Alþýðublaðið - 08.09.1976, Síða 9

Alþýðublaðið - 08.09.1976, Síða 9
8 0R VIVISUM ATTUM Miövikudagur 8. september 1976. blaSfð*' sasr. Miðvikudagur 8. september 1976. VETTVANGUR 9 Ógreidd skuld Okkur sem yngri erum að árum gleymist oft á tiöum sú skuld sem viðstöndum i við hinar eldri kyn- slóðir.Þær gerðuþetta land að þvi sem það er, við njótum ávaxt- anna. Margt eldra fólk þarfnast sér- stakrar umönnunar, vegna heilsuleysis, sem i mörgum til- vikum stafar af of mikilli vinnu á stuttu lifsskeiði. En svo er málum háttað iþessu landi allsnægtanna, þar sem ekki þykir ástæða til þess að menn neiti sér um að kveðja hefði á sinum sokkabandsárum talið neittþaösem til þæginda má teljast, að eldra fólk sem á um- hyggju lærðs hjúkrunarfólks þarf að halda á ekki i neitt hús að venda. Heldur er miskunsami samverjinn I okkur tslendingum orðinn nærsýnn. í nýútkomnu hefti Heimilis- póstsins riti sem gefið er út fyrir starfsfólk og vistfólk á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund, er grein eftir forstööumann heim- ilisins. Greinin heitir „Simtal”. Þar segir maðal annars: „Siminn var að hringja og sam- talið var svo nauðalikt og ótal mörg önnur. Spurt um vistpláss fyrir aldraðakonu, sem var veik. Ogsvariövar hið sama og svo oft áður: — Þvi miður ekkert pláss laust og rúmlæga sjúkl. getum við þvi miður ekki tekið lengur. Verðum að nota sjálf þau pláss er losna fyrir sjúklinga frá Asi/Asbyrgi i Hveragerði. Flest kemst upp i vana, en þó vona ég að aldrei verði það svo hjá okkur á Grund, eða á öðrum dvalarheimilum, að það verði sársaukalaust að þurfa að gefa slikt svar. Samúöin og mannúðin má ekki gleymast i þessum al- varlegu vandamálum, ef það ger- ist, þá er voðinn vis — ekkert verður að gert. Oft virðist mér svo komið, að mannúðin og sam- úðin með þeim, sem við vanda- málin eiga að striða — gamla fólkinu — sé hverfandi litil eða engin.” Þá bendir greinarhöfundur á þörfina á langlegudeildum við sjúkrahúsin. 1 þeim málum hafi litið verið gert, en þegár liði að kosningum rjúki allir upp tii handa og fóta og þá skuli allt gera — venjulega fyrirhyggjulitið ogaflitlum efnum, og útkoman ei eftir þvi. Þá heldur greinarhöfundur áfram: „Oddur A. Sigurjónsson bað mig um að skrifa grein fyrir Alþýðublaöið um þessi mál, og var það gert og hefur greinin þegar verið birt. Handhægast hefði veriö að senda gömul blöð af Heimilispóstinum. Þar hef ég skrifað um málin i ellefu ár og nokkru betur. Arangurinn er mjög litill. Fólkið sinnir ekki öld- ruðu fólki — yfirleitt. Gleggsta dæmið er um hjúkrunarkonur — nú hjúkrunarfræöinga — og ljós- mæður. Hjúkrunarkonur eru eins og sjaldgæfustu frimerki — þær eru ekki margar við störf hjá okkur á Grund — en þar koma ljósmæðurístaðinn oghafa staöiö sig eins og Ijón. Hjúkrunarheimili á að minni hyggju aö vera fyrir lasburða sjúklinga — langlegu sjúklingar, yngri sem eldri, eiga að fá hjúkr- un á svonefndum langlegu- deildum,sem reistar eru og starf- ræktar i beinu sambandi vð sjúkrahús. A þann hátt er hægt að veita bestu fáanlegu hjúkrun og aðhlynningu. Um þessa lausn mála eruskoðanirskiptar. Margir telja, aö gamalt og sjúkt fólk eigi að vera á hjukrunarheimilum, þar sem ekki eru föng á að veita þvi fáanlega hjúkrun — allt er nógu gott fyrir það. Myndir tvær, sem birtust nýlega i dagblaði I »'1 , : P •: Reykjavik, voru táknrænar, þar var á fyrri myndinni sýnt aldraö fólk — en á þeirri siðari var gam- alt járnadrasl. Ég er ekkert for- viða á þessu — yfir 40 ára reynsla hefur fært mér heim sanninn um það, að þjóðin hugsar ekki of vel fyrir sinu aldraða fólki. Ef það vinnur sér inn nokkurt fé til við- bótar ellilaunum, sem ekki eru ein næg til lifsframfæris, þá eru það skattarnir. Aður var búið að brenna upp sparifé þess i verð- bólgu, sem er að gera fjárhags- lega út af við allan fjöldann. Þeir, sem komast á elliheimili eru nokkuð vel settir, þar er greitt fyrir þá, auk þess 100 krónur á dag i vasapeninga.” Hátíð á Þórs- höfn Lengi hefur árstiðabundið at- vinnuleysi verið landlægt á norð- austurhorni landsins. Þar hafa menn verið háðir stopulum sjávarafla um lifsafkomu sina. Þvi er það að fólki á þessum slóð- um þykir ástæða til þess að gleðj- ast þegar ný atvinnutæki bjóða S? .1 mönnum upp á tryggari og örugg- ari vinnu. 1 leiðara Islendings á Akureyri, fimmtudaginn 2. september er sagt frá „Hátiö á Þórshöfn”. Þar segir m.a. Nýlega gerðu menn sér daga- mun á Þórshöfn i Norður-Þing- eyjarsýslu. Fyrir skömmu var þar tekið i notkun nýtt og glæsi- legtfrystihús, sem er langstærsta atvinnufyrirtæki á staðnum og nýlega kom þangað litill skuttog- ari, sem keyptur var þangað frá Suðurnesjum. Full ástæða var til hátiðarbrigða af þessu tilefni, þvi miklar vonir Þórshafnarbúa eru bundar við tilkomu þessara tveggja atvinnufyrirtækja. A ð unanförnu hefur afli smærri báta á Þórshöfn dregizt mjög saman m.a. vegna skefjalausrar rányrkju Breta á miðunum þeirra s.l. vetur. Afli bátanna var á hinn bóginn mun betri á þeim tima þegar ráðist var i fyrstihúsbygg- inguna. Vegna þessa aflabrests virtust horfur á þvi að hið nýja og glæsilega frystihús hefði úr allt of litlu hráefni að spila. Þvi var sá kostur einn fyrir hendi að auka við skipaflotann, þannig að jöfn- um höndum yrði sótt á fjarlæg miö frá Þórshöfn og á heimamið. Þetta er eina leiðin til þess að nýta frystihúsið og bægja at- vinnuleysi frá, en atvinnuleysi var einna mest á Þórshöfn af ein- stökum stööum á landinu s.l. vet- ur. óhætt er að fullyrða að for- ráðamenn Þórshafnarbúa hafa mætt skilningi hjá stjórnvöldum I þessu efni og hefur enginn legið á liði sinu um að koma þessum nauösynjamálum Þórshafnarbúa i heila höfn. Éít '; w „Sjáiði strákar. Þaö væri sko ekki amalegt aö vera I bekk meö þess- um”. Ekki var búiö hleypa inn hjá tfu ára krökkunum ennþá, og þvf var um aö gera aö mynda smá þrýsting á nágrannan. Þarna var þvi samkominn hópur peyja, sem þrýstu hver á annan (þrýstihópur?) ,Gvöö hvaö hann Gunni er nú annars sætur”! I SKÓLANUM, f SKÓLANUM... mmm i" f Ólög Sighvatsdóttir, kennari, segir nemendum sinum frá þvf, hvenær þeir eigi aö mæta næst. Ekki virö- ast allir hafa mikinn áhuga á þvi. Á mánudaginn var voru flestir skólarnir i Reykjavik settir. Blaðamenn Alþýðu- blaðsins fóru af þvi til- efni i tvo skóla, Álfta- mýrarskóla og Menntaskólann i Reykjavík til að festa á filmu það sem fyrir augu bar. Voru þar saman- komnir hressir krakk- ar, sem flestir hafa notið dásemda hins sunnlenzka sumarveð- urs, brúnir og sællegir. í Álftamýrarskólanum var mikið rætt um, hvað Valsmenn voru heppnir að sigra i ís- landsmótinu (skólinn er i Framarahverfi), hvað það var ofsalega gaman að fá að aka dráttarvélinni i sveit- inni, og hvað litill pen- ingur fæst fyrir barna- pössun. Strákarnir voru nokkuð gefnir fyrir stympingar, ogef fleiri en þrir strákar voru saman, var strax farið að ýta og þrýsta, hrinda og lemja. Og af hvaða orsökum sem það nú er, stóöu stelpurnar rólegar og fylgdust af fyrirlitningu meö ólátunum I peyjunum. Kannski spilar upp- eldið eitthvað þarna inní. Menntskælingar ró- legri Nokkru meiri spenna rikti i herbúðum menntskælinga. Þar stóðu menn saman I hópum (klikuhópum, hagsmunahóp- um?), og spjölluðu saman i hálfum hljóðum. Voru þetta aðallega 3. bekkingar, það er að segja busar og nýgræöingar, svo að ennþá báru þeir örlitla óttablandna virðingu fyrir þessu aldna menntasetri. Hverjar ógnir og skelfingar biða margra þeirra vita þeir ekki „0, hvaö þaö væri mikiö skemmtilegra aö fá aÖ spila fótbolta en aö þurfa aö hanga hér inni”. Anzinn sjálfur. Þaö veröur ekki nema einn smiöatfmi á viku i vetur. Veöur hins sunnlenzka síösumars hefur áhrif á klæöaburö þessara stúlkna, sem eruaðhefja sitt menntaskólanám, en I bakgrunni trónir Pallas-Aþena, og er hún léttklædd. ennþá, þó að flestir hafi eflaust heyrt minnst á toileringar með seinni tima viöbót, sem er böðun i Tjörninni okkar skitugu, sem skreytt hefur verið með sprungnu vatnsröri nýverið. Jafnrétti i reynd! A þessum vigstöðvum barst talið gjarnan að sumarvinnunni og þá sumarhýrunni.” Ég vann að visu hálfum mánuði skemur, en ég hafði ekki nema nokkrum þúsundum meira i kaup en Lilla frænka,” sagði sármóðgaður jafnréttismaður, og allir tóku undirþað, aðþetta væri alveg til háborinnar skammar. Ennfremur ræddu menn verð- lagsmálin, nýjustu hækkanir á tóbaki og áfengi, hvað Siggi var heppinn að skriöa á landspróf- inu, sem sagt um landsins gagn og nauðsynjar. Þó að sumarið hafi veriö sunnlendingum erfitt, hvað veð- ur snertir, er engin ástæöa til bjartsýni hvaö veturinn snertir. Þess vegna er um að gera aö vera hres og kátur, láta hinar einstöku kennslustundir ilja nemendum, i stað sólarinnar sem hvarf. Textiog myndir: ATA fn „Æi, ætti maöur annars nokkuö aö vera aö standa f þessu striti i fjögur ácÞaö er miklu þægilegra aö giftast bara og láta karlinn svo sjá fyrir sér.”

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.