Alþýðublaðið - 29.10.1976, Page 8

Alþýðublaðið - 29.10.1976, Page 8
8 fRÉTTIR Föstudagur 29. október 1976[b!aSið f Föstudagur 29. október 1976 FRÉTTIR 9 Tónleikar i Norræna húsinu laugardaginn 30. október n.k. kl. 16.00 Finnski fiðluleikarinn Helena Leht- ela-Mennander og Agnes Löve, pianóleik- ari, leika verk eftir Corelli, Beethoven, Debussy, Sallinen og Grieg. Aðgöngumiðar við innganginn. Sunnudaginn 31. október n.k. kl. 16.00 verður sýnd kvikmyndin „LYSET I ISHAVSKATEDRALEN — Victor Sparre og hans kunst”. NORRÆNA HÚSIO Kvenfélagið Hringurinn heldur handavinnu- og kökubazar að Hallveigarstöðum laugardaginn 30. október, kl. 2. Allur ágóðinn rennur til Bamaspitalans. Breytt símanúmer SKRIFST0FA RÍKISSPÍTALANNA Frá og með mánudeginum 1. nóvember verður simanúmer SKRIFSTOFU RIKISSPÍTALANNA 24160. Gjaldkeri, launadeild og innkaupastjóri verða þó áfram með sima 11765. Reiknistofa bankanna óskar eftir að ráða starfsmann til uppgjörs, götunar og skyldra starfa. Reynsla i götun er æskileg. Störf þessi eru unnin a kvöldin. Raðning er samkvæmt almennum kjörum bankastarfsmanna. Skriflegar umsóknir sendist Reiknistofu bankanna, Digranesvegi 5, Kópavogi fyrir 4. nóv. n.k. Langferðabifreið Óskum að kaupa 30-35 manna fólksflutn- ingabifreið I góðu ástandi. Tilboðum sé skilað á skrifstofu vora fyrir kl. 16.00 föstudaginn 12. nóv. n.k. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 - Skiptar skoðanir innan Samtakanna um framtíð flokksins Eins og kunnugt er, samþykkti framkvæmdastjórn Samtaka frjálslyndra og vinstri manna á fundi sinum þann 12. október, að aflýsa fyrir- huguðum landsfundi samtakanna og leggja þar með niður störf sin. Margir hafa viljað túlka þennan atburð á þann veg, að hann sé fyrirboði þess aö Samtökin verði bráð- lega lögö niður sem stjómmála- flokkur á landsmælikvaröa, eða jafnvel að þau muni liðast i sundur vegna ágreinings ýmissa skoðanahópa um markmið og leiðir flokksins. 1 nýjasta tbl. Nýrra þjóömála, málgagni Samtaka frjáls- lyndra, er að finna greinar eftir marga af forystumönnun samtakanna, þar sem fjallað er um stöðu flokksins, markmið hans ög leiðir. Samþykktin mála- miðlun 1 grein eftir Magnús Torfa« Olafsson alþm. segir m.a. svo: „Samþykkt framkvæmda- stjórnar Samtakanna um aö sú stofnun leggi niður störf og að aflýsa landsfundi ber með sér að hún er málamiðlun og líklega engum sem að henni stóðu fyllilega aö skapi. Þessi kostur þótti illskárstur eins og komið var, þegar ljóst var orðið að innan framkvæmdastjórnar voru uppi ósættanlegar skoðanir á framtiö Samtakanna. Fyrir lá að á landsfundi yrði gerð tillaga um að ákveðið yrði að þessi skyldi veröa hinn siðasti sem Samtökin efndu til ogengar kosningar eiga sér stað i stööur og stofnanir á þeirra vegum, sem hefði þýtt að Samtökin væru lögö niöur. Skoðun min er aö meirihluti samtakafólks sé andvigur slikri ráðabreytni og tillaga i þessa átt hefði verið felld á lands- fundi. En þar sem vitað var að þeir sem leggja vilja Samtökin niður hefðu farið sinu fram hvað sem landsfundur ályktaði, var vandséð að nokkuð væri unnið með þvi að efna til sllkrar samkomu”. Grein Magnúsar Torfa lýkur með þessum orðum: „Okkur, sem teljum að svona sé málum háttað, þykir aö sjálfsögðu miður, að sumir þeirra sem um skeið kusu að hasla sér völl innan Sam- takanna telja sig nú ekki eiga þar heima lengur. Með samþykkt framkvæmda- stjórnar er þeim greidd ieið til að fara i friöi, án þeirra illinda og átaka sem oft vilja fylgja, þegar leiðir skilur i stjórn- málum. Samtakafólk hefur nóg verkefni fyrir höndum, og engin ástæða er til að eyða kröftum frekar en orðið er i deilur um spurninguna: Að vera eða vera ekki”. „Hörmuleg þróun” Elias Snæland hefur verið fastur starfsmaður Samtakanna um nokkurt skeið, þar til honum og skrifstofu- stúlku Samtakanna var sagt upp störfum frá 1. október s.l. Elias hefur m.a. ritstýrt Nýjum Þjóðmálum. í grein i siðasta tbl. blaðs sins segir Elias Snæland m.a.: ,,Ég sé ekki ástæðu til aö leyna þvi, að þaö eru mér mikil vonbrigði að svo skuli komið fyrir Samtökunum, sem raun ber vitni. Þróun innri mála Samtakanna siðustu misseri hefur vissulega ekki verið i samræmi við þær vonir, sem ég ogmargir fleiri höfðu bundið við Samtökin. Ég hefi verið þeirrar skoöunar, að Samtökin hefðu hlutverki að gegna i islenzkum stjórnmálum, og að þau gætu hæglega gegnt þvi hlutverki ef þau sýndu samstöðu og hik- leysi.” 1 lok greinar sinnar segir Elías Snæland, að sú skoöun hafi verið rikjandi á landsfundi Samtakanna 1974, að þau heföu mikilvægu hlutverki að gegna og að rikt hefði bjartsýnimeð að þeim myndi takast að rækja það. Nú hefðu margir hins vegar misst trúna og ákveðið að hasla sér völl annars staöar. Spurningin sé þvi sú, hvort þeir atburðir séu svo alvarlegir aö Samtökin séu ekki fær um að gegna ætlunarverki sinu. Muni svar við þeirri spurningu fást á næstu mánuðum. „Höldum starfinu áfram ” Andrés Kristjánsson, Heimir Ingimarsson, Höskuldur Egils- son og Einar Hannesson skrifa allir pistla i Ný Þjóðmál, þar sem eindregið er mælt með þvi að Samtökin haldi áfram starfi sinu. Þá er birt samþykkt frá almennum fundi SFV i Rey- kjavik, þar sem segir, að „brýnt sé að félagsmenn Samtakanna um land allt komi skipulagi flokksins I eölilegt horf á ný.” Niðurlagsorð greinar Andrésar Kristjánssonar eru á þessa leið: „t þvi stormahléi, sem vonandi rikir á meöan beðið er flokksstjórnarfundar, geta þeir, sem óska að kveðja, skrifað úr- Magnús Torfi: Eyðum kröftunum ekki frekar i spurn- inguna að vera eða vera ekki. sögn sina meö kyrrlæti og fariö i nýja vist eins og persónulegur réttur hvers manns er. En jafn- framt væri með allri kurteisi hafnað keisaralegri kröfu þeirra um, að Samtökin verði með öllu lögð niður brottför þeirra til heiðurs.” Afstaða framkvæmda- stjórnar Olafur Ragnar Grimsson gerir grein fyrir sjónarmiðum framkvæmdastjórnar SFV og kemur þarfram, að iseptember var sérstakri nefnd falið að leita leiða til að ná samstöðu innan framkvæmdastjórnar og meðal annars samtakafólks um tillögur til afgreiðslu mála á landsfundi”. Siðan kom fram, að mikil óvissa þótti rikja um sókn manna á væntanlegan landsfund og margir töldu að þetta yrði aðeins deilufundur sem engum tilgangi gæti þjónað. I ljósi þessa gerði Ólafur Ragnar könnun meðal framkvæmdarstjórnarmanna á möguleikumtilsamkomulags um málalok. Segist hann hafa lagt eftirfarandi atriði til grund- vallar könnun sinni: 1. Að Vestfjarðasamþykktin og skoðanir ýmissa annarra aðila hafi falið i sér i reynd, að Ólafur Ragnar: Flokkurinn mun i raun leysast upp hvað sem öllu formi liður og mikil- vægast er að finna þeirri þróun átakalausan farveg. grundvöllur sameiginlegrar starfsemi væri brostinn. 2. Að landsfundurinn yrði mjög fámennur, og litið til sóma, einkum ef hann myndi leysast upp i deiluhópa. 3. Að rikur vilji hafi verið meöal allra hlutaöeigandi aðila til að fá á friðsaman hátt botn i máliö og helst þannig að hver og einn hefði siöan frjálsræði til að gera það sem honum þætti ákjósanlegast. 4. Aö ljóst hafi verið aö á næstu vikum og mánuðum myndu hinir ýmsu hlutar Samtakanna halda i ýmsar áttir, til viðræðna við Alþýöu- flokk, til inngöngu i Alþýðu- bandalagið og til starfa hver á sinum heimavettvangi, t.d. þar sem Samtökin hafa bæjar- fulltrúa. Flokkurinn myndi I reynd leysast upp hvað sem öllu formi liði og mikilvægast væri að finna þeirri þróun átaka- iausan og friðsamlegan farveg.” Niðurstaöa þessarar könnunar varð svo öðru fremur til þess að landsfundi var aflýst og samkomulag gert um, aö forystusveit flokksins yrði ekki kölluö saman aftur. Þegar öll sameiginleg starfsemi hefði verið lögð niður, myndi Karvel: Affarsælast að horfast i augu við þá staðreynd að upprunalegum markmiðum, sem Samtökin settu sér, hefur ekki verið náð. framtiðin tala skýrustu máli um eðli þeirrar ákvörðunar, segirólafur; Karvel Pálmason alþingis- maður gerir grein fyrir viðhorfum flokksmanna á Vest- fjörðum og segir samþykkt f r a m k v æ m d a n e f nd a r i samræmi við óskir þeirra. Karvel segir m.a.: „Það er nauðsynlegt i þessu sambandi að hafa i huga, að Samtökunum var ekki ætlað að vera til langframa fimmti varanlegi stjórnmálaflokkurinn I landinu. Og það er min skoðun, að affarsælast sé að horfast i augu við þá staðreynd, aö upprunalegum markmiðum, sem Samtökin settu sér, hefur ekki veriö náð.” Grein Karvels lýkur með þessum orðum: „Ég tel að forystumenn Samtakanna, sem að ály ktuninni standa, séu menn aö meiri, þvi þeir hafa sýnt, að þrátt fyrir ágreining um leiðir að settu marki, hefur þeim tekist að finna leið, sem gefur þeim sjónarmiðum, sem helzt hafa komið upp innan Samtakanna, möguleika á að finna vettvang, sem hver og einn telur bezt viö hæfi i baráttu að settu marki”. —ARH Mikil starfsemi í Norræna húsinu: Kvikmyndasýning- ar og tónleikar um helgina 16 VERKALYÐSFELOG SENDA 33 FULLTRÚA Á ASÍ-ÞING Góðar gjafir til Norræna hússins Norræna húsinu hafa borizt margar góöar gjafir að undan- förnu, erlendis frá. Danska tón- skáldasambandið hefur gefið húsinu allar nótur og hljóm- plötur sem sambandið hefur gefiö út. Gjöf þessi er áætluð vera 40-50 þús. danskra króna viröi. Prófessor Gunnar Hoppe, rektor við Stokkhólmsháskóla, formaður stjórnar Norræna hússins, færði Húsinu að gjöf frá rikisbókaverði Svia, Uno Willers, var það útgáfa Peringskiölds av Heimskringlu i tveimur bindum, prentuð i Stokkhólmi 1679. Er þaö elzta útgáfa Heimskringlu, sem Norræna húsið hefur eignast. Eintakið þurfti litilsháttar viðgerðar við, og lét eigandinn annast viðgerðinaáðuren gjöfin var afhent, en eintak þetta er annars mjög fallegt og vei varðveitt. Brekkukotsannáll i Norræna húsinu Hér á landi dvelst nú Rolf Hadrich, frá Þýzkalandi. Hadrich stjórnaði á sinum tima upptöku kvikmyndarinnar um Brekkukotsannál Halldórs Laxness. Af þvi tilefni verður Brekku- kotsannáll sýndur I Norræna húsinu laugardaginn 30. október og sunnudaginn 31. okt., i tvennu lagi. Að lokinni seinni sýningunni segir Hadrich frá vinnunni við gerð kvik- myndarinnar og svarar spurningum um Brekkukots- annál. Einnig mun Hadrich segja frá kvikmynd þeirri sem Norddeutscher Rundfunk lætur gera I samvinnu við sjónvarps- stöðvar Noröurlandanna eftir Paradisarheimt Laxness, en myndin er gerð undir stjórn Hadrichs. Victor Sparre og list hans Sýning á verkum Victors Sparre stendur nú yfir i sýningarsölum Norræna hússins. Sýningin var opnuð 23. okt., og hefur verið mjög vel sótt, og hafa nokkur verkanna selst. Sparre bauð Listasafni rikisins eitt af verkunum til eignar, gegn einnar krónu gjaldi. Listasafn þá boð málarans og valdi safnráð eitt verkanna handa safninu. Listamaöurinn var sjálfur viðstaddur opnun sýningar sinnar og hélt auk þess fyrir- lestur i samkomusal hússins sunnudaginn 24. okt. Var þá sýnd kvikmyndin „Lyset i Ishavskatedralen - Victor Sparre og hans kunst”. Fyrir- hugað er að endursýna þessa kvikmynd sunnudaginn 31. okt. n.k. Myndin fjallar, eins og nafnið bendir til, um Victor Sparre. Sýningin verður I sam- komusal Norræna hússins, og hefst kl. 16.00. Tónleikar i Norræna húsinu Nk. laugardag halda finnski fiðluleikarinn Helena LehteiÖ- Mennander og Agnes Löve pianóleikari, tónleika I Norræna húsinu. Helena Lehtela-Mennander nam fiðluleik við Sibeliusar- akademiuna i Helsingfors. Framhaldsnám stundaði hún i Paris, og við Tschaikovsky- tónlistarháskólann i Moskvu. Siðustu ár hefur hún verið við nám hjá Arthur Grumiaux^i Briíssel. Frú Lehtela- Mainander hefur haldið fjölda tónleika i heimalandi sinu og utan, auk þess sem hún hefur komið fram i bæði sjónvarpi og hljóðvarpi i Finnlandi. Agnes Löve, pianóleikari, nam pianóleik við Tónlistar- skólann i Reykjavik. Fram- haldsnám stundaði hún i tónlistarháskólanum i Leipzig, og tók þaðan einleikarapróf eftir 7 ára nám. Agnes Löve má telja meðal færustu pianóleikara okkar, Hún hefur leikið sem einleikari meö Sinfóniuhljomsveit íslands, og viða komiö fram með erlendum og innlendum lista- mönnum. Agnes kennir nú við Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar. Sem fyrr segir eru tón- leikamir n.k. laugardag og hefjast kl. 16. —AB Alþýðublaðið hefur að undanförnu birt nöfn þeirra fulltrúa, sem verkalýðsfélögin hafa kjörið til setu á þingi ASÍ, sem hefst i Reykjavik 29. nóvember. Hér birtast nöfn þeirra fulltrúa, sem ekki hefur verið greint frá áður: Verkalýðsfélag Hólmavikur Benedikt Sæmundsson Félag bifreiðasmiða Asvaldur Andrésson V erkalý ðsfélagið Hörður, Hvolsvelli Sveinbjörn M. Njálsson Bifreiðast jórafélagið Keilir, Keflavik Heiðar Georgsson Matsveinaféiag Sjómannasambands Islands Arsæll Pálsson Vélstjörafélag Suðurnesja, Keflavil^ Jón. Kr. Ólsen Verkalýösfélagiö JökulL Ólafsvik Hinrik Konráðsson örn Ottósson Kjartan Þorsteinsson Verkalýðsfélag Stykkishólms Einar Karlsson Kristin óskarsdóttir Sveinafélag járniðnaðar- manna, Vestmannaeyjum Borgþór Pálsson Verkakvennafélagið Framtiðiit Hafnarfirði Guðriður Eliasdóttir Heiga Guðjónsdóttir Dagbjört Sigurðardóttir Guðbjörg Guðjónsdóttir Dýrlei Sigurðardóttir Sveinafélag Skipasmiða, Heykjavik Helgi Arnlaugsson Verkalýðsfélag Norðfiröinga, Neskaupstað Sigfinnur Karlsson Guðmundur Sigurjónsson Stefán Pétursson Arni Þormóðsson Verkalýðs og sjómannafélag Fáskrúðsfjarðar Ingólfur Arnason Björgvin Baldursson Félag bifvélavirkja, Reykjavik Guömundur Hilmarsson Siguröur óskarsson Snorri Konráösson Snorri Sigfinnsson Félag rafiðnaöarmanna á Suöurlandi Björn Júliusson Félag starfsfólks I veitinga- húsum Indriöi Halldórsson Þórunn Thorlacius Málfriður Olafsdóttir Aöalheiður Olafsdóttir Ályktanir 37. flokksþings Alþýðuflokksins Veik og sundur- lynd íhaldsstjórn 37. þing Alþýðuflokksins telur, að rikisstjórn Sjálfstæðisflokks og Fram- sóknarflokks hafi algerlega mistekizt aö ráða við vandamálin sem við er að eiga. Rikisstjórninni hefur ekki tekizt að vinna traust þjóðarinnar og sam- eina hana i baráttu til vinna sig út úr vandanum, endurheimta jafnvægi í efnahagsmálum og tryggjaá ný efna- hagslegt sjálfstæði. Þrátt fyrir mikinn þingmeirihluta hefur stjórnin verið veik og sundur- lynd. Eftir tveggja ára starf hennar blasa þessar staöreyndir við: 1. Aldrei hefur meira skort á, að stjórnvöld sýni varfærni og aðgát um verndun fiskistofna eins og bezt má sjá af þvi að nú þegar er búið að veiða langt umfram það, sem helztu vísindamenn þjóðarinnar töldu óhætt. 2. Aldrei hefur verðbólga verið meiri en á þessu timabili, og bati á þvi sviði er langt á eftir öðrum evrópu- löndum. 3. Aldrei hefur halli á utanrikisvið- skiptum verið meiri, og hefur lltið sem ekkert verið gert tilað draga úr eyðslu erlends gjaldeyris. 4. Aldrei hefur skuldasöfnun þjóðar- innar erlendis verið meiri og er greiöslubyröin að verða þjóðinni of- raun, en lánstraust íslendinga að þverra. 5. Aldrei hefur óstjórn i opinberum framkvæmdum verið meiri, og næg- ir þar að nefna til raforkufram- kvæmdir, t.d. við Kröflu. 6. Aldrei hefur halli á rekstri ríkis- stjóðs eða skuld hans við Seðla- banka verið meiri, en þetta er sem olia á eld verðbólgunnar. 7. Aldrei hefur misrétti í skattamálum verið hrikalegra oglögleg og ólögleg undanbrögö meiri. Hinir riku verða stöðugt rikari og afkoma hinna efnaminni sifellt erfiðari. 8. Aldrei hefur þvilik spilling og alda afbrota riðið yfir þjóðina og úrelt dóms- og réttarkerfi verið eins ófullnægjandi, en rikisstjórnin ráö- villt og sundruð i viðbrögöum sin- um. Ekki er að undra, þótt traust þjóðar- innar á stjórnvöldum fari þverr- andi. Skattleggja ber hátekjur af atvinnurekstri eða eignum 37. þing Alþýöuflokksins telur ó- réttlæti skattakerfisins hafa keyrt svo um þverbak i tið núverandi rikis-* stjórnar að þegar á þessu Alþingi verði aö'gera á því grundvallarbreytingar. Þingið bendir á eftirtalin atriði: 1. Afnema ber tekjuskatt af almenn- um launatekjum. Skattleggja ber hátekjur af atvinnurekstri eða eign- um og breyta skal reglum um álagn- ingu útsvars þannig, aö útsvariö verði stighækkandi með hækkandi tekjum. 2. Aöskilja ber f járhag einstaklings og atvinnurekstrar hans og skattleggja hvort fyrir sig, svo að bókhaldstap á rekstri geti ekki gert tekjuháa menn skattlausa. 3. Endurskoða ber afskriftareglur til að koma i veg fyrir þá vibtæku mis- notkun þeirra, sem tiðkast hefur. 4. Endurskoða ber frádráttarreglur og setja þeim ströng takmörk, m.a. með þvi að setja „þak” á leyfilegan vaxtafrádrátt. KjarabaráUan krefst sterkrar faglegrar samstöðu launastétta Vegna þeirrar gifulegu verðbólgu, sem gerst hefur undanfarin ár og enn viröistlitið lát á og i kjölfar hennar stöðugar kjaraskerðingar launþega svo og sivaxandi misrétti I skattamál- um og á fjölmörgum öörum sviöum, hlýtur barátta alþýðusamtakanna fyr- irstór hækkuöum raunlaunum að fara mjög harðnandi i næstu framtið. 37. þing Alþýöuflokksins telur þvi þjóðar- nauösyn bera til að beina öllum kröft- um efnahagslifsins og möguleikum, sem óefaö eru fyrir hendi sé réttri efnahagsstefnu beitt til þess aö bæta kjör launþega og þá alveg sérstaklega þeirra, sem nú bera minnst úr bvtum. Þaö veröur aö lyfta Islandi upp úr þvi láglaunafeni, sem það hefur verið að sökkva i og það er unnt, ef stjórnvöld leggjast i þvi efni á sveif með alþýöu- samtökunum og breyta efnahags- stefnu sinni i samræmi við þaö. Þá er óhjákvæmilegt að gerbreyta skipan lifeyrismála og tryggja lífeyrisþegn- um mannsæmandi lifskjör og sama llf- eyrisrétt. Sú barátta, sem fram undan er I kjaramálum krefst sterkrar faglegrar samstöðu allra launþegastéttanna og jafnframt stuðnings allra þeirra póli- tisku afla sem bera hag þeirra fyrir brjósti. Þvilýsir Alþýðuflokkurinn yfir öllum þeim stuöningi viö launþega- samtökin, er hann má veita I þessari baráttu og heitir þá jafnframt á alla launþega aö veita flokknum brautar- gengi og tryggja þannig hag sinn, sem aö miklum hluta ræöst af styrk flokks- ins og áhrifum á stjórnmálasviöinu. Þá lýsir 37. þing Alþýöuflokksins eindreginni andstööu viö þær fyr- irætlanirsem nú eru uppi um verulega þrengingu á réttarstööu verkalýðsfél- aganna með breytingum á vinnulög- gjöfinni svo og gegn þvingunarlögum gegn frjálsum samningsrétti sjó- mannastéttarinnar. Teljist nauðsyn á aö endurskoða núgildandi vinnulög- gjöf áiitur þingið að sú endurskoðun eigi aö fara fram i fullri samvinnu við aðila vinnumarkaðarins og eigi breyt- ingar þvi aðeins rétt á sér aö báðir að- ilar hans séu breytingunum samþykk- ir, þvi ella leysa þær engan vanda á vinnumarkaðinum heldur en, ef þessa erekkigætt, miklu liklegri til að skapa illvi’gar deilur en leiða til sátta.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.