Alþýðublaðið - 28.05.1976, Blaðsíða 3
FRÉTTIR 3
biamð" Fimmtudagur 27. maí 1976.
Iceland Shipping
kan tjene 200
mill. pá Reksten
Skipsreder Hilmar Reksten har har Iceland Shipping krav pá
300
Fyrirtæki kennt
við ísland
braskar í Noregi
Fyrirtæki að nafni „Iceland
Shipping” hefur keypt fjár-
skuldaábyrgðir aöupphæð um 300
milljónir norskra króna af skipa-
útgerð Rekstens i Noregi.
Reksten sem er eigandi að
stórum tankskipum og frakt-
skipum á nú við mikla fjárhags-
erfiðleika að etja og keypti „Ice-
land Shipping” þessar ábyrgiir
fyrir um 30—40% af nafnverði
þeirra og mun hafa borgað um 100
mill jónir norskra króna fyrir þær.
Fjárhæð sú er um 3,2 milljarðar
ef mæld er i Islenzkum krónum.
6.400 milljóna kr.
gróði
„Iceland Shipping” gerir ráð
fyrir þvi að skipafloti Rekstens
komist i gagnið innan skamms,
en það þýðir aðReksten verður að
greiða ábyrgðirnar fullu verði og
þannig verður hagnaður „Iceland
Shipping” um 200 milljónir
norskra króna, eða um 6,4
milljarðar islenzkra króna.
Hilmar Reksten útgerðar-
maður neitar þvi að hann eigi hlut
I „Iceland Shipping” og segist
ekki munu hafa nein áhrif á þær
ákvarðanir sem teknar verða af
þvi fyrirtæki um framtlð hans,
Norsk skattayfirvöld leita nú að
500milljónum norskra króna sem
virðast hafa horfið úr reikning-
um hjá Reksten-útgerðinni og
hefur það valdið þeim miklum
heilabrotum.
íslenzkt fyrirtæki?
Blaðið reyndi að afla sér upp-
lýsinga um fyrirtækið „Iceland
Shipping”, en það er ekki skráð i
firmaskrá hér né heldur I fyrir-
tækjaskrá Hagstofu
tslands. Engin skip munu heldur
vera skráð I eigu þess hér á landi
og ekki verður séð að það hafi
haft nein umsvif hér.
Skattayfirvöldum þætti þó trú-
lega feitur biti ef fyrirtækið væri
á einhvern hátt I islenzkri eigu.
EB
Skrifstofa Samvinnuferða opnuð:
Förum ekki af
stað með gný
og lúðrablæstri
„Stofnun ferðaskrifstofu
samvinnumanna á nokkuð
langan aðdraganda”, sagði
Erlendur Einarsson, forstjóri
SIS og stjórnarformaður
ferðaskrifstofunnar við blaða-
menn, þegar ferðaskrifstofan
var opnuð að Austurstræti 12 i
fyrrakvöld.
,,Það er ekki ætlun okkar”,
hélt Erlendur áfram, ,,að fara
af stað með neinum gný eða
lúðrablæstri. En við vonum,
að endingin verði þvi betri.
bó við beitum okkur nú i upp-
hafi fyrir sólarlandaferðum, er
siður en svo, að við gleymum
tslandi. Við munum beinlinis
leggja áherzlu á, að auka ferða-
mannastraum til tslands og
ferðir landsmanna um landið.
Að öðru leyti er á dagskrá
okkar almenn feröaþjónusta,
auk fyrirgreiðslu við samvinnu-
menn. Við munum og kappkosta
að hafa sem bezt samband við
flugfélög, og stilla veröi
þjónustu okkar eins i hóf og
mögulegt er. Fyrst um sinn eru
Spánarferðir á dagskrá og siöar
feröir til Portúgal og Kanari-
eyja. Barna- og fjölskyldu-
afsláttur veröur veittur af
ibúðaverði.
Ráðstefnuhald fyrir
innlenda og erlenda er einnig á
okkar dagskrá”.
Aðspurður um lengd feröa-
laga, svaraöi Erlendur
Einarsson þvi til, að samkvæmt
nýjum gjaldeyrisákvæðum,
fengju menn ákveðria upphæð
úr að spila, niður væru lagðar
sýningarferðir, en að öðru leyti
væri það undir ferðamönnum
komið, hvað gjaldeyrir þeirrra
entist. Skrifstofan byði nú
þriggja vikna feröir og ferðir til
Portúgal tækju 15 daga.
Framkvæmdastjóri hinnar
nýju ferðaskrifstofu er Böðvar
Valgeirsson, sem undanfarin ár
hefur verið framkvæmdastjóri
skrifstofu Sambandsins i
Hamborg.
Alþýðubandalagið:
MIKLAR VÆRINGAR VEGNA
FORMANNSKJÖRS í REYKJAVÍK
Hátíðarfundur á
aldarfjórðungs-
afmæli Krabba-
meinsfélagsins
A mánudaginn er ráðgert að
fram fari formannskjör i Alþýöu-
bandalagsfélagi Reykjavikur.
Kjör formanns hefur valdið mikl-
um deilum innan Alþýðubanda-
lagsins og er áberandi gllmu-
skjálfti hjá forystumönnum
bandalagsins.
Þröstur Ölafsson er núverandi
formaður félagsins og hefur
reynst flokksforystunni óþægur
ljár i þúfu. Ráöamenn Alþýðu-
bandalagsins vilja aö Reykja-
vikurfélagið sé fjarstýrt frá
flokksforystunni og eru þvi al-
gjörlega mótfallnir, að félagið
efni til pólitiskra funda og ræði
mál sem forystan er ekki búin að
ákveða hvaða afstöðu skuli taka
til. Telja ráðamenn að slikt geti
leitt til klofnings.
Núverandi stjórn mun hafa
skorað á Þröst Ölafsson að gefa
aftur kost á sér I sæti formanns.
Vill stjórnin að félagið starfi
sjálfstætt og efni til pólitiskrar
umræðu um mál. Þröstur mun
hafa hug á að halda áfram en ótt-
ast jafnframt.aðþarsem hann er
starfsmaður Mál og Menningar
muni deilur i þvi fyrirtæki
dragast inn i Reykjavikurfélagið.
Hjalti Kristgeirsson hefur verið
nefndur sem formannsefni
flokksforystunnar á þeim for-1
sendum að hann sé jábróðir*
Ragnars Arnalds og fleiri i þeim
innanflokksdeilum sem geysa
vegna Málsog Menningar. Einnig
mun hafa verið stungið uppá
öddu Báru Sigfúsdóttur sem for-
manni. _sg
Krabbameinsfélag íslands á 25
ára afmæli á þessu ári. Af þvi til-
efni efnir félagið til sérstaks
hátiðar- og kynningarfundar i
Domus Medica við Egilsgötu,
föstudaginn 28. mai kl. 17 að
loknum aðalfundi. Mun formaður
félagsins, próf. Ólafur Bjarnason,
rekja sögu þess, en ávörp flytja
'neilbrigðismálaráðherra, Matt-
hias Bjarnason: dr. med. Jón
Sigurðsson fv. borgarlæknir og
Alfreð Gislason læknir.
Ráðstefna um
kra bba meins læknin ga r
Laugardaginn 29. mai verður
svo haldin ráðstefna um krabba-
meinslækningar. Hefst hún kl.
10.15 i Domus Medica. Tveir is-
lenskir læknar, sem eru við sér-
fræðistörf erlendis á þessum
sviðum, þeir Sigurður Björnsson
og Þórarinn Sveinsson, flytja þar
framsöguerindi um framtiðar-
skipulag lyfja- og geislameðferð-
ar á illkynja æxlum á Islandi.
Verða erindin flutt fyrir hádegi.
Eftir hádegi hefjast hringborðs-
umræður, sem Hrafn Tulinius,
yfirlæknir, stjórnar. Þátttakend-
ur i þeim eru auk Sigurðar og
Þórarins: Gauti Arnþórsson yfir-
læknir, Guðmundur Jóhannesson
yfirlæknir, Hjalti Þórarinsson,
prófessor, Kolbeinn Kristófersson
prófessor, Ólafur örn Arnarson
læknir og Sigmundur Magnússon
dósent
Vantar ykkur vinnukraft?
Það blæs ekki
byrlega i atvinnu-
málum námsmanna
um þessar mundir.
Kristinn Friðfinnsson
hjá atvinnumiðlun
stúdenta tjáði okkur,
að á skrá hjá þeim
væru nú um 80 manns.
Þó hefðu þeir brýnt
fyrir mönnum, að láta
ekki skrá sig nema þeir
væru algjörlega von-
lausir umaðfánokkra
vinnu.
Sagði hann, að það væru að
jafnaöi þrir um hvern bita sem
byðist, og það sem af er, hefði
þeim tekizt að útvega um 25%
þeirra vinnu sem til þeirra
hefðu leitað. Það sem reynst
hefur þeim hjá atvinnumiðl-
uninni hvað erfiðast, er, að þau
fáu atvinnutilboð sem borizt
hafa eru mörg hver þess eðlis,
að beðið er um sérhæfðan.
starfskraft, sem oft reynist
erfitt að finna. „Þetta gengur
sýnu ver en i fyrra og það gæti
fariðsvo, að þeir, sem ekki hafa
þess sterkari fjárhagslegan
bakhjarl, þurfi hreinlega að
taka sér fri frá námi ef ekki
rætistúr, ogþaðfljótlega” sagöi
Kristinn. Atvinnurekendum
skal hér með bent á, að simi at-
vinnumiðlunar stúdenta er
15959.
„Þetta gengur vægast sagt
hörmulega”, sagði Ingólfur
Gislason hjá atvinnumiðlun
menntaskólanna. „Hjá okkur
eru núna um 200 manns á skrá,
og þeim fjölgar dag frá degi.
Það sem af er hefur okkur
aðeins tekizt að útvega um 30
manns fasta vinnu og öðrum 50
ihlaupavinnu i skemmri tima,
sérstaklega er erfitt að útvega
kvenfólkinu vinnu, það er hreint
ekki einleikið.” Aðspurður um
hvað menntaskólanemar tækju
til bragðs ef ekki rættist úr,
sagði Ingólfur, að sumir væru
að reyna að komast 1 sveit á
gömlu staðina, þar sem þeir
hefðu verið áður, hinir yrðu að
reyna að fleyta sér i gegnum
næsta vetur með hjálp frá
aðstandendum, eða þá hrein-
lega að hætta námi. Simi
atvinnumiðlunar mennta-
skólanna er 82698. —gek
- þá eru vinnufúsar hendur lausar, og símarnir eru 82698 og 15959