Alþýðublaðið - 10.01.1976, Page 3
Frá Alþingi
Við þriðju og siðustu umræðu fjárlaga
rétt fyrir jólin fluttu þingmenn Alþýðu-
flokksins ýmsar breytingatillögur við
fjárlögin. Tillögur þessar voru ýmist um
kjördæmismál eða landsmál, eða aukinn
sparnað i rikisrekstrinum og nýjar tekju-
öflunarleiðir. Allar þessar tillögur þing^
manna Alþýðuflokksins voru felldar.
Tillögur þær, sem þingmenn Alþýðu-
flokksins stóðu að, fara hér á eftir:
Benedikt Gröndal og Jón Armann
Héðinsson fluttu tillöguum, að 15 milljón-
um króna yrði varið til sérstakrar frétta-
og upplýsingaþjónustu i sambandi við Ut-
færslu landhelginnar og baráttu við land-
helgisbrjóta. Tillögu þessa rökstuddu
þingmennirnir m.a. meðþvi, að allir væru
orðnir sammála um, að mjög miklu
skipti, að upplýsingar um atburði land-
helgismálsins, þar sem fram kæmu okkar
sjónarmið, bærust bæði fljótt og örugg-
lega til innlendra og erlendra fjölmiðla.
Rétt væri að veita sérstaka fjárveitingu
I þessu skyni á meðan þorskastriðið
stendur.
Benedikt Gröndal og Sighvatur Björg-
vinssonlögðu til að eftirtaldir liðir bættust
við heimildarákvæði fjárlaga — 6. gr.
fjárlaga, þar sem rikisstjórninni eru
heimilaðar ákveðnar ráðstafanir:
1. Að lækka um allt að 10%, að fengu
samþykki fjárveitinganefndar, liðina
„önnurrekstrargjöld” hjá aðilum, sem
fjárlög fjalla um.
2. Að ákveða hærra birtingargjald fyrir
auglýsingar i sjónvarpi, ef þær hafa að
meginstofni verið framleiddar er-
lendis.
3. Að afla lánsfjár til þess að búa a.m.k.
alla áætlunarflugvelli i landinu þeim
tækjum, sem atvinnumenn telji
nauðsynleg fyrir öryggi farþegaflugs.
4. Að greiða 1% af rekstrarhagnaði
A.T.V.R. i sérstakan sjóð til að vinna
gegn áfengisbölinu með nútima
áróðurstækni, undir stjórn þriggja
manna, er rikisstjórnin velur.
5. Að heimili Rikisútvarpinu að taka upp i
f járöflunarskyni hljóðvarps- eða
sjónvarpsbingó samkvæmt reglugerð,
er Menntamálaráðuneytið setur.
6. Að sameina heimildir, fjárveitingar og
styrki rikisstofnana til kvikmynda-
gerðar undir eina stjórn til að tryggja
sem hagkvæmasta notkun fjármuna, og
vinni slik stjórn að tillögugerð um is-
lenska kvikmyndastofnun.
Frá Jóni Ármanni Héðinssyni ög
Sighvati Björgvinssyni kom tillaga um,
að 1 m illjón króna yrði varið til umferðar-
fræðslu fyrir aldrað fólk. Bentu þing-
mennirnir á, að tveimur aldursflokkum
væri sérstaklega hætt i umferðinni —
annars vegar börnum og hins vegar
öldruðu fólki. Hið opinbera sæi börnum
fyrir talsvert umfangsmikilli umferðar-
fræðslu, til þess að draga úr slysahættu
hjá þeim, en engar sambærilegar
ráðstafanur væru gerðar fyrir hinn
aldursflokkinn, sem væri i mestri hættu —
þá öldruðu. Væri rétt að hefja sérstaka
umferðarfræðslu fyrir þennan aldurs-
flokk en til þess þyrfti að koma sérstakt
fjárframlag.
Sighvatur Björgvinsson og Benedikt
Gröndal fluttu tillögu um, að framlög til
eftirgreindra félaga ogstofnana, sem sjá
um liknar- heilsugæzlu- og neytendamál,
yrðu hækkuð, sem hér segir:
1. Við 02 Barnaheimilið Sólheimar I
Grimsnesi. Fyrir ,,65” kemur 300 þús.
kr.
2. Við 03 Fávitahælið i Skálatúni. Fyrir
,,65” kemur 300 þús. kr.
3. Við 05 Geðverndarfélag Islands. Fyrir
,,75” kemur 350 þús. kr.
4. Við 06 Tjaldanesheimilið. Fyrir ,,200”
kemur 400 þús. kr.
5. Við 11 Sjálfsbjörg, landssamband
fatiaðra. Fyrir „50" kemur 100 þús. kr.
6. Við 15 Styrktarfélag vangefinna. Fyrir
,,100” kemur 300 þús kr.
7. Við 16. Styrktarfélag vangefinna, dag-
heimili. Fyrir „25” kemur 100 þús. kr.
8. Við 18 til Styrktarfélags lamaðra og
fatlaðra vegna sérnáms i stjórn og
kennslu við leikskóla. Fyrir „50” kem-
ur 250 þús. kr.
9. Við 21 Neytendasamtökin. Fyrir „450”
kemur 740 þús. kr.
10. Við 28 Til umbúðasmiði vegna
fatlaðra. Fyrir „80” kemur 200 þús. kr.
11. Við Foreidra- og styrktarfélag
heyrnardaufra. Fyrir „200” kemur 500
þús. kr.
12. Við 37 Foreldrafélag fjölfatlaðra
barna. Fyrir „300” kemur 400 þús. kr.
Jón Armann Héðinsson flutti ásamt
þingmönnunum Karveli Pálmasyni og
Geir Gunnarssyniþessa tilögu um viðbót
við heimildarákvæði fjárlaga:
Að heimila Hafnabótasjóði að taka lán
allt að 50 millj. kr. til að létta greiðslu-
byrði hafnarsjóða af lánum samkvæmt
reglum sjóðsins. Ráðherra skai gera
tillögu til f járveitinganefndar um
skiptingu fjárins, og skal við skiptinguna
hafa hliðsjón af tekjum og gjöldum
hafnarsjóðs, framlagi sveitarfélags til
hafnarsjóðs, fólksfjölda og öðrum þeim
atriðum, sem hafa áhrif á greiðslugetu
hafnarsjóðsins.
Þá flutti Gylfi Þ. Gislason ásamt þing-
mönnunum Svövu Jakobsdóttur og
Magnúsi Torfa ólafssynitillögu um það,
aðframlag til Lánasjóðs islenzkra náms-
manna yrði hækkað úr 897.500 þús. kr. I
1.050.000 þús. kr.
Þingmennirnir Sighvatur Björgvinsson
og Karvel Pálmason fluttu saman
nokkrar tillögur um byggðamál Vest-
fjarða. Þær voru þessar:
1. Að á fjárlög yrði tekið bygginga-
framlag til Menntaskólans á ísafirði að
upphæð 20m. kr., en skólinn hefur nú ekk-
ert eigið kennsluhúsnæði og er i miklum
húsnæðisvandræðum.
2. Að framlag tii sjúkraflugs yrði
hækkað úr 2,5 miilj. kr. i 5 millj. kr.
Tilgangurinn var sá að auka styrk við
flugfélagið Ernirá fsafirði, sem átt hefur
i miklum rekstrarörðugleikum og hefur
nú neyðzt til þess að hætta starfrækslu,
eins og fram hefur komið i blöðum, og
hefur það i för með sér mikið öryggisleysi
fyrir Vestfirðinga.
3. Að styrkur rikisins til flóabáta, fram-
iagið til Djúpbátsins á ísafirði, yrði
hækkað úr 17 milljónum i 21, en djúpbát-
urinn er mikilvægasta samgöngutæki
Djúpmanna, annast m.a. aila mjókur-
flutninga frá Djúpbændum, en báturinn
á i miklum erfiðleikum með áframhald-
andi rekstur.
4. Að framlag rikissjóðs i ferjubryggjur
yrði hækkað um 2 m. kr. og þeirri fjárhæð
varið til þess að bæta aðstöðuna á bryggj-
unni við Brjánslæk þar sem flóabáturinn
Baldur leggur að.
Þá flutti Sighvatur Björgvinsson ásamt
Vestfjarðaþingm önnunum Karveli
Pálmasyni, Steingrimi Hermannssyni og
Sigurlaugu Bjarnadóttur tillögu um, að
rikisstjórninni yrði heimilað að fella niður
aðflutningsgjöld og söluskatt af
snjótroðara, sem Iþróttabandalag Is-
firðinga hyggstkaupa til nota i skiðalandi
tsfirðinga. Er fjársöfnun fyrir
snjótroðaranum þegar hafin, en kaupin á
honum byggjast á þvi, að aðflutningsgjöld
og söluskattur fáist felld niður, en fyrir
þvi munu vera fordæmi.
Þá flutti Sighvatur Björgvinsson ásamt
Helga Seljan tillögu um að rikissjóður
styrkti starfsemi tslenska bindindis-
félagsins, sem staðið hefur fyrir nám-
skeiðum fyrir reykingafólk, sem vill
hætta reykingum, um 1 milljón kr. Fyrir
Alþingi liggur nú tillaga, sem þessir
sömu þingmenn eru flutningsmenn að á-
samt fleirum um að samhæfa og efla að
mun baráttu opinberra aöila og
einstaklinga gegn tóbaksreykingum, og
hefur sú tillaga fengið stuðning alls-
herjarnefndar Sameinaðs Alþingis.
Tillagan um fjárframlagið til Islenzka
bindindisfélagsins var flutt þvi til
staðfestu, að fjárveitingarvaldið vildi sitt
af mörkum leggja til þessarar baráttu.
Þá var Sighvatur Björgvinsson einnig
meðflutningsmaður með þingmönnunum
Helga Seljan og Karveli Pálmasvni að
tiliögu um, að framlagið úr rikissjóði til
jöfnunar á námskostnaði yrði hækkað úr
130 m. kr. i 180 m. kr., eða til vara i 150 m.
k.
Allar framangreindar breytingar-
tillögur, sem þingmenn Alþýðuflokksins
stóðu að við þriðju umræðu fjárlaga. voru
felldar.
«> $
f rettaþraðurinn
Dagsími til kl. 20: 81856
Kvöldsími 81976
Breytingatillögur
Alþýðuflokksþing-
manna við fjárlög
Eyjaferjaferjan
með öllu
tilheyrandi:
1.000 milljónir!
„Verðið, sem ég hefi heyrt
nefnt á væntanlegri Vestmanna-
eyjaferju, er 750 milljónir,” sagði
Guðjón Teitsson, fram-
kvæmdastj. Skipaútgerðar rikis-
ins, i samtali viðblaðið. „En þeg-
ar búið er að koma á hafnarað-
stöðu fyrir ferjuna og öðrum út-
búnaði á báðum endastöðvum,
má telja að kostnaðurinn verði
ekki undir 1000 milljónum. Erfitt
er að segja um liklegt rekstrartap
á ári, en ekki er óeðlilegt að láta
sér detta i hug 200 millj. i tap á
ári. Nei, hún verður ekki rekin á
vegum skipaútgerðarinnar.”
Aðspurður um upphaf þessa
ferjumáls, svaraði Guðjón Teits-
son þessu til: „Samkvæmt þings-
ályktun frá i febrúar 1972, vorum
við fimm skipaðir i nefnd, til þess
að fjalla um málið. Við skiluðum
áliti i desember 1972, en þar mun
hafa látið litt yfir athugasemd-
um, sem ég gerði á nefndarfund-
um bréflega i alls 11 liðum. Siðan
gerist það, að Viðlagasjóður bauð
út ferjusmiðina, eftir að hann
kom á laggirnar, og fjármögnun
var nokkuð óvenjuleg, þótt ekki
sé frekar rætt hér. Þegar rætt var
um byggingu Herjólfs á sinum
tima, komst það mál fyrst á rek-
spöl þegar það var tengt flutning-
um til Hornaf jarðar. Siðar
breyttust aðstæður og Horna-
fjarðarsigling Herjólfs lagðist
niður. Að minu mati er hér um að
ræða mikið bruðl með almannafé
i þessu ferjumáli. Það er eitt fyrir
sig, að ef skipin sigldu með fullu
vélarálagi kostaði önnur leið
Herjólfs kr. 16914 og ferðin tæki
röska 3 tima, en ferjan myndi
kosta 35.240 á sömu leið og með
fullu álagi, en vera 2 1/2 tima.”
Aðspurður hvað yrði um
Herjólf, þegar ferjan tæki við,
svaraði Guðjón Teitsson þvi til að
liklega yrði hann settur á sölu-
lista, sem ekki hefði þó verið gert
enn og engin tilraun gerð til að
selja skipið enn sem komið væri.
Yfirmenn
Andrómedu í
kennslu í
sjómennsku
Frá Sæmundi Guðvinssyni um
borð i Ægi:
Svo virtist sem freigátan
Andromeda væri að reyna að
verða sér úti um átyllu til að
ráðast gegn Ægi i gærkvöldi.
Andromeda kallað hvað eftir
annað til brezks togara sem var á
siglingu á 12 milna hraða ekki
langt frá varðskipinu og spurði
hvort hann væri ekki að toga.
Skipstjóri neitaði þvi jafnan og
kvaðst vera á siglingu, þrátt fyrir
margitrekaðar spurningar frá
Andromeda. Þröstur,, skipherra,
kallaði þá freigátuna uppi og út-
skýrði fyrir yfirmönnum hennar
að togarar væru yfirleitt á 3—4
milna hraða þegar þeir væru að
veiðum. Þetta vissu allir sjó-
menn.
Fátt varð um svör frá yfir-
mönnum Andromeda, en brezki
togaraskipstjórinn hló mikið og
sagði öðrum skipsstjórum togara
frá þessari kennslustund sem
Andromeda fékk frá Ægi.
Brezku skipstjórarnir veinuðu
af hlátri þegar þeir fengu
fréttirnar og fannst auðheyrilegt
að hvitflibbamönnunum um borð
i freigátunni veitti ekki af frekari
tilsögn i sjómennsku.
Sigldi á Þór og
reyndi svo aftur!
Kl. 14.21 sigldi F-109 með Stb.
bógaftan til á bb. hlið varðskips-
ins. Staður: 059 fjarl. 53 sjóm.
frá Bjarnarey. Þá var herskipið
búið að gera 13 grófar tilraunir til
að sigla á varðskipið.
Eftir ásiglinguna reyndi her-
skipið 6 sinnum aftur að sigla á
varðskipið en varðskipinu tókst
alltaf að forðast árekstur.
Félagsstarfið hafið
mjög kröftugt félagsslarf var hjá Alþvðuflokksfélagi Reykjavikur á
siðasta ári, en meðal nýjunga i þvl má nefna Fræðslufundi Alþýðu-
flokksins, sem er nokkurs konar stjórnmáianámskeið. Var fjöimennt á
fundunum og þóttu þeir takast meö afbrigðum vel. Auglýst hefur verið
ný fundarseria og er fyrsti fundurinn 26. jan. nk. Er ailt Alþýðuflokks-
fólk lvvatt til þess að hafa samband við skrifstofuna og láta skrá sig sem
fyrst. önnur starfsemi, sem þótti takast mjög vel voru spilakvöldin, en
þeim stjórnaði frú Emelia Samúelsdóttir. Er myndin tekin á siðasta
spilakvöldinu fyrir jól, en þau voru haldin i Iðnó uppi.
Alþýðublaðiö
Laugardagur 10. janúar 1976.