Alþýðublaðið - 21.04.1976, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 21.04.1976, Blaðsíða 5
Hnffið* Miðvikudagur 21. apríl 1976 umrAðamenn skotvopna ABYRGIST VÖRZLU ÞEIRRA í núgildandi lögum um skot- vopn er ekki að finna nokkurt ákvæði um að umráðamenn skotvopna ábyrgist vörzlu þeirra. Þess vegna er það ekki brot á lögum að hafa byssur og skotfæri stillt út i verzlunar- glugga þar sem auð- velt er að ná til þeirra ef vilji er fyrir hendi. Einstaklingar sem eiga skotvopn hafa heldur ekki verið skyldaðir til að ábyrgjast aö þau séu geymd á öruggum stað. Bjarki Eliass. yfirlögregluþj. sagði i samtali við Alþ.bl., að fram til þessa hefði lög reglan orðiö að láta nægja ábendingar til manna um að gæta skotvopna sinna vel. Hann sagði ennfremur, að i Sviþjóð 300 ISLEND- INGAR MEÐ MÆNUSIGG MS — félag (Multiple Sclerosis) íslands efnir til fjársöfnunar á sum- ardaginn fyrsta, 22. april nk. með Bingó- kvöldi i Sigtúni. Er fjársöfnunin gerð til styrktar MS-sjúkling- um, en það eru þeir sjúklingar kallaðir sem hafa sjúkdóm þann, er nefndur er heila- og mænusigg. Um 300 Islendingar eru haldn- ir sjúkdómi þessum en hið al- þjóðlega heiti hans er Multiple Sclerosis. Prófessor Kjartan R. Guðmundsson, yfirlæknir, var forgöngumaðurinn að stofnun styrktarfélags, þessum sjúk- lingum til handa. Sjúkdómur þessi stafar senni- lega af veiru, þótt ekki sé það enn endanlega fullsannað. Hann veldur skemmdum I heila og mænu og herjar á fólk á bezta aldri og veldur þvi margvislegri fötlun. Enn er enginn sérhæfö meðferð til við þessum sjúk- dómi, en sjúklingar jafna sig oft vel eftir áföll af hans völdum og með markvissri endurhæfingu er oft hægt að hjálpa þeim svo, að þeir geti haldið starfsgetu sinni að miklu leyti um langt skeið. Markmið MS-félags tslands er að bæta aðstöðu þessara sjúklinga og vill félagið nú reyna að gera stórt átak til að koma upp fullkominni endur- hæfingaraðstöðu i húsi Sjálfs- bjargar að Hátúni 12 i Reykja- vik. 1 þeim tilgangi er fyrmefiit Bingó haldið. 1 stjóm styrktarfélagsins eru nú Sverrir Bergmann, læknir, Sigriður Stephensen, hjúkrun- arfræðingur og Ólöf Rikharðs- dóttir, fulltrúi. —GAS. væri n-ybúið að lögfesta ákvæði þess efnis, að umráöamenn skotvopna væru skyldugir til að geyma þau i sérstökum læstum geymsluskápum. Enda væri talsvert um það þar i landi að bófaflokkar brytust inn i leit að vopnum. Ný lög Fyrir Alþingi liggur nú frum- varp til laga um skotvopn, sprengiefni og skotelda sem ætl- unin er að afgreiða sem lög fyrir þinglok. Núgildandi lög eru frá árinu 1936 og i þeim er ekki að finna ákvæði um ýmis atriði, sem nauðsynlegt er að skýrar reglur séu um. I frumvarpinu segir m.a.: Aðeins má veita þeim einstak- lingi leyfi til þess að eignast skotvopn, er sýnir fram á, að honum sé það gagnlegt eða nauðsynlegt. Þá er tekið fram, að eig- endum skotvopna er óheimiit að lána þau til afnota. 1 22. gr. frumvarpsins segir svo: Eigendur eöa umráðahafar -skotfæra og skotvopna skulu ábyrgjast vörzlu þeirra og sjá svo um að óviðkomandi aðilar nái eigi til þeirra. Lög þessi eiga að öðiast gildi þann 15. júni 1976. Ákvæði til bráðabirgða 1 frumvarpinu segir ennfrem- ur: öll skotvopnaleyfi, sem gefin hafa verið út fyrir gildis- töku laga þessara, skulu falia úr gildi 1. júni 1977. Fyrir þann tima skulu þeir, sem óska eftir framlengingu leyfa, sækja um þaö til viðkomandi lögreglu- stjóra. Nú sækir maður eigi um leyfi eða er synjað um það, skal hann þá tafarlaust skila lög- reglu þeim skotvopnum og skot- færum, sem hann hefur undir höndum. Þetta frumvarp hefur hlotið góðar undirtektir alþingis- manna. —SG Byggingarframkvæmdum Öskju hlfðarskóla verði tafarlaust haldið áfram Á siðustu árum hefur áhugi almennings farið mjög vaxandi fyrir vandamálum barna og ung- linga, sem eiga við ýmiss likam- leg eða andleg vandamál við að striða. Meðal þeirra aðila, sem hvað bezt hafa unnið að fram- gangi þessara mála eru samtök sem nefnast Foreldrasamtök barna með sérþarfir. A aðalfundi þessara samtaka, sem haldinn var 28. mars s.l.var gerð samþykkt um að skora á stjórnvöld og aðra, sem fjalla um málefni barna með sérþarfir, að hafa foreldra þessara barna ætiö með i ráðum um aðbúnað þeirra og meðhöndlun. Þá samþykkti fundurinn, að krefjast þess, að byggingarfram- kvæmdum við öskjuhliðarskóla verði tafarlaust haldið áfram, ella sé um vitaverða vanrækslu að ræða. Varðandi fyrra atriðið vilja for- eldrasamtökin benda á það, aö sérþekking á þessum málum getur ekki falið i sér reynslu og tilfinningar foreldranna. Má glöggt sjá það, ef litið er yfir farinn veg. Óraunhæft er einnig aðákvarða meðferð barnanna án samráðs við foreldra, eins og gert er þegar um heilbrigö börn er að ræða, vegna þess, að allir eiga heilbrigð börn, en fáir hafa reynslu af að eiga vanheilt barn. Kröfuna um það, að bygginga- framkvæmdir séu ekki stöðvaðar við öskjuhliðarskóla ætti ekki að þurfa að rökstyðja. Nægir að minna á þann fjölda barna, sem þurfa kennslu og þjálfunar með, en komast hvergi fyrir. Ein- hverjum foreldrum heilbrigðra barna myndi þykja nóg um, ef börn þeirra fengju ekki að fara i skóla af þvi að ekki væru til peningar til að byggja skóla húsnæði. —BJ Söluskattur Viðurlög falla á söluskatt fyrir marzmán- uð 1976, hafi hann ekki verið greiddur i siðasta lagi 26. þ.m. Viðurlög eru 2% af vangreiddum sölu- skatti fyrir hvern byrjaðan virkan dag eft- ir eindaga unz þau eru orðin 10% en siðan eru viðurlögin 1 1/2% til viðbótar fyrir hvern byrjaðan mánuð, talið frá og með 16. degi næsta mánaðar eftir eindaga. Fjármálaráðuneytið, 20. april 1976. Laust embætti er forseti íslands veitir Prófessorsembætti I lögfræði við lagadeild Háskóla ís- lands er laust til umsóknar. Gert er ráð fyrir að kennslu- greinar verði á sviöi fjármunaréttar eða réttarfars. Laun skv. launakerfi starfsmanna rikisins. Umsóknarfrestur er til 15. mai n.k. Umsækjendur um prófessorsembættið skulu láta fylgja umsókn sinni rækilega skýrslu um visindastörf þau er þeir hafa unnið, ritsmiðar og rannsóknir, svo og námsferil sinn og störf. Menntamálaráðuneytið 12. april 1976. Styrkir til háskólanáms í Búlgarfu Búlgörsk stjórnvöld hafa tilkynnt að þau bjóði fram i nokkrum löndum er aðild eiga að UNESCO fjóra styrki til báskólanáms i Búlgariu háskólaárið 1976-77. Ekki er vitað fyrirfram hvort einhver þessara styrkja muni koma I hlut islendinga. — Styrkir þessir eru eingöngu ætlaðir til náms I búlgörsku, búigörskum bókmenntum, listum og sögu og eru veittir til sex mánaða námsdvalar. Styrkfjárhæðin er 120 levas á mánuði. Umsækjendur skulu hafa lokið háskólaprófi áöur en styrk- tímabil hefst og hafa góða þekkingu á búlgörsku, frönsku, ensku, þýsku eða rússnesku. Umsóknir um styrki þessa, ásamt staðfestum afritum prófskirteina, vottoröi um tungumáiakunnáttu, meðmæl- um og heilbrigðisvottorði skulu sendar menntamálaráðu- neytinu, Hverfisgötu 6, Reykjavik, fyrir 3. mai n.k. Sér- stök umsóknareyðublöð fást í ráðuneytinu. Menntamálaráðuneytið, 13. april 1976. TRÉSMIÐJA BJÖRNS ÓLAFSS0NAR REYKJAVÍKURVEGI 68 - SÍMI 51975 HAFN ARFIRÐI HÚSBYGGJENDUR! Munið hinar vinsælu TI- TU og Slottlistaþétting- ar á öllum okkar hurð- um og gluggum. * Ekki er ráð nema i tíma sé tekið. Pantið timanlega. Aukin hagræðing skapar lægra verð. Leitið tilboða. Riol Volkswageneigendur Höfum fyrirliggjandi: Bretti — Hurðir — Vélarlok — Geymslulok á Wolkswagen i allflestum litum. Skiptum á einum degi með dagsfyrirvara fyrir ákveöið verö. Reynið viðskiptin. Bilasprautun Garðars Sigmundssonar. Skiphoiti 25 Simar 19099 og 20988.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.