Alþýðublaðið - 10.01.1976, Síða 12
Veóri*
Þeir sem hafa gert sér
hugmyndir um að vorið sé að
nálgast með sinni þiðu, geta
lagt þær hugmyndir sinar á
hilluna, þvi spáð er vestan eða
norðvestan átt með éljum, og
vægu frosti. Samfara
éljarhrinunum, er gert ráð
fyrir að vindur verði hvass,
eða um átta vindstig, þannig
að vissara er að klæða sig vel
fyrir útgöngu. Siðan mun
vindurinn verða norölægari og
kólnandi, en á sunnudaginn
verður sennilega þurrt veður.
Gátan
Útgefandi: Alþýðuflokkurinn.
Itekstur: Reykjaprent h.f.
Tæknil. frkvstj: Ingólfur Steins-
son. Ritítjóri: Sighvatur Björg^
vinsson Ritstjórnarfulltrúi:
Bjarni Sigtryggsson Aðsetur rit-
stjórnar Siðumúla 11, simi 8-18-66.
Prentun: Blaðaprent h.f. Askrift-
arverð: Kr.: 800 á mán. Lausa-
söluverð: Kr.: 40.-
FoíT T/EPT '/ R£rr — S/zv/v/ *■ Eytf'NQ
Qf. //</« firofixu
5 ‘j 3
UNVII
'Alb'il HjfíRK GfíL/N t
TÓH/V L£U<
VUG UGUR l
rúk' DRYKK m/ELlR
' ' 'OL/K/R fíjfiNfi 9
flDfíLG FRO 7
Kotfft / mpvuR
STfifNft BRyTj fiR
/0 6 /i
TR£
/.yUfLDRFX P£HNvnTftP
KOPAVOGS APÓTEK
Opið 511 kvöld til kl. 7
laugardaga til kl. 12
MEGUM
VIÐ KYNNA
Eðvald Hinriksson,
sjúkraþjálfari, er fæddur i há-
skólabænum Dardu i Eistlandi,
sem er ekki langt frá Tallin,
höfuðborg landsins. Foreldrar
Eðvalds ráku veitingahús i
Dardu, en þau eru nú bæði látin.
Koma Eðvalds til Islands bar að
með nokkuð óvenjulegum hætti,
en hann var skipsverji á sænska
flutningaskipinu Rosita, sem
strandaði fyrir utan Keflavík 25.
nóvember árið 1946. Er Eðvald
kom i land, kynntist hann finnska
iþróttakennaranum Juru Nora,
sem þá kenndi hjá Ármenni. Juri
Nora varð Eðvaldi mikil
hjálparhella til að byrja með.
I Eistlandi hafði Eðvald lært
nudd, ásamt iþróttakennslu af
ýmsu tagi, og fór hann til Akur-
eyrar 1. mari 1947 og gerðist þar
knattspyrnuþjálfari hjá Iþrótta-
bandalagi Akureyrar, og einnig
sjúkraþjálfari. Ekki var vera
Eðvalds þar löng þvi til Vest-
mannaeyja fór hann 30. septem-
ber sama ár. I Eyjum kenndi
hann knattspyrnu, ásamt frjáls-
um iþróttum allt til i mái 1948 en
þá fór hann aftur til Akureýrar,
þar sem hann gerðist knatt-
spyrnuþjálfari hjá KA. Til
Rvikur fluttist hann 1. jan. 1950 og
gerðist þjálfari hjá 1R,
bæði i frjálsum iþróttum og
kröfuknattleik og er hann fyrsti
körfuknattleikskennari hér á
landi. 30. marz 1962, fékk Eðvald
leyfi til að starfærkja nuddstofu i
Reykjavik, sem hann hefur svo
unnið við siðan. Þar áður var
hann i verksmiðjuvinu á daginn,
en vann á nuddstofu á Mela-
vellinum ásamt Úlfari Þórðasyni
og Jóni Eirikssyni. Þegar Eðvald
- * -
dvaldist á Akureyri i siðasta
skiptið, kynntist hann núverandi
eiginkonu sinni, Sigriði Bjarna-
dóttur, sem var mikil iþróttakona
á sinni tið. Þau hjónin eiga þrjú
börn saman, Jóhannes er elzt
þeirra, en hann var einmitt
kosinn iþróttamaður ársins i gær,
og óskum við þeim til hamingju
með soninn. I miðjunni er Alti, en
hann er einnig mikill knatt-
spyrnumaður eins og Jóhannes,
en yngst þeirra er Anna, sem er
17 ára gömul,og einnig Islands-
meistari með Val eins og bræður
hennar.
0KKAR Á MILLI SAGT
Flogið hefur fyrir, að skammt sé að vænta nýrrar benzinhækkunar og
það muni eiga að hækka um 1—2 kr. litrann.
o o o
Guðna Þórðarsyni hefur verið heimilað að halda áfram rekstri ferða-
skrifstofunnar SUNNU, og einnig er talið öruggt, að Air Viking muni
halda áfram starfrækslu. Guðni virðist þvi ætla að koma út úr málinu
með pálmann i höndunum. Fyrst svo hefur orðið, hver verður þá fram-
vinda Alþýðubankamálsins? Var ekki forsenda þess sú, að ekki væri
allt i lagi hjá Guðna og að til stöðvunar myndi koma hjá fyrirtækjum
hans?
o o o
Einhver mestu ótiðindi, sem borizt hafa á nýbyrjuðu ári, eru fregn-
irnar um óleyfilegan umbúnað veiðarfæra togarans Ingólfs Arnarson-
ar. Mönnum er enn i fersku minni hvellurinn, sem varð, þegar eitt af
varðskipunum náði upp netadruslu, sem það hafði skorið aftan úr
brezkum togara skömmu fyrir áramótin og i ljós kom, að pokinn hafði
verið fóðraður. Allir landsmenn hneyksluðust og uppi voru ráðagerðir
um að fara meö vörpuna utan til þess að sýna hana brezkum frétta-
mönnum. Nú hefur sami atburður orðið um borð i islenzkum togara.
Þessi atburður er blettur á heiðri okkar.
o o o
Herskip hinna fornu Rómverja voru þannig útbúin, að neðan sjólinu á
framstafni var griðarmikil járnslegin trjóna, sem braut gat á siðu ó-
vinaskips við ásiglingu. Vel gæti verið, að islenzku varðskipin þyrftu að
taka upp þetta gamla herbragð Rómverjanna. Freigáturnar myndu þá
ekki reyna ásiglingar nema einu sinni.
o o o
Ný ferðaskrifstofa hefur verið sett á stofn á vegum Sambands is-
lenzkra samvinnufélaga. Gárungarnir hafa gefið henni nafniö SAM-
farir.
o o o
Eysteinn Jónsson, fyrrum alþingismaður og ráðherra, hefur smátt
og smátt verið að draga sig i hlé frá þeim viðamiklu störfum, sem hann
hefur haftum hönd. Hann er þó i fullu fjöri og hvergi bilbugur á honum
að finna.Hann skyldi þó ekki ætla að nota timann til þess að rita endur-
minningar sinar? Vafalaust yrði mikill fengur að slikri bók frá hans
hendi — einkum og sér i lagi ef hann yrði ekki allt of orðvar.
ÖRVAR HEFUR 0RDID t
Fréttir fréttastoíu
Reuters og annarra svo-
kallaðra alþjóðlegra
fréttastofnana af Islands-
miðum hafa vakið mikla
furðu Islendinga. Okkur
er það öllum mætavel
ljóst, að fréttir þessar eru
mjög hlutdrægar okkur i
óhag og að þeir frétta-
menn, sem fréttirnar
semja og senda, fara vis-
vitandi með rangt mál.
Þvi hefur verið, haldið
fram, að hægt sé að villa
þeim sýn t.d. um það,
hvaða aðili raunverulega
valdi árekstrum — her-
skip eða varðskip. Það
getur þó vart verið rétt.
Fréttamenn eru ekki þeir
bjánar að hægt sé að fela
það fyrir þeim, þegar
brezkt herskip leggur
islenzkt varðskip i einelti
i þeim tilgangi að sigla á
það og brýtur við það
verk allar siglingareglur.
Slikt framferði dylst ekki.
Þegar fréttamaður um
borð i brezku herskipi,
sem siglt hefur á islenzkt
varðskip, ber þær fregnir
að varðskipið hafi valdið
árekstrinum, þá hefur
ekki verið villt um fyrir
honum. Þvert á móti er
hann visvitandi að reyna
að villa um fyrir öðrum.
Hinn rangi frétta-
flutningur hinna al-
þjóðlegu fréttastofnana
af atburðunum á Islands-
miðum hefur orðið til
þess, að tslendingar eru i
fullri alvöru farnir að
leiða hugann að þvi, hvort
svo sé ekki um fleiri
fregnir þessara virtu
fréttastofnana,sem menn
hafa talið, að reyndu að
skýra hlutdrægnislaust
frá atburðum. Hvað t.d.
um fregnir þær, sem
þessar fréttastofur flytja
um önnurátök viðs vegar
um heim? Er fréttaþjón-
usta Reuters um at-
burðina á Irlandi óhlut-
dræg og byggð á raun-
sönnu mati, svo dæmi sé
nefnt? Eða allt frétta-
flóðið frá Vietnamstyrj-
öldinni, frá ástandinu i
ýmsum rikjum Afriku og
Suður-Amerlku? Skyldu
þeir fréttamenn, sem
gera sig bera að
ósannindum á lslands-
miðum, söðla um og
gerast sagnarandar
sannleikans þegar þeir
eru komnir á aðrar
slóðir? Hætt er við, að svo
sé ekki. Hætt er við þvi,
að sú heimsmynd, sem
þessar „virtu” og „viður-
kenndu” fréttastofnanir
gefa t.d. okkur lslending-
um sé meira en litið horn-
skökk.
Kannski höfum við
Islendingar lært það af
þessari reynslu að taka
ekki öllu þvi sem
heilögum sannleika, er
erlendar fréttastofur
fræða okkur á mörgum
.cinniim á Hafl
FIMM á förnum vegi
Egill Gunnsteinsson, bifreiöa-
smiður: Já/ég reikna fastlega
með þvi, en þegar mér verður
kalt, þá er það helzt á höndum
og fótum. Ég álit annars að við
tslendingar klæðum okkur al-
veg nógu vel.
Filippus Jóhannsson, vöruaf-
greiðslumaður: Já, það held ég
alveg örugglega, en stundum
kemur þó fyrir að ég finni fyrir
kulda á fótunum, en við tslend-
ingar ættum alveg að kunna að
klæða af okkur kuldann.
Guðni Stefánsson, nemi: Já, ég
er alveg nógu vel klæddur, en ef
mér verður kalt, þá er það helzt
á tánum. Mér er ekkert kalt þó
að ég sé bara á peysunni núna
enda fæ ég aldrei kvef.
Klæðir þú þig nógu vel?
Ilaukur Þór Þorgrlmsson,
nemi: Ég klæði mig yfírleitt
nógu vel, en stundum kemur þó
fyrir að mér sé kalt þegar það er
frost úti, og fæ ég þá einstaka
sinnum kvef. Mér verður helzt
kalt, þegar ég fer á skauta, og
þá á tánum.
Steinunn Jóhannesdóttir, sima-
mær með meiru: Nefekki get ég
sagt það, mér er yfirleitt alltaf
skitkalt, og þarf ég á talsvert
meiri varma að halda, þar sem
„föðurlandið” dugir ekki til i
þessum miklu vetrarkuldum.
Birt aftur vegna rangra mynda í gær