigurður H. Richter.
21.05 Farþeginn. Breskt saka-
málaieikrit. 2. þáttur. Aðal-
hlutverk Peter Barkworth og
Paul Grist. Þýðandi Jón Thor
Haraldsson.
21.50 Huglækningar. End-
ursýndur þáttur úr mynda-
flokknum Sjötta skilningar-
vitið. Fjlalað um lækningar
Einars Jónssonar bónda á
Einarsstöðum i Reykjadal.
Rætt er við hann og Hrafnkel
Helgason, yfirlækni, og fyrr-
verandi sjúkling þeirra beggja,
Baldur Sigurðsson bónda i
Reykjahlið. Einnig tekur séra
Sigurður Haukur Guðjónsson
þátt i umræðunum. Umsjónar-
menn Jökull Jakobsson og
Rúnar Gunnarsson. Þessi
þáttur var frumfluttur 3. ágúst
1975.
22.40 Dagskrárlok.
BSRB segir
fulltrúa sína úr
gerðardómum
A Iþýðublaðið — verkalýðsmál
ST0FNUÐ
VERKFALLS-
NEFND
A vegum Bandalags starfs-
manna rikis og bæja var haldinn
fundur 16. október til að ræða að-
stæður I kjaramálum og samn-
ingsréttarmálum. Sátu hann
stjórn bandalagsins, samninga-
nefnd og verkfallsréttarnefnd.
Eftirfarandi samþykktir voru
geröar með 44 samhljóða atkvæð-
um:
Afsögn gerðardóm sfu Iltrúa
BSRB
„Sameiginlegur fundur stjórn-
ar BSRB, samninganefndar og
verkfallsréttarnefndar banda-
lagsins ályktar, að tilnefndir
fulltrúar BSRB i Kjaradómi og
Kjaranefnd segi sig nú þegar úr
þessum tveimur lögskipuðum
gerðardómum.
í þessari ákvörðun felst, að
BSRB ætlar ekki að una af-
greiðslu þessara gerðardóma
framvegis.”
Stofnun verkfallsnefndar BSRB
„Fundurinn beinir þvi til
stjórnar BSRB að skipuð verði nú
þegar verkfallsnefnd bandalags-
ins.
Hlutverk hennar er að undirbúa
og stjóma eftir nánari ákvörðun
samninganefndar og stjórnar
BSRB aðgerðum til að knýja
fram kröfur samtakanna.
Einnig annist nefndin
upplýsingastarfsemi, kynningu
og öflun stuðnings við máiið.”
Greinargerð:
Samkvæmt lögum um kjara-
samninga opinberra starfsmanna
er það hlutverk Kjaradóms og
Kjaranefndar að dæma um
ágreining samningsaðila, ef ekki
takast samningar um kjaramál
rikis- og bæjarstarfsmanna. 1
báða þessa gerðardóma tilnefn-
ir Hæstiréttur þrjá dómara, en
fjármálaráðherra og BSRB einn
fulltrúa hvor aðili.
Takist ekki samningar fyrir 1.
nóv. n.k. ætti kjaradeila rikis-
starfsmanna að fara sjálfkrafa
fyrir Kjaradóm skv. kjara-
samningalögunum.
BSRB hefur sett fram þá kröfu
við rikisstjórn, að bandalaginu og
aðildarfélögum þess verði veittur
verkfallsréttur þegar á þessu ári,
og þannig verði gerðardómur af-
numinn sem lokastig i kjaradeil-
um opinberra starfsmanna.
Mál þetta var einnig sett fram i
kröfugerð og megintillögum
BSRB I yfirstandandi samnings-
gerð bæði við rikið og bæjar-
stjórnir.
A samningafundi 15. okt. s.l.
var krafan um verkfallsrétt snið-
gengin af samninganefnd ríkisins
jafnframt þvi, sem réttmætum
kröfum um leiðréttingu launa-
kjara var svarað með algjörlega
óviðunandi launatilboði.
Virðist þvi augljóst, að rikis-
valdið áformar ekki að bæta Ur
réttleysi samtakanna i
samningamálum og leitast við i
skjóli þess að viðhalda þvi mis-
rétti I launamálum, sem þegar ér
orðið milii opinberra starfs-
manna og annarra.
I skoðanakönnun á fjölsóttum
fundum á vegum BSRB um land
allt kom fram ótvirætt sá vilji að
leggja kjaramál opinberra
starfsmanna ekki fyrir Kjara-
dóm, sem margoft hefur brugðizt
þvi hlutverki sinu að vera hlut-
laus úrskurðaraðili i kjaradeil-
um.
BSRB vill áfram leitast við að
ná samningum við rikisstjórnina
um kjaramál og afgreiðslu verk-
fallsréttarmálsins.
Bandalagið hefur margoft ðaur
sýnt og sannað, að það er reiðu-
búið til að gera ábyrga kjara-
samninga. Má i þvi sambandi
minna á samninga BSRB i
desember 1973, sem mörkuðu þá
stefnu i kjaramálum, sem siðar
var illu heilli hvikað frá af öðrum.
Bandalagið er reiðubúið að tak-
ast á við verðbólguvandann i
samvinnu við rikisvaldið og önn-
ur hagsmunasamtök, en forsenda
fyrir áhrifum samtakanna á þau
þýöingarmiklu mál fyrir þjóðina
er jafnrétti við aðra i samninga-
málum.
Stjórn BSRB hefur kjörið verk-
fallsnefnd bandalagsins i sam-
ræmi við samþykkt fundarins og
skipa hana þessir:
Bergmundur Guðlaugsson,
Tollvarðafélagi Islands, Þórhall-
ur Halldórsson, Starfsm. fél.
Reykjavikurborgar, Agúst Geirs-
son, Fél. Isl. simamanna, Albert
Kristinsson, Starfsm. fél. Hafnar-
fjarðar, Einar ólafsson, Starfsm.
fél. rikisstofnana, Gisli Guð-
mundsson, Lögreglufél. Reykja-
vikur, Hilmar Ingólfsson, Lands-
sambandi framhaldskólakenn-
ara, Kristin Tryggvadóttir, Sam-
bandi fsl. barnakennara, Sigur-
veig Sigurðardóttir, Hjúkrunar-
félagi íslands, Vilhjálmur Grims-
son, Starfsm. fél. Keflavikur.
Þá munu formaður BSRB og
báðir varaformenn þess starfa
með verkfallsnefndinni.
Vol ks wagene i gendur
Höfum fyrirliggjandi: Bretti — Huröir — Vélarlok —
Geymslulok á Wolkswagen I allflestum litum. Skiptum á
einum degi með dagsfyrirvara fyrir ákveðið verð.
Reynið viðskiptin.
Bilasprautun Garðars Sigmundssonar.
Skipholti 25 Simar 19099 og 20988.
ASV
Pétur Sigurðsson.
Dagana 10. og 11. þ.m. var þing Alþýðusambands Vest-
fjarða haldið á Isafirði. Félagssvæði ASV er Vestfjarða-
kjördæmi. 1 sambandinu eru 14 stéttarfélög. Meðlimatala
þeirra er um 1700. Þingið sátu 22 fulltrúar auk stjórnar-
manna. Gestur þingsins var Þórir Danfelsson.framkv.stj.
Verkamannasambandsins.
Forseti ASV, Pétur Sigurðsson, setti þingið. 1 upphafi
máls sins minntist hann látinna félaga. Þingforsetar voru
kjörnir Björgvin Sighvatssonog Karvel Pálmason.Ritar-
ar þingsins voru Guðmundur Friðgeir Magnússon og
Halldór Jónsson.
Bjarni L. Gestsson gjaldkeri ASV, gerði grein fyrir
reikningum sambandsins fyrir árin 1973 og ’74 og voru
þeir samþykktir.
Frá þinginu.
Pétur Sigurðssonflutti skýrslu stjórnarinnar. Þar gerði
hann grein fyrir störfum ASV og margþættum afskiptum
þess af kaupgjalds- og kjaramálum vestfirðinga siðustu
tvö árin, en um langt árabil hefir ASV verið burðarásinn i
kjarabaráttu og samningsmálum vestfirðinga.
Hendrik Tausen, formaður orlofsnefndar ASV, gerði
grein fyrir störfum nefndarinnar og áformum og aðgerð-
um varðandi byggingaframkvæmdir. Einnig skýrði hann
frá þeirri tilraun, sem nefndin gerði á sl. sumri til að
tryggja verkafólki aðstöðu til orlofsdvaiar, en nefndin
gerði samning við eigendur Flókalundar um leigu nokk-
urra gistiherbergja i 10 vikur. Nýting leiguherbergjanna
var mun minni en ráð var fyrir gert og nemur beint tap
verkalýðssamtakanna af tilraun þessari 400—500 þús. kr.
Miklar málefnalegar umræður urðu um skýrsluna, svo
og um álit þingnefnda og kaupgjalds- og kjaramálin al-
mennt.
Þingið sendi frá sér ákveönar tillögur i kjaramálum,
einnig i ýmsum mikilsverðum héraðsmálum vestfirðinga.
I stjórn ASV til tv eggja ára voru kjörnir:
Forseti Pétur Sigurðsson, tsafirði.
Varaforseti Karvel Pálmason, Bolungarvik.
Ritari Guðmundur Friðgeir Magnússon, Þingeyri.
Gjaldkeri Bjarni L. Gestsson, Isafirði.
Meðstj. Hörður Snorrason, Bolungarvik.
1 varastjórn ASV voru kosnir:
Jónas Helgason, Isafirði,
Hendrik Tausen, Flateyri og
Guðmundur Einarsson, Isafirði.
Ályktanir þings Alþýðusambands Vestfjarða
Verkalýðs- og
kjaramál:
Með sivaxandi verðbólgu, er nú
svo komið að allur sá ávinningur,
sem náðist i siðustu kjarasamn-
ingum er brunninn i verðbólgu-
báli og ekki verður séð að stjórn-
völd geri minnstu tilraun til þess
að stöðva þá þróun, sem orðið
hefur i efnahagsmálum þjóðar-
innar. Þingið telur, að með ó-
breyttri stefnu sé gjaldþrot al-
þýðuheimila fyrir dyrum, þar
sem meðalrýrnun kauptaxta
verkafólks nemur 11-12% frá ár-
inu 1974, ef miðað er við visitölu,
vöru og þjónustu tvo fyrstu árs-
fjórðunga 1975. Vegna sam-
dráttar á vinnumarkaði hafa ráð-
stöfunartekjur rýrnað mun
meira.
Þingið lýsir fullum stuðningi
við tilmæli Alþýðusambands Is-
lands um uppsögn kjarasamn-
inga landverkafólks fyrir 1. des.
n.k. og hvetur öll aðildarfélög
sambandsins til að sýna órofa
samstöðu i væntanlegri kjarabar-
áttu, sem fyrst og fremst þarf að
miðast við að auka kaupmátt
þeirra lægstlaunuðu.
22. þing Alþýðusambands Vest-
fjaröa bendir á þá óheillaþróun,
sem á sér stað i sambandi við
hlutaskipti sjómanna, þar sem að
nær helmingur raunverulegs fisk-
verðs rennur beint til útgerðar-
innar og sjóða hennar og kemur
ekki til skipta. Það hlýtur þvi að
vera krafa sjómanna, að i kom-
andi samningagerðum fáist full-
komin leiðrétting á skiptafyrir-
komulagi sjómanna.
Þingið skorar á fulltrúa sjó-
manna i Verðlagsráði sjávarút-
vegsins að hvetja frekar en nú er
til öflunar gæðafisks, með þvi að
beita sér fyrir sérstakri hækkun á
linu og handfærafiski.
Með tilliti til þess hvað stein-
bitur er þýðingarmikiö hráefni
við útgerð vestfirskra linubáta
mótmælir þingið vinnubrögðum
Verðlagsráðs sjávarútvegsins á
siðast liðnum vetri og krefst þess
að við næstu verðákvörðun á
steinbit verði fulltrúi sjómanna i
Verðlagsráði valinn af félags-
svæði Alþýðusambands Vest-
fjarða. Jafnframt krefst þingið
þess, að eftir hverja fiskverðsá-
kvörðun birti Verðlagsráð þá út-
reikninga sem eru lagðir til
grundvallar við ákvörðun fisk-
verðs.
22. þing Alþýðusambands Vest-
fjarða litur svo á, að þrátt fyrir
allar þær beinu kjaraskerðingar
sem orðið hafa á hinum almenna
vinnumarkaði, hafi stjórnvöld þó
gert sig sek um jafnvel mun al-
varlegri kjaraskerðingu úti á
landsbyggðinni með tilfærslu á
fjármagni til suðvesturhorns
landsins upp á miljarða króna, á
meðan að landshlutar eins og
Vestfirðir eru vanræktir á flest-
um, ef ekki öllum sviðum, félags-
legra þarfa.
Þingið bendir á þá staðreynd,
aö á siðastliðnu ári voru Vest-
firðir eini Iandshlutinn sem fólks-
fækkun varð i og ef heldur sem
horfir er fyrirsjáanlegur fólks-
flótti i enn rikari mæli, en nokkru
sinni fyrr. Þingið telur þetta á-
stand svo alvarlegt, að það skorar
á alþingi og stjórnvöld að gera
allar þær ráðstafanir er tiltækar
eru, til þess að forða enn frekari
byggðaröskun en orðið hefur og
hvetur þingmenn Vestfjarða sér-
staklega til aukinnar sóknar i
uppbyggingu alls atvinnu- og fé-
lagslifs i Vestfirðingafjórðungi.
22. þing Alþýðusambands Vest-
fjarða hvetur þingmenn Vest-
f jarða til þeS~s að vera enn betur á
verði, að sú atvinnuuppbygging
sem átt hefur sér stað að undan-
förnu á Vestfjörðum fái eðlilega
fjármagnsfyrirgreiðlu til þess að
geta veitt fjölbreytta og stöðuga
atvinnu.
22. þing Alþýðusambands Vest-
fjarða skorar á stjórnir lifeyris-
sjóðanna á Vestfjörðum að taka
reglugerðir sjóðanna til ræki-
legrar endurskoðunar, með það
sjónarmið i huga að tryggja sem
best að aldrað fólk njóti sem
mestra réttinda við töku lifeyris,
þá skorar þingiö á þ'ingmenn og
stjórnvöld, að vinna að verðtrygg
ingu lifeyrissjóða verkalýðs-
hreyfingarinnar á sama hátt og
lifeyrissjóðs opinberra starfs-
manna.
Heilbrigðismál
22. þing Alþýðusambands Vest-
fjarða fagnar þeim áföngum sem
náðst hafa i bættri heilbrigðis-
þjónustu á Vestfjörðum. Þingið
minnir þó á að hraða þurfi, svo
sem kostur er, byggingu sjúkra-
húss og heilsugæslustöðvar á Isa-
firði, og byggingu heilsugæslu-
stöðva á Patreksfirði, Súðavik og
Bolungavik. Þingið bendir þó á að
svo best verði leyst til frambúðar
heilbrigðismál Vestfirðinga, að
jafnframt verði sinnt úrbótum i
samgöngumálum innan fjórð-
ungsins, sem varanlegum vetrar-
samgöngum yfir Breiðadalsheiði
og Botnsheiði, og brúargerðum
yfir önundarfjörð og Dýrafjörð,
svo dæmi séu nefnd. Einnig vill
þingið minna á það ófremdará-
stand, sem rikir á Vestfjörðum i
aðbúnaði aldraðra og skorar
þingið þvi á forsvarsmenn bæjar-
og sveitarstjórna og rikisvald að
hraða byggingu dvalarheimila og
hagvkæmra ibúða fyrir aldraða i
fjórðungnum.
Samgöngumál
22. þing Alþýðusambands Vest-
fjarða bendir á að enn eru mörg
brýn verkefni I samgöngumálum
óleyst, svo sem að ljúka gerð
Djúpvegar.Einnig;minnirþingið á_
að vöruflutningar og samgöngur*
á sjó hljóta að vera snar þáttur i
samgöngumálum Vestfirð-
inga.Þingið skorar þvi á þing-
menn kjördæmisins og Alþingi að
vinda að þvi bráðan bug að þjón-
usta skipaútgerðár rikisins við
Vestfirði verði bætt, annað hvort
með sérstöku Vestfjarðaskipi eða
fjölgun skipa hjá skipaútgerðinni.
Þingið skorar á nefnd þá sem
starfandier á vegum Alþingis um
jöfnun flutningskostnaðar að hún
ljúki störfum hið allra fyrsta.
Þingið fagnar þeim áföngum,
sem nú eru að nást með gerð flug-
valla á Tálknafirði og Súganda-
firði.
22. þing Alþýðusambands Vest-
fjarða minnir á að uppbygging
hafnarmannvirkja á Vestfjörðum
til þjónustu við hinn nýja skuttog-
araflota er brýnt og aðkallandi
verkefni. Þingið mótmælir þvi
harðlega þeirri niðurskurðar-
stefnu stjórnvalda á fjárveiting-
um til fiskihafna á Vestfjörðum, á
sama tima og tekin er upp sérstök
fyrirgreiðsia til Reykjavikur-
hafnar.
Landhelgismál
22. þing Alþýðusambands Vest-
fjarða bendir á hve fiskveiðar
eiga mikinn þátt i efnahagslegu
sjálfstæði okkar og mælir þvi ein-
dregið gegn þvi að samningar
verði gerðir við aðrar þjóðir um
veiðiheimildir innan 50 sjómilna
fiskveiðilögsögunnar i skiptum
fyrir tollfriðindi, sem væru
skammvinn bót i efnahagserfið-
leikum okkar. Þingið telur það
brýnt að við getum sem fyrst nýtt
þennan hluta lands okkar til
Frh. á bls. 2.
angarnir
X7 MfHPlKlUST
í Þessi MOIO-
1 v5£.PU5/r&L
NíisLimi lif
PLASTPOKAVERKSMIOJA
Sfmar 82639-82655
Vefnagör6um 6
Bo* 4064 — Raykjevlk
Pipulagnir 82208
Tökum að okkur alla
pipulagningavinnu
Oddur Möller
löggildur
pipulagningameistari
74717.
Hafnarfjaröar Apótek
Afgreiðslutími:
Virka daga kl. 9-18.30
'Laugardaga kl. 10-12.30.
Helgidaga kl. 11-12
Eftir lokun:
Upplýsingasimi 51600.
Birgir Thorberg
málarameistari simi 11463
Onnumst alla
málningarvinnu
— úti og inni —
gerum upp gömul húsgögn
Teppahreinsun
Hreinsum gólfteppi og húsgögn I
heimahúsum og fy rirtæk jum.
Éruin mcft nýjar vélar. Góft þjón-
usta. Vanir menn.
SIGFÚS BIRGIR
82296 40491
trtvarps.og
sjónvarpsviðgerðir
Kvöld og helg-
arþjónusta.
10% afsláttur til
öryrkja og aldr-
aftra.
SJÓNVARPS-
VIÐGERÐIR
Skúlagötu 26 —
simi 11740.
Nylon-húðun
Húðun á malmum með
RILSAN-NYL0N II
Nælonhúðun h.f.
Vesturvör 26
Kópavogi — sími 43070
T-ÞÉ TTILISTINN i «
// Kasettuiftnaftur og áspilun. 'v\ ( I fyrir útgefcndur hljómsveitir, j l [ kóra og fl. Leitiö tilboöa. 1 \\ Mifa-tónbönd Akureyri JJ \V Pósth. 631. Simi (96)22136 Dúnn í GlflEJIBflE /ími 84900 T-LISTINN ER lc*, inngreyptur og þclir alla veðráttu. ^ T LISTINN A : j “ úl ihurðir s va la liu rðir hjaraglugga og ' veltiglugga p&i Oluo9AsmiO|an L u . _J