Alþýðublaðið - 01.06.1976, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 01.06.1976, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIR Þriðjudagur 1. júní 1976 {JiaSiA1 alþýðu' 01g e f a n d i: A1 þý ð u f 1 o k k u r i n n. Uekstur: Keykjaprent hf. Kitstjóri <*H ábyrgöarmaöur: Arni Gunnars- son.. Kitstjóri: Sighvatur Björgvins- son. Kréttasljóri: Bjarni Sigtryg^s- son. Aðsetur ritstjórnar er í Siðu- nuila ll.simi 818K6. Auglýsingar: simi 14900 og 14906. Prent- un: Blaöaprent h.f. Askriftarverö: 1000 krónur á mánuöi og 50 krónur i lausasölu. Þegið þið - við ætlum að tala! Þingflokkar allra stjórnarandstöðuflokkanna þriggja hafa nú fyrir nokkru fjallað um samninga- hugmyndir þær* sem brezki utanríkisráðherrann sendi þá Geir Hallgrímsson og Einar Ágústsson með heim frá Osló og taka þingflokkarnir allir afstöðu gegn samningum á grundvelli þessara samninga- draga. Sá f urðulegi háttur hef- ur verið hafður á þessu máli af hálfu ríkisstjórn- arinnar að hún hefur tekið trúnaðareiða af stjórnarandstæðingum um að skýra ekki f rá efni samkomulagsdraganna en á sama tíma hefur aðalmálgagn Geirs Hallgrímssonar, Morgun- blaðið, greint frá þeim efnisatriðum samkomu- lagsdraganna, sem það kærir sig um, og hafið í því sambandi ákafa áróðursherf erð fyrir samþykkt þeirra. Jafn- framt gerðist það, að rit- ari Framsóknarf lokks- ins, Steingrímur Her- mannsson, fjallaði opin- skátt um málið á al- mennum fundi vestur á (safirði og sagði þar ein- hverjar sögur um hin og þessi skilyrði, sem Fram- sóknarflokkurinn ætli að setja - þá líklega Geir Hallgrímssyni - fyrir að fallast á samningana. Á sama tíma og þetta gerist á svo stjórnarandstaðan að þegja um efnisatríði málsins vegna þess, að rikisstjórnin hefur gefið henni þau fyrirmæli að með skuli farið sem trúnaðarmál. Slík fyrirmæli á stjórnarand- staðan að engu að hafa þegar augljóst er að þau ná alls ekki til helstu á- róðurspostula stjórnar- innar sjálfrar. Tilgang- urinn með leyndarskil- málunum er auðsjáan- lega sá einn að þagga nið- ur í stjórnarandstöðunni svo málgögn og málsvarar stjórnarinnar fái nægilegt forskot til þess að koma með sína útgáfu og útleggingu á samningsdrögunum og hefja áróðurinn fyrir uppgjöfinni áður en stjórnarandstöðunni er veitt fullt málfrelsi. Það dylstengum til hvers ref- irnir eru skornir. Slík vinnubrögð telur ríkis- stjórnin sér sæmandi að hafa í þessu mikla lífs- hagsmunamáli þjóðar- innar. Það sýnir hvernig þessi ríkisstjórn er og hver er hennar málstað- ur, því svona myndu ekki aðrir hegða sér en þeir, sem sjálfir þykjast vita að þeir hafi slæman mál- stað að verja. Til hvers var barizt? Sem dæmi um það, hvers eðlis þau eru samkomu- lagsdrögin, sem stjórnarflokkarnir undirbúa nú að fallast á má nefna, að í þeim er gert ráð fyrir að 25 brezkir togarar séu i senn að veiðum á islandsmið- um. Þetta jafngildir því, að Bretar fái leyfi til þess að gera 50 togara út á íslandsmið þvi reikna má með því, að aðeins um helmingur flotans geti verið að veiðum á hverjum tíma - hinn helmingurinn er ýmist á siglingu aðeöa frá miðunum eða að landa afla. Talið er, að afli þessa flota jafngildi 70 þús. tonn- um á ársgrundvelli. Hér er sem sé um að ræða meiri afla, en fólst i þvi ógæfusamlega tilboði, sem ríkis- stjórnin gerði Bretum á sínum tíma og sór og sárt við lagði að myndi aldrei vera látið standa. Og hvert á brezki flotinn að sækja þennan þorskafla? Sam- kvæmt samkomulagsdrögunum geta Bretar sótt hann allan inn fyrir 50 mílur - meira að segja allt upp aö 20 milum! Ef þetta á að vera niðurstaðan til hvers höfum við þá háð okkar landhelgisbaráttu? Eru erfiðleikar okkar ekki nægir til þess að það þurfi ekki að bætast ofan á allt annað, að hættulegasti f jandmaður okkar i landhelgismálinu sé okkar eigin ríkisstjórn? AðueituslDðuardeilan: Er lausnin í höndum biskups? Ekki hefur enn tekizt aö ná samkomulagi um staösetningu aöveitustöðvar Rafveitunnar, en eins og kunnugt er, reis upp mikil alda mótmæla þegar hún skyldi reist á lóö Austurbæjar- skólans. Eins og sagt var frá i blaöinu fyrir skömmu, hafa borgaryfir- völd unnið aö þvi aö ná sam- komulagi um staösetningu byggingarinnar. Mun nú fyrir- hugaö aö koma i kring skiptum á lóöum þannig aö Rafveitan fái aö byggja á lóö Sumargjafar milli Heilsuverndarstöövar og Sundhailar, en Sumargjöf fái aftur á móti lóöina aö Eirlks- götu 2, sem þjóökirkjan hefur yfir aö ráöa. Aö sögn Björgvins Guö- mundssonar borgarfulitrúa hef- ur borgarstjóri rætt þennan möguleika viö Sigurbjörn Einarsson biskup og kom m.a. fram i þeim umræöum aö út- hiutun fyrrgreindrar lóöar til þjóökirkjunnar var ekki óform- leg, eins og haldið var, heldur barst kirkjunni bréf um úthlut- unina á slnum tima, og á hún þvi fullan rétt til lóöarinnar. Þá greindi biskup borgar- stjóra frá þvi aö áætlaö heföi verið aö reisa skrifstofubygg- ingu embættisins aö Eirlksgötu 2, svo aö búast má viö aö ióöin veröi ekki auðfengin undir barnaheimilisbyggingu Sumar- gjafar. Björgvin sagöi ennfremur aö borgaryfirvöld heföu nú ritað biskupsembættinu bréf þar sem farlð er fram á aö þjóðkirkjan afsali sér réttinum til lóöar- innar og þar meö veröi hægt aö leysa þær deiiur sem staöiö hafa um staösetningu aöveitustööv- arinnar. —JSS— Eignaerjurnar úr sögunni Dagblaðsmenn selia Vísi Nokkrir af þeim aöilum sem standa aö útgáfu Dagblaðsins hafa fram tU þessa átt hlutabréf i útgáfufélagi Vfcis, Reykjaprenti h.f. Ennfremur hafa sömu menn átt hluti I Járnsíöu hf., en þaö félag er eigandi aö húsnæöi rit- stjórnarskrifstofa Visis aö Siöu- múla 14. Blöðin keppa bæöi um síödegis- markaöinn og þar sem segja má aö Dagblaöið hafi verið stoftiaö til höfuös VIsi, hefur mörgum þótt eignaraöild Dagblaösmanna aö Reykjaprenti næsta einkennileg. Nú hafa tekizt samningar milli þessara aöila á þann hátt, aö Dagblaösmenn selja hluti sina I Reykjaprenti og Járnsiöu. Hefur Vlsir þar meö öðlazt fullan eignar- og umráöarétt yfir hús- næöi ritstjórnar og aöild aö Blaöaprenti. — Ég vonast til aö allir viökon- andi aöilar geti vel viö unaö nú þegar þessir samningar hafa ver- iö geröir, sagði Ingimundur Sig- fússon, stjórnarformaöur Reykjaprents i samtali viö Al- þýðublaðiö. Sagöi Ingimundur þetta mál nú leyst á farsælan hátt og þar meö væru hvimleiöar deil- ur um máliö úr sögunni. —SG VÖKUFERÐ UM EYJAR Vaka félag lýöræöissinn- aðra stúdenta gengst fyrir tveggja daga ferö um Breiða- fjaröareyjar um hvltasunnu- helgina. Lagt verður af stað frá aðalbyggingu Háskóians stundvislega kl. 8 laugardag- inn 5. júni og komiö aftur til Reykjavikur á sunnudags- kvöldi. Gist veröur eina nótt í eyjunum og farið verður um eyjarnar undir ieiösögn heimamanna. Feröakostn- aður er áætlaöur aöeins kr. 3000 á mann. Allir lýöræöis- sinnaöir stúdentar eru vel- komnir. Þeir sem hyggjast notfæra sér þetta einstæöa tækifæri til þess aö sjá og skoöa Breiöa- fjarðareyjar eru beönir aö til- kynna sig I slma 16941 fyrir miövikudagskvöld vegna ó- venjumikillar þátttöku. Stjórn Vökii Friðsamleg lausn þorskastríðsins? Johan J. Toft, Fiski- mannafélagi Noregs: „Viö fiskimenn höfum rikan skilning á aöstööu íslendinga sem þjóöar. Fiskaflinn nemur um 80% af þjóöarframleiöslunni. Þvi miö- ur hefur ekki tekizt að komast aö samkomulagi viö Stóra-Bret- land. Viö lltum svo á, aö þaö sé bæöi skylda okkar og einnig i samræmi viö heilbrigöa skyn- semi aö láta þetta mál til okkar taka. Eins og nú standa sakir eru nokkur merki þess, aö hugsan- legt sé, aö deiluaöilar ræöi sam- an. Aö okkar dómi er það eina ráöiö til þess aö deilan leysist.” Ég hygg, aö nokkur möguleiki sé nú fyrir lausn deilunnar. Hvaö mérsjálfum viövikur, hefi ég haft alla samúð meö Islend- ingum. En ég tel, aö það væri óhyggi- legt af þeim, að ræöa ekki þau samningsdrög, sem nú viröast hafa veriö fram lögö. A hinn bóginn er þaö svo sára- litið, sem íslendingar geta boöiö eöa samþykkt, þar sem þeir sjálfir veröa að draga úr sinum eigin afla til þess aö gjöreyöa ekki þorskstofninum. En aö minu viti tel ég rétt af þeim aö samþykkja viöræöur viö Breta.” Guttorm Hansen, Stór- þingsforseti: ”Astandiö sem skapazt hefur milli íslands og Bretlands er, aö éghygg ákaflega hörmulegt, og þaö mun einnig skoöun okkar Norömannayfirleitt. Þessvegna höfum viö freistaö aö koma af stað viöræöum milli deiluaðila. Ég lit svo á, að nokkur hreyf- ing hafi komizt á málið á ráö- herrafundinum um daginn, en ég þori engu aö spá um árangur. Bezt er aö gera sér ljóst, aö i báöum löndunum eru svo mörg pólitisk vandamál þetta áhrær- andi, aö þaö verður erfitt aö ná viðunandi lausn.”

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.