Alþýðublaðið - 26.11.1975, Qupperneq 5

Alþýðublaðið - 26.11.1975, Qupperneq 5
MINNING Guð- mundur Kristjáns- son Við upphaf fundar i bæjarstjórn Isafjarðar fimmtudaginn 6. nóvember sl. minntist forsetinn, Jón Baldvin Hannibalsson, Guðmundar Kristjánssonar, fyrrv. bæjarfulltrúa og skrif- stofustjóra Rafveitu tsafjarðar, með eftirfarandi orðum: Þann 4. þ.m. lézt i Reykjavik, eftir langa sjúkdómslegu,' Guðmundur Kristjánsson, fyrrv. bæjarfulltrúi og starfsmaður ísa- fjarðarbæjar og Rafveitu tsa- fjarðar. Hann var 82 ára að aldri. Guðmundur fæddist 23. jan. 1893. Foreldrar hans voru Sigrið- ur Þórðardóttir og Kristján Július Ólafsson skipstjóri að Meirigarði i Dýrafirði. Guðmundur stundaði nám við Núpsskóla árið 1908—1909 undir handleiðslu séra Sigtryggs Guð- laugssonar. Búfræðiprófi frá Hvanneyri lauk hann árið 1913. Hann gerðist kennari i Þingeyr- arhreppi og Súðavik á árunum 1914—1917 og siðar stundakennslu við Barnaskóla ísafjarðar 1922—25. Hann gekk i þjónustu Isafjarð- arbæjar sem verkstjóri árið 1924 og gegndi þvi starfi til 1936 en þá tók hann við skrifstofustjórastárfi hjá Rafveitu Isafjarðar. Guðmundur gegndi margvis- legum öðrum félags- og trúnaðar- störfum i þjónustu samborgara sinna. Hann var erindreki Stór- stúku Islands 1924—27, form. Byggingarfélags verkam. 1934—46, formaður verkalýðsfé- lagsins Baldurs 1949—55, form. Félags opinberra starfsmanna á tsafirði 1954—63 svo að nokkuð sé nefnt. Hann gat sér hið bezta orð i um- deildu og erilsömu starfi bæjar- verkstjóra, sérstaklega fyrir frá- bæra reglusemi og snyrti- mennsku. Málefnum R.l. sýndi hann mikinn áhuga frá upphafi, svo sem bezt má marka af þvi að hann hefur ritað sögu hennar, og þannig borgið frá gleymsku merkum kafla i framkvæmdar- sögu Isafjarðar. Guðmundur var eindreginn jafnaðarmaður að lifsskoðun. Hann var einn úr þeim vaska hópi forvigismanna Alþýðuflokksins, sem á millistriðsárunum gerðu garðinn frægan, og skópu Isafirði nafnið „Rauði bærinn” i vitund samtimamanna. Þeirra manna er jafnan gott að minnast. Guðmundur var varabæjarfull- trúi Alþýðuflokksins 1934—1938 og bæjarfulltrúi 1950—1954 og bæjar- ráðsmaður um skeið. Arið 1915 kvæntist Guðmundur eftiriifandi konu sinni, Láru Ingi- björgu Magnúsdóttur og varð þeim 8 barna auðið. Af þeim eru 5 nú á lifi. Við þökkum Guðmundi störf hans i þágu okkar byggðarlags og sendum ekkju hans og aðstand- endum okkar einlægustu sam- úðarkveðjur. Hver vegna er engin verðbólga í KÍNA? Kínversk blöð og tíma- rit hafa skrifað í vaxandi mæli um verðbólgu í Vesturlöndum og bent um leið á yfirburði kommún- ismans. Lönd kapítalism- ans búa nú við mestu verðbólgu frá því heim- styrjöldinni síðari lauk, en hagvöxtur Kína vex stöðugt og kaupmáttur gjaldmiðilsins eykst. Verðlag hefur verið stöð- ugt í landinu í tuttugu ár. Sumar vörur og þjónusta hafa lækkað s.s. tækni- vélar, lyf og ferðalög. Verð lyf ja er nú 1/5 þess, sem það var 1950. Kostn- aður við vatn, rafmagn, póst og opinbera þjónustu hef ur verið lágur og stöð- ugur. Húsaleiga er t.d. aðeins 3—5% af tekjum verkamanns. Hvernig hefur kinverskum yfirvöldum tekizt að halda verð- laginu stöðugu? Þeir segja sjálfir, að „sjálfstæði og sjálfs- ákvörðunarréttur séu þau bylt- ingarlegu grundvallareinkenni, sem kinverski gjaldmiðillinn hvili á” og að þessi stjórnmála- stefna hafi orðið til á byltingar- árunum um 1930. Hvað er átt við með þessu? Eftir 1949 voru öll forréttindi erlendra fjárfestinga afnumin i Kina og allt „skriffinnskubákn hins kapitaliska peningaveldis” gert upptækt. Eftir þann tima hefur Alþýðulýðveldið haft fljót- andi gengi. Þannig hefur gengið i London og New York engin áhrif haft á gengi kinversks gjaldmiðils. Eftir 1960 fór traust manns á þessum gjaldmiðli vaxandi og nú eru rúmlega 80 riki, sem hafa ákveðið gengi á kinverskri mynt i viðskiptum. SKIPULAGÐUR SÓSIALISKUR EFNAHAGUR Strangt rikiseftirlit var tekið upp i marz 1950 á þjóðártekjum og -útgjöldum, bankastarfsemi og vöruafhendingu. Þannig komst jafnvægi á tekjur og út- gjöld rikisins og fjármagn bankanna o.s.frv. Þá hófst einnigsmám saman sú atburða- rás, að allar eignir urðu rikis- eign. Með þvi komst bæði land- búnaður og iðnaður undir eina stjórn — rikisins. Markmið efnahagsþróunarinnar var „að þróa efnahaginn og tryggja birgðir” og um leið að hafa „landbúnað sem undirstöðu en iðnaðinn sem framþróun”. Með þetta markmið i huga hefur kornuppskeran aukizt 'úr 110 milljónum tonna fyrir bylting- una i 250 milljón tonn nú. Fram- leiðsla baðmullar, sykurs, tes, tóbaks, kjöts, fisks, grænmetis, pappirs, lyfja, hjóla, saumavéla o.s.frv. hefur aukizt um 1200%. Kinverjarnir telja, að þetta sé efnahagslega undirstaðan undir langvarandi stöðuleika gengis kinverskrar myntar. Verð iðnvarnings og land- búnaðarafurða er ákveðið og með þvi fylgzt af rikinu og þar. gilda ekki „lögin” um framboð og eftirspurn. Þannig hefur ver-’ ið komið i veg fyrir verðbreyt- ingar, með fallandi verði, þegar offramboð er og hækkandi verði, þegar skortur er á ein- hverju. Framleiðsluaukningin hefur leitt til vaxandi birgðasöfnunar og hefur hún fjórfaldazt frá 1965 til 1974. Hvert Yuan (kinverska myntin), sem fer i umferð hefur þvi fjórfalt vörugildi skv. kin- verskum stjórnvöldum. Þetta er lykillinn að tryggum efnahag auk skipulagðrar vörudreifing- ar. JAFNVÆGI MILLI TEKNA OG GJALDA Annað, sem er mikilvægt til að halda tryggu gengi er að halda jafnvægi milli tekna og gjalda rikisins, þegar um er að ræða alþjóðlegar greiðslur. Halli á efnahag rikisins hefur bein áhrif á kaupkraft og pen- ingaveltu. 90% rikisteknanna i Kina er fjármagnsmyndun hjá rikisreknum fyrirtækjum. Út- gjöldin fara aðallega til fram- þróunar Alþýðulýðveldisins. Skipting og notkun fjármagns rikissjóðs er byggð á nákvæm- um könnunum og samtimis hug- myndarikum aðferðum til að nota öll gæði landsins. Hluti út- gjaldanna fer lika til kauphækk- ana. Þannig er einnig jafnvægi i al- þjóðlegum útgjöldum og tekjum Alþýðulýðveldisins. Með þvi er sagt, að áætlanir um útflutning og innflutning auk efnahagsað- stoðar til fátækari landa eru byggðar á hagvexti landsins, hvað það þarfnast og hvað það getur boðið. Þetta hefur það i för með sér, að greiðslugeta Kina er óhagganleg. ÞJÓÐIN SPARAR önnur staðreynd, sem eykur öryggi kaupmáttar og vaxandi fjárfestingargetu er vaxandi áhugi kinversku þjóðarinnar á að leggja peninga fyrir. Svo til allir Kinverjar leggja peninga i banka og sú upphæð eykst ár frá ári eftir þvi, sem lifskjörin verða betri. Og það þó að vextir hafi farið silækkandi (nú ca 3%). Það er mikilvægt að leggja áherzlu á það, að margir nota bankann i trausti þess, að þeir séu með þvi að hjálpa til að byggja upp landið. Það iiggur i augum uppi, að þegar þjóðin sparar svona safnast saman veruleg upphæð, sem bankar og riki geta notað til aukinna framkVæmda. Ef rætt er við eldri Kinverja tala þeir stundum biturlega um verðbólguna i gamla þjóðfélag- inu, þegar peningaseðlarnir voru loksins ekki virði pappirs- ins, sem þeir voru prentaðir á. Þetta fólk litur á hrisgrjóna- óeirðirnar og baráttuna gegn spillingunni sem „martröð, sem aldrei má gieymast”, heldur ber að skýra ungu kynslóðinni frá. GETUM VIÐ GLEYMT ? Rannsóknir á eðli minnisins og starfsemi þess hluta heilans er mjög flókið viðfangsefni og mörgum undirstöðuatriðum alls ekki svarað enn. Menn hafa t.d. ekki minnstu hugmynd um það, hvernig heilinn man vissa at- burði, virðist hafa gleymt þeim, en getur við viss tækifæri og þeg- ar þörf krefur grafið upp löngu gleymda atburði. Við munum oft ómerkilegustu atvik vel, en jafnvel mikilvægir hlutir geta gleymzt frá degi til dagsog við vitum afar vel, að við vitum þetta, þó að viðmunum það ekki i bili. Læknar og sálfræðingar, sem fylgjast með minnisatriðum manna hafa heldur fátt að halda sig við, en gert er ráð fyrir, að at- burðir þeir sem fólk man eftir, skilji eftir sig breytingar í heilan- um, „minnisrák”. Menn hafa einnig neyðst til að viðurkenna svokallaða minnis- örvun, sem geymir i sér þær upp- lýsingar i meðvitund einstakl- ingsins, sem er orsök þess, að vissar upplýsingar koma skyndi- lega fram i huga manns. Því er það sem kannanir á minni mannsins eru grundvallaðar á þeirri staðhæfingu, að við munum atburð ef samtimis kemur minn- isrák i heilann og minnisörvun, en rannsóknirnar sjálfar beinast annað hvort að eðli minnisrákar- innar eða vixlverkunar milli minnisrákar og minnisörvunar. I einstaka tilfelli hefur reynzt unnt að sýna hreinlega tilvist minnisrásar með þvi að flytja efni úr heilanum og þar með vit- neskju milli dýra. Hafi ormar t.d. lært að skriða inn i bjartar holur er unnt að flytja þessa vitneskju til orms, sem étur hinn orminn I sam- þjappaðri mynd og það hefur komið i ljós, að minnisefnið i þessu tilfelli er ákveðin gerð af RNA-sameindum (litil litninga- sameind), sem breyta liferni ormanna eftir að þeir hafa fengið efnið. Þær rannsóknir og aðferðirnar, sem notaðar eru, þegar heili mannsins og minni hans er kann- að, eru þó ekki sliks eðlis og bein- astyfirleitt að gleymsku, skorti á þeim hæfileika að muna atburði, sem fólk mundi áður fyrr. Þetta getur átt sér tvennskonar orsakir, annað hvort hefur minnisrákin breytztog upplýsingarnar eru þvi ekki lengur fyrir hendi eða minn- isrákin er enn fyrir hendi, en meðvitaðar aðstæður einstakl- ingsins hafa breytzt svo mjög, að einstaklingurinn hefur ekki leng- ur aðgang að minningunni. Við vissar tilraunir eru full- orðnir, venjulega gefnir menn beðnir um að leggja á minnið viss orð. Ekkert orðanna i sjálfu sér er orð, sem mennirnir hafa ekki heyrt áður, en notkun ákveðins orðs i tilraunaskyni skapar engu að siður nýtt fyrirbæri, atburð, sem er ekki á minnissviði til- raunamannsins og þannig er auð- velt að skera úr um það, að hve miklu leyti menn geta lagt hluti á minnið. Endel Tulving og Michael Watkins sýndu t.d. fólki þvi, sem þeir gerðu rannsóknir sinar á orðalista, sem annað hvort voru tengdir (gelt-hundur) eða rim- aðir (mynd-synd) og báðu fólkið um leið að leggja siðasta orðið á minnið. Þegar minnisprófunin var siðar gerð fengu tilraunaper- sónurnar ábendingu svo sem „gelta á við....” eða „mynd rimar við...”. Það kom i ljós, að fólkið mundi 74% af orðatengslunum en 54% af orðunum, sem rimuðu. 1 siðari hluta rannsóknanna fengu tilraunapersónurnar ábendingar, sem ekki höfðu verið með i fyrri hlutanum... og það furðulega gerðist, að þeir mundu um 30% af þeim orðum, sem þeir höfðu gleymt. I.L. Light veitti sama fyrirbæri athygli, þegarhann gerði tilraun- ir með að láta fólk muna ákveðin orð, sem annað hvort voru borin fram ein sér eða sem hluti setn- ingar. Án allra ábendinga mundi fólkið um 32% sérstæðu orðanna og 18% orðanna, sem skorti i setningarnar, en við ábendingar um samnefni og annað slikt varð minnið allt að 90%. Það eru aðallega tilraunir af þessari tegúnd, sem hafa orðið til þess, að sálfræðingar hafa komizt að þeirri niðurstöðu, aðgleymska orsakist ekki svo mjög af eyði- leggingu minnisrákarinnar held- ur af breytingum á ytri aðstæðum einstaklingsins. Það er þannig mjög erfitt að út- skýra, hvernig unnt er að bæta minni manna, ef svo væri, að minnisrákin hyrfi gjörsamlega, en það er aftur á móti auðskilið að breytingar á umhverfi einstakl- ingsins eru frumástæða þess, að unnt sé að „lesa” minnisrákina. Aðeins á grundvelli ábendinga- fyrirkomulagsins sést, að það er mögulegt að útskýra allskonar minnisfyrirbrigði, sem áður voru skýrð með flóknum fræðikenn- ingum og þvi er það aðalkenning- in i dag. Við tilraunir þar sem manni var sýndur langur orðalisti kom i ljós, að hann mundi alltaf fyrst siðasta orðið, en sjaldnast allan listann og til að útskýra þetta komu sálfræðingar með kenningu sem kallast „tveggja-deilda” kenningin. Menn imynduðu sér, að orðið færi fyrst inn i litla deild, sem hefði takmarkað geymsluþol og þaðan annað hvort i aðra deild, sem væri stærri og varanlegri eða það týndist blátt áfram eftir þvi sem fleiri orð streymdu að og samkvæmt þessari kenningu er orsökin sú, að orðin komust ekki inn á hinn varanlega geymslustað fyrir of hraðri sendingu nýrra orða. Það er þó ekki i samræmi við þessa kenningu, að tilrauna- persónan man „gleymdu” orðin, ef hún fær ábendingu og þess vegna hafa margir hætt við „tveggja-deilda” kenninguna og hallast heldur að „ábending- ar-kenningunni”. Hún er þess efnis, að minnis- rákin sé mjög fljót að myndast, en að aðgangurinn að henni fari eftir upplýsingamöguleikum um- hverfisins og þá mjög eftir ddlj- anleika orðsins. Við tilraunirnar var umhverfinu breytt i sifellu og skv. „ábendingakenningunni” gleymdust orðin i hlutfalli við það. Rannsóknir á hæfileikum manna til að þekkja aftur orð hafa orðió til þess, að margir sál- fræðingar lita á minnið, sem tvi- þættan feril. I einkennandi rannsóknum á minnisgetu er tilraunapersónan látin sjá, lesa eða hlusta á orða- lista og siðan beðin um að benda á sömu orð i enn lengri oröalista. Hér þekkti hún oft fleiri orð, en hún mundi eftir og sálfræðingarn- ir telja þvi, að það sé auðveldara að rifja upp en muna. Það er þvi gert ráð fyrir, að endurþekking sé fyrst og fremst að taka afstöðu til einhvers, en upprifjun orðalista sé að muna möguleg listaorð eftir minnisrákum og skv. þessari kenningu hefur umhverfi til- raunapersónunnar engin áhrif á getu hans til upprifjunar. Tulving og Thomson hafa hins vegar kollvarpað þessari kenn- ingu með tilraunum þar, sem til- raunapersónan fékk 24 orðapör og var beðin um að muna siðasta orðið i hverju orðapari. Næst fékk hún orðalista með 24 orðum, sem minntu mjög á siðasta orðið i orðapörunum og af hverjum þessara 24 orða tókst honum að Framhald á bls. 11. Alþýðublaðið Miðvikudagur 26. nóvember 1975.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.