Alþýðublaðið - 26.11.1975, Qupperneq 1
229. TBL. - 1975 - 56. flRG.
Hvað var ríkisstjórnin
raunverulega að semja
um við Þjóðverja?
Sjá leiðara
MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER
Ritstjórn Siðumúla II - Simi 81866
Fyrsta brezka herskipið
Ríkisstjórnin
mótmælir-
30 mílum undan landi í gær
Sendráði Islands i London barst
i gær yfirlýsing frá brezku
rikisstjórninni og var hún flutt af
Roy Hattersley. í yfirlýsingunni
sagði m.a. „Freigátan Leopard
er á leið á miðin og mun koma
þangað seinna i dag. Freigátan
tekur að sér yfirstjórn verndar-
skipanna og mun skipuleggja að-
gerðir á miðunum þannig að við-
unandi herskipavernd verði veitt
þegar tvær freigátur hafa bætzt á
miðin þann 29. nóvember
nk.meðan engin merki
eru þess að islenzka rikisstjórnin
vilji setjast að samningaborðun-
um, á brezka rikisstjórnin engra
annarra kosta völ en að skapa
skilyrði fyrir brezka togara til að
hagnýta sér lagalegan rétt til
fiskveiða á alþjóðlegri siglinga-
leið.”
Er Hattesley hafði lesið þessa
yfirlýsingu mótmælti Niels P.
Sigurðsson henni harðlega fyrir
hönd Islands. Sendiherrann lagði
einnig áherzlu á, að samningavið-
ræður væru útilokaðar meðan
brezki flotinn væri innan islenskr-
ar fiskveiðlögsögu.
Siðar i dag mótmælti islenzka
rikisstjórnin þessu hernaðarof-
beldi bréflega.
Stuttu eftir að Geir Hallgrims-
son forsætisráðherra hafði mót-
mælt þessu grimulausa ofbeldi, á
fundi i dag, tókst að staðsetja
brezka herskipið um 40 milur útaf
austurströndinni.
Ægir klippir
þrátt fyrir
herskipavernd
I gærkvöldi barst
Landhelgisgæzlunni svohljóð-
andi skeyti frá varðskipinu
Ægir:
„Unnum kapphlaup við
H.M.S. Leopard að togaraflot-
anum. Attum gott með að
komast framhjá Aquarius, en
aðeins erfiðar með Loydsman.
Komum kl. 19.25 að togaran-
um William Wilberforce GY
140, sem Star Sirius veitti
dyggilega vernd. Kl. 19.42
. klipptum við á báða vira
togarans. Þá var hann staddur
27 sjómilur NA af Langanesi.
Fjórir dráttarbátar og her-
skipið Leopard gæta svæðis-
ins. Erum á landleið með kon-
unglegri fylgd.”
Þegar kunnugt varð um að
herskipa væri von, komst mikil
hreyfing á brezku togarana og
héldu nokkrir þeirra af stað
vestur með norðurlandi og stefna
þeir trúlega á miðin út af Vest-
tjörðum. Siðla dags i gær var vit-
að um einn Breta sem kominn var
á miðin út af Vestfjörðum.
Sölustofnunin
endurskipulögð
Krá vinstri: Eysteinn llelgason, Lárus Jónsson og Hörður Vil
hjálmsson.
— Ég vil taka það skýrt fram,
að sú breyting, sem gerð var á
framkvæmdastjórn Sölustofn-
unar lagmetis stafaði ekki að
neinu leyti af fjármálaóreiðu,
heldur var um að ræða
ágreining um vinnubrögð og
stefnu stjórnarinnar. Kostnaður
var t.d. of mikill og ný stjórn
verður tekin upp á ýmsum svið-
um. —
Á þessa leið mælti Lárus
Jónsson stjórnarformaður Sölu-
tofnunar lagmetis á fundi með
fréttamanni Alþýðublaðsins i
gær. Fjárhagsstaða stofnunar-
innar, er orðin mjög slæm
vegna mikils rekstrarkostnað-
ar, litilla sölutekna og óeðlilega
mikils umbúðalagers.
Vegna slæmra horfa i
markaðsmálum hefur verið
ákveðið að gripa til róttækra
breytinga á starfaháttum og
stefnu S.Lvm.a. verður starfs-
mönnum fækkað um nær helm-
ing eða niður i sjö og verksvið
endurskipulagt. Annar
rekstrarfiostnaður verður að
likindum einnig lækkaður.
í skýrslu þeirri er S.L. hefur
lagt fram er greint nokkuð itar-
lega frá stöðu fyrirtækisins,
meginstefnu þess, markaðs-
málum, innkaupa- og þróunar-
málum. Lárus Jónsson tók
fram, að ekki hefði þótt rétt að
ræða þessi mál við fjölmiðla
meðan að úttekt fór fram á
stöðu S.L- og viðræður stóðu yfir
við lánastofnanir, framleiðend-
ur og aðra sem tengdir eru
stofnuninni. Kvaðst Lárus ekki
telja rétt að viðkomandi aðilar
hefðu fyrst lesið um gang mála i
blöðum áðuren þeim hefði verið
gerð grein fyrir þeim. Hins veg-
ar vildi S.L. eiga sem bezt sam-
starf við fjölmiðla og leggja
fram reikninga stofnunarinnar
þegar þeir lægju fyrir.
Á siðasta ári voru niu verk-
smiðjur sem framleiddu fyrir
S.L. og hélt stjórnin fund með
fulltrúum þessara aðila fyrir
skömmu og samþykktu þeir
stefrni núverandi stjórnar. Jafn-
framt lögðu fundarmenn sér-
staka áherzlu á betri tengsl
framleiðenda og S.L. og að
tækniaðstoð við verksmiðjurnar
yrði aukin og stofnunin beitti sér
fyrir ráðningu tæknimanna,
vélfræðings og matvælafræð-
ings, til þess að aðstoða S.L. við
áframhaldandi uppbyggingu
verksmiöjanna. Hefur stjórn
S.L. þegar gert tillögur um
margvislegar úrbætur sem hún
mun nú beita sér fyrir að nái
fram að ganga. Hafa þegar far-
ið fram athuganir um sölu á
Bandarikjamarkaði og sam-
vinnu við fyrri söluaðila verið
slitið, en af þeim fékkst slæm
reynsla.
Árið 1974 nam útflutningur á
lagmeti um 500 milljónum, en i
ár er hann áætlaður um 650
millj. króna. Fram hefur komið
gagnrýni á S.L. fyrir aö ráða
ekki erlenda sérfræðinga til að
vinna markaði fyrir lagmeti, en
stjórnarmenn töldu slikt allt of
dýrt. En segja má að það sé
prófsteinn á framtið islenzks
lagmetis hvort tekst að vinna
markað i Bandarikjunum. Enn-
fremur þarf að kanna markaðs-
möguleika i EFTA löndum og i
Afriku.
Umbúðalager S.L. er mikill
og i Noregi liggja umbúðir að
verðmæti 15 millj. kr. Stefnt er
að þvi að selja þennan lager
ásamt öðrum birgðum eins
fljótt og unnt er og verksmiðjur
annist sjálfar kaup á umbúðum
framvegis.
Danskt fyrirtæki hefur i
liðlega 'tvö ár hannað 43 upp-
skriftir og lýkur starfi þeira nú
um áramótin. Kostnaður nú
nemur 15 milljónum. Lárus
Jónsson sagði, að þótt ekki
reyndist unnt að ná markaði
nema fyrir tvær eða þrjár af
þessum uppskriftum mundi
kostnaðurinn margborga sig.
Framleiðsla á nokkrum vöru-
flokkum verður hafin á næsta
ári.
Núverandi framkvæmda-
stjóri er Eysteinn Helgason, en
Gylfi Þór Magnússon annast
almenna framkvæmdastjórn.
Sem fyrrsegir er Lárus Jónsson
formaður stjórnarinnar en aðrir
i stjórn eru Heimir Hannesson,
Hörður Vilhjálmsson, Jón Árna-
son og Tryggvi Jónsson.
Rikisstjórn islands hefur sent
brezku rfkisstjórninni harðorð
mótmæii vegna ákvörðunar
Breta að senda herskip á
isiandsmið.
Tekið er fram i orðsending-
unni að ekki konii neinar samn-
ingaviðræður milli þjóðanna til
grcina meðan brezki flotinn sé
innan islenzkrar landheigi.
Iiins vegar hefur enn ekki
verið uppiýst til hvaða ráða
rikisstjórnin hvggst gripa, en i
orðscndingunni scgir að islend-
ingar muni eftir sem áöur ver-ja
landheigina eftir mætti.
SÍLD-
VEIÐI-
BANN
FRÁ
1. DES.
Frá og með 1. desember n.k.
eru allar síldveiðar islenzkra
skipa hér við land bannaðar, en
áður hafði verið sett stopp á sild-
veiðar islenzkra skipa i Norðursjó
að sinni.
I fréttatilkynningu frá sjávarút-
vegsráðuneytinu segir m.a. þetta
um bannið:
„Þegar sildveiðar hófust sið-
astliðið haust var ákveðið að
leyfa veiðar á 7.500 tonnum af sild
i hringnót, en gert ráð fyrir að
reknetabátar veiddu um 2.500
tonn og að vertiðin stæði til 1. des-
ember. Nú er svo komið, að
hringnótabátar hafa veitt tölu-
vert umfram 7,500 tonn og fyrir-
sjáanlegt er, að reknetabátar
munu ná 2.500 tonnum nú á næst-
unni og hefur ráðuneytið þvi tekið
þessa ákvörðun um algert bann
við sildveiðum. Jafnframt skal á
það bent, að þegar hefur verið
saltað upp i alla sölusamninga og
að sildin, sem nú veiðist, er ekki
góð til söltunar vegna litils fitu-
magns.”
FRÉTT ALÞÝÐUBLAÐSINS ÝTIR UNDIR
HÖRKU í VIÐSKIPTUM VIÐ BR0TAMENN
Eins og Alþýðublaðið skýrði
frá i gær, þá stóð til að setja
lausan af Litla-Hrauni sibrota-
mann, sem á yfir sér 2ja ára
fangelsisdóm, en gat frestað
framkvæmd hcgningarinnar
með þvi að áfrýja dómnum til
hæstaréttar. Nú hefur Alþýðu-
blaðið liins vegar fregnað að
yfirvöld hafi gripið i taumana
og úrskurðar mann þennan i
gæzluvaröhald unz hæstiréttur
hefur fjallað um mál hans, enda
cr það ekki forsvaranlegt, eins
og Alþýðublaðiö sagði i gær, að
sleppa afbrotamönnum af
þcssum tagi lausum á varnar-
lausa borgarbúa, cn þessi
maður gcrir t.d. mikið af þvi að
brjótast inn i ibúðir.
Alþýðublaðið fregnaði það
siðla i gær, að maður þessi hefði
ekki verið látinn laus, eins og til
stóð, heldur verið úrskurðaður i
gæzluvarðhald. Hafði blaðið þá
samband við yfirsakadómara
Haildór Þorbjörnsson, en vegna
þess, hve seint blaðið fregnaði
af úrskurðinum náðist fyrst i
Halldór á heimli hans eftir
vinnudag. Halldór vildi ekkert
tjá sig um málið, og vildi hvorki
játa né neita að viðkomandi
maður væri laus eða ekkki.
Kvaðst hann ekki vera til
viðræðu um þetta mál, fyrr en
aö morgni. Alþýðublaðið hefur
þó sannfregnað, að maðurinn
hafi verið úrskurðaður, og ef
svo er þá hefur mikilvægum
áfanga verið náð i baráttunni
gegn þeim fáu mönnum, sem
fremja meginhluta allra glæpa
hérlendis, hinum svokölluðu
sibrotamönnum. Er vonandi að
hér sé um stefnumörkun að
ræða hjá hinu opinbera og hér
eftir geti siafbrotamenn af
þessu tagi ekki fengið sig lausa
og þar með tækifæri til lögbrota.
aðeins með þvi að áfrýja
dómum sinum.
SAGA Sl-
BR0TAMANNS
J