Alþýðublaðið - 26.11.1975, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 26.11.1975, Blaðsíða 3
Steffnuliós Helgi Skúli Kjartansson skrifar Að vökva akra listarinnar Fyrir nokkru las ég skel- egga blaðagrein um málefni Listasafns rikisins, sem höf- undur taldi komin i óvænt efni, bæði vegna rangrar stjórnar og þó sér i lagi fjárskorts. Meðal annarra úrræða bendir hann á tvær athyglisverðar fjáraflaleiðir: Að fella niður listamannalaun til myndlist- armanna og auka að þvi skapi fjárveitingu til listasafnsins, og að selja verulegan hluta af málverkum safnsins, abstr aktmy ndir og expressjóniskar. Tillagan um málverkasöluna mun að vtsu stafa af andúð greinarhöfundar á þeim listastefnum, er safnið hefur mesta rækt lagt við. Honum finnst safnið eiga að leiörétta mistök sin við val verka til kaups. Um þetta skal ég engan dóm fella. En ég hygg að annað sjönarmið geti einn- ig réttlættþaðaðverk séu seid úr safninu. A tslandi er talsvert liflegur markaður fyrir myndlist. Markaður, sem veitir nokkrum fjölda listamanna viðunandi at- vinnu. (Galli er það kannski, hve mjög þessi markaður er bundinn við málverk, og væri þörf aðgerða til að koma öðrum greinum myndlistar til vegs, heimildin til listskreytingar opinberra bygginga er gott skref i áttina, en látum þetta liggja á milli hluta að sinni.) En eftirspurnin eftir listaverkum stýristmeira en litiðaf tizku, jafnvel svolitlu snobbi, og ekki sizt af fjár- festingarsjónarmiðum, sem taka meiramark á góðunafni(og hæfilegri tölu litborinna fersentimetra) en einstaklings- smekk f járfestandans. Þess vegna er það talsvert undir hælinn lagt, jafnvel fyrir ágætan málara, sem ekki á i neinum vandræðum með að hafa upp úr list sinni þokkalegar ævitekjur, hve mörg ár hann þarf að biða þess að markaðurinn viður- kenni hann og myndir hans fari að renna út. Eina bótin er sú, að stöku fjárfestend- ur hafa sjálfstraust til að giska á, hvaða ungir menn muni siðar stiga i verði, og kaupa þvi af þeim. Nú væri ekki svo vit- laust að Listasafn rikisins bættist i þenn- an gagnlega hóp spekúlanta og keypti dug lega af ungum listamönnum, sem þættu vænlegir til afreka — og þá væntanlega til frama á hinum almenna markaöi. Þetta gæti orðið listamönnunum verulegur stuðningur á þeim tima, sem þá munaði mest um hann, og ekki má ætla annað en forráðamenn listasafnsins séu jafnan manna hæfastir til að meta hvar sann- gjarnt sé og skynsamlegt að slikur stuðn- ingur komi niður. Nú á listasafnið ekki aðeins skyldum að gegna við listamenninga, heldur einnig — og það framar öllu — við eigendur sfna, þjóðina, og þær skyldur felast ekki sizt i þvi að safnmunirnir sýni sem gleggstan þverskurð af þróun islenzkrar myndlist- ar. Það hæfir ekki þessu markmiði að safnið eigi fyrst og fremst æskuverk frá hendi hvers listamanns. Þvi yrði safnið, ef það færi að kaupa i stórum stil af ung- um listamönnum og upprennandi, að selja aftur hluta þeirra verka til að geta einnig keypt nauðsynlega sýnisgripi af list hinna eldri. Fjárhagslega kæmi þetta þannig út, að safnið þyrfti jafnmikla peninga eftir sem áður til að sinna safnhlutverki sinu, eign- ast til frambúðar valin dæmi um islenzk listaverk, en til að gegna nýja hlutverk- inu, að kaupa umframmagn af verkum ungra listamanna (sumra — ungur aldur einn sér gæfi mönnum engan rétt til aö pranga hverju sem er inn á safnið), þyrfti að útvega i eitt skipti f jármagn, sem siðan myndi ávaxtast i listaverkunum og von- andi vaxa með timanum. Hin tillagan, sem ég gat um áðan, að veita frekar fé til íistasafnsins en til lista- mannalauna, er eiginlega sjálfsagðari en svo að um hana sé mörgum oröum eyð- andi. Fyrir listamann, sem erfitt á með að selja verk sin, eru kaup listasafns á engan hátt verri stuðningur en listamannalaun, en hinir, sem farnir eru að seljast svo vel að þeim sé litill akkur i nýjum kaupanda, þurfa ekki stuðnings við. Reyndar má segja hið sama eða svipað um flestar listgreinar: Með listamanna- laununum er kannski verið að gera eitt- hvert gagn, en þá örugglega gagn, sem miklu betur væri hægt að gera á annan hátt. Það má efla myndlist með þvi að kaupa listaverk, leiklist með þvi að styrkja leikhilsin og leikflokkana, danslist með þvi að veita fé til dansflokksins, tón- list með þvi að kaupa verk til flutnings i útvarpi eða á tónieikum, og þannig mætti áfram telja. Þar við bætist rekstur lista- skólanna, námsaðstoð erlendis, og það mikilvægasta af öllu, uppeldi væntan- legra listnjótenda i skólum landsins. Allt eru þetta miklu verðugri verkefni en út- hlutun listamannalauna og annarra áþekkra styrkja. Ef styrkjakerfiö á sina réttlætingu á einstökum sviðum (starfs- styrkir rithöfunda?) þá má halda eítir ein hverjum öngum af þvi, en umfram allt ekki núverandi fyrirkomulagi, þar sem metnaöur og viðurkenningarsjónarmið verða svo rik að litið verður hugsað um, hvernig peningarnir komi raunverulega aö gagni. # « f rettaþraðurinn Dagsími til kl. 20: 81866 Kvöldsími 81976 Þessi mynd var tekin i sumarbyrjun þar sem nú stendur hiö mikla mannvirki Kröfiu virkjunar. Áætlanir um Kröflu standast Sl. föstudag var fréttamönnum boöið að skoða framkvæmdir við Kröflu,en nú er lokið viö að gera stöðvarhúsiö fokhelt. Þetta hús er er um 30 þús. rúmmetrar eða fimmtungi minna en Hótel Saga. Við þetta tækifæri flutti Jón G. Sólnes ávarp þar sem hann þakkaöi starfsmönnum vel unnin störf og kvaðst vera bjartsýnn á að áætlanir um að hefja raf- magnsframleiöslu i árslok 1976 stæðust. Samkvæmt áætlun sem ráögjafafyrirtæki Kröflunefndar skiluðu I april siðastliönum var talið að þetta yrði unnt ef stöövar- húsiö yrði fokhelt fyrir veturinn 1975/76, svo aö vinna innanhúss gæti farið fram um veturinn. Ráögjafaverkfræðingarnir skiluðu áliti til nefndarinnar um val verktaka þann 17. mai sl. og var samdægurs gengið til sam- ninga við Miðfell hf. Aðalákvæði samninganna var aö stöðvarhúsið yrði steypt upp og gert fokhelt fyrir októberlok, en það hefur dregizt þennan tima vegna ýmissa atvika. Stöðvarhúsið er nú uppsteypt og þak komið á. Húsið er eins og áður sagði um 30 þúsund rúmmetrar. Verður nú unnt aö vinna af fullum krafti innanhúss i vetur og hefst niðursetning vél- búnaðar og raftækja i febr. á næsta ári. Verkið hefur að sögn, gengið mjög vel og er það ekki sizt þakkað þvi að verktakar i S- Þingeyjarsýslu og frá Húsavik hafa unnið að verkinu og séð um ýmsa veigamikla þætti þess. Langmestur hluti mannafla sem hefur verið við vinnu I sumar og i haust eru menn úr héraði og frá Húsavik. Vegagerð rikisins hefur annazt vegaframkvæmdir i Námaskarði svo og lagningu Kröfluvegar upp að virkjunarstað. Vega- framkvæmdir i Námaskarði svo og lagningu Kröfluvegar upp að virkjunarstað. Vegafram- kvæmdir i Námaskarði hafa kostað Kröflunefnd um 54 milljónir króna. Kostnaðaráætlun sú sem gerð var i april sl., hljóðaði upp á 4.350 millj. Virðist hún ætla að standast i öllum meginatriðum. Búið er að gera bindandi kaup- samninga um 94% af öllum tækjabúnaði virkjunarinnar og er verðið 1.850 millj. innan þeirra marka sem áætlunin gerir ráð fyrir. Þá bendir allt til að byggingarframkvæmdirnar sjálfar muni standast áætlun, en höfuðlinur þeirra eru nú óðum að skýrast. Takið ykkur frí og komið á fund Samstarfsnefndin um verndun landhelginnar, en aðilar að henni eru Alþýðusamband Islands, Sjó- mannasamband íslands, Verka- mannasamband Islands, Far- manna- og fiskimannasamband íslands og Félag áhugamanna um sjávarútvegsmál, ásamt full- trúum frá þingflokkum Alþýðu- bandalagsins, Alþýðuflokksins og Samtakanna, beinir þeim ein- dregnu tilmælum og áskorun til landsmanna allra á sjó og landi, að þeir taki sér fri frá störfum n.k. fimmtudag og leggi með þvi áherzlu á andstöðu sina gegn hverskonar samningum við er- lendar þjóðir um stórfelldar veiðiheimildir innan fiskveiði- landhelginnar. Þá mun nefndin boða til úti- fundar á Lækjartorgi i Reykjavik kl. 2 e.h. á fimmtudag. Útför Gunnars gerð á morgun Rikisstjórnin hefur ákveðið með samþykki vandamanna Gunnars Gunnarssonar, rithöf- undar, sem lézt að morgni 22. þ.m., að jarðarför hans fari fram á vegum rikisins. Utförin verður gerð á morgun frá Dómkirkjunni. Athöfninni verður útvarpað. Að ósk hins látna verður hann jarðsettur i kirkjugarðinum i Viöey. Samstarf Rúnu og Bing & Gröndal í gær bauð umboðsmaður postulinsverksmiðjunnar Bing & Gröndal, Karl K. Karlsson, fréttamönnum að lita á fjölbreytt sýnishorn af framleiðslu fyrir- tækisins. Astæðan til þess var meðal annars sú að islenzk lista- kona, Sigrún Guðjónsdóttir. RÚNA, hefur nýlega gert samn- ing við fyrirtækið, sem mun framleiða verk hennar, sem eru m.a. veggskildir og keramiskar veggmvndir. Sigrún hlaut fyrstu verðlaun fyrir veggskildi sem hún gerði i tilefni þjóðhátiðarársins. en þjóðhátiðarnefnd '74 stóð fyrir þeirri samkeppni, sem kunnugt er. Hið frábæra og mjög sérstaka handbragð RÚNU leynir sér ekki i verkum hennar. Ekki verður þó sagt að listakonan sæki mikið af fyrirmyndum i islenzkt þjóðlif. Myndirnar eru fyrst og fremst lýriskar en jafnframt klassiskar i formi sinu. Hér er á ferö listakona sem hefur tileinkað sér liststil, sem virðist hafinn yíir þjóðleg einkenni. Það sem öllu ræður er lögmál listarinnar sjálfrar. Það ætti þvi sizt að koma mönnum á óvart þótt hið þekkta fyrirtæki B & G hafi áhuga á að framleiða verk þessarar listakonu. Forráðamenn Bing & Gröndal hafa lýst þvi yfir að islenzku þjóð- hátiðarplattarnir væru upphaf að framleiðslu á nýrri gerö vegg- skjalda á vegum fyrirtækisins. Var ekki einn af fimm á förnum Þau mistök urðu i blaðinu s.l. laugardag að rangt var farið með nafn og röng mynd birt af einum þeirra, sem spurðir voru álits i þættinum Fimm á förnum vegi. Nafn Baldurs Dagbjartssonar og mynd af honum birtist þar með svari, þar sem þaö átti ekki að vera, og er hann og lesendur beðnir velvirðingar á þessum mistökum. Alþýðublaðið 0 Miðvikudagur 26. nóvember 1975.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.