Alþýðublaðið - 29.10.1976, Side 6

Alþýðublaðið - 29.10.1976, Side 6
Föstudagur 29. október 1976 bía^M 6 SJÓNARMID EKKI EINS SLÆMT OG AF ER LÁTIÐ Sjúkra- og spitalafrásagnir alls konar hafa ætiö veriö mjög eftirsótt lestrarefni, ekki sist vegna spaugilegra lýsinga á háttum starfsfólks, og þeim sér- staka anda sem sagður er rikj- andi innan veggja sjúkrahús- anna. Eins hafa gengiö margar kimnisögur manna á milli og hefur þá ekkert verið til sparað, til að gera þær sem spaugileg- astar eða ógurlegastar, eftir þvi hvaö hefur þótt við hæfi hverju sinni. Hver kannast ekki við magn- þrungnar lýsingar á hjúkrunar- konum og læknum, þessum fyr- irbærum sem tæpast voru talin mannleg hér áður fyrr. Þáð hafa verið sagöar ótal sögur um þusandi pilsvarga, sem eirðu engu, sem nálægt þeim var, og brostu sjaldnar en sólin skein hér á suöurlandinu i sumar. Þá fengu læknarnir sinn skerf, enda ekki hægt aö tala við þá nema á latinu, að þvi er fróðir menn sögðu. Barnadeildirnar hafa ekki farið varhluta af sögum sem þessum, nema siður sé. Sagan segir, að þar sé barnið orðið siiík drtm sf ilfelli ” en ekki mm manneskja um leið og það er lagt inn, og aðbúnaðurinn eftir þvi. Pelar eru umsvifaiaust rifnir af kornabörnum og þau látin orga sig i svefn. Fæst þeirra barna, sem sögumenn þekktu til hafa komizt heil á geðsmunum út af þessum pin- ingarstöðvum læknisfræðinn- ar. Foreldrar eru sagöir illa þokkuð fyrirbæri, sem gera litið annað með heimsóknum sinum, en að espa upp óþekktina i krakkagemlingunum. Eðlilega hefur fólk dregið þá ályktun af framansögöu, að það ægilegasta sem getur komiö fyrir nokkurt barn sé að leggjastinn á spitala. Fyrir skömmu þurfti sonur minn litli að leggjast inn á einn slikan vegna meins i fæti. Sjúkrahúsdvöl hans átti sér nokkurn aðdraganda, og þvi spurðist nokkuö fljótt hvers kyns væri. Og það var eins og vii manninn mælt. Hvar sem við hrelldar foreldranefnurnar lét- um sjá okkur, beið okkar reið- innar býsn af hryllingssögum um meðferðbarna á sjúkrahús- um. Voru sumar þeirra svæsn- ustu þess eðlis, að þær hefðu fremur getað átt rót sina að rekja til fangabúöa á striðstim- unum, heldur en sakleysislegra sjúkrahúsa i henni Reykjavík. Það var þvi með hálfum huga sem við þrömmuöum inn ganga og upp stiga með litla kút til að láta leggja hann inn. Við lædd- um okkur inn ganginn á barna- deildinni og þangað sem við töldum að skrifstofan væri til staöar. Við tilkynntum komu og lá við sjálft að við bæöumst af- sökunar á að hafa ekki sent hann i pósti, i stað þess að vera að troðast með hann þangað, bæði tvö. Að aflokinni vanabundinni skýrslugerð, bjuggumst við til að laumast út, án þess að litiö bæri á. En hvað var nú þetta? Gat verið að okkur væri farið að förlast heyrn eða sagði hjúkrun arkonan að foreldrar mættu dvelja hjá börnunum eins og þá lysti? Jú, ekki bar á ööru. Þó komu okkar bæri ekki uppá heimsóknartima, voru margar mæður að stússa við börnin sin og sinna þeim. Og til þess að gera langa sögu stutta, má segja að þarna hafi allt verið gert fyrir litlu sálirnar til að þeim gæti liðið sem best. Þarna var nóg af alls kyns leiktækjum og dóti, sem hægt var aö dunda við. Það er óhætt að fullyrða að maður hafi gengið undir manns hönd, til að liðsinna smáfólkinu áeinn eða annan hátt. Ósjaldan máttiheyra mjóróma rödd inni i einhverri stofunni: Sjúkrakona, sjúkrakona, komdu og hjálpaðu mér að raða púslinu. Og „sjúkrakonurnar” sinntu köll- um krakkanna svo framarlega sem þær höfðu tima til að rétta þeim hjálparhönd. Það sem var eiginlega eftir- tektarverðast, meö hliðsjón af Johanna S. Sigþórsdóttir þeim sögum sem ganga manna á meðal, var það, að mikil á- herzla virðist nú lögð á, að barn- ið biði ekki tjón á sálu sinni, þó það þurfi að vera að heiman ein- hvern tima. Foreldrar eru hvattir til að vera hjá þeim eins og timi vinnst til og allt kapp virðist vera lagt á, að börnin finni sem minnst fyrir þeirri breytingu sem spitaladvöl veld- ur óhjákvæmilega. Þarna er sjúkdómnum sem sagt ekki gert hærra undir höfði en sálinni, og er það vel. OR VmSUM ATTUM Matur og menn ingarsjúkdómar 1 timariti Hjartaverndar vakti Arsæll Jónsson, læknir, fyrir skemmstu athygli á þvi samhengi sem viröist vera milli mataræðis og tiðni svonefndra menningarsjúkdóma. Þar er einkum átt við hjartasjúkdóma og sjúkdóma og kvilla á meltingarleið, sem geta ieitt til krabbameins. Aður hefur i þessum þætti verið skýrt frá þessari grein Ársæls, en i sjónvarpsþætti fyrir viku .ræddi hann itarlegar aðra hlið þessa máls, þ.e. hvern þátt stjórnvöld eiga i þessari þróun. Það fer ekkert milli mála að með opinberum aðgerðum er hægt að hafa mjög veruleg áhrif á matarvenjur og fæðuval þjóð- arinnar. Með þeim læknavis- indalegu sönnunum sem við megum teljast hafa fyrir fylgni með neyzlu tiltekinna fæðu- tegunda og tiðni menningar- sjúkdóma er ekki lengur álita- mál hvort stjórnvöld eigi að skerast i leikinn, heldur fer það brátt aö flokkast undir tilræði við heilbrigði þjóðarinnar ef ekkert verður að gert. Norska leiðin Norska rikisstjórnin flutti á siðasta þingi frumvarp til laga, sem heimila landbúnaðarráðu- neytinu að gera tiltækar ráö- stafanir til aö hafa, með verð- breytingum, sértollum eða niðurgreiöslum, áhrif á neyzlu- venjur Norðmanna. Tilgangurinn var augljós: Með þvi aö gera öllum þegnum kleift að neyta hollrar fæðu og með þvi að gera hollustumat ódýrari og auðfáanlegri en þann, sem ekki getur talizt heilsusamlegur, er stefnt að þvi að bæta heilbrigöi þjóðarinnar. Slikt er og réttur hvers manns — og skyida þess samfélags, sem hefur sett sér bað markmið að bæta hag allra án tillits til efna eða stöðu. Það er til litils að stefna að aukinni hagsæld, ef henni er samfara lakara heilsu- far og þar af leiðandi verri að- staða til að neyta þeirra auknu tækifæra, sem bjóðast. Rangt væri að segja að ekkert hafi verið gert i rétta átt i þessum efnum hérlendis. Með tiðari samgöngum við suðræn lönd hafa nokkrir innflytjendur matvöru lagt áherzlu á að út- vega hingað til lands ferska ávexti árið um kring og jafnvel nýttgrænmeti á þeim timum er ekkert islenzkt grænmeti er að fá. Þetta verður að teljast mjög til bóta, og litilsháttar verölags- breytingar.svosern niðurfelling söluskatts af ávöxtum, hafa einnig stefnt til bóta. En þetta er aðeins eitt skref af hundrað metra göngu. Hvit- sykur og trefjalaust hveiti eru uppistaðan i matvælum okkar, enda ódýrasta fæðan. Hún er auðug af kolvetnum, en tiltölu- lega snauð af eggjahvituefnum — og f hana vantar þær trefjar, sem meltingarfærunum eru ein- mitt svo nauðsynlegar og er að finna i hýðismat. Mjólkurvörur eru þessu næstar á matseöl- inum. ,,Fleira matur en feitt kjet' Þegar efnaminni fjölskyldur eiga i erfiðleikum meö að láta endana ná saman i heimilis- haldinu er ofur skiljanlegt að fólk freistist til að neyta hinnar hollustuminni eða jafnvel óhollu fæðu þar sem hún er nær undan- tekningarlaust ódýrari. Næsta skref i göngunni að settu marki hlýtur þvi að vera að samræma verðlagningu þvi fæðuvali, sem æskilegt er. A þessi atriði hefur margsinnis verið bent i timaritum Náttúru- lækningafélags Islands og hús- mæðrafélaga og kvenfélaga- sambanda. Vigdis Jónsdóttir, húsmæðrakennari, rakti i út- varpserindi fyrir skemmstu og ritaði itarlega grein um þessi mál, þar sem hún gerði góða grein fyrir leið norskra stjórn- valda til bættra hollustuhátta. Réttast hefði veriö að land- búnaðarráðherra hefði haft for- göngu um lagasetningu þar að lútandi i samvinnu viö við- skiptaráðuneytið. En við þvi er tæpastað búast meðan landbún- aðarráöuneytiö er undir stjórn hagsmunahópa framleiðenda. Þar virðist ekki stjórnað eftir þeirri ágætu reglu, að það er „fleira matur en feitt ket” Það hljómar nánast eins og tilræði við neytendur aö stinga upp á þvi að hækka verð á neyzluvörum. En þegar verð- hjöðnun varð á hvitasykri á heimsmarkaði eftir þá gffurlegu hækkun, sem oröið hafði og náði hámarki með útsöluverði sykurs i verzlunum hér I árs- byrjun i fyrra, þá hefði það vissulega verið rétt af verðlags- yfirvöldum aö leyfa ekki verð- lækkun (sic)! Þeir stórinnflytj- endur, sem þá lágu meö birgðir á hæsta verði urðu aö taka á sig tjón til aö mæta samkeppni ann- ara, sem fluttu ekki inn sykur fyrr en verð hjaðnaði. Ef við hefðum þá átt stjórnendur og ráðherra, i stað þess að eiga bara embættismenn og flokks- foringja, þá heföi mátt velja þá millileið að skattleggja verð- lækkunina og niðurgreiða með þeim skatti fæðutegundir með skaðminni sykri. Slik ákvörðun hefði leyst tvennan vanda. Lengi mætti benda á misfellur i tollun og verðlagningu mat- væla hér á landi, en látið nægja að staldra hér viö sykurverðið og þann bjarnargreiða annan, að undanskilja hvitt hveiti vöru- gjaldi. Verðlækkanir án til- gangs kunna að vera bjarnar- greiði. Neytendum er meiri akkur i að fá ráðamenn með skynsemi. -BS

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.