Alþýðublaðið - 26.11.1975, Síða 9

Alþýðublaðið - 26.11.1975, Síða 9
Hjá sumum liðunum rúlla peningarnir hraðar en boltinn ERU STÓRU FÉLÖGIN AD KAUPA SÉR VELGENGNI? Flest hinna t)2. félagsliða i hinum fjórum deildum i Englandi i dag eru rekin með tapi. Ástæðan fyrir þvi er tviþætt. í fyrsta lagi hefur enska landsliðinu gengið illa að undanförnu. Knattpyrnuáhangend- urnir i Englandi hafa verið vanir góðum árangri, en þegar landsliðið bregst, þá er það segin saga að fé- lagsliðunum gengur erfiðar að trekkja áhorfendur Eins og gefur að skilja þá hafa þessi stóru félagslið mun meiri peninga úr að spila, enda öll rek- in, eins og hvert annað viðskipta- fyrirtæki. Þessi félög eyða gifur- lega háum peningaupphæðum i kaup á leikmönnum. Það er að- eins um það bil eitt ár siðan að leikmenn voru keyptir fyrir geysilegar fjárfúlgur i Englandi, en nú siðasta árið hafa 1. deild- arfélögin dregið aðeins úr kaup- um á leikmönnum, sem kosta mikið, og þótti sumum tími til kominn. Það er álitið t.d. aö ensku 1. deildarfélögin hafi verzl- að með leikmenn frá vorinu 1970 Kaup og sölur frá 1970 Félög Kaup Sala ARSENAL V 700.000 905.000 ASTON VILLA 635.000 405.000 BIRMINGHAM 940.000 595.000 BURNLEY 110.000 1225.000 COVENTRY 915.000 810.000 DERBY 970.000 310.000 EVERTON 1655.000 1180.000 IPSWICH 270.000 515.000 LEEDS 440.000 320.000 LEICESTER 968.000 660.000 LIVERPOOL 905.000 365.000 MANCHESTER C 1230.000 740.000 MANCHESTER U 1995.000 790.000 MIDDLESBROUGH 210.000 70.000 NEWCASTLE 1360.000 475.000 NORWICH 1005.000 545.000 QUEENS P R 910.000 615.000 SHEFFIELD U 405.000 360.000 STOKE 960.000 70.000 TOTTENHAM 480.000 438.000 WEST HAM 888.000 615.000 WOLVES 360.000 380.000 Allar upphæöir eru i sterlingspundum. Hvað kosta liðin í dag? 1. Manchester C. .................. £ 1.415.000 2. Evert-on ...................... » 1.275.000 3. Derby........................... » 1.190.000 4. Newcastle .................... » 1.185.000 5. Leicester ...................... » 1.082.000 6. Stoke .......................... » 1.005.000 7. Birmingham ..................... » 985.000 8. Liverpool ...................... » 950.000 9. Manchester U ................... » 920.000 10. QPR .......................... » 810.000 11. Tottenham ........v............. » 782.000 12. Coventry ................... ... » 705.000 13. Norwich ........................ » 690.000 14. West Ham........................ » 683.000 15. Aston Villa .................. » 625.000 16. Leeds........................... » 565.000 17. Sheftield U .................... » 565.000 18. Arsenal ....................... » 530.000 19. Wolves ....................... » 495.000 20. Burnley ...................... » 327.000 21. Middlesbrough .................. » 270.000 22. Ipswich ........................ » 220.000 Þetta kostuðu ensku 1. deildarliðin við upphaf þessa keppnistímabils. aö leikjum liðanna, einkum þó í lægri deildunum. Og i öðru lagi eru stóru félögin i 1. deildinni farin að taka meira frá hinum liðunum i deildunum. lÞað eru aðeins þessi stóru félög, sem eru rekin með hagnaði. Þau geta keypt beztu leikmenn hinna smærri liða, og þar með áhorfendur frá þeim. til vorsins i vor fyrir upphæð, sem svarar til 10.7 milljarða is- lenzkra króna. Þar af hefur verið varið um 6.4 milljörðum i kaup á leikmönnum, en aðeins 4.3 milljörðum f sölu. Þegar þessar tölur voru reiknaðar út, voru að- eins teknir með i dæmið þeir leik- menn, sem kostuðu yfir 20.000 ensk pund, eða um 6.8 milljónir islenzkar krónur. Það undrar kannski fáa að stóru félögin hafa eytt mestu af þessum peningum, og er Manchester United stærst af þeim öllum. Félagið frá Old Trafford notaði þannig næstum 200 millj. pund —680. milljónir is- lenzkra króna — á timabilinu frá 1970—1975, en aðeins selt leik- menn fyrir 800 þúsund pund — eða um 275 milljónir islenzkra króna—. Onnur félög, sem hafa keypt fyrir yfir eina milljón punda á þessu timabili eru Everton, Manchester City, New- castle og Norwich. Hver er svo ástæðan fyrir þvi að félag eins og Manchester United, hefur svo oft þurft að kaupa ieikmenn? An nokkurs vafa er hún sú að Old Trafford félagið hefur yfir að státa einum bezta árangri allra féiagsliða á Englandi frá striðslokum. Þeir t.d. unnu Evrópukeppni meistaraliða árið 1968, þegar þeir unnu pórtúgalska liðið Benfica 4:1 i úrslitaleik á Wembley. En eftir þann árangur fór að bera á þvi að liðið væri að ganga i gegnum öldudal, og það var enginn hægðarleikur að finna leikmenn, eins og Nobby Stiles, Bobby Charlton og fl., án þess að borga peninga. En peningar geta ekki alltaf keypt árangur. Arið 1972 til 1973 notaði félagið t.d 900 þúsund pund (380 millj. isl. kr.) til þess að styrkja liðið, en samt kom sú peningaupphæð ekki i i veg fyrir að liðið hans Tommy Docherty féll niður i 2. deild vorið 1974. En þá má einnig kannski segja að félagið hafi eitthvað haft fyrir snúð sinn. Þannig var félagið t.d. aðeins eitt ár i 2. deild, og er það sjaldgæft að félag stanzi svo stuttan tima þar, og nú eru „rauðu djöflarnir” i fyrstu sætum ensku 1. deilarinnar. Það er ekki aðeins Manchester United, sem hefur notað mikið af peningum án þess að hljóta neinn umtalsverð- an árangur. Gott dæmi um það nú siðustu árin eru t.d. félög, eins og Everton og Newcastle. Bæði hafa keypt leikmenn á siðustu árum fyrir yfir eina miiljón punda, en samt hafaþau engan titil hlotið á siðustu fjórum árum, og ekki hefur það gengið betur hjá nágrannafélagi Manchester United, City. Norwich er siðasta félagið, sem er i flokknum yfir milljón pund. Ekki er hægt að segja að það hafi gengið mjög illa hjá þeim, þvi þeir unnu sig fljót- lega upp i 1. deild aftur. Er sá árangur kannski of dýru verði keyptur? Leeds hefur ekki eytt miklu A hinn bóginn hafa mörg af þeim félögum, sem beztum árangri hafa náð á siðustu árum, alls ekki eytt miklu i að kaupa nýja leikmenn. Leeds hefur t.d. ekki keypt leikmenn fyrir nema 440 þúsund pund, og af þeim hefur einn leikmaður verið keyptur fyrir 250.000 pund, en það er Duncan McKenzie. Liverpool hefur heldur ekki eytt neinum stórkostlegum upphæðum. Þeir hafa aðeins keypt fjóra leikmenn á þessum árum, sem kostað hafa 100.000 pund og þar yfir, Ray Kennedy, John Toshack, Terry McDermott og Peter Cormack. En nú siðast hefur Joey Jones bætzt við. Leicester með flesta leikmenu yfir 100.000 pund Þegar við litum áfram yfir kaup og sölur á Englandi siðustu árin, þá hafa 74 leikmenn verið seldir fyrir 100.000- pund og þar yfir. Leicester City hefur keypt flesta af þessumileikmönnum alls 8. Það eru Chris Garlano, Jeff Blockley, Steve Earle, Dennis Rofe, John Sammels, Alan Birchenall, Keith Weller, og Bri- an Alderson. Þrjá hefur félagið keypt, sem kostuðu 80.000 pund. Len Glover, Steve Kember og .Frank Worthington. Derby County fylgir fast á eftir Leicester. Þeir hafa keypt alls 7 leikmenn i dýrari flokknum, en þá er miðað við 100.000 pund og þar yfir. David Nish (250.000 pund), Bruce Rioch (200.000 pund) og Colin Todd (170.000 pund), eru þeir dýrustu. Manchester City er einnig með mjög dýra leikmenn. T.d. Asa Hartford, Rodney Marsh, Joe Royle, Dennis Stuart og Dave Watson. Everton hefur þó þá allra dýr- ustu. Bob Latchford er þannig dýrasti leikmaður á Englandi i dag. Hann kostaði félagið 350.000 pund. Martin Dobson kostaði „Super Mac" — Ted MacDougall — er cinn dýrasti leikmaður á Knglandi i dag. Hann kostaði yfir 500.000 pund á 27 mánuðum. Bornmouth til Man. United, West llam og Norwich. Bobby Robson framkvæmda- stjóri Ipswich. Lið hans er eitt það ódýrasta i 1. deildinni. heldur enga smá upphæð, eða 300.000pund. Þess má þó geta, að Everton greiddi ekki alla upphæðina i reiðufé fyrir Latch- ford heldur létu Howard Kendall og Archie Styjes ganga upp i eitt- hvað af upphæðinni. Þess má geta til gamans, að þessir tveir leik- menn, þ.e.a.s. Latchford og Dobson kosta nær þrefalda upphæð og allt Ipswich iiöið i dag. Ipswich, Middlesbrough og Burn- ley eru nefnilega lang ódýrustu félögin á Englandi. Burnley lifir á að seija leikmenn Burnley, þveröfugt við flest önnur 1. deildar félög i Englandi, verður að selja leikmenn árlega til þess að bjarga liðinu frá að verða gjaldþrota. Þannig hafa þeir á siðustu árum þurft að selja leikmenn fyrir allt að 1 1/4 milljón punda, Ralph Coates, Steve Kindon, Dave Thomas, Alan West, Martin Dobson, Geoff Nulty. En þess má þó lika geta, að félagið er þekkt fyrir góða þjálfun á unglingum, og lifir á þvi. Jón Karlsson í stað Einars Magnússonar Nú er útséð um það að Einar Magnússon hinn kunni handknatt- leiksmaður sem leikur um þessar mundir hjá Hamburg Sport Verein, geti ekki tekið þátt i hinu siranga landsleikjaprógrammi tslendinga á næstunni. Hann tvibrotnaði á fingri i siðustu viku- og verður frá keppni i að mitinsta kosti 2 mánuði. Búið var að velja hann i landsleik tslands gegn Luxemburg á sunnudaginn eins og fram kom i blaðinu i gær. Jón Karlsson Val mun taka stöðu Einars i liðinu á sunnudaginn. Strax á þriðjudag og miðviku- dag eftir leikinn mun islenzka landsliðið leika tvo leiki við Noreg eins og fram hefur komið. Sunnu- daginn 7. desember mun siðan landsliðshópurinn halda til Danmerkur, þar sem æfingar munu fara fram að fullum krafti með landsleikinn við Júgóslava i undankepppni Ólympiuleikanna i huga. Sú ferð hefur nú verið skipu lögð af Handknattleikssambandi tslands og danska handknattleiks- sambandinu. Og verður hún þannig. Sunnudaginn 7. desember verður lagt af stað til Danmerkur. Mánudaginn 8. verður æfing. Þriðjudaginn 9. des. mun svo landsliðið væntanlega leika æfingaleik við sjálenzkt úrvalslið. Miðvikudaginn 10. verður æfing. Fimmtudaginn 11. des. mun svo landsliðið liklega leika landsleik við Dani. Föstudaginn 12. des. og tvo næstu daga á eftir mun liðið væntanlega taka þátt i fjögurra liða keppni. Mánudaginn 15. des. er svo áætlað að liðið komi heim. Er það von allra handknatt- leiksunnenda að landslið okkar öðlist góða æfingu og reynslu með þessari ferð og verði þvi vel undir- búið fyrir landsleikinn við Júgóslava 18. des. © Miðvikudagur 26. nóvember 1975. Alþýðublaðið

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.