Alþýðublaðið - 29.10.1976, Page 3

Alþýðublaðið - 29.10.1976, Page 3
Madiö' Föstudag ur 29. október 1976 VERKALÝÐSMÁL 3 Gylfi Þ. Gíslason: Spor Alþýðuflokksins í mótun hagsældarríkis á íslandi A þessu ári hefur Alþýöuflokk- urinn starfað i sex áratugi. Þegar saga þessara áratuga verður skráð, mun það tvimælalaust koma skýrt i ljós, að Alþýðuflokk- urinn hefur markað þar djúp spor. Alþýðuflokkurinn hefur átt drjUgan þátt i að móta það nú- tima hagsældarriki, sem er á tslandi. Einkum og sér f lagi mundi það ekki bera þann sterka svip velferðarrikis, sem það ber, ef sjónarmiöa Alþýðuflokksins hefði ekki gætt i rikum mæli i landsmálum. Ahrif Alþýðuflokks- ins hafa ekki einungis verið fólgin i beinni forystu um lagasetningu, heldur ekki siður i hinu, að það merki lýðræðislegrar jafnað- arstefnu, sem hann hóf á loft og hefur ávallt haldið á lofti, hefur smám saman mótað skoðanir og störf annarra flokka. Útlendir menn spyrja þess oft, hvers vegna flokkaskipting sé hér á landi jafnfrábrugðin þvi, sem á sérstað á öðrum Norðurlöndum og raun ber vitni. Ekki er við þvi að búast, að útlendingar þekki þá sögulegu skýringu, sem á þvi er. Nútimaflokkakerfi mót- aðist hér á landi ekki fyrr en sjálfstæðisbaráttunni við Dani lauk i lok fyrri heimsstyrjaldar 1918. Þá var þjóðfélagið enn fyrst og fremst bændaþjóðfélag, og þingmenn aðallega kosnir i ein- menningskjördæmum, sem flest voru sveitakjördæmi. Slikt stjórnkerfi skapaði aðeins tveim flokkum starfsskilyrði. Það urðu Ihaldsflokkurinn, sem breytti nafni sinu i Sjálfstæðisflokk 1928, og Framsóknarflokkurinn. Þriðji Það getur ekki verið góð stjórn sem lætur helming atvinnu- rekenda sleppa við tekjuskatt þrátt fyrir augljóst óhófslíf flokkurinn, Alþýðuflokkurinn, hafði ekki vaxtarskilyrði vegna kjördæmaskipunarinnar. Þess vegna varð barátta fyrir breyt- ingum á henni eitt helzta áhuga- mál Alþýðuflokksins. Þar var fyrst og fremst við Framsóknar- flokkinn að etja. Hann reyndist ihaldssamastur allra islenzkra flokka i þessum efnum. Þegar loks fengust fram nokkrar leið- réttingar á kjördæmaskipuninni i byrjun fjórða áratugsins, voru Sjálfstæðisflokkurinn og Fram- sóknarflokkurinn löngu orðnir fastmótaðir flokkar og nutu þess, að hafa verið aðalflokkar þjóðar- innar i áratugi. En i kjölfar kjördæma- breytingarinnar 1933 fékk Alþýðuflokkurinn i raun og veru fyrst sæmilega réttmætastarfsað- stöðu, enda fékk hann þá um 22% atkvæða og 10 þingmenn af 48. Kommúnistaflokkur, sem stofn- aður hafði verið 1930, fékk aðeins 6% atkvæða og engan þingmann kjörinn. 1 kosningunum 1934 komst i raun og veru á þriggja flokka kerfi á tslandi. Kosningasigur Alþýðuflokksins i þeim kosningum leiddi til mvnd- unar fyrstu samsteypustjórnar á Islandi, en til þess tima höfðu eins flokks stjórnir fariö með völd. Alþýðuflokkurinn tók þátt i myndun þessarar samsteypu- stjórnar ásamt Framsóknar- flokknum, sem hafði fengiö 22% atkvæða, eins og Alþýðuflokkur- inn, en hins vegar 15 þingmenn. Bar það þess vott, hversu kjör- dæmaskipunin var enn ranglát og Framsóknarflokknum i hag. En þegar atkvæðahlutfall Fram- sóknarflokksins, 22% er skoðað, verður að hafa i huga, að hann hafði þá nýlega klofnað og nokkr- ir foringjar hans stofnaö Bænda- flokkinn, sem fékk 6 1/2% atkvæða i þessum kosningum. ENN ÞARF AÐ AUKA RÉTTLÆTI í TEKJU- SKIPTINGU OG Á OPINBERUM SVIÐUM En ekki aðeins kjördæmaskip- unin og það forskot, sem hún veitti Sjálfstæðisflokki og Fram- sóknarflokki, er skýring á ein- kennum flokkaskiptingarinnar á Islandi. Hin meginskýringin er sú ógæfa, er islenzk alþýðuhreyfing varð fyrir, er Alþýðuflokkurinn klofnaði árið 1938, aðeins fjórum árum eftir að hann varð veruleet afl i islenzkum stjórnmálum. Kommúnistaflokkurinn var lagð- ur niður, en Sósialistaflokknum komið á fót, flokki, sem afneitaði þvi i orði, að hann aðhylltist kommúnisma, og tókst á þeim grundvelli að verða stærri en Alþýðuflokkurinn. Klofningur Alþýðuflokksins og stofnun Sósia- listaflokksins kom i kjölfar baráttuherferðar kommú- nistaflokka i Vestur-Evrópu, sem tvimælalaust var skipulögð af Alþjóðasambandi Kommúnista i Moskvu og valdhöfunum i Sovét- rikjunum. Þessi þaulhugsaða og vel skipulagða baráttuherferð barhvergi árangurá Norðurlönd- um né i Vestur-Evrópu yfirleitt, nema á tslandi. En afleiðing hennar hér varðklofningur al- þýðuhreyfingarinnar i tvær fylk- ingar, sem lengi vel voru svipað- ar að stærð, en háðu harðvituga innbyröis baráttu, sem lamaði styrk þeirra og veikti áhrif þeirra, þótt að baki þeirra sam- eiginlega stæ&i hlutfallslega svipaður hluti kjósenda og að baki hinná voldugu og áhrifa- miklu jafnaðarmannaflokka á Norðurlöndum og i Vestur- Evrópu yfir höfuð að tala. Þessi klofningur alþýðuhreyfingarinn- ar, sem kommúnista leiðtogarnir Brynjólfur Bjarnason og Einar Ogeirsson höfðu forystu um, hef- urhaft örlagarik áhrif. Hér er um að ræða versta verkið, sem is- lenzkri alþýðuhreyfingu hefur verið unnið, eitt örlagarikasta vixlsporið i sögu islenzkra stjórn- mála á öldinni. Stofnun annarra flokka, sem komið hefur verið á fót m.a. til höfuðs Alþýðuflokknum, svo sem Þjóðvarnarflokksins á sinum tima, mistókst. Flokkurinn starf- aði aðeins skamma hrið. Sömu örlög virðast ætla að biða Sam- taka frjálslyndra og vinstri manna. En af öllu þessu eigum við Alþýðuflokksfólk, við islenzk- ir jafnaðarmenn, að draga réttan lærdóm. Alþýðuflokkurinn hefur oft átt aðild að rikisstjórn á sextiu ára starfsferli sinum. Eins og að lik- um lætur, hefur flokksmönnum oft sýnzt sitt hvað um það, hvort það hafi átt að gera eða ekki. Fyrsta rikisstjórnin, sem flokk- urinn tók þátt i var samsteypu- stjórnin með Framsóknarflokkn- um á árunum 1934 til 1937. Mjög litill ágreiningur mun hafa verið um það, að rétt hafi verið að taka þátt i þeirri rikisstjórn. Hún kom og mörgum merkum málum fram, m.a. fyrstu löggjöfinni um- alþýðutryggingar á Islandi. Hins vegar átti hún við mikla efna- hagsörðugleika að etja, einkum vegna missis markaðs á Spáni fyrir saltfisk vegna borgarastyrj- aldarinnar þar. Olli þetta at- vinnuleysi, og átti það eflaust mestan þátt i þvi, að Komm- únistaflokknum tókst að koma þrem mönnum á þing i kosning- um 1937, en sú staðreynd skipti verulegu máli i sambandi við kofning Alþýðuflokksinsárisiðar. Þegar Alþýðuflokkurinn tók þátt i þjóðstjórninni svo nefndu vorið 1939 og lét hinum nýja flokki, Sósialistaflokknum, einum það eftir að vera i stjórnarand- stöðu, var það mjög umdeild ákvöröun. Sú stjórn sat og ekki nema tvö ár að völdum. Aðild Alþýðuflokksins að nýsköpunar- stjórninni 1944-46 var og engan veginn óumdeild. 1 kosningum 1946 náði Alþýðuflokkurinn þó einhverjum bezta kosningaár- angri, sem hann hefur nokkru sinni náð, jók atkvæðahlutfall sitt úr liðlega 14% 1942 i næstum 18%, en Sósialistaflokkurinn jók sitt at- kvæðahlutfall um aðeins 1%, úr 18.5% i 19.5%. Enn tók Alþýðu- flokkurinn þátt i rikisstjórn á ár. unum 1947 - 49 með Sjálfstæðis flokknum og Framsóknarflokkn- um og veitti rikisstjórninni for- stöðu, en talsverður ágreiningur var i flokknum um þá stjórnar- þátttöku. Hins vegar virtist ekki teljandi ágreiningur um aðild flokksins að samstjórninni með Framsóknarflokknum og Alþýöu- bandalaginu á árunum 1956 - 58, enda varla um annað að ræða en að ganga til þeirrar stjórnar- myndunar, eftir að flokkurinn hafði haft algert kosningasam- starf við Framsóknarflokkinn i kosningum um sumarið, og þetta bandalag hafði háð höfuðbaráttu sina við Sjálfstæðisflokkinn. Samstaða sú, sem náðist um þetta stjórnarsamstarf, var hins vegar að þvi leyti merkileg, að nokkrum árum áður höfðu átt sér stað harðvitugar innanflokks*" deilur i Alþýðuflokknum, sem ef- laust hafa verið undirrót þess, að hópurinnan flokksins, sem nefndi sig Málfundafélag jafnaöar- manna, klauf sig frá flokknum og myndaði Alþýðubandalagið með Sósialistaflokknum, en þessi lið- styrkur, sem Sósialistaflokkurinn fékk, ekki sizt siðferðilega og með skilyrðum til breyttra áróðursað- ferða, tryggði honum umtals- verðan kosningasigur 1956 og átti sinn þátt i þvi, að hann reyndist reiðubúinn til stiórnarsamvinnu. Liklega hefur Alþýðuflokkurinn þó aldrei staðið jafneinhuga að baki nokkurrar rikisstjórnar og minnihlutastjórnarinnar, sem Emil Jónsson myndaði 1959 og skipuð var Alþýðuflokksmönnum einum. Þar var að visu um bráða- birgðastjórn að ræða, en á stjórn- artima hennar var núverandi kjördæmaskipun komið á og bráðabirgðalausn fundin á þeim efnahagsvanda, sem rikisstjórn Hermanns Jónassonar gafst upp við að leysa. 1 árslok59|hófst langlengsta stjórnarþátttökutimabil Alþýðu- flokksins, aðild hans að við- reisnarstjórninni svo nefndu, sem flokkurinn myndaði með Sjálf- stæðisflokknum og sat að völdum i 12 ár, lengst allra rikisstjórna, siðan stjórnin fluttist inn i landið i byrjun aldarinnar. Þótt myndun þessarar stjórnar væri stórt spor i sögu Alþýðuflokksins og hún efndi til gagngerari stefnu- breytingar á fjölmörgum sviöum en dæmi voru til um áöur, var ekki teljandi ágreiningur um það, að flokkurinn ætti að ganga til þessa stjórnarsamstarfs. Hins vegar urðu skiptari skoðanir um þátttöku flokksins i rikisstjórn- inni og samstarfið við Sjálf- stæðisflokkinn, eftir þvi sem það varð lengra, og var það i sjálfu sér skiljanlegt og eðlilegt. Eftir að flokkurinn hafði goldið alvarleg afhroð i kosningunum 1971, en Samtökin unnið stórkost- legan kosningasigur, varö litill ágreiningur innan Alþýðuflokks- ins um það, að fyrrverandi stjórnarandstöðuflokkar, sem tekizt hafði að svipta stjómar- flokkana meiri hluta sinum, ættu að mynda stjórn, , án aðildar Alþýðuflokksins, þótt honum væri boðið að taka þátt i viðræðum um myndun slikrar stjórnar. Og al- ger samstaða varð um andstöðu við myndun þeirrar rikisstjórnar, sem nú situr að völdum. Þegar skoðanir hafa verið skiptar um það i Alþýðuflokknum hvort hann hafi átt að taka þátt i rikisstjórn eða ekki, hefur það fyrst og fremst átt rót sina að rekja til ólíks mats á þvi, hvort stefna rikisstjórnarinnar i innan- landsmálum og þá fyrst og fremst efnahagsmálum hafi verið rétt eða ekki. Um utanrikismál hefur að vísu verið nokkur ágreiningur innan Alþýðuflokksins, allar götur siðan þau mál urðu veiga- mikill þáttur islenzkra stjórn- mála við lok styrjaldarinnar. Veruleg átök urðu innan flokksins um Keflavikursamninginn svo nefnda og aðildina að Atlants- hafsbandalaginu. Hins vegar varð þingflokkurinnn sammála um stuðning við herverndar- samninginn við Bandaríkin 1951, og andstaðan gegn aðild að Atlantshafsbandalaginu fór tvi- mælalaust minnkandi, þótt enn séu ýmsir Alþýðuflokksmenn henni andvigir, og enn fleiri and- vigir herverndarsamningnum, en mikill meiri hluti á flokksþingum hefur ávallt reynzt fylgjandi að- ildinni að Atlantshafsbandalag- inu og herverndarsamningnum, og hið sama á eflaust við um mik- inn meiri hluta kjósenda Alþýðu- Merki lýðræðis- sinnaðrar jafn- aðarstefnu hefur smámsaman mótað störf annarra flokka flokksins. En þessi ágreiningur hefur aldrei skipt máli i sam- bandi við aðild flokksins að rikis- stjórnum. Þótt eðlilegt sé, að á því ári, er flokkur minnist sextiu ára afmæl- issins, sé augum rennt til baka og hugleitt, hvað af reynslunni megi læra, má fortiðin samt ekki skipa veigamesta sessinn i hug okkar. Hún er liðin og kemur aldrei aft- ur. Það er samtiðin og framtiðin, sem máli skiptir. Það, sem nú á að vera efst i huga okkar, islenzkra Alþýðuflokksmanna, er,hvernig við getum bezt stuðlað að bættu þjóðfélagi á Islandi, hvernig við getum eflt réttmæta hagsmuni þeirra, sem við teljum okkur málsvara fyrir, islenzkra launamanna, hvernig við getum stutt að virkara lýðræði og styrk- ara réttarriki á Islandi. Við erum áreiöanlega á einu máli um, að það er vond stjórn, sem nú situr að völdum á Islandi. Það er ekki aðeins skoöun okkar og stjórnarandstööuflokkanna yf- ir höfuð að tala, heldur einnig fjölmargra, sem þó kusu stjórnarflokkana i siðustu kosn- ingum. Það getur ekki verið góð stjórn, sem lætur viðgangast tvö- falt meiri verðbólgu en i nokkru nálægu riki. Það getur ekki verið góð stjórn, sem safnar svo mikl- Framhald á bís. 10

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.