Alþýðublaðið - 13.02.1976, Qupperneq 11
Margt ðvænt
getur enn
r
gerzt í Is-
landsmótinu
Nú eru aðeins tvær
umferðir eftir af íslands-
mótinu í handknattleik.
Fjögur félög, FH, Valur,
Víkingur og Fram hafa öll
góðan möguleika á að
hreppa þennan eftir-
sóknarverða titil. Fáir
höfðu búizt við, að með
tapi sínu gegn Gróttu, ekki
alls fyrir löngu, hefði Vik-
ingur möguleika á sigri í
mótinu.
Jafnvel hörðustu Vikinbsunn-
endur og leikmennirnir sjálfir
hafa örugglega ekki gert sér
miklar vonir um það. En allt i
einu, án þess að menn átti sig, eru
þeir komnir með allgóða mögu-
leika. Svipaða sögu er hægt að
segja um Fram. Fáir höfðu btiizt
við i upphafi mótsins, að þeir
kæmu til með að blanda sér i
toppbaráttuna. En það, sem gerzt
hefur i siðustu leikjum mótsins
hefur gefið þeim þokkalega
möguleika á sigri.
FH sténdur að sjálfsögðu bezt
að vigi, en þeir eiga eftir að leika
við Þrótt i Hafnarfirði og Fram i
Reykjavik.
Valur stendur næst bezt að vigi.
Þeir eiga eftir að leika gegn
Víking og Armanni.
Vikingur á eftír að leika gegn
Fram og Val.
Fram á eftir að leika gegn
Viking og FH.
Ef miðað er við gang islands-
mótsins til þessa, væri ekki skyn-
samlegt að slá þvi föstu að t.d. FH
eða Valur- sigri. Vikingur og
Fram geta allt eins unnið mótið.
Mikið mun að sjálfsögðu velta á
leik þessara liða innbyrðis, sem
leikinn verður á mánudaginn
kemur, og það lið, sem tapar
honum, er þar með tir leik.
Grótta, með sigur i tveimur
siöustu leikjum, stendur betur að
vigi i botnbaráttunni, en Armann
er ekki fallið ennþá. Aðeins eitt
stig skilur félögin að. Grótta á
eftir að leika gegn Þrótti i
Reykjavik og Haukum i Hafnar-
firði.
Ármann á eftir að leika gegn
Val, og Haukum i Reykjavik.
Allt getur ennþá gerzt i tslands-
mótinu, og þær tvær umferðir
sem eftir eru, verða vafalaust
mjög spennandi.
Staðan að loknum 12
umferðum:
FH 12 8 04 266:235 16
Valur 12 7 1 4 236:212 15
Fram 12 6 2 4 214:201 14
Vikingur 12 7 0 5 249:243 14
Haukar 12 5 2 5 225:216 12
Þróttur 12 4 2 6 230:238 10
Grótta 12 4 0 8 219:240 8
Armann 12 3 1 8 1 96:250 7
Páll Björgvinsson og félagar hans í Viking, eiga all
sæmilega möguleika til að verja Islandsmeistara-
titilinn, nokkuð sem fáir höfðu búizt við eftir tap
liðsins gegn Gróttu ekki alls fyrir iöngu.
Föstudagur 13. febrúar 1976
-
SÍm SÍMMwmmMBHHBSKðml
Nú er gullið tækifæri til að reyna einhverjar breytingar i Reykjavikurmótinu eða Litlu Bikarkeppninni,
sem geta haft það i för með sér, að meir verði um sóknarknattspyrnu en verið hefur.
Nýjung sem mætti reyna í Reykjavfkurmótinu
AUKASTIG REYND I
DEILDAKEPPNINNI?
Fyrir nokkrum árum, eða
kringum árið 1970, hófu Grikkir,
fyrstir allra Evrópubtia breyt-
ingar á fyrirkomulagi deildar-
keppninnar hjá sér, sem miðuðu
að þvi, að auka skoruð mörk i
hverjum leik. Þær voru þannig,
að lið, sem gerði þrjú mörk eða
fleiri og vann fékk aukastig.
Þannig gat það félag, sem vann
með þriggja marka mun, fengið
þrjti stig fyrir leikinn. Jafnvel fé-
lag sem tapaði, en gerði samt
þrjú mörk, gat einnig fengið eitt
stig, þrátt fyrir að það tapaði.
Þetta örvaði félögin. i að leika
meiri sóknarknattspyrnu, og leik-
irnir urðu mun fjörugri og
skemmtilegri. Ahorfendur létu
heldur ekki á sér standa. Þeim
fjölgaði mjög hjá sumum liðun-
um, sem þekkt voru fyrir góðan
og skemmtilegan sóknarleik.
Þetta hafði lika þau áhrif i för
með sér að styrkleiki knattspyrnu
i landinu jókst, og reikningar fé-
laganna stórbötnuðu. Allir vita,
að knattspyrnan i Grikklandi hef-
ur tekið stórstigum framförum á
siðustu árum, eins og úrslit leikja
þeirra i 8. riðli Évrópukeppni
landsliða sannar. Þessar breyt-
ingar eru að verulegu leyti þakk-
aður hinni öru framþróun i-
þróttarinnar þar i landi.
Grikkir breyttu ekki alls fyrir
löngu reglum þessum, þannig, að
þau lið, sem töpuðu en gerðu samt
þrjú mörk fengu ekkert stig.
Ástæðan var sú, að álitið var að
eitthvað svindl ætti sér stað i
sambandi við þetta atriði. Mörk-
in, sem liðin i botnbaráttunni
skoruðu voru oft óeðlilega mörg.
Þrátt fyrir að þau töpuðu. Það
var jafnvel álitið, að þau lið
keyptu mörk, til þess að reyna að
forða sér frá falli. Eftir er, sem
sagt það, að aðeins sigurlið á
möguleika á að fá aukastig, ef
það skorar þrjú mörk eða fleiri.
Þetta þykir gefast sérstaklega
vel.
Frakkar hafa lika
tekið þetta upp
hjá sér
Nokkru eftir að Grikkir hófu að
leika eftir þessu fyrirkomulagi,
kynntu Frakkar sér það, og hafa
nti leikið eftir þvi i hartnær tvö
ár. Eins og i Grikklandi, hafa
þessar breytingar haft mjög góð
áhrif. Vitað er t.d., að siðan
keppnistimabilið hófst hjá þeim i
haust, hefur aðsókn að leikjum
hjá þeim i 1. deildinni, aukizt um
heilar lOmilljónir, aðeinsfram að
áramótum. Knattspyrnan hefur
einnig vaxið að breidd og styrk-
leika hjá þeim. Jafnvel Italiu, þar
sem varnarleikurinn hefur tröll-
riðið hvað mest, velta þeir þvi
mikið fyrir sér, hvort ekki sé
timabært fyrir þá að leika eftir
þessu fyrirkomulagi og er búizt
við þvi, að þeir taki ákvörðun um
það innan skamms. Frændur vor-
ir Sviar, hafa verið með tilr. i
þessa átt i sumum yngri flokka
keppnum. Ekki hafa enn borizt
fréttir um hvernig til tókst, en
fastlega má búast við, að það hafi
ekki svikið, frekar, en i Frakk-
landi og Grikklandi.
Samfara þessum breytingum,
hefur knattspyrnuforysta nokk-
urra landa hugsað allverulega og
alvarlega um það, hvort ekki
megi lika breyta á einhvern hátt
rangstöðulögunum, til þess að
auka skoruð mörk i hverjum leik.
Nefnd hefur verið sti tiilag, að
ekki sé hægt að vera rangstæður
fyrr en innan vitateigs andstæð-
ingsins. Æ fleiri, knattspyrnufor-
ystumenn hallast að þvi, að
minnsta kosti sé einhverra breyt-
inga þörf, til þess að auka marka-
tölur i leik. Ef ekki verða ein-
hverjar stórvægilegar breytingar
á leikskipulagi nokkurra landa i
Evrópu, má fastlega búast við, að
fljótlega verði báðar þessar
breytingar, sem að framan grein-
irteknar upp i fleiri löndum, áður
en langt um liður.
Hvernig væri aö gera
tilraun meö þessar
breytingar á islandi?
Siðustu tvö til þrjú árin hafa
heyrst háværar óánægjuraddir,
um leikkerfi islenzku 1. deildar-
liðanna. A þessum árum hefur
varnarleikurinn verið i hávegum
hafður”, og margir knattspyrnu-
unnendur átt erfitt með að kyngja
þvi og vilja breytingar á. Áhorf-
endum hefur einnig fækkað á
leikjunum, og er það bein afleið-
ing af varnarleiksaðferðinni. Það
væri þvi vel athugandi. hvort ekki
mætti fórna — ef um fórn er að
ræða — mótum, eins og Revkja-
vikurmótinu og Litlu Bikar-
keppninni i að reyna þessar
breytingar, þótt ekki væri nema
það fyrirkomulag. sem gefur
aukastig. Bæði þessi mót hafa
þótt leiðinleg, og litiil áhugi þeim
sýndur bæði hjá leikmönnum og
áhorfendum. Þjálfarar liðanna
hafa heldur ekki tekið þau hátið-
lega. Aðeins notað þau til þess að
prófa sig áfram með leikmenn og
leikaðferðiÉ en um knattspyrnu-
legt gildi mótanna efast vist
margir. Malarvellirnir
eru oft mjög slæmir og ekki hjáip-
ar það tií. Þau eru samt ekki al-
veg gagnsiaus, þvi þá mvndu fé-
lögin ekki taka þátt i þeim. Þau
þjappa leikmönnunum meir sam-
an. leikrevnsla fæst. ágætis út-
haldsæfing, og góður undirbún-
ingur fyrir tslandsmótið að þvi
leyti, að leikmennirnir fá leik-
þekkingu eftir langan vetur.
Vitað er að einhverjir forvstu-
manna i Knattspyrnuráði
Reykjavikur hafa verið að athuga
þetta og væri óskandi að þeir
revndu einhverjar breytingar, þó
ekki væri nema að vikja örlitið
frá hefðbundnum leiðum. Fullvist
má telja, að áhorfendur og leik-
menn sjálfir séu fylgjandi þess-
um breytingum og þá hefðu blöð
og unnendur iþróttarinnar eitt-
hvað meir að tala um en 0:0 leik-
inn upp á Melavell i gærkvöldi.
óöum liður aö þvi
aö knattspyrnuvertíðin
hef jist
Senn liður að þvi, að knatt-
spyrnuvertiðin hefjist. Nær öll 1.
deildarfélögin hafa nú þegar. eöa
eru um það leyti að byrja æfingar
af fullum krafti. Innanhúsknatt-
spyrnumót Islands verður um
næstu helgi. Meistarakeppni
K.S.I., hefst 13. marz með leik
t.B.K. og Fram i Keflavik. Auk
þessara tveggja er Akranes einn-
ig i keppninni. Reykjavikurmótið
hefst svo 3. april, ig Islandsmótið
15. mai.
Alþýðublaðið á hvert heimili }
Alþýðublaðiö