Alþýðublaðið - 17.07.1976, Side 3
Laugardagur 17. júlí 1976
Hvers
vegna
lækka vasa-
tölvurnar
sífellt
í verði
Undanfarin þrjú ár — á með-
an ílestar vörur hafa stöðugt
hækkað i verði — hefur verðið á
litlum vasareiknivélum sifellt
lækkað.
Fyrir þrem árum kostaði ó-
dýrasta vasareiknivélin um það
bil 130 bandarikjadollara.Sú var
sett saman úr meira en 200
hlutum og var unnin i Banda-
rikjunum.
Nú er hægt að fá vasareikni-
vél, sem leyst geta sömu verk-
efni og hin fyrrnefnda, fyrir
tæplega 5 dollara. En ef litið er
inn i þær sést aftur á móti að
þær eru settar saman úr f jórum
aðalhlutum (i stað 200 hluta
áður) og nú stendur jafnan á
þeim „made in Hong Kong”.
Með þvi að nota færri hluti
hefur framleiðendum tekizt að
lækka kostnaðinn við gerð
þeirra úr um það bil 7 dollurum
á klukkustund i 70 sent og að
sama skapi hafa þær lækkað i
verði i verzlunum. Þessar ó-
dýru reiknivélar eru allt eins
góðar og þær gömlu og dýru, ef
ekki betri.
Auk þess að reiknivélarnar
hafa lækkað i verði eru nú á
markaðnum reiknivélar, sem
auðvelt er að taka með sér hvert
sem er. Konur geta fengið
reiknivélar sem komast fyrir i
titilli handtösku og karlmenn
reiknivélar sem hæglega
komast i vestisvasa. Það eru
meira að segja búnar til reikni-
vélar sem komast fyrir i hylki
utan af kúlupenna.
Það hafa átt sér stað alls kyns
framfarir i gerð þessara litlu
reiknivéla. Bláleitir fluorescent
ljósastafir leysa nú þá rauðu,
sem þekkzt hafa fram til þessa,
afhólmi. Þessir nýju ljósastafir
krefjast mjög litillar orku og
endast fimm sinnum lengur en
hinir, miðað við sömu hleðslu.
Þykir þetta mikill kostur.
Vasa-reiknivélunum fylgir
einatt 90 daga eða eins árs
ábyrgð. Það á ekki að skipta
neinu máli þó ábyrgðartiminn
sé ekki langur, þvi rafmagns-
verkfræðingar segja svo til enga
galla finnast i þessum reiknivél-
um. Sé hins vegar um einhverja
galla að ræða eiga þeir að koma
fram eftir um það bii einnar
viku notkun.
Komi fram bilun i reiknivél-
inni eftir tveggja ára notkun er
mun ódýrara að kaupa nýja
heldur en að láta gera við þá
gömlu. Ef þú kaupir tölvu fyrir 5
dollara i dag getur hún verið
komin niður i 4 dollara eftir 2 ár.
Nú er hægt að fá tölvur, sem
fyrir ári siðan kostuðu 60-100
dollara, á 12—14dollara. Þessar
dýrari og fullkomnari gerðir
þykja hentugar fyrir námsfólk
og viðskiptamenn...
1 kjölfar verðlækkana á
reiknivélum hafa fylgt verð-
lækkanir á svokölluðum tölvu-
úrum. Fyrir rúmu ári siðan
kostuðu slik úr um það bil 150
bandarikjadollara. Nú er hægt
að fá eitt slikt fyrir um það bil 30
dollara og þvi er spáð, að við lok
þessa árs kosti tölvu-úrin um
það bil 15—16 dollara.
Þrátt fyrir það að yngri gerö-
irnar eru ódýrari en þær eldri,
eru þær mun fullkomnari. Nú er
hægt að fá úr með sérstökum
kristalljósum, spara heilmikla
orku, fyrir sama verð og úr með
„gömlu” rauðu ljósastöfunum.
AV
FRÉTTIR 3
Gylfason: A 1 i
—Atnugasemd
Vegna yfirlýsingar ritstjóra
þessa blaðs, Arna Gunnarsson-
ar, á 3. blaðsiðu Aiþýðublaðsins
á fimmtudag, þykir mér rétt að
taka eftirfarandi fram:
Pétur og Páll ganga ekki inn í
Uandsbanka islands og fá þar 70
milljón króna veðlán, eða
bankaábyrgð þó svo þeir
hyggist stofna fyrirtæki og þó
svo þeir hyggist gera út sand-
dæluskip. Fái hins vegar Pétur
eða Páll slikt lán, þegar þeir
hafa sýnt fram á hagkvæmni
rekstursins eða þjóðfélagslega
þörf, þá er það fyrirgreiösla,
misjafnlega skynsamleg cftir
atvikum. Slika fyrirgrciðslu
fengu aöstandendur sandælu-
skipsins Grjótjötunn síðla árs
1974.
Um það bil ári siðar haiði sið-
an skipinu verið lagt, gróða-
fyrirtækið varð ekkert gróða-
fyrirtæki. Það væri fróðlegt að
fá upplýsingar um það hvernig
veðum I.andsbanka islands hef-
ur verið háttað, alla vega cr
Ijóst að þetta glæfrafyrirtæki
var þvi sem næst farið á höfuðið
að ári liðnu, skipt var um cig-
endur og nafn. Líklega hefur
l.andsbanki islands veitt aðstoð
við þær breytingar. Alla vega
lánaði Uandsbankinn i fyrirtæki
þar sem hagkvæmnisathugun
hefur verið verulega áfátt.
í blaöagrein, sem ftmar
Valdemarsson ritaði i Dagblaö-
ið þann 11. mai sl. kemur fram,
að einn stjórnarmanna þessa
þvi sem næst gjaldþrota fyrir-
tækis, sem Uandsbankinn liafði
komið á legg, er Kristinn Sigur-
jónsson. Sá er fóstursonur
Kristins Finnbogasonar. Enn-
fremur segir, að Kristinn Finn-
bogason hafi að verulegu leyti
annazt stjórnarstörfin fyrir
fósturson sinn. Ennfremur segir
að þegar verið var að semja um
viðgerðir á skipinu við Stálvcr
liafi Kristinn Finnhogason við
annan mann samið fyrir hönd
Grjótjötuns. Þá segir að Krist-
inn Finnbogason hafi viðar
komið við sögu i viðskiptum
vegna þessa skips.
Kristinn Finnbogason á þvi
augljóslega hagsmuna að gæta
varðandi þetta skip. Jafnframt
cr hann bankaráðsmaður i
Uandsbankanum. Þar var vcitt
70 milljón króna veðlán, sam-
kvæint sömu blaðagrein, en
greinilega af litilli forsjálni, þvi
fyrirtækið var þvi sem næst
gjaldþrola að ári.
Séu þetta ekki fjármálaleg
tengsl, þá er ekkert til scm get-
ur kallazt þvi nafni. Einasta
þessar upplýsingar ættu að
knýja á um frekari rannsókn
þessara mála.
Alþýðublaðið í gær bætti
reyndar við þetta: Einn angi
Grjótjötunsmála er kominn til
Sakadóms!
Enn má bæta við: Hversu
itarleg var könnun Uandsbanka
islands á þessu fyrirtæki áður
en hann lánaöi i það stórfé? Ilitt
er kannski fremur smekksatriði
livað mönnum finnst um banka-
ráðsmenn sem augljóslega eiga
persóuulegra hagsmuna að
gæta.
Mig hryggir að finna mig
knúðan til þess að gera slika at-
hugasemd við skrif Arna
Gunnarssonar, ritstjóra. En þvi
miður, honuni hafa verið gefnar
rangar upplýsingar, og þess
vegna eiga athugasemdir hans
við leiðaraskrif min þær þrjár
vikur sem ég levsti hann af á
blaöinu ekki við rök að styðjast.
Um liitt er ég fullviss: að Arni
Gunnarsson fer ekki af fyrra
bragði að draga sannleiksgildi
greina minna i efa og leita sér
þess vegna upplýsinga. Þvert á
móti hefur hann fengið vink um
að þetta bæri að leiðrétta,
hugsanlega frá einliverjum
kerfiskallinum uppi i banka-
kerfinu.
Og einmitt þar er ég ritstjór-
anum ósammála i blaðamanns-
legu tilliti: Það á að láta þessa
skúmaskotakalla gera sjálfa
sinar athugasemdir. en ekki
vinna. verkin fyrir þá. Þvi iðu-
lega segja þeir ekki nema hálf-
an sannleik. Og hálfsannleikur-
inn þeirra reyuist allt of oft vera
haugaiýgi.
Vilmundur Gylfason.
Fermingastúlkur biða spenntar eftir að fá að synda fyrsta sprettinn.
Ný og glæsileg sundlaug
Vestmannaeyinga tekin í notkun
Á laugardaginn i sið-
ustu viku var tekin i
notkun ný og glæsileg
sundlaug. Fyrsta sund-
sprettinn i lauginni tóku
drengir og stúlkur, sem
fermdust i ár.
Vilmundur
Fyrsta stigið, sem Eyjamenn tapa
í 2. deildinni
Vestmannaeyingar hafa átt
njög góða leiki i 2. deild i sumar.
lafa þeir unnið þá aila og flesta
neð talsverðum yfirburðum. Það
er að segja þeir höfðu unnið alla
sina leiki, þar til Þór frá Akrueyri
kom Iheimsókn til Eyja. Hér eru
nokkrar myndir, sem teknar voru
af þeirri viðureign, en leiknum
lauk með jafntefli, 2-2. Myndir:
Guömundur Sigfússon.
Nýung
í tjáskipt
um dauf
dumbra
- Auðveldar þeim
að tjá sig
Það eru um það bil sjö
hundruö þjóðverjar sem bæði
eru blindir og heyrnarlausir.
Nú hefur þýzkur læknir,
Joachim Thiel, fundið upp
kerfi sem gerir þessu fólki
kleift að ná sambandi við þá
sem bæði heyra og sjá. Verið
er aö gera tilraunir með þetta
kerfi i miðstöð daufdumbra I
Kirchrode, nálægt Hannover.
Fram til þessa hafa blindir
og heyrnarlausir aðeins getað
náö sambandi við umheiminn
með þvi að notfæra sér
blindraletur eða sérstakt
fingramál. Sú nýjung felst i
þessu kerfi, að öllu þvi, sem
hinir daufdumbu vilja láta frá
sér fara, er umbreytt i ritað
mál er birtist á sjónvarps-
skermi. Fólk sem hefur öll
skilningarvit i fullkomnu lagi,
en umgengstdaufdumba, þarf
þar af leiðandi ekki að læra
fingramál eða blindraletur til
að geta náð sambandi við það
Kerfi þetta er þeim kostum
búið, að sjónvarpsskermur er
tengdur venjulegu ritvélar-
borði og á honum birtast skiia-
boð hins daufdumba. Enn-
fremur geta þeir sem hann
hefur samband við komið til
hans boðum með þvi að nota
ritvélarborðið, en lyklar þess
eru sérstaklega gerðir fyrir
blindraletur.
Gert er ráð fyrir að hvert
einstakt tæki i .kerfi þessu
kosti um 40 þúsund þýzk mörk.
Blindrafélögin i Þýzkalandi
vonast til að iðnaðarmálu-
ráðuneytið i Bonn styrki þess-
ar framkvæmdir, þannig að
kerfið geti sem fyrst þjónað
öllum þeim sjö hundruð sem á
þvi þurfa að halda.