Alþýðublaðið - 08.09.1976, Blaðsíða 14

Alþýðublaðið - 08.09.1976, Blaðsíða 14
14 FRÁ MORGNi... Miðvikudagur 8. september 1976. iSSir- Svör VIÐVÖRUN! NOTIÐ EKKI KÚLUPENNA Foreldrar — bannið börnunum að nota kúlu- penna. Notkun þeirra get- ur nefnilega haft i för með sér hryggskekkju og vöðvabólgur. Þeir geta einnig komið i veg fyrir að barnið þroski með sér jafna og læsilega rithönd. Þess vegna ætti að banna börnum að nota kúlu- penna, jafnt heima sem i skólanum. Það er Torbjörn Danielsen, lektor í skrift og uppeldisf ræðum við kennaraskólann i Vest- fold, sem sett hefur fram þessa viðvörun. Hann heldur því fram,að röng skriffæri hafi í för með sér ýmsar hreyfihömlur og valdi því að rithönd verður ólæsileg. Enn sem komið er, segir hann, getum við ekki byggt á neinum visindalegum rann- sóknum varðandi hlutverk heila* og hreyfitauga þegar skrifað er. En reynsla undanfarinna ára veitir okkur fulla heimild til að setja fram viðvaranir sem þessa. Danielsen varar við notkun allra þeirra kúlupenna, sem eru sivalir ogmjókka afliðandifram að oddinum. Það er erfitt að halda á þeim og afleiðingin verður sú, að nemandinn gripur ósjálfrátt fastar um skriffærið. í langflestum tilfellum kreppast fingurnir einnig að lófanum. Þetta er mjög slæmt, bæði fyrir blóðrásina og hreyfingu handarinnar. Það er hægt að eyðileggja likama barns sem notar slikt skriffæri. Við verðum að brýna fyrir foreldrum að banna börn- um notkun þessara kúlupenna, segir hann. 1 stað kúlupennanna vill Danielsen benda á fjölmörg önnur og betri skriffæri svo sem venjulega blýanta og blekpenna (sjálfblekunga með fyllingum). Að visu segist hann geta sam- þykkt notkun vissrar gerðar af kúlupennum. Þeir eiga helzt að vera likir blýöntum að lögun og hægt á að vera að skrifa með þeim án þess að þeim sé þrýst of fast á pappirinn. AV — Að visu inega börn nota vissa gerð af kúlupennum, en þeir eiga þá helzt að vera að lögun eins og biýantar. 1. Hver er maðurinn? 2. Hvenær hófst pökkum Tropi- cana hér á landi? 3. Númer hvað var húsið við Laugaveginn sem brann sl. sunnudag? 4. Hver skrifaði dagbók blaða- manns i gær? 5. Hvað starfa margir á vegum norska fyrirtækisins Elkem Spiegerverket? 6. Hvenær verður fata- kaupstefna F.I. iðnr. opnuð? 7. Hve margir nemendur stunda nám i barna- og gagnfræðask. i vetur? 8. Uppgvötuð hefur ný áhrifarik megrunaðaðferð. 1 hverju er hún fólgin? 9. Nýlega hækkaði þjóðar- drykkur tslendinga, kaffið i verði. Hvers vegna? 10. Visindamenn telja að fundizt hafi nýtt lyf við krabbameini. Hvað heitir það? FRETTA- GETRAUN •|0SIUIBA3T '01 •nnisBja I ejsoaj Buga^ '6 •jmjjiAo jnQjaS J3 euubujeS pnm jojs ‘8 •jnpuauiou OOOST BSaiQn l •jj'u jaquiajdas ‘8 '9 •suueui 00S8 S jnQBUI -BQBiq uossuiAQno Jnpunuiæs 't 891 JN '£ 'U61 Jqoi 8 'Z ■uossjnpiBa upjajs i Þegar maóurnetur paöí huga að þú varst einu sin hallærislegasta stelpan i bekknum, þá mætti segjc að þú hafir bara spjarað þig nokkuð vel. FRAMHALDSSAGAIM ekki selt húsið, Ruth, þú hefur of viðkvæma samvisku til þess að horfa upp á það, að eitthvað þessu likt kæmi fyrir aðra. Og þó að ég haldi, að Douglass sé bundinn við húsið, get ég ekki séð þig fyrir mér I hárri elli tritlandi um meö tiu kilóa bibliu undir hendinni.” Pat var rjóður af hósta og heit- um tilfinningum og reyndi að komast að, en Bruce þaggaði nið- ur ihonum með handarhreyfingu. Korndu heim, Ammí Höfundur: Barbara Michaels Þýðandi: Ingibjörg Jónsdóttir Ruth var að hugsa um orðin ,,i hárrielli”og greipþvi ekkifram i fyrir honum. „Við verðum að kveða Campbell niður fyrir fullt og allt,” sagði Bruce. „Það er eina leiðin. Aðstæðurnar eru ekki eins vonlausar og virðist, þvi að við höfum lært sitt af hverju nú þeg- ar. Hingað til hefur aðeins eitt haft minnstu áhrif á gest okkar, og það er biblian. Rökrétt hugsun hlyti þvi að verða sú, að við leit- uðum til mótmælenda prests. En égefastum, að það sé gerlegt. Ég held, að það séu engir helgisiðir um brottrekstur illra anda i mót- mælendatrú, og jafnvel þó að svo væri, tefldum við á tvær hættur með þvi að etja einhverjum öðr- um fram gegn Douglass. Maður með vissa skapgerð gæti misst vitið.” „En hvað þú ert bjartsýnn,” sagði Pat bitur.,,Þú hefur einmitt útilokað siðustu vonina.” „Skelfing ertu skilningssljór,” sagði Bruce fyrirlitlega. „Víð höfum komist að all miklu þessa tvo sólarhringa, en eitt vitum við þó ekki enn. Hvað vantar Douglass? Hvað varnar honum hvfldar?” „Hann þráir hana — Ammí,” sagði Ruth örvæntingarfull. „Hvernig getum við uppfyllt þá þrá?” ,flvernig veistu, hvað hann vill?” spuröi Bruce. „Má vera, að hann kveljist vegna þess, að hann veit ekki, hvað varö um hana. Kannski gætum við komist að þvi. Kannski þaðnægi honum. Ég trúi þvi ekki fyrir mina parta, að þrá hans sé svo saklaus. Hann bullar af reiði og illvilja, aUt húsið er rotið af hatri hans. Hvers vegna? Ég segi ykkur, að það er sá hluti sögunnar, sem við vitum ekki enn.” „Þaðgætiveriðrétt. „Pat varð glaðlegri. „Það er svo margt, sem passar ekki inn I túUcun þína, Bruce. Eins og röddin t.d. Hún er ekki Ulviljuð, hún er fremur við- kvæmnisleg. Hvernig túlkarðu það?” „Ég get það ekki, og er ekki vissum, að ég þurfiþess. Kannski er þaðDouglass frá öðrutimabfli, en likamningur er gamli maður- inn, þegar hann var minna aðlað- andi. Kannski er þetta rödd Ammi, sem kallar hana aftur heim. En hvort þeirra hreýföi bókina?” „Ekki Douglass,” sagði Ruth. „Hann reyndi að koma i veg fyrir að við finndum hana. Svo það hlýtur að vera.” „Ammi,” sagði Pat að lokum. „En hún er heldur litU hjálp. Atti bókin aðeins að sýna okkur árið, svo að við finndum hinn rétta Campbell? Eða hefur samsærið sérstaka merkingu, sem við höf- um ekki fundið enn?” Sara, sem sat hugsandi og feimin, rétti úr sér, strauk dökkt hárið frá enninu, og rauf langa þögn. ,JHvers vegna,” spurði hún að- eins,” spyrjið þiö Ammí ekki?” III Klukkan sló tólf og þau voru enn að rifast. Bruce var orðinn dauðþreyttur, hann haUaði sér aftur á bak i sófanum reiður á svipinn. „Ég geri það ekki,” sagði Pat. Hann krosslagði hendurnar. „Það er mitt lokasvar.” „Við komumst aldrei að þessu öðruvisi,” sagði Sara I fimmta eða sjötta skiptið. „Það er eina leiðin.” „En áhættan, Sara,” sagði Ruth. „Við opnuðum einu sinni dyrnar fyrir Ammi, og þú veist sjálf, hvað af þvi leiddi! Hingað til hefur enginn gert innrás hing- að — hér erum við örugg. Við get- um ekki....” „Þetta hefurðu sagt áður,” benti Sara henni á. „Og ég sagði, .að menn verða að hætta á eitt- hvaðtil að eignast eitthvað. Jafn- vel öryggi.” „Þú hefúr nú áhuga á öðru og meira en öryggi.” sagði Bruce og horfði illilega upp I loftið. , ,Ég finn svo til með henni!” sagði Sara. „Ég hef fundið fyrir henni og hugsunum hennar, ekki þið. Bruce hefur á réttu að standa. Hún er ringluð og ein- mana....” „Tilfinningasamband viö draug!” stundi Pat. „Ég ætla ekki að dáleiða þig, og þar með það! ” „Hún myndi koma I nótt,” sagði Sara. „Húnfær ekki að koma.” Bruce K0STAB0Ð á kjarapöllum KJÖT & FISKUR Breiðholti Siini 74290 — 74201 PÖSTSENDUM TROLOFUNARHRINGA .Joljmmea leifason ImiaaOegi 30 JÖimi 19 209 Dúnn Síðumúla 23 /ítni 84200 Heimiliseldavélar, 6 litir - 5 gerðir Yfir 40 ára reynsla Rafha við Óðínstorg Símar 25322 og 10322 Birgir Thorberg málarameistari simi 11463 önnumst" alla málningarvinnu .— úti og inni — gerum upp gömul húsgögn >

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.