Alþýðublaðið - 29.10.1976, Síða 10
10.
Föstudagur 29. október 1976 S&r
SKEMMTANIR — SKEMMTANIR
HÓTEL LOFTLEIÐIR
Cafeteria, veitingasalur meö sjálfsafgreiöslu opin alla
daga.
HÓTEL LOFTLEIÐIR
Blómasalur, opinn alla daga vikunnar.
HÓTEL SAGA
Grilliö opiö alla daga. Mlmisbar og Astrabar, opiö alla
daga nema miövikudaga. Simi 20890.
INGÓLFS CAFÉ
viö Hverfisgötu. — Gömlu og nýju dansarnir. Sfmi 12826.
SKEMMTANIR — SKEMMTANIR
Gömludansarnir í kvöid ki: 9
Hljómsveit Gafðars Jóhannessonar.
Söngvari Björn Þorgeirsson.
Aðgöngúmiðasala frá kl. 8. — Simi Í2826.
Tilboð óskast
i nokkrar fólksbifreiðar, Pick-Up og
sendiferðabifreiðar, er verða sýndar að
Grensásvegi 9 þriðjudaginn 2. nóvember
kl. 12-3. — Tilboðin verða opnuð i skrif-
stofu vorri kl. 5. •
Gunnur Gunnarsdóttir
Þegar heljarhöndin kalda
hrífur burtu ástvin kæran,
hversu stirt er tungutakið,
tal vort fátækt, hugur tómur.
Gjarnan viljum geta huggað
grátin þó vor augu svíði.
Æ, hve fátækt finnum okkur.
Framtiðin er harmur kvíði.
Þú ert Gunnur, horfin héðan,
hel þig tók, svo ferska, — unga.
Ástvinirnir eftir standa,
axla byrði harmsins, — þunga.
Hann, sem þekkir mannlífs meinin
mýki þeirra sollnu undir.
Lífsins stærsta kærleiks krafti
Kristi, felum æfistundir.
Mig langar fram að færa þakkir
fyrir alla þina kynning.
Þú varst mér æ góð og Gunnur,
ég geymi um þig kæra minning.
Þú varst sterk í þínum sorgum
þreki prýdd og fórnarlundu.
Son og mann þinn sífellt leiddir
samúðar og kærleiks mundu.
Samleið okkar er nú rofin,
ei þig getum fengið aftur
fyrr enn ris sá dýrðardagur
er Drottins Jesú, birtist kraftur
á upprisunnar efstadegi,
þá allir vakna af dauðans blundi,
og sorgin þverr í sigurgleði. —
Sofðu rótt, og góðar stundir.
Björk.
- kveðja frá tengdamóður
Þáttur Alþýðuflokksins í
íslenzkri stjórnmálasögu
Sala varnarliðseigna.
Laust embætti er
forseti íslands veitir
Prófessorsembætti I taugasjúkdóm afræöi viö
læknadeild Háskóla tslands er laust til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 25. nóvember n.k.
Laun samkv. launakerfi starfsmanna rlkisins.
Umsækjendur um prófessorsembætti þetta skuiu láta
fylgja umsókn sinni rækilega skýrslu um vfsindastörf þau
er þeir hafa unniö, ritsmiöar og rannsóknir, svo og náms-
feril sinn og störf.
Menntamáiaráöuneytiö,
28. október 1976.
Vörubílastöðin Þróttur
tilkynnir
Frá 1. hóvember verður afgreiðsla
stöðvarinnar lokuð á laugardögum.
Viðskiptavinum er bent á atvinnuskrá
bifreiðastjóra i simaskránni.
Stjórnin
jazzBaLLeCdakóLi Bóru
Jazzballett
fyrir alla
-L. Nvtt námskeið hefst 1. nó
b
N
N
Byrjendur teknir
frá 7 — 16 ára.
%
8
s
Ath. aðeins nokkur pláss laus. —
00
Upplýsingar og innritun Q,
í síma 83730 12
N
•Rr
jazzBaLLöGGskóu Búru
- framhald af bls. 3
um skuldum erlendis, að nota
þarf fimmtu hverja kpónu, sem
þjóöin aflar sér með útflutningi,
til þess að greiða vexti og afborg-
anir af erlendum skuldum. Það
getur ekki verið góð stjórn,
semlætur launamenn greiða fjór-
um sinnum meira i tekjuskatt af
tekjum sinum en öll atvinnufyrir-
tæki i landinu. Það getur ekki
verið góð stjórn, sem lætur um
það bil helming allra atvinnurek-
enda sleppa við alla tekjuskatt-
greiðslu til rikisins, þótt fjöl-
margir þeirra lifi augljósu óhófs-
lifi. bað getur ekki verið góð
stjtírn, sem horfir upp á það aö-
geröalaus eða aðgerðalitil, að
kaupmáttur launa fari sirýrnandi
og aö fjölmennir hópar launa-
manna, svo sem opinberir starfs-
menn, séu beittir beinum rang-
indum i sambandi við launa-
ákvörðun. Það getur ekki verið
góð stjórn, sem lætur það við-
gangast, að Island sé orðið lág-
launasvæði, þar sem tekjur
manna eru mun lægri en i nálæg-
um löndum, þrátt fyrir mun
lengri vinnudag.
Svona mætti lengi telja. En ég
læt þetta nægja. Allir skynsamir
Islendingar hljóta að sjá, að
Islandi er illa stjórnað.
En það er ekki aðeins efnahags-
lif þjóðarinnar, sem er sjúkt.
Hitterekki siður alvarlegt að hér
hefur á siöari árum risið alda
fjársvika, smygls, eiturlyfja-
nautnar, alls kyns afbrota og
jafnvel beinna glæpa, sem áður
voru sem betur fer næstum
óþekkt fyrirbæri á Islandi. Sú
ömurlega staðreynd hefur komið
i ljós, að réttarkerfi landsins hef-
ur ekki reynzt ráða við slik mál.
Braskarar og lögbrjótar leika
lausum hala og halda áfram alls
konar viðskiptum en dómstólar
og valdakerfi sinna ekki þessum
málum með nægilega skjótum og
traustvekjandi hætti. Hér er um
að ræða svo alvarlega þróun, að
gri'pa verður i taumana.
Þróunin i afbrotamálunum og
réttarfarsmálunum bendir til,
þess, að islenzkt réttarriki standi
ekki eins traustum fótum og við
höfðum viljað trúa. En verður
ekki dálítið svipaö sagt um lýð-
ræðiö og þingræðið á Islandi?
Hvernig er kjördæmaskipunin? I
sumum landshlutum hafa menn
næstum tvöfaldan kosningarétt á
viö kjósendur i öðrum landshlut-
um. Flokkur, sem fær 700 atkvæði
i einu kjördæmi, getur fengið full-
trúa á þing og meira að segja
fleiri en einn, samtimis þvi, að
margfalt stærri flokkur fengi
engan þingmann, einungis vegna
þess, aö hann hefur ekki hlotið
þingsæti i kjördæmi. Og hvernig
ermeð val frambjóðenda? Er það
nógu lýðræðislegt? Hver eru skil-
yrði kjósenda, til þess að hafa
áhrif á það, hverjir verða fulltrú-
ar þeirra á Alþingi og i sveitar-
stjórnum? Er lýðræði okkar
kannske, þegar öllu er á botninn
hvolft, ekki jafnfullkomið og við
höfum viljað trúa? Og hvernig er
háttað áhrifum starfsfólks á
vinnustað, hvernig er lýðræðið i
atvinnulifinu? Þarerskemmst af
aðsegja.að það er þarekkert? Er
þetta eins og það á að vera?
En hvað er þá til ráða í þvi
ófremdarástandi, sem nú rikir i
islenzku þjóðlifi?
Augljóster, að núverandi ríkis-
stjórn ræður ekki við þann vanda,
sem við er að etja. Hún hefur
óbeinlinis játað það með þvl að
gera tillögu um skipan fjölmennr-
ar nefndar flokka og hagsmuna-
samtaka, sem ásamt fulltrúum
rikisstjórnarinnar eiga að fjalla
um vandann fram i febrúar. En
svo lengi má lausn vandans ekki
biða. Þetta virðist öllum vera
ljóst nema rikisstjórninni sjálfri.
Engu að siður hafa allir aðilar,
sem til hefur verið leitað, talið
rétt að tilnefna fulltrúa í nefnd-
ina. En það breytir ekki þeirri
staðreynd, að kjósendur þurfa
sem fyrst aö fá tækifæri til þess
að láta i ljós skoöun sina. Þjótjin
þarfnast nýrrar stjórnar. tslend-
ingar þurfa nú stjórn, sem getur
starfað i samvinnu við aðila
vinnumarkaðsins. Það er for-
senda þess, sem gera þarf i
islenzku efnahagslifi. Það verður
að endurskipuleggja islenzkt
framleiðslu- og viðskiptalif.
Framleiðnin verður að vaxa. Só-
unin og sukkið verður að hætta.
Opinberir aðilar, ríki og sveitar-
félög, verða að gera rekstur sinn
hagkvæmari og sýna aukið að-
hald i meðferð fjármála. Þetta
allt er skilyrði þess, að þjóðar-
tekjur geti vaxið og raungildi
launa hækkað. Um leið verður að
auka réttlæti i tekjuskiptingu,
með endurbótum á almanna-
tryggingakerfinu og gerbreytingu
á skattakerfinu.
Ekkert af þessu gerir núver-
andi rikisstjórn. Þess vegna verð-
ur kjósandinn sem fyrst að fá að
gripa í taumana. Og þá trú hef ég
á skynsemi islenzkra kjósenda,
að nú mundu þeir viðurkenna
réttmæti sjónarmiða lýðræðis-
legrar jafnaðarstefnu, þeirrar
stefnu, sem Alþýðuflokkurinn
hefur alltaf boðað og mun halda
áfram að boða.
Hjúkrunarfræðingar
Sjúkrahús Húsavikur óskar að ráða nú
þegar hjúkrunarfræðinga.Húsnæði i boði,
Upplýsingar veita framkvæmdastjóri og
forstöðukona i simum 94-4-13-33 og
Sjúkrahúsið i Húsavik s.f
Jarðarför
Franziscu Gunnarsson
hefur farið fram i kyrrþey samkvæmt ósk hinnar látnu.
Gunnar Gunnarsson
Olfur Gunnarsson
tengdadætur og barnabörn.