Alþýðublaðið - 29.10.1976, Page 1
FÖSTUDAGUR 29. OKTÓBER
227. tbl. — 7 976 — 57. árg.
Áskriftar-
síminn er
14-900
Stefán Gunnarsson bankastjóri Alþýðubankans:
Blaðaskrif ekki alltaf í sam-
ræmi við raunveruleikann
Talsmenn Alþýöubankans á blaðamannafundinum í gær. Frá vinstri: Benedikt Davlðssan formaður
bankans. (AB-mynd: ATA)
— Bankinn hefUr beðið mik-
iðtjón af skrifum eins og þeim
sem verið hafa I blöðum að
undanförnu, sagði Stefán
Gunnarsson bankastjóri
Alþýðubankans i gær, á fundi
með fréttamönnum. — Þessi
skrif hafa ekki alltaf verið I
samræmi við raunveruleikann
og virðast á köflum aðeins
þjóna þeim tilgangi að búa til
hneykslismál. Við viljum hins
vegar fá blaðamenn I' það
verkefni með okkur að auka
veg bankans á ný, i framhaldi
af nýafstöðnum hluthafafundi.
A þessum fundi rfkti mikill
einhugur, að sögn bankastjór-
ans og þeirra sem mættu fyrir
hönd bankans á blaðamanna-
fundinum, um að standa vörð
um bankann svo hann gæti
rækt það hlutverk sitt að vera
sverð og skjöldur verkalýðs-
hreyfingarinnar. Var lesin á
fundinum ályktun frá þessum
fundi, þar sem segir meðal
annars, að ljóst sé, að meiri
kröfur eru réttilega gerðar til
banka sem er i eigu verka-
lýðshreyfingarinnar heldur en
annarra sambærilegra stofn-
ana. „M.a. af þeirri ástæðu
urðu þau áföll sem bankinn
varð fyrir á sl. vetri ekki að-
eins fjárhagslegur skaði fyrir
bankann, heldur einnig og
ekki sfður álitshnekkir, sem
erfitt er að vinna upp.
Hluthafar Alþýðubankans
telja að aðeins með samstilltu
átaki 'bankans, verkalýðsfél-
aganna og hinna einstöku
félagsmanna þeirra, verði
bankinn reistur til þeirrar
virðingar, trausts og stærðar,
sem honum réttilega ber sem
banka islenzkrar alþýðu.”
Jákvæð viðbrögð
Fram kom á fundinum að
aðalvandi bankans nú væri
lausafjárstaðan. Innlánsaukn-
ing hjá hinum bönkunum hefði
verið um 30%, en hjá Alþýðu-
bankanum hefði hún hins veg-
ar staðið i stað. Núhefðiveriö
ákveðið að auka hlutafé bank-
ans um 30 milljónir og hefðu
viðbrögð verkalýðsfélaga
yfirleittt verið jákvæð i þvi
máli. Þó væri ekki hægt að
segja til um hve mikið hver
myndi kaupa, enda stutt liðið
frá fundinum.
Þótt bankinn sé i eigu
verkalýðshreyfingarinnar eru
mörg félög sem eiga mjög litið
fé i bankanum. Flest eiga þó
eitthvað, en fá eru með allt sitt
fé bundið þar. A þessu er sú
sögulega skýring, að mörg
verkalýðsfélög voru með pen-
inga sina i öðrum bönkum
samkvæmt samningum við
þá. Sagði Ingi R. Helgason
lögmaður bankans, að ekki
væri hægt að ætlast til þess að
þessi féölög tækju alla sina
peninga úr þessum bönkum i
einum vetfangi, en von væri til
að þetta fé kæmi inn i Alþýðu-
bankann smámsaman.
Verið að ganga frá
betri tryggingum
Það kom fram á fundinum,
að þegar „Alþýðubankamál-
ið” kom upp höfðu 60-70
milljónir af lánum bankans
verið vantryggðar, þ.e. ekki
nægilega örugg veð fyrir
þeim. Nú er verið að vinna að
þvi að fá fasteignatryggingu
eða aðra örugga tryggingu
fyrir þessum lánum og er þvi
lokið hvað varðar um helming
lánanna, en gert er ráð fyrir
að þvi verði að fullu lokið fyrir
áramót. —hm
FJÁRLÖGIN
HÆKKA UM 22
MILLJARÐA KR.
1 gær flutti fjármálaráðherra,
Matthias A. Mathiesen, fjár-
lagaræðu slna á Alþingi. Þar
kom m.a. fram, að forsendur
þær er f járlagafrum varpið
byggir á eru þjóðhagsspár fyrir
árið 1977, en samkvæmt þeim er
búist við 1-2% aukningu á
þjóðarframleiðslu á næsta ári.
Þá koni fram, að almenn
þjóðarútgjöld, sem miklu ráða
um innheimtu óbeinna skatta,
gætu aukizt um nálægt 2%.
A útgjaldahlið hefur megin-
áherzlan verið lögð á, að umsvif
i almennri opinberri starfsemi
aukist alls ekki meira en sem
nemur liklegri aukningu þjóðar-
framleiðslu á næsta ári, þar
sem nú er verið að ljúka stórum
áföngum í orkuframkvæmdum.
Felur þetta í sér, að aðrar opin-
berar framkvæmdir verða svip-
aðar i ár, þótt i heild dragi úr
fjárfestingu. Sama stefna ræður
ákvörðun um lánsútvegun til
opinberra framkvæmda.
1 tekju- og gjaldaáætlun frum-
varpsins er reiknað með öllum
samningsbundnum breytingum
grunnkaups, sem þekktar eru,
þ.m.t. 4% hækkun á launum
rikisstarfsmanna 1. júli 1977
samkvæmt kjarasamningum
frá s.l. vori, og kaupgreiöslu-
vísitölu eins og hún er við gerð
fjárlagafrumvarpsins, 102.67
stig. A sama hátt er gert ráð
fyrir hækkun bóta lffeyristrygg-
inga til samræmis við launa-
hækkanii og á það einnig við
launahluta sjúkratrygginga.
Við gerð fjárlagafrumvarps
undanfarin ár hafa útgjalda-
hækkanir sjaldnast verið áætl-
aðar svo langt fram á fjárlaga-
árið sem um er fjallað. Almenn
verðlagshækkun er áætluð um
33% frá því að sfðasta fjárlaga-
áætlun var gerð, og hefur verið
höfð hliðsjón af þvi við gerð
þessa frumvarps til fjárlaga.
Auk þess hafa nú legið fyrir
tölur um raunveruleg útgjöld
hinna ýmsu stofnana og fyrir-
tækja rikisins á árinu 1975, og
hefur verið tekið tillit til þeirra.
Að mati fjármálaráðherra
styrkir þetta fjárlagagerðina til
muna, auk þess sem verðlags-
viðmiðun frumvarpsins verður
nokkru nær raunverulegum töl-
um en verið hefur undanfarin
ár.
Innheimtar tekjur rfkissjóðs
1977 eru áætlaðar samtals 84
milljarðar króna, en eru 68.9
milljarðar i endurskoðaðri
tekjuáætlun fyrir yfirstandandi
ár. Þess ber þó að gæta, að I
fjárlagafrumvarpið er nú fært
1% gjald á söluskattstofn til
þess að draga úr áhrifum verð-
hækkunar oliu á hitunarkostn-
að, en gjald þetta hefur hingað
til ekki verið með rfkissjóðs-
tekjum. Þessar tekjur eru
áætlaðar 1.600 millj. á næsta ári
og sé sú fjárhæð dregin frá
heildartekjum fjárlagafrum-
varps verður hækkun milli ár-
anna 1976 og 77 13.5 milljarðar
króna eða 19.6% og hækkunin
frá fjárlögum 1976 verður 22
milljarðar eða 36.5%.
—ARH
Ótrúleg aðstaða
A blaðamannafundi Alþýðubankans f gær kom það
fram, að sakadómari sá sem hefur með rannsókn Alþýðu-
bankamálsins að gera, er i þeirri aðstöðu, að fá ritara og
dómssal til afnota sjötta hvern dag — einu sinni i viku —
og þá fyrir öll þau mál sem hann hefur á sinni könnu. Það
var Ingi R. Hegason sem skýrði frá þessu, þegar rætt var
um þann tima sem rannsókn málsins hefur tekið. Sagðist
Ingi búast fastlega við aö minnsta kosti sex mánaða rann-
sókn til viðbótar og þá tæki við lesning saksóknara á mál-
skjölum og siðan tæki hann ákvörðun um framhaldið.
Þessar upplýsingar Inga um starfsaðstööu sakadóm-
arans vöktu mikla athygli blaðamanna eins og geta má
nærri og urðu margir til aö hvá eftir. En þetta reyndist
ek<ci missögn.
Við spurðum Halldór Þorbjörnsson yfirsakadómara
hvort þannig væri raunveruiega búið að embættinu, og
svaraði hann þvi til, að þessi dómari byggi við nákvæm-
lega sömu aðstöðu og allir aörir hjá embættinu. En þetta
þyrfti vissulega að bætast.
Bókunin
„Einar (ögmundsson)
spurði bankastjórana hvort
þeir hefðu báðir staðið að
útlánunum (til Air Viking
og Guðna Þórðarsonar).
Jón svaraði játandi, en
vegna veru sinnar erlendis
hefði hann ekki viiað um
a!lt”.
Nokkurn yeginn
orðrétt þannig hljóðar bók-
un sú sem Jón Hallsson
segir að sé ranglega færð I
fundargerð bankaráðs
Alþýðubankans. Segist Jón
hafa svarað spurningunni
neitandi.
Einar var varaform.
A blaðamannafundinum frétt Alþýðublaðsins í gær,
með fyrirsvarsmönnum að Einar ögmundsson
Alþýðuöankans i gær kom hefði veriö varaíormaöur
fram nokkur gagnrýni á bankaráðs bankans, þegar
Timannog Visi fyrir frétta- Alþýðubankamálið kom
flutning i sambandi við upp,en ekki formaöur, eins
fund bankans um siðustu og stóð i fréttinni. Þetta
helgi. Hins vegar var sú leiðréttist hér með.
athugasemd ein gerð við _j,m;