Alþýðublaðið - 16.11.1976, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 16.11.1976, Blaðsíða 4
4 Þriðjudagur 16. nóvember 1976 588T DÍIf ICMTf'ÁCA MÁMC Rætt við Jón KIJ\ loUlbHrA NHlylo- Emil dhu A CT/TDCTA DHI/A Guðjónsson, dUK F0R iA"w 1 Ko 1A dUi\A- LAG LANDSINS framkvæmda- stjóra Ríkisút- gáfu námsbóka í hartnaer 40 ár hefur Rikisút- gáfa námsbóka verið ein styrk- asta stoð I undirbúningsmennt- un þjöðarinar. Þetta gagn- merka fyrirtæki hefur ekki ver- iö rekið með neinu brauki og bramli, en allt um þaö hefur þaö vaxiðogveldafnað, þó stundum hafi fjárhagur verið þrengri en skyldi. Markmiðið hefur ætið og æfin- lega verið, að leitast viö aö upp- fylla þarfir og eðlilegar kröfur skólanna um bóka- og siðar tækjakost, sem i aðalatriöum sé samstiga við sibreytilega starfshætti. Verður þáttur ríkis- útgáfunnar seint ofmetinn i uppfræðslu landsmanna og hér ræðir um langstærsta bókafor- lag landsins, svo eitthvað sé nefnt. Núverandi forstööumaður Rikisútgáfunnar, Jón Emil Guöjónsson hefur stýrt henni farsællega siðastliðin 20 ár, auk þess, sem hann var mjög viðrið- innfyrirtækiö áður, meðan hann var enn forstöðumaöur Menningarsjóðs. Við leitum nú frétta hjá hon- um: 1. Hvaö geturðu sagt okkur helst, I stuttu máli, um upphaf Rikisútgáfu námsbóka? Otgáfan tók til starfa 1. april 1937 samkvæmt lögum er Alþingi haföi sett árið áöur og veröur hún þvi 40 ára á næsta ári. Frumvarp að þeim lögum var flutt af þáverandi mennta- mál aráðherra, Haraldi Guðmundssyni. En aöalfor- vigismaður þess, að lög þessi voru sett, var Vilmundur Jóns- son, þáverandi landlæknir. 2. Hverjar voru fyrstu bækurn- ar, i hvað stóru upplagi? Sex bækur voru gefnar út á fyrsta starfsári útgáfunnar, þ.e. árið 1937. Það voru Talnadæmi eftir Elias Bjarnason, Islands- saga og Dýrafræði eftir Jónas Jónsson, alls 3 bækur, og tvö hefti af Landafræði eftir Guðjón Guðjónsson. Upplag bókanna var misjafnt, frá 1500-5000 eintök. 3. Hvenær hefst svo þjónusta við framhaldsskólana? Arið 1956 samþykkti Alþingi ný lög um útgáfuna. Frumvarp að þeim lögum var flutt af þá- verandi menntamálaráöherra, Bjarna Benediktssyni. Þessi lög marka að ýmsu leyti þáttaskil i sögu útgáfunnar. M.a. var i þeim ákveðið að unglingar við skyldunám fengju einnig ókeyp- is bækur frá útgáfunni en áður hafði útgáfan einungis gefið út barnaskólabækur. 4. Samstarf við skólana? , Það hefur eðlilega alla tið verið mikið og farið mjög vaxandi siðustu 20 árin, þ.e.a.s. siöan Skólavörubúöin, sem er einn af veigamestu st'arfsþátt- um útgáfunnar, tók til starfa. Yfirleitt hafa þessi viöskipti gengið mjög vel. Útgáfan er lika þjónustustofnun, fyrst og fremst, fyrir skólana og heim- ilin. Fjárhagur útgáfunnar, miðað við verkefnin? Fjárhagur útgáfunnar var mjög bágur fyrstu 20 árin, eða fram til ársins 1956. En með áðurnefndum lögum frá 1956 varð þar á mikil breyting til batnaðar. 1 þeim var ákveðið aö rikissjóður greiddi 1/3 af kostn- aði við útgáfuna en 2/3 hlutar væru greiddir meö svonefndu námsbókagjaldi. Við þetta batnaði verulega hagur útgáf- unnar og svigrúm til athafna jókst. Siöan hefur þetta oft ver- ið i sæmilegu horfi, sum árin erfitt en önnur betra. Niöurfell- ing námsbókagjaldsins 1971 var að minum dómi óheppileg ráð- stöfun og gerði útgáfuna meir en áður háða fjárveitingavald- inu. Undanfarandi ár hafa til- lögur útgáfunnar um fjárlaga- styrk verið skornar niður um 5- 15%. Starfsemi Rikisútgáfunnar er svo veigamikill þáttur i undir- stöðu hins mikla og dýra menntakerfis, sem rikisvaldið hefur komiö upp, að ég tel að það gæti borgað sig fyrir þjóð- félagiðaö búa vel að henni, bæði hvað snertir starfsaðstöðu og fjárframlög. Útgáfan þyrfti að geta aukið þjónustustarfsemi sina á vissum sviðum. Það væri t.d. æskilegt að hún hefði ráð á að verðlauna höfunda fyrir góð- ar kennslubækur og önnur hjálpargögn, gæti gefið út eins konar hjálparblað eöa timarit fyrir kennara, foreldra og nem- endur o.s.frv. 6. Hversu mörg rit eða bókatitl- ar hafa komið út á vegum útgáf- unnar frá öndverðu til þessa dags? Frá byrjun hafa komið út um 450 rit eða ritlingar þegar allt er talið. Samanlagður eintaka- fjöldi þessara rita mun vera eitthvað á 12. milljón. Mikil aukning hefur verið i bókaút- gáfunni á siðustu árum. Arið 1968 eru gefnir út alls 39 titlar hjá útgáfunni, þar af 15 frumút- gáfur. Arið 1971 eru gefnar út alls 77 bækur, þar af 38 frumút- gáfur, og áriö 1975 eru gefnir út alls 99 titlar, þar af 58 frumút- gáfur. Á þessu ári eru á verk- efuaskrá útgáfunnar á annað hundrað titlar. 7. Núverandi uppiag bóka a) Fyrir börn, b) fyrir framhalds- skóla? Algengt upplag úthlutunar- bóka er frá 12.000 - 20.000 eintök hvort sem um barna- eða unglingabækur er að ræða. 8. Tala kennslubókahöfunda? Ég veit hana ekki nákvæm- lega en hún mun vera um 150. 9. Aðstaða útgáfunnar um húsnæði, t.d.? Bókaupplög Rikisútgáfunnar hafa yfirleitt verið mjög stór. Er þar ein höfuðskýringin á þvi hversu mikla þjónustu útgáfan hefur getað innt af hendi þrátt fyrir takmörkuð fjárráð oftast nær. En þessi stóru upplög út- heimta mikið húsnæði. Útgáfan hefur 4 sinnum keypt fasteignir fyrir starfsemi sina og með þvi sparað rikissjóði tugi milljóna. Siðustu árin hefur verið hlaðið á útgáfuna nýjum verkefnum og starfsemi hennar orðið æ umfangsmeiri. Afleiðingin er m.a. sú að útgáfan á nú við mik- il húsnæðisvandræði að striða. 10. önnur starfsemi, t.d. versiun o.þ.h.? Frá ársbyrjun 1957 hefur Rikisútgáfan starfrækt Skóla- vörubúð. Höfuðverkefni hennar er að greiöa fyrir skólunum um útvegun ýmisskonar skólavara og kennsluáhalda. Eg held mér sé óhætt aö segja að Skólavöru- búðin hafi átt mikinn þátt i þvi aö innleiða ýmsar nýjungar i skólana og skapa kennurum betri aðstöðu til meiri fjöl- breytni i skólastörfum. Fram- kvæmdastjóri Skólavörubúðar- innar er Bragi Guðjónsson. 11. Starfslið? Starfsfólk er alls um 25 manns.misjafnlega margt eftir árstimum. Þar af eru 7 manns starfandi aö bókaútgáfunni sjálfri. Hinn hluti starfsliðsins Örlítið brot af bókalager Ríkisútgáfunnar, Brautarbolti 6 Frá iager Skólavörubúðarinnar, Brautarholti 6 skiptist á milli bókaafgreiðsl- unnar og Skólavörubúðar. 12. Það sem framundan er? Ég er nú enginn spámaður og treysti mér ekki til að spá um það. A 30 ára fmæli útgáfunnar, fyrir 10 árum, sagði ég m.a. i grein um útgáfuna: „Allmikið er nú rætt og ritað um skólamálin hér. Og senni- legt er að framundan séu miklar breytingar á islensku skólakerfi og kennsluháttum. Undirstaða margra þessara breytinga yröi m.a. sú að völ væri á hentugum kennslubókum og hjálpargögn- um . 1 þvi efni gæti Rikisútgáf- an vissulega haft mikilvægu hlutverki að gegna. Hún þyrfti t.d. að hafa ráð á þvi að gefa út sérstakarbækur og hjálpargögn fyrir vangefna nemendur og A lager Skólavöru- búðarinnar Spjallað við Braga Guðjónsson, forstöðumann Skólavörubúðarinnar

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.