Alþýðublaðið - 21.04.1976, Side 20

Alþýðublaðið - 21.04.1976, Side 20
Rætt við forseta Alþjóðasamtaka neytendafélaga: MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL Matvælaframleiðendur að hverfa frá notkun litar- og rotvarnarefna „Matvælaframleiðendur hafa á undanförnum árum reynt að draga lir notkun hvers konar lit- arefna, rotvarnarefna og ým- issa „kemiskra” efna. Þetta er meðaí annars afleiðing þess, aö neytendur hafa gert kröfur um að matvælum verð ekki spillt með efnum, sem i flestum til- vikum eru aöeins notuð til að bæta útlit vörunnar”. Þannig komst Willy van Ryckeghem, forseti Alþjóða- samtaka neytendafélaga, að orði, er Alþýðublaðið ræddi við hann fyrir skömmu. Ryckeg- hem kom viö i Reykjavik á leið sinni til Bandarikjanna frá Belgiu. Hann er hagfræði- prófessor við Vrije-háskólann i Brússel og hefurum árabil tekið virkan þátt i starfi Alþjóðasam- taka neytendafélaga sem is- lenzku Neytendasamtökin eiga aðild aö. Gæðin óbreytt! Van Ryckeghem sagði, að sér virtust vörugæði ekki lengur aukast, þau stæðu f stað. Nefndi hann f þvi sambandi bila, hvers konar heimilistæki og húsgögn. í þessum efnum virtust fram- leiðendur vera komnir að mörk- um tæknilegra framfara. Yfir- lýsingar um aukna tækni og meiri gæði væru oftar en ekki i- myndun ein. Þetta ætti meðal annars við um hljómflutnings- tæki, þar sem verið gæti aö nál- aroddum væri breytt, en öðru ekki. Neytendasamtök almennings og hins opinbera Van Ryckeghem sagði, að i hverju landi þyrftu aö vera til tvenns konar neytendasamtök. 1 fyrsta lagi samtök áhuga- manna, sem gerðu ýmsar at- huganir og rannsóknir, veittu lögfræðilega þjónustu og aðra aðstoð, og i ööru lagi stofnun hins opinbera, er fylgdi eftir löggjöf um neytendamál. I þessu sambandi gat hann þess, að nauðsynlegt væri i flestum löndum að setja mun ákveðnari löggjöf um rétt neytenda gagn- vart framleiðendum, þ.e. að gera þá ábyrgarigagnvart eigin framleiðslu. Hafa starfað i 16 ár Alþjóðasamtök neytendafé- laga hafa starfað siðan 1960. Fé- lög i 100 löndum eru nú i þessum samtökum, sem halda aðalfundi á 2-3 ára fresti. 1 Haag vinnur samstarfsnefnd, sem hefur einkum það hlutverk að hafa góð tengsl við sambandsfélögin, gefa út fréttablað og upplýs- ingarit. Þaðan er dreift ýmsum fröðleik til allra aöildarland- anna. Athuga framleiðslu fjölþjóðafyrirtækja Van Ryckeghem sagði, að eitt af helztu verkefnum Alþjóða- samtakanna væri að fylgjast með framleiðslu fjölþjóöafyrir- tækja og fyrirtækja, sem seldu vörur sinar um allan heim. Eitt veigamesta verkefnið á þessu sviði á siðari árum hefur verið könnun á framleiðslu lyfja, sem seld eru viða um heim. Nefndi hann sem dæmi rann- sókn á sterku fúkkalyfi, sem læknar hafa gefiö við matareitr- un. Þetta lyf hefur valdið biindu hjá nokkrum sjúklingum i Japan. Þegar farið var að kanna málið kom i ljós, að framleiðendur höfðu ekki látið fylgja nógar leiöbeiningar um notkun lyfsins, og i Japan höfðu sjúklingar fengið þaö i of stór- um skömmtum. Við rannsókn, sem siðar var gerð i fjölmörgum aðildarlönd- um samtakanna, varð ljóst, aö framleiðendur létu nægja að senda ófullkomnar leiöbeining- ar með lyfingu til þróunarland- anna, en á vesturlöndum voru leiðbeiningarnar fullnægjandi. Fleiri sltk lyf hafa veriö athug- uð. Samtökin héldu sfðan blaða- mannafund i Genf um máliö. Skýrðu frá nafni verksmiðjunn- ar, sem lyfið framleiddi og kynntu Alþjóða-heilbrigðis- málastofnuninni niðurstöðuna. Kanna mengunarmál Eitt af þvi, sem Alþjóðiisam- tökin fylgjast með eru umhverf- is- og mengunarmál. Þau safna upplýsingum frá öllum aðildar- löndum um hvaða reglur og lög þar gilda. Það bezta og gagnleg- asta er siðan bókfært og upplýs- ingar um það sendar aðildarfé- lögum. Annað dæmi nefndi Van Ryckeghem. Samt. iétu gera at- hugun á notkun heyrnartækja i fjölmörgum löndum hvað þau kostuðu, með hvaða kjörum fdlk fengi þau, hve stóran hlut hiö opinbera greiddi af þeim og svo framvegis. Upplýsingar væru siðan dregnar saman og sendar aðildarfélögum til frdðleiks og notkunar i baráttu fyrir bættri löggjöf. — Þá sagði hann, aö nú færi fram könnun á almennings- vögnum og þjónustu þeirra. Starfið beinist að 3ja heiminum Van Ryckeghem sagði, að nú beindist starf samtakanna eink- um að þriðja heiminum. Þar væri stór óplægður akur og neyt- endavernd litil sem engin. Þar er reynt að vinna i samvinnu viö skipulagðar verkalýðshreyfing- ar og vekja fólk til umhugsunar um rétt sinn. Stjórnir Austur- rikis, Hollands og Kanada hafa lagt til starfsfólk, sem vinnur i ýmsum löndum Suð-austur Asiu. Þar beinist athyglin einkum að matvælum, en matvæla- framleiðslan er viða mjög bág- borin og hefur oft reynst lifs- hættuleg. — Hann sagði, að i starfi sinu reyndu Alþjóðasam- tökin að komast hjá afskiptum af stjórnmálahreyfingum, en þau hefðu hins vegar haft sig i frammi, ef starfsfólk neytenda- samtaka hefðu orðið fórnar- lömb stjórnmáladeilna. Þannig hefðu þau meðal ann- ars haft áhrif til þess að forystu- mönnum neytendasamtakanna i Grikklandi var sleppt úr fang- elsum herforingjastjórnarinnar fyrrverandi, en herforingjarnir töldu þetta fólk hættulegt stjórninni. Einnig hefðu Al- þjóöasamtökin skorizt i leikinn, þegar húsmæður i Madrid á Spáni voru hnepptar i varðhald fyrir að mótmæla hækkuðu vöruverði. Engin neytendasamtök i Rússlandi Van Ryckeghem sagöi, að það færi þó ekki hjá þvl, að neyt- endamál tengdust baráttu al- mennings fyrir bættum lifskjör- um. Þannig heföu samtökin til dæmis haft náin tengsl við Soares i Portúgal. Þá gat hann þess, að þótt neytendasamtök væru mjög sterk og áhrifamikil viða i Vest- ur-Evrópu, dragi úr mætti þeirra eftir þvi sem austar dragi i Evrópu. 1 Júgóslaviu, Ungverjalandi og Póllandi eru samtök, sem að nafninu til væru i tengslum við alþjóðasamtökin. 1 öðrum Austur-Evrópulöndum væru þau ekki til og þá ekki i Rússlandi. Eitt af framtfðarverkefnum alþjóðasamtakanna kvað Van Ryckeghem vera það, að fá samþykkta á vettvangi Samein- uðu þjóðanna neytendalöggjöf, sem gæti orðið fyrirmynd slikr- ar löggjafar i öllum aðildar- löndum samtakanna. Þá fyrst hefði verulegur árangur náðst. Vill birta nöfn Þegar Van Ryckeghem var i Reykjavik voru birtar upplýs- ingar úr könnun sem islenzku neytendasamtökin höfðu látið gera á nokkrum matartegund- um. — Honum var greint frá niðurstöðu könnunarinnar, og hann spurður hvað gert hefði verið i hans heimalandi, Belgiu, ef slíkt mái hefði rekið á fjörur. — Hann sagöi, að auðvitað heföi veriö greint frá niöurstöðu slikrar athugunar og látið f ylgja hvaða fyrirtæki heföu framleitt slikar matvörur. Annars væri könnunin marklaus og allir und- ir grun og það væri lakara. —AG. alþýdu blaöið Tekið Eftir: Að um nokkurt skeið hefur hvorki hósti né stuna heyrzt fá Ilannesi Jónssyni, útlaga- stjórn i Moskvu. Skyldi Einar Agústsson hafa náð friðarsamningum við útlagastjórnina? LESIÐ: 1 „NEISTA” — málgagni Fylkingarinnar, sem gerzthefur stuðnings- aðili að Fjórða alþjóða- sambandinu (alþjóða- sambandi Trotskíista)-að Fylkingin hafi boðið ýmsum róttækum vinstri hópum samstarf um kröfu- göngu 1. mai. Einingar- samtök kommúnista neituðu (eru það nú einingarsamtök! segir NEISTI), KSML (b) neituðu lika. „En maó- istarnir sátu ekki auðum höndum”, segir NEISTI, heldur „bræddu saman grundvöll”. Um þann bræðing segir NEISTI: „Ekki þarf að fara mörgum orðum um grund- völl maóistánna. Hann er venjulegur maóiskur bræðingur með skiptingu baráttunnar i alls kyns hólf með risaveldakenningunni og öllu tilheyrandi.” Ja, hérna. Lifið verður ekki léttara, þótt menn hafi höndlað hann stórsannleik. HEYRT: Að vera kunni, að bilnúmeramálið verði tekið upp til endurat- hugunar á Alþingi, en eins og kunnugt er mælti alls- herjarnefnd neðri deildar alfarið gegn þvi, að nýtt kerfi bllnúmera yröi tekið upp. LESIÐ: í DAGBLAÐINU, að Kristinn ólafsson, toll- gæzlustjóri, á allt eins von á því, að nýtilkomin verð- hækkun á áfengi og tóbaki verði til þess, að smygltil- raunir aukist að mun. VEITT ATHYGLI: Þvi klókindabragði Jóns Sól- ness, formanns Kröflu- nefiidár, að beita formanni Alþýðubandalagsins, Ragnari Arnalds, til varnar fyrir nefndina í um- ræðum um Kröflumálin á Alþingi. Með þvi var Jón aö sjálfsögðu að reyna að draga kjarkinn úr Alþýðu- bandalagsmönnum, sem margir hverjir eru mjög á móti Kröfluævintýrinu en urðu að sitja á sér til þess að lenda ekki i' opinberri deilu við flokksfor- manninn. HEYRT: Að ólíklegt sé, að tillögurnar um bann við þorekveiðum I troll finni náð fyrir augum sjávarút- vegsráðherra. Matthias Bjarnason mun vera þeirrar skoðunar, að sUk tilskipunarst jórn á veiðunum sé það vit- lausasta, sem hægt sé aö gera — og láum við honum ekki þótt hann telji svo vera.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.