Alþýðublaðið - 26.11.1975, Síða 4
Barnafata-
verzlunin
Rauðhetta
Látið ekki verðbólguúlf-
inn gleypa peningana
ykkar, í dýrtíðinni. Vör-
ur seldar með miklum
afslætti, allt nýjar og
fallegar vörur á litlu
börnin. Litið inn og gerið
góð kaup.
Opið laugardaga
kl. 10 til 12.
Barnafataverzlunin
Rauðhetta
Iðnaðarmannahúsinu,
Hallveigarstíg 1 — Simi
28480.
/wm\
Hús til niðurrifs
Digranesvegur 4
Tilboð óskast i húseignina Digranesveg 4,
Kópavogi, sem á að brjóta niður og fjar-
lægja fyrir 1. febrúar 1976.
Húsið verður til sýnis kl. 2-4 e.h. fimmtu-
dag 27. og föstudag 28. nóvember n.k. og
verða tilboðseyðublöð afhent á staðnum.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu vorri, mið-
vikudaginn3. desember n.k. kl. 11:00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844
frá Sambandi ungra jafnaðarmanna
C| Umsjón:
O vJ f ^ Lárus Guðjónsson
Til ungra jafnaðarmanna
Sökum mikilla anna hefur
SUJ-siðan ekki getað hafið
göngu sina fyrr en nú. Það er
miður þvi sjaldan hafa ungir
jafnaðarmenn þurft jafn mikið
á siðunni að halda, sem pólitisk-
um tengilið og pólitisku gjallar-
homi útávið. í þeirri stjórnar-
farslegu rotþró sem núverandi
rikisstjórn veður i, virðast all-
ar aðgerðir stefna markvisst að
þvi að gera brauðstrit verka-
fólks enn erfiðara. Upp á slikt
geta ungir jafnaðarmenn ekki
horft. Slika rikisstjórn vilja
ungir jafnaðarmenn feiga. Ung-
um jafnaðarmönnum er þvi
nauðsyn að styrkja baráttu sina
með öllum tiltækum ráðum.
SUJ-siðan vill þvi hvetja unga
jafnaðarmenn til pólitiskrar
baráttu með það markmið, að
rétta úrkúguðum bökum verka-
fólks. Og að lokum legg ég svo
til að rikisstjórn Geirs Hall-
grímssonar verði lögð i rússt.
U tanríkismálanef nd SU J stof nuð
Á siðasta þingi SUJ sem hald-
ið var á Akranesi, samþykkti
þingið nýja lagagrein um stofn-
un utanrikismálanefndar SUJ.
Nefndina skipa fimm menn sem
kjörnir eu á reglulegu þingi
SUJ. I nefndinni eiga nú sæti:
Gunnlaugur Stefánsson, Hafn-
arfirði, sem er for-
formaður nefndarinnar. Guð-
mundur Bjarnason, Reykjavik,
Guðmundur Árni Stefánsson,
Hafnarfirð.i, Tryggvi Jónsson,
Reykjavik og Harpa Agústs-
dóttir, Akranesi.
Aðalverkefni nefndarinnar er
að framfylgja stefnu SUJ i utan-
rikismálum, og undirbúa og á-
kveða fulltrúa á ráðstefnur er-
lendis. Auk þess á nefndin aðild
að eflingu alþjóðasamstarfs
SUJ og hafa með höndum sam-
starf SUJ við þær hreyfingar
innanlands er starfa að utan-
rikismálum.
Utanrikismálanefndin hefur
þegar tekið til starfa og vinnur
að fjölmörgum verkefnum.
Eftirfarandi ráðstefnur erlendis
hefur SUJ tekið þátt i siðan
SUJ þing var haldið, en utan-
rikismálanefndin undirbjó þátt-
töku Sambandsins i þeim.
Þing, FNSU, Sambands ungra
jafnaðarmanna á Norðurlönd-
um, haldið i Hangö i Finnlandi.
Frá SUJ tóku þátt i þinginu þeir
Garðar Sveinn Arnason, Gunn-
laugur Stefánsson, Guðmundur
Bjamason, Árni Hjörleifsson og
Tryggvi Jónsson.
Ráðstefna IUSY, alþjóðlegt
samband ungra jafnaðar-
manna, sem haldin var i
European youth Centre i Strass-
bourg dagana 2.-8. nóvember.
Ráðstefnan fjallaði um út-
gáfumál og fjölmiðla. Frá SUJ
tóku þátt i ráðstefnunni þeir
Jónas Guðmundsson og Guð-
mundur Björgvinsson.
Ráðstefna sem ungpólitisku
samböndini Finnlandi héldu, og
fjallaði um jafnréttismál kynj-
anna með sérstöku tilliti til
stöðu karlmannsins i þjóðfélag-
inu. Ráðstefnan fór fram i Hel-
sinkidagana 15,—17. nóvember.
Frá SUJ tók Harpa Ágústsdóttir
þátt í ráðstefnunni.
Gunnlaugur Stefánsson:
Á FNSU þingi í Finnlandi
Annað hvert ár koma ungir
jafnaðarmenn á Norðurlöndum
saman til aðalþings FNSU.
FNSU eða Samband ungra
Jafnaðarmanna á Norðurlönd-
um hélt að þessu sinni sitt 7.
þing dagana 30. okt.—2. nóv. i
Hangö i Finnlandi. Þingið sóttu
135 fulltrúar, þar af fimm ís-
lendingar.
höfum
>pnað
í nýju húsnæði
Mikið gólfteppaúrval
Akveðið hafði verið áður en
þingið hófst, að þingið einbeitti
kröftum sinum sérstaklega að
fimm málaflokkum, þ.e. jafn-
rétti kynjanna, orkumálum,
viðskiptum þróaðra- og
þróunarlanda, fjölþjóðafyrir-
fyrirtækjum og starfsmálum
FNSU næstu tvö árin. Þing-
ið fór að mjög miklu leyti
fram i nefndarstörfum þar
sem f jallað var um ofangreinda
málaflokka. Þau grundvallar-
sjónarmið er allar tillögur
þingsins mótuðust af voru, að
við lifum í þjóðfélagi er stjóm-
ast af auðvaldi og yfirstétt, þar
sem allir launþegar verða að
heyja harðvitugt strið við yfir-
stéttina, til að geta notið sjálf-
sagðra lifsréttinda. Það var þvi
álit þingsins að jafnaðarmönn-
um sé það nauðsynlegt að tengj-
ast enn sterkari böndum, og
hefja nýja sókn i þágu alþýð-
unnar gegn auðvaldi kúgun og
misrétti.— Um þessi grundvall-
aratriði rikti algjör eining.
Þingið samþykkti i einu hljóði
sterkorðaða stuðningsyfirlýs-
ingu við okkur Islendinga I land-
helgismálinu, og fagnaði út-
færslu fiskveiðilögsögunnar i
200 milur.
Þá fordæmdi þingið pólitiskar
ofsóknir spænskra stjórnvalda
gegn saklausu alþýðufólki á
Spáni. Krafðist þingið þess, að
allir pólitiskir fangar á Spáni
verði látnir lausir þegar i stað,
og að pólitiskum ofsóknum
verði hætt. Þingið samþykkti
mjög ýtarlega starfsskýrslu
fyrir nýkjörna stjórn FNSU og
ætlar stjórnin sér að leggja
áherzlu á pólitiska eflingu
FNSU á öllum sviðum stjórn-
mála. Núverandi fulltrúar SUJ i
stjórn FNSU eru þeir Gunnlaug-
ur Stefánsson og Sigurður
Blöndal.
Þetta þing FNSU sannfærði
islenzku fulltrúana um það, að
SUJ verður að leggja á það á-
herzlu að efla alla starfsemi
sina innan samtakanna. Ýmsar
ástæður hafa legið þvi til grund-
vallar, að þátttaka okkar I starfi
FNSU hefur verið ónóg. Utan-
rikismálanefnd SUJ hefur á-
kveðið sem eitt af sínum megin-
verkefnum að styrkja og efla
þátttöku SUJ innan FNSU. I þvi
sambandi skal þess getið, að
FNSU þingið veitti SUJ það
verkefni að undirbúa og gera
tillögur að samstarfsskipulagi
fyrir hreyfingar ungra jafnað-
armanna I Færeyjum og Græn-
landi. Að því verkefni vinnur ut-
anrikismálanefnd SUJ og mun
kynna tillögur sinar stjórn
FNSU svo fljótt semmögulegt
verður.
TEPPABtJÐIN
Reykjavíkurvegi 60, Hafnarfirði
Til leigu
er geymsluhúsnæði á jarðhæð i Hafnar-
húsinu við Tryggvagötu.
Upplýsingar á Hafnarskrifstofunni.
Hafnarstjórinn i Reykjavik
liW Alþýöublaðiö
Miövikudagur 26. nóvember 1975.